Fara í efni  

Bæjarstjórn

1442. fundur 27. október 2026 kl. 16:00 - 16:58 Miðjan, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Ragnar B. Sæmundsson forseti bæjarstjórnar
  • Bjarnheiður Hallsdóttir 1. varaforseti bæjarstjórnar
  • Jón Guðni Guðmundsson 2. varaforseti bæjarstjórnar
  • Líf Lárusdóttir bæjarfulltrúi
  • Sigurður Vopni Vatnsdal bæjarfulltrúi
  • Liv Aase Skarstad bæjarfulltrúi
  • Guðmundur Ingþór Guðjónsson bæjarfulltrúi
  • Jónína Margrét Sigmundsdóttir bæjarfulltrúi
  • Hrafn Ágúst Björnsson bæjarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sturlaugur Haraldsson bæjarstjóri
  • Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs

Forseti leggur til að dagskrárliður nr. 7, fundargerð mennta- og menningarráðs frá 21. október sl.
verði tekinn af dagskrár þar sem fundargerðin var ekki kláruð með rafrænni undirskrift ráðsmanna og
kom síðar í fundargátt en Samþykkt um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar nr. 650/2026 með
síðari breytingum, gerir ráð fyrir.

Samþykkt 9:0

 

1. 2609-7111 - Suðurgata 126 - Umsókn til skipulagsfulltrúa

Guðlaugur I. Maríasson sækir, fyrir hönd S126 ehf., um breytingu á deiliskipulagi Sementsreits
vegna Suðurgötu 126. Tillagan felur í sér að kvöð um göngutengsl almennings innan lóðarinnar
verði felldur út. Aðrir skilmálar gildandi deiliskipulags haldast óbreyttir. Með erindinu fylgir
skipulagsuppdráttur dags. 30. september 2026.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkt á fundi sínum nr. 362. þann 5. október sl. tillögu að breytingu
á deiliskipulagi Sementsreits vegna Suðurgötu 126. Breytingin felur í sér að kvöð um göngutengsl
innan lóðarinnar verði felld út. Málsmeðferð verði sem óveruleg breyting skv. 3. mgr. 44. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir að málsmeðferð verði samkvæmt 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
þar sem breytingin varðar ekki hagsmundi annarra en umsækjanda og sveitarfélagsins. Bæjarstjórn
samþykkir deiliskipulagsbreytinguna, að hún verði send Húsnæðis, mannvirkja- og skipulagsstofnun
og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.

Samþykkt 9:0

 

2. 2601-0361 - Úthlutun lóða í Flóahverfi - Reglur

Í gildi var viðauki við gjaldskrá um breytta gjalddaga gatnagerðargjalds í Flóahverfi, tímabilið frá 1.
janúar 2026 til og með 31. ágúst 2026.

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nr. 3633 þann 22. september sl. að fela bæjarstjóra að láta vinna
drög að nýjum viðauka um breytta gjalddaga í Flóahverfi sambærilega þeim sem voru í gildi fyrr á
árinu.

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nr. 3634 þann 12. október 2026 úthlutunarreglur vegna
úthlutunar atvinnulóða í Flóahverfi sem gilda eiga tímabilið 1. nóvember nk. til og með 31.
desember 2027 og vísaði reglununum til bæjarstjórnar til endanlegrar samþykktar.

Til máls tók:
JGG.

Bæjarstjórn samþykkir úthlutunarreglur vegna atvinnulóða í Flóahverfi sem gilda fyrir tímabilið 1.
nóvember 2026 til og með 31. desember 2027.

Samþykkt 9:0

 

3. 2606-4474 - Kosning í ráð og nefndir kjörtímabilið 2026-2030 - viðaukabeiðni vegna fjölgunar
fulltrúa í fagráðum

Uppfærðar kostnaðartölur vegna ráða og nefnda að loknum sveitarstjórnarkosningum.
Vegna nýrra framboða sem hlutu kosningu fjölgar í fagráðum um tvo áheyrnarfulltrúa og nú eiga
fimm fullltrúar sæti í ráðum í stað þriggja fulltrúa áður.

Bæjarráð samþykkir á fundi sínum nr. 3632 þann 10. september sl. úthlutun viðbótarfjármagns
vegna breytinga í ráðum og nefndum Akraneskaupstaðar til samræmis við niðurstöður
sveitarstjórnarkosninganna þann 16. maí sl. Um er að ræða útgjaldaauka samtals að fjárhæð kr.
11.311.140 sem færist á tilteknar deildir samkvæmt meðfylgjandi fylgiskjali.

Bæjarráð samþykkti einnig viðauka nr. 22 vegna framangrends að sömu fjárhæð og að
útgjöldunum yrði mætt með lækkun á áætluðum rekstrarafgangi ársins 2026.

Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Bæjarstjórn samþykkir úthlutun fjármunanna og viðauka nr. 22 samtals að fjárhæð kr. 11.311.140
og að útgjöldunum verði mætt með hækkun á tekjum á deild 00080-0160 (almennt
jöfnunarframlag Jöfnunarsjóðs).

Samþykkt 9:0

 

4. 2609-6985 - 3634. fundur bæjarráðs

3634. fundargerð bæjarráðs frá 12. október 2026.

Til máls tóku:
LL um dagskrárliði nr. 1, nr. 2, nr. 3, nr. 4, nr. 5, nr. 6, nr. 7, nr. 8, nr. 9, nr. 10, nr. 11, nr. 12 og nr.
13 og nr. 15.
JMS um dagskrárliði nr. 1 og nr. 7.
LL um dagskrárliði nr. 1.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

5. 2610-7699 - 3635. fundur bæjarráðs

3635. fundargerð bæjarráðs frá 22. október 2026.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

6. 2610-7660 - 363. fundur skipulags- og umhverfisráðs

363. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 19. október 2026.

Til máls tóku:
HÁB um dagskrárliði nr. 1, nr. 3, nr. 4, nr. 5 og nr. 7.
SVV um dagskrárliði nr. 6, nr. 5 og nr. 1.


Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

7. 2602-1290 - Fundargerðir október 2026 - Samband íslenskra sveitarfélaga

1004. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 8. október 2026.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

8. 2604-2885 - Fundargerðir 31.ágúst 2026 - Orkuveita Reykjavíkur

380. fundargerð stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 31. ágúst 2026.

Til máls tóku:
SVV setur fram fyrirspurn til fulltrúa Akraneskaupstaðar í stjórn Orkuveitunnar en í gær var greint
frá því að samþykkt hefði verið að veita forstjóra Orkuveitunnar umboð til að hefja ferli sem getur
leitt til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans, jafnvel sölu félagins að hluta eða að heild og óskar
eftir upplýsingum um hvernig fulltrúinn hafi greitt atkvæði um þetta mál á stjórnarfundinum.

Forseti óskar eftir að 1. varaforseti leysi hann af við stjórn fundarins þar sem hann hyggst taka til
máls undir dagskrárliðnum.

BH, 1. varaforseti tekur við stjórn fundarins.

Framhald umræðu:

RBS um fyrirspurn SVV og tekur fram að tilvitnuð fundargerð stjórnar OR frá því í gær sé ekki á
dagskrá bæjarstjórnarfundarins en komi væntanlega til umræðu á næsta bæjarstjórnarfundi og
verði þá til umræðu með formlegum hætti og þá þær áhyggjur sem SSV hafi uppi í málinu.
SVV þakkar svarið en áréttar fyrirspurn sína.
RBS upplýsir um jákvæða afstöðu sína til málsins á þeim stjórnarfundi OR sem fyrirspurn SVV
beinist að en að málið eigi eftir að koma til formlegrar afgreiðslu eigenda.

Forseti tekur að nýju við stjórn fundarins og þakkar 1. varaforseta fyrir afleysinguna.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

9. 2610-8083 - Fundargerðir ágúst og september 2026 - Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi

198. fundargerð stjórnar SSV frá 26. ágúst 2026.
199. fundargerð stjórnar SSV frá 30. september 2026.

Til máls tóku:
JMS um fundargerð 198, dagskrárlið nr. 8.
Forseti óskar eftir að 1. varaforseti leysi hann af hólmi þar sem hann hyggst taka til máls undir
þessum dagskrárlið.

BH, 1. varaforseti, tekur við stjórn fundarins.

Framhald umræðu:

RBS um fundargerð 198, dagskrárliði nr. 8, nr. 2, nr. 3.

Forseti tekur að nýju við stjórn fundarins og þakkar 1. varaforseta fyrir afleysinguna.

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu