Fara í efni  

Bæjarstjórn

1112. fundur 26. október 2010 kl. 17:00 í bæjarþingsalnum, Stillholti 16-18
Fundargerð ritaði: Árni Múli Jónasson Bæjarstjóri
Dagskrá

1.Bæjarstjórn - 1111

1010006

Fundargerð 1111.fundar bæjarstjórnar frá 12. okt. 2010.

Fundargerðin staðfest 9:0

2.Bæjarráð - 3091

1010014

Fundargerð 3091. fundar bæjarráðs frá 21. okt. 2010.

Fundargerðin lögð fram.

3.Byggingaframkvæmdir og staða byggingafyrirtækja.

1010101

Kosning þriggja aðila í starfshóp vegna byggingaframkvæmda á Akranesi.

Eftirtaldir voru kjörnir:

3.1.Gjaldskrá fyrir gatnagerðargjald, stofngjald fráveitu, byggingarleyfis- og þjónustugjöld

1010036

Lagt fram.

3.2.Höfðasel - Akrafjallsvegur

1007019

Lagt fram.

4.Garðakaffi

1009018

Bréf bæjarstjóra, dags. 20. okt. 2010, varðandi málsmeðferð við sölu kaffivélar.

Lagt fram.

5.Reglur um sölu eigna í eigu Akraneskaupstaðar og stofnana hans

1010146

Drög að reglum um sölu eigna í eigu Akraneskaupstaðar og stofnana hans, en bæjarráð samþykkti á fundi sínum 21. okt. s.l. að vísa þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Til máls tóku:

Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi reglur.

6.Langisandur ehf.- hótelbygging

1003189

Minnisblað framkvæmdastjóra Framkvæmdastofu, dags. 8. okt. 2010, varðandi greiðslu kostnaðar vegna aðal- og deiliskipulags vgna breytinga sem gera þurfti á skiuplagi bæjarins vegna væntanlegrar hótelbyggingar Langasands ehf. Sú fjárhæð sem kæmi til greiðslu hjá Akraneskaupstað er samtals kr. 1.028.473 og er vsk þar af kr. 208.986 sem fæst endurgreiddur. Nettó kostnaður kaupstaðarins er þannig kr. 819.487.-

Bæjarstjórn samþykkir erindið og vísar fjármögnun til endurskoðunar fjárhagsáætlunar 9:0.

7.Bæjarskrifstofur - endurnýjun ljósritunarvéla

1010141

Bréf deildarstjóra þjónustudeildar, dags. 19. okt. 2010, varðandi endurnýjun ljósritunarvéla á bæjarskrifstofum. Um er að ræða rekstrarleigu til ársins 2015 vegna vélar að fjárhæð kr. 2.905.594 og kaup á nýrri vél að fjárhæð kr. 99.900 m.vsk.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa erindinu til fjárhagsáætlunargerðar ársins 2011.

8.OneSystems - Yfirfærsla úr Exchange yfir í SQL netþjón

1010136

Bréf deildarstjóra bókhaldsdeildar og deildarstjóra þjónustudeildar, dags. 18. okt. 2010, þar sem óskað er fjárveitingar vegna yfirfærslu á One kerfi úr Exchange yfir í SQL netþjón. Kostnaður er áætlaður samtals kr. 1.100.000.-

Bæjarstjórn samþykkir að vísa erindinu til fjárhagsáætlunargerðar ársins 2011.

9.Íþróttahúsið Vesturgötu/Bjarnalaug

1009161

Bréf framkvæmdaráðs, dags. 20. okt. 2010, varðandi beiðni rekstrarstjóra íþróttamannvirkja, dags. 27. sept. 2010, um heimild til búnaðarkaupa vegna kennslu í Bjarnalaug og íþróttahúsinu við Vesturgötu, samtals að fjárhæð kr. 464.000. Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar var ekki áætluð nein fjárhæð til endurnýjunar búnaðar eða viðhalds tækja í fjárhagsáætlun íþróttamannvirkja. Lagt er til við bæjarráð og bæjarstjórn að veitt verði umbeðin aukafjárveiting til kaupa á búnaðinum.
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 21. okt. s.l. að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar og leggur til að því verði vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.

Bæjarstjórn samþykkir erindið og vísar fjármögnun til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.

10.Íþróttamannvirki - aðstöðumál ÍA

1008087

Bréf framkvæmdaráðs, dags. 20. okt. 2010, varðandi erindi starfshóps um uppbyggingu íþróttamannvirkja, þar sem Framkvæmdastofu er falið að kostnaðarmeta endurbætur í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Meðf. er minnisblað verkefnastjóra Framkvæmdastofu, dags. 17. okt. 2010, varðandi áætlaðan kostnað vegna loftræstingar í tveimur æfingasölum (speglasal og aðstöðu boxara). Áætlaður kostnaður við verkið er 1.415 þú.skr. Framkvæmdaráð samþykkti með vísan til tillögu starfshópsins að leggja til við bæjarráð og bæjarstjórn að aukafjárveiting verði veitt til framkvæmda á verkinu. Bæjarráð samþykkti 21. okt. s.l. að vísa erindinu áfram til afgreiðslu bæjarstjórnar og leggur til að því verði vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.
Bæjarráð áréttar að ekki verði ráðist í framkvæmdir nema fyrir liggi fjárheimild frá bæjarstjórn.

Bæjarstjórn samþykkir erindið og vísar fjármögnun til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.

10.1.Reglur um ráðningu starfsmanna.

1009159

Lagt fram.

11.Strætisvagn Akraness

908106

Bréf framkvæmdastjóra Fjölskyldustofu, dags. 5. okt. 2010, varðandi fjölgun ferða strætisvagns Akraness. Bæjarráð óskaði á fundi sínum 2. sept. s.l. eftir umsögn Fjölskyldustofu á tímatöflu strætisvagns með hliðsjón af nýtingu leikskóla á vagninum. Óskað var umsagnar leikskólastjóra sem mæla með fjölgun ferða fyrir hádegi þ.e. kl. 10:30 og 11:30. Ekki er hægt að nýta ferðir strætisvagnsins í dag í þágu leikskólastarfs.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa erindinu til fjárhagsáætlunargerðar ársins 2011.

11.1.Haustfundur Samtaka félagsmálastjóra 11. - 12. nóv. 2010

1010140

Lagt fram.

11.2.Úrsögn úr undirkjörstjórn.

1010100

Lagt fram.

11.3.Þjóðahátíð Vesturlands 2010.

1010137

Lagt fram.

11.4.Ágóðahlutagreiðsla 2010

1010118

Lagt fram.

11.5.Landsfundur félags bókasafns og upplýsingafræða - styrkur

1004101

Lagt fram.

11.6.Fab Lab - tilraunastofa

1001073

Lagt fram.

11.7.Fundargerðir OR - 2010

1002247

Lagt fram.

11.8.Faxaflóahafnir sf. - Fundargerðir 2010.

1002157

Lagt fram.

11.9.Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Vesturlands 2010

1010035

Lagt fram.

11.10.Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2010

1007007

Lagt fram.

12.Stjórn Akranesstofu - 36

1010010

Fundargerð stjórnar Akranesstofu frá 19. okt. 2010.
Fundargerðin lögð fram.

12.1.Vökudagar 2010

1010131

Lagt fram.

12.2.Menningarverðlaun 2010

1010130

Lagt fram.

13.Framkvæmdaráð - 46

1010005

Fundargerð 46. fundar framkvæmdaráðs frá 19. okt. 2010.

Til máls tóku:

Gunnar Sigurðsson lagði fram eftirfarandi tillögu:

,,Bæjarstjórn Akraness samþykkir að fela bæjarstjóra að hafa umsjón með og leiða viðræður sem Akraneskaupstaður samþykkir að taka upp við félög og/eða félagasamtök, sem hafa áhuga á að gera sérstaka rekstrarsamninga um afmarkaðar rekstrareiningar, sem skynsamlegt kann að vera að Akraneskaupstaður feli slíkum félögum og/eða félagasamtökum að annast.

Samningar um slík verkefni hafi það að leiðarljósi að viðkomandi verkefni tengist beint starfsemi viðkomandi félaga og/eða félagasamtaka og geti með samlegðaráhrifum komið þeim til góða og að hagur Akraneskaupstaðar felist í greiðslu sanngjarns rekstrarkostnaðar. Slíkir samningar skulu vera til þriggja eða fimm ára í senn."


Akranesi, 26.október 2010

Gunnar Sigurðsson (sign)

Einar Brandsson (sign)

Fundargerðin lögð fram.

13.1.Íþróttamiðstöðin Jaðarsbökkum - rekstur íþróttavallar.

912005

Lagt fram.

13.2.Rekstur Akranesvallar og -hallar og æfingasvæðis að Jaðarsbökkum.

1010008

Lagt fram.

13.3.Íþróttamannvirki - aðstöðumál ÍA

1008087

Lagt fram.

13.4.Kattahald - breyting á samþykkt 2010.

1003134

Lagt fram.

13.5.Hundahald - breyting á samþykkt 2010

1001064

Lagt fram.

13.6.Framkvæmdastofa - rekstraryfirlit 2010

1002242

Lagt fram.

13.7.Verklýsing Ægisbraut suðvesturendi

1005029

Lagt fram.

13.8.Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar og stofnana árið 2011

1009156

Lagt fram.

13.9.Trjárækt í hestabeitarhólfi

1009053

Lagt fram.

13.10.Eignir Akraneskaupstaðar - Sláttuvél og hoppukastalar.

1009158

Lagt fram.

13.11.Íþróttahúsið Vesturgötu/Bjarnalaug

1009161

Lagt fram.

14.Fjölskylduráð - 50

1010009

Fundargerð 50. fundar fjölskylduráðs frá 19. okt. 2010.

Fundargerðin lögð fram.

14.1.Heimsóknir í stofnanir Fjölskyldustofu haust 2010

1009114

Lagt fram.

14.2.Endurhæfingarhúsið Hver

1006147

Lagt fram.

14.3.Erindi félagsmálastjóra

1010120

Lagt fram.

14.4.erindi félagsmálastjóra

1010132

Lagt fram.

14.5.erindi félagsmálastjóra

1010133

Lagt fram.

14.6.Erindi félagsmálastjóra

1010119

Lagt fram.

Fundi slitið.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00