Bæjarstjórn
Forseti býður fundarmenn velkomna til fundarins.
Forseti gerir þá málsmeðferðartillögu að umræða um dagskrárliði nr. 1 til og með nr. 3, sem varða
fjárhagsáætlun ársins 2027 og þriggja ára áætlun vegna tímabilsins 2028 til og með 2030, verði tekin í
einni umræðu undir dagskrárlið nr. 3 og verði bókaðar þar. Ákvörðun um afgreiðslu málanna verði
hins vegar bókuð undir hlutaðeigandi dagskrárliðum.
Samþykkt 9:0
1. 2610-8223 - Fjárhagsáætlun Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis - Fyrri umræða í stjórn Höfða
Dvalarheimið Höfði - Fjárhagsáætlun 2027 - 2030.
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nr. 3637 þann 4. nóvember sl. að vísa fjárhagsáætlun Höfða
vegna ársins 2027 og þriggja ára áætlun vegna tímabilsins 2028 til og með 2030 til fyrri umræðu í
bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa fjárhagsáætlun Höfða vegna ársins 2027 og þriggja ára áætlun
vegna tímabilsins 2028 til og með 2030 til síðari umræðu í bæjarstjórn sem fer fram þriðjudaginn 8.
desember næstkomandi.
Samþykkt 9:0
2. 2605-3445 - Fjárfestingaráætlun vegna tímabilsins 2027-2030
Fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun ársins 2027 og vegna tímabilsins 2028 til og með 2030.
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nr. 3637 þann 4. nóvember sl. að vísa fjárfestinga- og
framkvæmdaáætlun ársins 2027 og þriggja ára áætlun vegna tímabilsins 2028 til og með 2030 til
fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun vegna ársins 2027 og þriggja
ára áætlun vegna tímabilsins 2028 til og með 2030 til síðari umræðu í bæjarstjórn sem fer fram
þriðjudaginn 8. desember næstkomandi.
Samþykkt 9:0
3. 2606-4745 - Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun vegna tímabilsins 2028-2030
Fjárhagsáætlunar vegna ársins 2027 og þriggjá ára áætlun vegna tímabilsins 2028 til og með 2030.
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nr. 3637 þann 4. nóvember sl. að vísa fjárhagsáætlun vegna
ársins 2027 og þriggja ára áætlun vegna tímabilsins 2028 til og með 2030, ásamt tillögum sem
meðfylgjandi voru áætluninni, til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Til máls tóku:
SH sem gerir ráð fyrir helstu hagstærðum áætlunarinnar.
Framhald umræðu:
BH, LL, LÁS, JGG sem leggur fram eftirfarandi bókanir Viðreisnar:
Alvarleg staða í leikskólamálum
Við í Viðreisn á Akranesi viljum gagnrýna það að fyrst núna séu að koma fram skýr áform um lausn
á leikskólamálum á Akranesi. Réttum 10 dögum fyrir kosningar í vor kom opinber yfirlýsing um að
til stæði að stækka Akrasel til að mæta þörf á leikskólaplássum. Stjórnendur leikskólanna á
Akranesi voru með í ráðum, sem var til fyrirmyndar, og búið að fara í mikla undirbúningsvinnu og
tilfæringar í leikskólunum til þess að dekka vandann tímabundið undir þeim formerkjum að þessi
stækkun væri komin á dagskrá. Einnig var innritunaraldur barna næstu mánuði ákveðinn í
samræmi við þetta. Við í Viðreisn skiljum enn ekki hvers vegna var horfið svo skyndilega frá þessum
áformum með þeim afleiðingum að lausn á brýnum vanda hefur frestast um allt að 6 mánuði.
Leikskólarnir okkar tóku á sig aukið álag því lausn var í sjónmáli og lýsum við yfir áhyggjum af þeim
starfsaðstæðum sem nú þarf að leggja enn lengur á starfsfólk og börn. Við köllum eftir því að allt
verði gert til þess að létta undir með leikskólunum á meðan lausnar er beðið og að allur kraftur
verði settur í að koma þessum framkvæmdum sem allra fyrst í gang.
Gagnrýni á forgangsröðun í fjárfestingu
Við í Viðreisn á Akranesi gagnrýnum forgangsröðun í fjárfestingaráætlun. Okkur í Viðreisn finnst að
hér sé verið að setja fram marga fjárfestingarkosti án þess að búið sé að leggja fram heildstæða
framtíðarsýn í málefnum íþróttamannvirkja, þar sem gerð er grein fyrir viðhaldsþörf, endurnýjun
og uppbyggingu nýrra mannvirkja. Það er nefnilega gott að skoða hvert er stefnt áður en lagt er af
stað. Því hefði verið æskilegt að heildstæð framtíðarsýn fyrir íþróttamannvirki á Akranesi lægi fyrir
áður en ráðist er í stórar framkvæmdir.
Jón Guðni Guðmundsson (sign)
Framhald umræðu:
LÁS, SVV, JMS, HÁB og BH.
Forseti óskar eftir afleysingu við fundarstjórn þar sem hann hyggst taka til máls.
BH, 1. varaforseti, tekur við stjórn fundarins.
Framhald umræðu:
RBS, SVV, LÁS, HÁB, RBS, SSV, JGG, LÁS, RBS, SVV, LÁS og HÁB.
Forseti tekur að nýju við stjórn fundarins og þakkar 1. varaforseta fyrir afleysinguna.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar vegna ársins 2027 og þriggja ára
áætlun vegna tímabilsins 2028 til og með 2030, ásamt tillögum sem meðfylgjandi eru áætluninni,
til síðari umræðu í bæjarstjórn sem fer fram þriðjudaginn 8. desember næstkomandi.
Samþykkt 9:0
4. 2610-8218 - Gjaldskrá sorphirðu - fyrir 2027
Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á fundi sínum nr. 365, þann 2. nóvember sl. breytingar á
gjaldskrá sem fela í sér að meðaltali um 12% lækkun á sorphirðugjöldum á árinu 2027 og vísaði
málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar staðfestingar.
Bæjarstjórn samþykktir gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs hjá Akraneskaupstað vegna ársins
2027.
Samþykkt 9:0
5. 2605-3704 - Breyting á deiliskipulagi Höfðasels
Lögð er fram að lokinni auglýsingu tillaga að breytingu á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis í Höfðaseli
vegna tengingar Grjótkelduflóa við Akrafjallsveg. Tillagan var auglýst skv. 1. mgr. 43. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010 frá 7. september til og með 19. október 2026. Ein umsögn barst frá
Veitum þar sem bent er á stofnlögn á framkvæmdasvæðinu og óskað eftir samráði vegna
framkvæmda.
Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á fundi sínum nr. 365 þann 2. nóvember sl. að leggja til við
bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og birt
í B-deild Stjórnartíðinda. Við hönnun og framkvæmd verði haft samráð við Veitur vegna
stofnlagnar á svæðinu.
Bæjarstjórn samþykkir breytingu á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis í Höfðaseli vegna tengingar
Grjótkelduflóa við Akrafjallsveg, að breytingin verði send Húsnæðis-, mannvirkja- og
skipulagsstofnun og birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Samþykkt 9:0
6. 2601-0362 - Úthlutun lóða í Skógarhverfi 3C - Reglur
Reglur um úthlutun lóða í Skógarhverfi 3C.
Gildistími fyrri reglna var til og með 31. ágúst 2026.
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nr. 3634 þann 12. október sl. að fela bæjarstjóra að láta vinna
drög að nýjum viðauka um breytta gjalddaga í Skógarhverfi 3C sambærilegar þeim sem voru í gildi
fyrr á árinu.
Bæjarráð samþykkti reglurnar á fundi sínum nr. 3636 þann 29. október sl. og vísar þeim til
bæjarstjórnar til endanlegrar samþykktar.
Til máls tók: JGG.
Bæjarstjórn samþykkir uppfærðar úthlutunarreglur vegna lóða í Skógarhverfi 3C, sem gildi vegna
úthlutana tímabilið 1. nóvember 2026 til og með 31. desember 2027.
Samþykkt 9:0
7. 2609-7005 - Siðareglur kjörinna fulltrúa Akraneskaupstaðar 2026
Siðareglur kjörinna fulltrúa Akraneskaupstaðar 2026 - 2030. Málið var á dagskrá bæjarráðsfundar
nr. 3634 þann 12. október sl en afgreiðslu þess frestað til næsta fundar. Bæjarráð samþykkti
reglurnar á fundi sínum nr. 3636 þann 29. október sl. og vísaði þeim til bæjarstjórnar til
endanlegrar ákvörðunar.
Bæjarstjórn samþykkir siðareglur kjörinna fulltrúa vegna tímabilsins 2026 - 2030.
Samþykkt 9:0
8. 2610-7700 - 3636. fundur bæjarráðs
3636. fundargerð bæjarráðs frá 29. október 2026.
Forseti gerir þá málsmeðferðartillögu að umræða um dagskrárliði nr. 8 og nr. 9 verði tekin saman í
einni umræðu undir dagskrárlið nr. 8 en færð til bókar undir viðeigandi dagskrárlið.
