Fara í efni  

Bæjarstjórn

1441. fundur 13. október 2026 kl. 16:00 - 16:51 Miðjan, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Ragnar B. Sæmundsson forseti bæjarstjórnar
  • Bjarnheiður Hallsdóttir 1. varaforseti bæjarstjórnar
  • Jón Guðni Guðmundsson 2. varaforseti bæjarstjórnar
  • Líf Lárusdóttir bæjarfulltrúi
  • Guðmundur Ingþór Guðjónsson bæjarfulltrúi
  • Sigurður Vopni Vatnsdal bæjarfulltrúi
  • Sædís Alexía Sigurmundsdóttir varafulltrúi
  • Jónína Margrét Sigmundsdóttir bæjarfulltrúi
  • Hrafn Ágúst Björnsson bæjarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sturlaugur Haraldsson bæjarstjóri
  • Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs

Óskað er eftir, með vísan til c. liðar 16. gr., sbr. 3. mgr. 10. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar nr. 650/2026, að taka inn með afbrigðum mál nr. 2609-6833 Fundargerð velferðar- og mannréttindaráðs frá 6. október 2026.

Málið verður nr. 12 í dagskránni verði afbrigðin samþykkt.

Samþykkt 9:0

 

1. 2610-7358 - Aðalskipulag breytt - Höfðasel nr. 2 - nr. 8

Gerð er tillaga um breytingu á aðalskipulagi Akraness 2021-2033 vegna Höfðasels. Landnotkunarreitur I-314 er stækkaður lítillega til austurs á kostnað opins svæðis OP-331vegna áforma um stækkun lóða við Höfðasel 2-4 og 6-8. Breytingin er óveruleg og hefur ekki áhrif á hagsmuni annarra en bæjarfélagsins og viðkomandi lóðarhafa.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á fundi sínum nr. 362 þann 5. október sl. að leggja til við bæjarstjórn að óveruleg breyting á aðalskipulagi vegna Höfðasels skv. 2 mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 verði samþykkt og birt í B-deild Stjórnartíðinda.

Bæjarstjórn samþykkir breytingu á aðalskipulagi Höfðasels nr. 2 - nr. 8 skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að skipulagið verði sent Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun og birt í B-deild Stjórnartíðinda.

Samþykkt 9:0

 

2. 2610-7356 - Deiliskipulag breytt - Höfðasel nr. 2- nr. 8

Gerð er tillaga að breyting á deiliskipulagi í Höfðaseli. Breytingin felst í að stækkun iðnaðarlóða við Höfðasel 2-4 og 6-8. Skipulagsmörkum er breytt lítillega. Aðliggjandi opið svæði skerðist sem nemur stækkun lóða.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á fundi sínum nr. 362 þann 5. október sl. að leggja til við bæjarstjórn að óveruleg breyting á deiliskipulagi vegna Höfðasels nr. 2 - nr. 8, skv. 3 mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 verði samþykkt og birt í B-deild Stjórnartíðinda.

Bæjarstjórn samþykkir breytingu á deiliskipulagi Höfðasels nr. 2 - nr. 8 skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að skipulagið verði sent Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun og birt í B-deild Stjórnartíðinda.

Samþykkt 9:0

 

3. 2512-5187 - Breyting á deiliskipulag - Akraneshöfn Fylling

Breyting á deiliskipulagi Akraneshafnar vegna landfyllingar fyrir hafsækinn iðnað, í samræmi við aðalskipulag Akraness. Með breytingunni er gert ráð fyrir landfyllingu og nýjum lóðum fyrir hafsækna atvinnu- og iðnaðarstarfsemi. Skilgreindir eru byggingarreitir og skilmálar um starfsemi, byggingarmagn og húshæðir, auk aðkomu, umferðar og hafnarmannvirkja. Einnig er gert ráð fyrir sérstakri þjónustulóð vegna móttöku og þjónustu við farþega- og skemmtiferðaskip.

Vinnslutillaga var kynnt í Skipulagsgátt 23.–29. mars 2026 og hafa gögn verið unnin áfram með hliðsjón af umsögnum sem bárust. Unnið er að rýni Vegagerðarinnar á lögun sjóvarnargarðs og mögulegum áhrifum landfyllingar.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á fundi sínum nr. 362 þann 5. október sl. að leggja til við bæjarstjórn að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Akraneshafnar verði auglýst samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Til máls tók:
LL

Bæjarstjórn samþykkir að tillaga að breytingu á deiliskipulagi Akraneshafnar verði auglýst samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt 9:0

 

4. 2609-6701 - 3633. fundur bæjarráðs

  1. fundargerð bæjarráðs frá 22. september 2026.

Til máls tóku:
LL um dagskrárliði nr. 3, nr. 7 og nr. 9.
HÁB um dagskrárlið nr. 3 og nr. 7.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

5. 2609-6839 - 6. fundur mennta- og menningarráðs

6. fundargerð mennta- og menningarráðs frá 30. september 2026.

Forseti gerir að tillögu sinni að umræða um dagskrárliði nr. 5. og nr. 6 verði tekin í einni umræðu undir dagskrárlið nr. 6 en færð til bókar undir viðeigandi dagskrárliði.

Samþykkt 9:0

Til máls tóku:
GIG um dagskrárliði nr. 1, nr. 2 og nr. 4.
SVV um dagskrárlið nr. 3.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

6. 2610-7234 - 7. fundur mennta- og menningarráðs

7.fundargerð mennta- og menningarráðs frá 6. október 2026.

Til máls tóku:
GIG um dagskrárliði nr. 1, nr. 2, nr. 3 og nr. 5.

SVV um dagskrárlið nr. 4 og leggur fram eftirfarandi bókun:

„Eitt mikilvægasta verkefni okkar er að tryggja að uppbygging leikskólanna á Akranesi haldist í hendur við fjölgun íbúa og þarfir barnafjölskyldna. Fyrirsjáanleiki fyrir foreldra hvað varðar leikskólapláss skiptir öllu máli og tryggja þarf langtímalausnir í takt við þarfir samfélagsins.

Fyrri bæjarstjórn hafði tekið ákvörðun um að fara í viðbyggingu við leikskólann Akrasel. Nú virðist sem nýr meirihluti sé að endurskoða þá ákvörðun og leita annarra leiða og tíminn líður. Sex mánuðir er liðnir og dýrmætur tími hefur tapast í þessu mikilvæga verkefni. Ég vona að þegar málið komi til umfjöllunar á ný liggi fyrir skýr mynd af því hvaða leið meirihlutinn ætlar að fara, hvenær framkvæmdir geti hafist og hvenær við getum vænst þess að ný leikskólapláss verði tekin í notkun.

Barnafjölskyldur á Akranesi þurfa ekki bara umræðu um leikskólapláss heldur skýra áætlun og raunverulegar lausnir.“

Sigurður Vopni Vatnsdal (sign)

Framhald umræðu:

JGG um dagskrárlið nr. 4.
SVV um dagskrárlið nr. 2.
LL um dagskrárlið nr. 4.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

7. 2609-6394 - 362. fundur skipulags- og umhverfisráðs

362. fundargerð skipulags- og umhverfis frá 5. október 2026.

Forseti óskar eftir að 1. varaforseti leysi hann af hólmi þar sem hann hyggst taka til máls undir þessum dagskrárlið.

BH, 1. varaforseti, tekur við stjórn fundarins.

Til máls tóku:
RBS um dagskrárliði nr. 1, nr. 5, nr. 10, nr. 11, nr. 12, nr. 14, nr. 16, nr. 17 og nr. 19.
HÁB um dagskrárliði nr. 1, nr. 5, nr. 12 og nr. 14.

Forseti tekur að nýju við stjórn fundarins og þakkar 1. varaforseta fyrir afleysinguna.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

8. 2602-1290 - Fundargerðir september 2026 - Samband íslenskra sveitarfélaga

1002. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 11. september 2026.
1003. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 23. september 2026.

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

 

9. 2602-1293 - Fundargerðir september 2026 - Faxaflóahafnir

271. fundargerð stjórnar Faxaflóahafnar sf. frá 18. september 2026.

Til máls tóku:
HÁB um dagskrárlið nr. 7.
LL um dagskrárlið nr. 7.
HÁB um dagskrárlið nr. 7.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

10. 2602-1645 - Fundargerðir september 2026 - Heilbrigðiseftirlit Vesturlands

204. fundargerð Heilbrigðisnefndar Vesturlands frá 24. september 2026.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

11. 2604-2885 - Fundargerðir 2026 - Orkuveita Reykjavíkur

376. fundargerð stjórnar Orkuveitunnar frá 23. mars 2026.
377 fundargerð stjórnar Orkuveitunnar frá 27. apríl 2026.
378. fundargerð stjórnar Orkuveitunnar frá 1. júní 2026.
379. fundargerð stjórnar Orkuveitunnar frá 29. júní 2026.

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

 

12. 2609-6836 - 273. fundur velferðar- og mannréttindaráðs

Fundargerð 273. fundar velferðar- og mannréttindaráðs frá 6. október 2026.

Til máls tók:
BH um dagskrárliði nr. 6.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu