Fara í efni  

Bæjarstjórn

1444. fundur 24. nóvember 2026 kl. 16:00 - 17:03 Miðjan, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Ragnar B. Sæmundsson forseti bæjarstjórnar
  • Bjarnheiður Hallsdóttir 1. varaforseti bæjarstjórnar
  • Jón Guðni Guðmundsson 2. varaforseti bæjarstjórnar
  • Líf Lárusdóttir bæjarfulltrúi
  • Guðmundur Ingþór Guðjónsson bæjarfulltrúi
  • Liv Aase Skarstad bæjarfulltrúi
  • Sigurður Vopni Vatnsdal bæjarfulltrúi
  • Jónína Margrét Sigmundsdóttir bæjarfulltrúi
  • Hrafn Ágúst Björnsson bæjarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sturlaugur Haraldsson bæjarstjóri
  • Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála - og þjónustusviðs

1. 2604-3359 - Fjárhagsáætlun 2026 - viðaukar

Tillaga fjármálastjóra varðandi gerð viðauka.

Í viðaukanum eru ýmsar ráðstafanir sem ekki hafa áhrif á rekstrarniðurstöðu en einnig eru breytingar
sem fela í sér auknar tekjur að fjárhæð 256.882.120 kr. vegna nýrra áætlunar frá Jöfnunarsjóði og
endurgreiðslna frá Barna- og fjölskyldustofu.

Bæjarráð samþykkti viðauka nr. 23 við fjárhagsáætlun ársins 2026 á fundi nr. 3638 þann 12.
nóvember sl. og þær tilfærslur sem lagðar eru til í honum af fjármálastjóra sbr. fylgiskjal. Viðaukinn
felur í sér auknar tekjur að fjárhæð kr. 256.882.120 og er mætt með samsvarandi hækkun á áætlaðri
rekstrarniðurstöðu ársins 2026.

Bæjarráð vísaði viðaukanum til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Til máls tók:
JMS.

Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 23 við fjárhagsáætlun ársins 2026 sem fela í sér auknar tekur að
fjárhæð kr. 256.882.120 sem er mætt með samsvarandi hækkun á áætlaðri rekstrarniðurstöðu ársins
2026.

Samþykkt 9:0

 

2. 2601-0892 - Fjöliðjan - beiðni um aukið stöðugildi leiðbeinanda

Beiðni um nýtt stöðugildi leiðbeinanda í Fjöliðju.

Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 3. nóvember 2026 var gerð eftirfarandi bókun:
Velferðar- og mannréttindaráð er fylgjandi því að samþykkja aukningu um eitt stöðugildi út árið
2027, með möguleika á framlengingu, á grundvelli fyrirliggjandi gagna.

Velferðar- og mannréttindaráð áréttar mikilvægi þess að innleitt verði mönnunarmódel fyrir
Fjöliðjuna til að tryggja öryggi og skýra yfirsýn.

Málinu var vísað til afgreiðslu í bæjarráði.

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nr. 3638 þann 12. nóvember sl. fyrirliggjandi tillögu velferðar- og
mannréttindaráðs um um tímabundna aukningu um eitt stöðugildi hjá Fjöliðjunni og að gera ráð fyrir
útgjöldunum í fjárhagsáætlun vegna ársins 2027.

Bæjarráð samþykkti viðauka nr. 24 vegna viðbótarkostnaðar sem fellur til á árinu 2026 vegna þessa,
samtals að fjárhæð kr. 1.768.434, og að útgjöldunum yrði mætt með lækkun á væntum
rekstrarafgangi ársins.

Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 24 við fjárhagsáætlun ársins 2026 sem fela í sér aukin útgjöld að
fjárhæð kr. 1.768.434 og er mætt með samsvarandi lækkun á áætlaðri rekstrarniðurstöðu ársins
2026.

Samþykkt 9:0

 

3. 2609-7066 - Samningur um móttöku flóttafólks 2027

Mikilvægt er að breytingar á móttöku flóttafólks verði undirbúnar í nánu samstarfi við sveitarfélögin
og aðra hlutaðeigandi aðila. Jafnframt er ljóst að breytingar á þjónustukerfum kalla á vandaðan
undirbúning og geta því ekki komið að fullu til framkvæmda fyrr en á síðari hluta árs 2027. Af þeim
sökum óskar ráðuneytið efir því að núgildandi samningar um samræmda móttöku flóttafólks verði
framlengdir til ársloka 2027.

Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 3. nóvember 2026 var gerð eftirfarandi bókun:
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir viðauka við þjónustusamning um samræmda móttöku
flóttafólks fyrir sitt leyti, sem felur í sér lækkun á heildarfjölda samnings úr 100 einstaklingum í 50,
en það er til samræmis við raunnýtingu.

Velferðar- og mannréttindaráð óskar eftir staðfestingu frá ráðuneytinu um að fjöldi í samningi taki
breytingum til samhliða mögulegri fjölgun í hópi flóttafólks á árinu 2027.