Engin athugasemdir gerð við tillöguna að hálfu bæjarfulltrúa.
Til máls tóku:
LL um dagskrárliði nr. 2, nr. 6, nr. 7 og nr. 10.
HÁB um dagskrárlið nr. 7.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
9. 2611-8291 - 3637. fundur bæjarráðs
3637. fundargerð bæjarráðs frá 4. nóvember 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
10. 2610-7472 - 8. fundur mennta- og menningarráðs
8. fundargerð mennta- og menningarráðs frá 21. október 2026.
Forseti gerir þá málsmeðferðartillögu að umræða um fundarliði nr. 10 og nr. 11 verði tekin saman í
einni umræðu undir dagskrárlið nr. 10 en færð til bókar undir viðeigandi dagskrárlið.
Engin athugasemdir gerð við tillöguna að hálfu bæjarfulltrúa.
Til máls tóku:
JGG um dagskrárlið nr. 6.
SVV um dagskrárlið nr. 6.
HÁB um dagskrárlið nr. 1.
LÁS um dagskrárliði nr. 6 og nr. 1.
JMS um dagskrárliði nr. 2 og nr. 7.
LÁS um dagskrárliði nr. 7, nr. 2 og nr. 6.
SVV um dagskrárliði nr. 6 og nr. 7.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
11. 2610-8104 - 9. fundur mennta- og menningarráðs
Fundargerð 9. fundar mennta- og menningarráðs frá 3. nóvember 2026.
Til máls tóku:
HÁB um dagskrárlið nr. 6.
LÁS um dagskrárlið nr. 6.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
12. 2610-7696 - 364. fundur skipulags- og umhverfisráðs
364. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 26. október 2026.
Forseti gerir þá málsmeðferðartillögu að umræða um fundarliði nr. 12 og nr. 13 verði tekin saman í
einni umræðu undir dagskrárlið nr. 12 en færð til bókar undir viðeigandi dagskrárlið.
Engin athugasemdir gerð við tillöguna að hálfu bæjarfulltrúa.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
13. 2610-7977 - 365. fundur skipulags- og umhverfisráðs
365. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 2. nóvember 2026.
Til máls tóku:
SVV um dagskrárlið nr. 2.
Forseti óskar eftir afleysingu við stjórn fundarins þar sem hann hyggst taka til máls.
BH, 1. varaforseti, tekur við stjórn fundarins.
Framhald umræðu:
RBS um dagskrárliði nr. 2, nr. 1, nr. 3, nr. 5 og nr. 14.
HÁB um dagskrárliði nr. 1, nr. 2, nr. 5, og nr. 14.
RBS um dagskrárlið nr. 5.
Forseti tekur að nýju við stjórn fundarins og þakkar 1. varaforseta fyrir afleysinguna.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
14. 2610-7771 - 274. fundur velferðar- og mannréttindaráðs
274. fundargerð velferðar- og mannréttindaráðs frá 27. október 2026.
Forseti gerir þá málsmeðferðartillögu að umræða um fundarliði nr. 14 og nr. 15 verði tekin saman í
einni umræðu undir dagskrárlið nr. 14 en færð til bókar undir viðeigandi dagskrárlið.
Engin athugasemdir gerð við tillöguna að hálfu bæjarfulltrúa.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
15. 2610-8114 - 275. fundur velferðar- og mannréttindaráðs
275. fundargerð velferðar- og mannréttindaráðs frá 3. nóvember 2026.
Til máls tóku:
BH um dagskrárlið nr. 4.
HÁB um dagskrárlið nr. 4.
Forseti óskar eftir afleysingu við stjórn fundarins þar sem hann hyggst taka til máls.
BH, 1. varaforseti, tekur við stjórn fundarins.
Framhald umræðu:RBS um dagskrárlið nr. 4.
HÁB um dagskrárlið nr. 4.
Forseti tekur að nýju við stjórn fundarins og þakkar afleysinguna.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
16. 2601-0928 - Fundargerðir október 2026 Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili
174. fundargerð stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis frá 26. október 2026.
Til máls tók:
HÁB um fundargerðina almennt.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
17. 2602-1293 - Fundargerðir október 2026 - Faxaflóahafnir
272. fundargerð stjórnar Faxaflóahafna sf. frá 16. október 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
18. 2610-8257 - Fundargerðir 2026 - Samtök sjávarútvegssveitarfélag
99. fundargerð stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 24. ágúst 2026.
100. fundargerð stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 21. september 2026.
101. fundargerð stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 2. október 2026.
Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





