Fara í efni  

Félagsmálaráð (2002-2008)

629. fundur 01. október 2002 kl. 16:00 - 17:30

629. fundur félagsmálaráðs haldinn á félagsmáladeild
Stillholti 16-18, þriðjud. 1. okt. 2002 og hófst hann kl.16:00.

Mættir voru: Ágústa Friðriksdóttir
 Sigurður Arnar Sigurðsson
 Tryggvi Bjarnason,
 Sæmundur Víglundsson
 Oddný Valgeirsdóttir.
 Auk þeirra félagsmálastjóri, Sólveig Reynisdóttir og Sveinborg Kristjánsdóttir félagasráðgjafi ritaði fundargerð. Trúnaðarbók ritaði Oddný Valgeirsdóttir.

Fundur settur af formanni.

Fyrir tekið:

1. Fjárhagsaðstoð
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.

2. Barnavernd
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.

3. Námskeið fyrir jafnréttisnefndir
Jafnréttisstofa stendur fyrir námskeiði ?Jafnt er betra? í Borgarnesi miðvikudaginn 16. okt. Félagsmálaráð óskar eftir því við bæjarráð að nefndarmenn fái leyfi til að sækja námskeiðið.

4. Leiguíbúðir Akraneskaupstaðar
Lagður fram listi yfir leiguíbúðir Akraneskaupstaðar og leigjendur þeirra.

5. Þróun fjárhagsaðstoðar
Lagt fram yfirlit yfir þróun fjárhagsaðstoðar frá 1995 til 2001.

6. Fjöldi barnaverndarmála
Lagt fram yfirlit yfir fjölda barnaverndarmála árin 1997-2001.

7. Kostnaður vegna barnaverndarmála
Lagt fram yfirlit yfir áætlaðan kostnað vegna barnaverndarmála til áramóta.

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 17:30

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00