Málinu var vísað til afgreiðslu í bæjarráði.

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nr. 3638 þann 12. nóvember sl. fyrirliggjandi viðauka við
þjónustusamning um samræmda móttöku flóttafólks. Með viðaukanum lækkar sá fjöldi einstaklinga
sem samningurinn tekur til úr 100 í 50, í samræmi við raunnýtingu þjónustunnar.

Bæjarráð tók undir bókun velferðar- og mannréttindaráðs og óskaði eftir staðfestingu ráðuneytisins
á því að fjölga megi þeim sem samningurinn tekur til, ef flóttafólki sem þarf á þjónustunni að halda
fjölgar á árinu 2027.

Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi viðauka við þjónustusamning um samræmda móttöku
flóttafólks en óskar eftir staðfestingu ráðuneytisins á að fjölga megi þeim sem samningurinn tekur
til ef flóttafólki sem þarf á þjónustunni halda á því tímabili sem fellur undir gildistíma samningsins.

Samþykkt 9:0

 

4. 2601-0726 - Akstursþjónusta Akraneskaupstaðar

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nr. 3638 þann 12. nóvember sl. beiðni Höfða hjúkrunar- og
dvalarheimilis um að Akraneskaupstaður endurnýi bifreið ferðaþjónustu fatlaðs fólks. Höfði sinnir
akstursþjónustunni fyrir hönd Akraneskaupstaðar samkvæmt samkomulagi þar um.

Áætlað kaupverð bifreiðarinnar er um 13 m.kr. miðað við gengi í byrjun október 2026 en við bætist
allt að 1,0 m.kr. vegna kostnaðar tengt flutningi til landsins og umsýslu við innflutninginn.

Bæjarráð samþykkti viðauka nr. 25 við fjárhagsáætlun ársins vegna framangreinds, samtals að
fjárhæð kr. 14,0 m.kr., en útgjöldunum yrði mætt með lækkun á væntum rekstrarafgangi ársins.

Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 25 við fjárhagsáætlun ársins 2026 sem fela í sér aukin útgjöld að
fjárhæð kr. 14,0 m.kr. og er mætt með samsvarandi lækkun á áætlaðri rekstrarniðurstöðu ársins
2026.

Samþykkt 9:0

 

5. 2610-8224 - Kostnaðaruppgjör - Undirbúningsvinna vegna stækkunar Höfða

Í tengslum við fyrirhugaða stækkun hjúkrunarheimilisins Höfða óskar stjórn Höfða eftir því að
eigendur standi straum af áföllnum kostnaði tengt undirbúningi verkefnisins (frumathugum,
þarfagreining, o.fl.) samtals að fjárhæð kr. 3.822.800 sem og væntum kostnaði vegna komandi
skipulagsvinnu á árinu 2027. Gert er ráð fyrir kostnaðarskiptingu skv. eignarhlutföllum
sveitarfélaganna í heimilin þ.e. að Akraneskaupstaður beri 90% kostnaðarins og Hvalfjarðarsveit 10%
kostnaðarins.

Bæjarráð samþykkti erindið á fundi sínum nr. 3638 þann 12. nóvember sl. og viðauka nr. 26 samtals
að fjárhæð kr. 3.444.520 og að útgjöldunum yrði mætt með lækkun á væntum rekstrarafgangi ársins
2026.

Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar. Bæjarráð samþykkti að gera ráð
fyrir útgjöldum í fjárhagsáætlun ársins 2027 til samræmis við fyrirliggjandi kostnaðaraðaráætlun sem
er af stærðargráðunni 5,8 til 7,8 m.kr.

Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 26 við fjárhagsáætlun ársins 2026 sem fela í sér aukin útgjöld að
fjárhæð kr. 3.444.520 og er mætt með samsvarandi lækkun á áætlaðri rekstrarniðurstöðu ársins
2026.

Samþykkt 9:0

 

6. 2611-8501 - Framkvæmdasjóður aldraðra 2027

Varðar fyrirhugaða umsókn stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis í Framkvæmdasjóð aldraðra
vegna viðhaldsverkefna árið 2027.

Stjórn höfða óskar eftir aðkomu eigenda Höfða að fjármögnun verkefnanna samhliða umsóknum um
framlag úr Framkvæmdasjóði aldraðra á árinu 2027.

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nr. 3638 þann 12. nóvember sl. beiðni stjórnar Höfða um að
Akraneskaupstaður taki þátt í fjármögnun fjögurra viðhaldsverkefna við fasteign Höfða árið 2027.
Framlag Akraneskaupstaðar miðast við hlut bæjarins í mótframlagi eigenda samkvæmt fyrirliggjandi
kostnaðaráætlun og er háð því að Framkvæmdasjóður aldraðra veiti 50% styrk til verkefnanna. Verði
styrkhlutfallið lægra en 50% eða forsendur kostnaðaráætlunar breytist skal leggja málið að nýju fyrir
bæjarráð.

Bæjarstjórn samþykkir að taka þátt í fjármögnun fjögurra viðhaldsverkefna við fasteign Höfða á
árinu 2027 en framlagið er háð því að Framkvæmdasjóður aldraðra veiti 50% styrk til verkefnanna.
Áætlaður heildarkostnaður framkvæmdanna er kr. 25.015.589 og hlutur Akraneskaupstaðar í
samræmi við 90% eignarhlut áætlaður kr. 11.257.015.

Samþykkt 9:0

 

7. 2609-6414 - Umsókn til skipulagsfulltrúa - Skagabraut 31

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Arnardalsreits vegna Skagabrautar 31 sem
grenndarkynnt var frá 12. október til 8. nóvember. Breytingin felst í að heimila tvær íbúðir í húsinu,
afmarka byggingarreit um núverandi hús og svalir og gera grein fyrir bílastæðum innan lóðar. Engar
athugasemdir bárust.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að breyting á deiliskipulagi Arnardalsreits vegna
Skagabrautar 31 verði samþykkt samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin
verði send Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun og gildistaka hennar auglýst í B-deild
Stjórnartíðinda.

Bæjarstjórn samþykkir breytingu á deiliskipulagi Arnardalsreits vegna Skagabrautar nr. 31 skv. 2.
mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að breytingin verði send Húsnæðis-, mannvirkja- og
skipulagsstofnun og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.

Samþykkt 9:0

 

8. 2611-8292 - 3638. fundur bæjarráðs

3638. fundargerð bæjarráðs frá 12. nóvember 2026.

Til máls tóku:
LL um dagskrárlið nr. 10.
HÁB um dagskrárlið nr. 5.
SVV um dagskrárlið nr. 10.
LL um dagskrárliði nr. 5 og nr. 10.

SVV um dagskrárlið nr. 10.
HÁB um dagskrárlið nr. 5.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

9. 2611-8482 - 10. fundur mennta- og menningarráðs

10. fundargerð mennta- og menningarráðs frá 17. nóvember 2026.

Til máls tóku:
SVV um dagskrárliði nr. 2, nr. 4, nr. 5 og nr. 6.
HÁB um dagskrárliði nr. 2, nr. 5, nr. 9 og nr. 11.
SVV um dagskrárlið nr. 5 og nr. 11.
LÁS um dagskrárliði nr. 5, nr. 11, nr. 7, nr. 8 og nr. 9.
HÁB um dagskrárlið nr. 11.
SVV um dagskrárlið nr. 11.
HÁB um dagskrárlið nr. 11.
LL um dagskrárlið nr. 11.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

10. 2610-8209 - 366. fundur skipulags- og umhverfisráðs

366. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 16. nóvember 2026.

Til máls tóku:
JGG um dagskrárliði nr. 1 og nr. 2.
SVV um dagskrárliði nr. 1 og nr. 2.

Forseti óskar eftir afleysingu við stjórn fundarins þar sem hann hyggst taka til máls.

BH, 1. varaforseti, tekur við stjórn fundarins.

Framhald umræðu:
RBS um dagskrárliði nr. 1 og nr. 2.
SVV um dagskrárliði nr. 1 og nr. 2.
RBS um dagskrárliði nr. 1, nr. 2 og nr. 4.
HÁB um dagskrárliði nr. 1 og nr. 2.

Forseti tekur að nýju við stjórn fundarins og þakkar 1. varaforseta fyrir afleysinguna.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

11. 2611-8503 - 276. fundur velferðar- og mannréttindaráðs

276. fundargerð velferðar- og mannréttindaráðs frá 17. nóvember 2026.

Fundargerðin lögð fram til kynningar

 

12. 2604-2885 - Fundargerðir september 2026 - Orkuveita Reykjavíkur

381. fundargerð stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 28. september 2026.

Til máls tók:
SVV um dagskrárlið nr. 6 og leggur fram eftirfarandi bókun fulltrúa Samfylkingar:

„Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar á Akranesi eru á móti áformum um sölu Ljósleiðarans. Við leggjum
áherslu á að verja mikilvæga almannahagsmuni og tryggja að ákvarðanir um framtíð sameiginlegra
eigna íbúa séu teknar af ábyrgð, með gagnsæi og langtímahagsmuni samfélagsins að leiðarljósi.
Ákvarðanir um sölu slíkra eigna geta haft varanleg áhrif á komandi kynslóðir og eiga því ekki að vera
teknar án víðtækrar samstöðu og raunverulegs samráðs við íbúa. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar
telja mikilvægt að íbúar Akraness fái tækifæri til að láta afstöðu sína í ljós áður en teknar eru
ákvarðanir um sölu Ljósleiðarans.“

Sigurður Vopni Vatnsdal (sign)

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

13. 2602-1290 - Fundargerðir október 2026 - Samband íslenskra sveitarfélaga

1005. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30. október 2026.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.


Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu