Bæjarstjórn
Forseti býður fundarmenn velkomna til fundar.
Óskað er eftir, með vísan til c. liðar 16. gr., sbr. 3. mgr. 10. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar nr. 650/2026, að taka inn með afbrigðum mál nr. 2609-6436 Vogabraut 4 - Eign og lóð.
Málið verður nr. 6 í dagskránni verði afbrigðin samþykkt og röð eftirfarandi dagskráliða breytast og verða nr. 7 til og með nr. 13.
Samþykkt 9:0
1. 2605-4211 - Reglur um innkaupakort Akraneskaupstaðar
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nr. 3632. þann 10. september sl. uppfærslu á reglum um notkun kreditkorta (innkaupakort) hjá Akraneskaupstað og vísaði málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar. Eldri reglur um sama efni eru frá árinu 2012.
Til máls tók:
JGG.
Bæjarstjórn samþykkir uppfærðar reglur um notkun kreditkorta (innkaupakort) hjá Akraneskaupstað.
Samþykkt 9:0
2. 2608-6125 - Þróun gagnaverssvæðis í Grjótkelduflóa á Akranesi
Viljayfirlýsing Akranesskaupstaðar við samstarfsaðila um þróun gagnaverssvæðis í Grjótkelduflóa var undirrituð miðvikudaginn 2. september sl. með fyrirvara um samþykkti bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð fjallaði um málið á fundi sínum nr. 3632 þann 10. september sl. og samþykkti viljayfirlýsinguna og vísaði málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.
Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi viljayfirlýsing um þróun gagnaverssvæði í Grjótkelduflóa á Akranesi og þær skuldbindingar sem í henni felast.
Samþykkt 9:0
3. 2605-4220 - Kirkjubraut 2 - Umsókn til skipulagsfulltrúa
Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi Akratorgsreits vegna Kirkjubrautar 2. Breytingin felst í því að núverandi íbúð á 4. hæð hússins verði skipt í tvær sjálfstæðar íbúðir og fjölgar íbúðum hússins því úr fjórum í fimm. Ekki er gert ráð fyrir breytingum á útliti hússins, byggingarmagni eða byggingarreit.
Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 dagana 4. ágúst til 1. september 2026. Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Veitum og Heilbrigðiseftirliti Vesturlands.
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands gerir ekki athugasemdir við fyrirhugaða fjölgun íbúða en bendir á atriði er varða hollustuhætti og heilnæmi íbúðarhúsnæðis sem fylgja þarf eftir við afgreiðslu byggingarleyfis.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að breyting á deiliskipulagi Akratorgsreits vegna Kirkjubrautar 2, sem grenndarkynnt var samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, verði samþykkt og birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Bæjarstjórn samþykkir breytingu á deiliskipulagi Akratorgsreits vegna Kirkjubrautar 2, að deiliskipulagið verði sent Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun og birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Samþykkt 9:0
4. 2605-4064 - Elínarvegur 13a - Umsókn til skipulagsfulltrúa
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Miðvogslækjarsvæðis vegna Elínarvegar 13A. Um er að ræða viðbótarbreytingu við áður samþykkta deiliskipulagsbreytingu fyrir lóðina sem samþykkt var í bæjarstjórn 25. nóvember 2025. Breytingin felst í stækkun byggingarreits til norðvesturs, tilfærslu bílastæða innan lóðar og hækkun nýtingarhlutfalls úr 0,20 í 0,21. Að öðru leyti haldast skilmálar gildandi deiliskipulags óbreyttir.
Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 dagana 4. ágúst til 1. september 2026. Engar athugasemdir bárust. Ein umsögn barst frá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands sem gerir ekki athugasemd við fyrirhugaða breytingu.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að breyting á deiliskipulagi Miðvogslækjarsvæðis vegna Elínarvegar 13A, sem grenndarkynnt var samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, verði samþykkt og birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Bæjarstjórn samþykkir breytingu á deiliskipulagi Miðvogslækjarsvæðis vegna Elínarvegar 13A, að deiliskipulagið verði sent Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun og birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Samþykkt 9:0
5. 2609-6762 - Menningarverðlaun 2026
Á fundi mennta- og menningarráðs þann 16. september sl. fjallaði ráðið um tilnefningar til menningarverðlauna vegna ársins 2026 og vísaði sinni niðurstöðu ásamt rökstuðningi til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.
Gert er ráð fyrir að afgreiðsla dagskrárliðarins fari fram í lok fundarins og að lokað verði fyrir útsendingu frá bæjarstjórnarfundinum við afgreiðsluna til að tryggja trúnað en afhending nafnbótarinnar fer fram á setningarhátíð Vökudaga. Ákvörðun bæjarstjórnar um útnefninguna verði skráð sem trúnaðarbókun.
Forseti ber fram tillögu um framangreinda málsmeðferð.
Samþykkt 9:0
6. 2609-6436 - Vogabraut 4 - Eign og lóð fyrirspurn
Erindi framkvæmdasýslunnar - ríkiseigna varðandi endurnýjun lóðarleigusamnings vegna Fjölbrautarskóla Vesturlands o.fl. Bæjarráð afgreiddi erindið á fundi sínum nr. 3633. þann 22. september sl. og vísaði til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.
Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi lóðarsamning vegna Vogabraut 4 (L131464).
Samþykkt 9:0
7. 2609-6384 - 3632. fundur bæjarráðs
3632. fundargerð bæjarráðs frá 10. september 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
8. 2608-5950 - 361. fundur skipulags- og umhverfisráðs
361. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 14. september 2026.
Til máls tóku:
SVV um dagskrárliði nr. 3 og nr. 4.
Forseti óskar eftir 1. varaforseti leysi hann af hólmi þar sem hann hyggst taka til máls undir þessum dagskrárlið.
BH, 1. varaforseti tekur við stjórn fundrarins.
Framhald umræðu:
RBS um dagskrárliði nr. 3, nr. 4 og nr. 5.
HÁB um dagskrárlið nr. 4.
JGG um dagskrárlið nr. 4.
Forseti tekur að nýju við stjórn fundarins og þakkar 1. varaforseta fyrir afleysinguna.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
9. 2609-6470 - 5. fundur mennta- og menningarráðs
Fundargerð 5. fundar mennta- og menningarráðs frá 16. september 2026.
Til máls tóku:
LÁS um dagskrárliði nr. 1, nr. 3 og nr. 5.
JGG um dagskrárlið nr.
7.LÁS um dagskrárlið nr. 7.
SVV um dagskrárliði nr. 7 og nr. 2.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
10. 2609-6389 - 272. fundur velferðar- og mannréttindaráðs
272. fundargerð fundar velferðar- og mannréttindaráðs frá 15. september 2026.
Til máls tóku:
BH um dagskrárlið nr. 2.
SVV um dagskrárlið nr. 2 og leggur fram eftirfarandi bókun:
"Bæði skammtímadvöl og búsetuúrræði eru mikilvæg þjónusta sem við eigum að leggja áherslu á að byggja upp hér á Akranesi. Mikilvægt er að vinna vel og hratt að uppbyggingu búsetuúrræðisins og þeirri hagræðingu sem þar getur skapast, meðal annars með því að draga úr kostnaði við kaup á sértækum búsetuúrræðum utan sveitarfélagsins. Sú hagræðing getur skapað aukið svigrúm til uppbyggingar þjónustu við fötluð börn. Markmiðið þarf því að vera skýrt, að nýta það svigrúm til að geta í framhaldinu hafið uppbyggingu skammtímadvalar hér á Akranesi. Þannig byggjum við þjónustu við fötluð börn markvisst upp í okkar eigin bæ og til framtíðar.“
Sigurður Vopni Vatnsdal (sign).
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
11. 2601-0928 - Fundargerðir september 2026 Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili
173. fundargerð stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis frá 7. september 2026
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
12. 2602-1290 - Fundargerðir 2026 - Samband íslenskra sveitarfélaga
1001. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28. ágúst 2026.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
13. 2602-1293 - Fundargerðir ágúst 2026 - Faxaflóahafnir
269. fundargerð stjórnar Faxaflóahafna frá 12. júní 2026.
270. fundargerð stjórnar Faxaflóahafnar frá 29. ágúst 2026.
Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





