Fara í efni  

Bæjarstjórn

1439. fundur 08. september 2026 kl. 17:00 - 18:55 Miðjan, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Ragnar B. Sæmundsson forseti bæjarstjórnar
  • Bjarnheiður Hallsdóttir 1. varaforseti bæjarstjórnar
  • Jón Guðni Guðmundsson 2. varaforseti bæjarstjórnar
  • Líf Lárusdóttir bæjarfulltrúi
  • Sigurður Vopni Vatnsdal bæjarfulltrúi
  • Liv Aase Skarstad bæjarfulltrúi
  • Guðmundur Ingþór Guðjónsson bæjarfulltrúi
  • Jónína Margrét Sigmundsdóttir bæjarfulltrúi
  • Hrafn Ágúst Björnsson bæjarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sturlaugur Haraldsson bæjarstjóri
  • Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála - og þjónustusviðs

Forseti býður fundarmenn velkomna til fundar.

1. 2608-5774 - Heimild til að sinna starfi skipulagsfulltrúa

Halla Marta Árnadóttir, skipulagsfulltrúi Akraneskaupstaðar, er í fæðingarorlofi. Lagt er til að Berglind Sigurðardóttir, skipulagsfræðingur, gegni starfi skipulagsfulltrúa tímabundið þar til Halla Marta snýr aftur til starfa.

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 27. ágúst 2026, með vísan til 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að Berglind Sigurðardóttir, skipulagsfræðingur, gegni tímabundið starfi skipulagsfulltrúa Akraneskaupstaðar þar til Halla Marta Árnadóttir snýr aftur til starfa úr fæðingarorlofi.

Berglind uppfyllir hæfnisskilyrði skipulagsfulltrúa samkvæmt 5. mgr. 7. gr. skipulagslaga. Ráðningin verði tilkynnt Húsnæðis, mannvirkja- og skipulagsstofnunnar í samræmi við 1. mgr. 7. gr. skipulagslaga.

Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar sbr. áskilnað laga.

Til máls tók:
JGG.
forseti óskar eftir 1. varaforseti leysi hann af við stjórn fundarins þar sem hann hyggst taka til máls.

BH, 1. varaforseti, tekur við stjórn fundarins og gefur orðið laust.

Til máls tók:
RBS.

Forseti tekur að nýju við stjórn fundarins og þakkar 1. varaforseta fyrir afleysinguna.

Bæjarstjórn samþykkir að Berglind Sigurðardóttir, skipulagsfræðingur, gegni tímabundið starfi skipulagsfulltrúa Akraneskaupstaðar, þar til Halla Marta Árnadóttir snýr aftur til starfa að loknu fæðingarorlofi. Ráðningin verði tilkynnt Húsnæðis, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

Samþykkt 9:0

 

2. 2601-0072 - Skammtímadvöl á Vesturlandi

Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 01.09.2026 var lögð fram tillaga að rekstri skammtímavdvalar á Vesturlandi sem framkvæmdastjórar sveitarfélaga á Vesturlandi unnu í samstarfi við sviðsstjóra velferðarsviða á svæðinu.

Á fundinum var gerð eftirfarandi bókun: Velferðar- og mannréttindaráð fagnar framlagðri tillögu að rekstri skammtímadvalar fyrir fötluð börn á Vesturlandi og samþykkir hana fyrir sitt leyti.

Málinu var vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.

Til máls tóku:
SVV, GIG, SVV, LL og HÁB.

Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi tillögu að rekstrarfyrirkomulagi skammtímadvalar fyrir börn á Vesturlandi í húsnæði Holts í Borgarbyggða og að gera ráð fyrir útgjöldunum í komandi fjárhagsáætlunargerð vegna ársins 2027.

Samþykkt 9:0

 

3. 2607-5417 - Beiðni um kaup á húsgögnum í Brekkubæjarskóla

Beiðni frá Brekkubæjarskóla um kaup á húsbúnaði í 10 kennslustofur.

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 27. ágúst 2026 viðbótarfjármagn að fjárhæð kr. 2.529.526 vegna kaupa á nýjum húsbúnaði (skápar og hillur) en við eldri framkvæmd varð að farga eldri búnaði og ekki ráðist í nýkaup á þeim tíma. Fjármagnið er fært á deild 0422-2880 og er mætt með lækkun á áætluðum rekstrarafgangi ársins 2026.

Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 19 samkvæmt framangreindu og vísaði málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Til máls tóku:
LL, HÁB og LÁS.

Bæjarstjórn samþykkir viðbótarfjármagn til Brekkubæjarskóla að fjárhæð kr. 2.529.526 vegna kaupa á nýjum húsbúnaði (skápar og hillur). Fjármagnið er fært á deild 0422-2880 og er mætt með lækkun á áætluðum rekstrarafgangi ársins 2026.

Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 19 samkvæmt framangreindu.

Samþykkt 9:0

 

4. 2606-5360 - Langtímaveikindi starfsfólks 2026 (veikindapottur) fyrri hluti

Umsóknir í veikindapott frá stofnunum til að mæta kostnaði vegna langtímaveikinda starsfólks fyrir hluta ársins 2026, vegna tímabilsins janúar til og með júní.

Bæjarráð fjallaði um málið á fundi sínum þann 2. júlí sl. og óskaði eftir að fyrirliggjandi umsóknir í veikindapott Akraneskaupstaðar yrðu rýndar frekar og frestaði afgreiðslu málsins.

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 27. ágúst sl. úthlutun fjármuna vegna kostnaðar stofnana Akraneskaupstaðar við afleysingar vegna veikindaforfalla starfsmanna á árinu 2026. Úthlutunin er vegna tímabilsins 1. janúar til og með 30. júní og nemur samtals kr. 80.350.345 sbr. meðfylgjandi fylgiskjal.

Bæjarráð samþykkti viðauka nr. 20 að fjárhæð kr. 80.350.345 og er ráðstöfuninni mætt af deild 20830-1691, samtals að fjárhæð kr. 60.000.000 og kr. 20.350.345 með lækkun á áætluðum rekstrarafgangi ársins 2026. Fjármunirnir eru færðir á tegundarlykilinn 1691 á hverja stofnun fyrir sig samkvæmt skiptingu sbr. meðfylgjandi fylgiskjal.

Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Til máls tóku:
JGG, SVV, BH, HÁB, JMS, LÁS, LL, SH, LÁS, HÁB og SVV.

Bæjarstjórn samþykkir úthlutun fjármuna vegna kostnaðar stofnana Akraneskaupstaðar við afleysingar vegna veikindaforfalla starfsmanna á árinu 2026, vegna tímabilsins 1. janúar til og með 30. júní samtals að fjárhæð kr. 80.350.345 sbr. meðfylgjandi fylgiskjal.

Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 20 að fjárhæð kr. 80.350.345 og er ráðstöfuninni mætt af deild 20830-1691, samtals að fjárhæð kr. 60.000.000 og kr. 20.350.345 með lækkun á áætluðum rekstrarafgangi ársins 2026. Fjármunirnir eru færðir á tegundarlykilinn 1691 á hverja stofnun fyrir sig samkvæmt skiptingu sbr. meðfylgjandi fylgiskjal.

Samþykkt 9:0

 

5. 2608-6125 - Þróun gagnaverssvæðis í Grjótkelduflóa á Akranesi

 Viljayfirlýsing Akranesskaupstaðar við samstarfsaðila um þróun gagnaverssvæðis í Grjótkelduflóla var undirrituð miðvikudaginn 2. september sl. með fyrirvara um samþykkti bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Til máls tóku:
LL, SVV og JGG.

Lagt fram.

6. 2609-6432 - Tillaga að eflingu félags- og íþróttastarfi fyrir fatlaða

Tillaga til bæjarstjórnar frá bæjarfulltrúum Samfylkingar, Viðreisnar og Miðflokksins þar sem lagt er til að Akraneskaupstaður í samstarfi við Íþróttabandalag Akraness og notendaráð um málefni fatlaðs fólks á Akranesi, vinni að útfærslu á tilboðum á reglubundinni hreyfingu og félagsstarfi fyrir fatlað fólk á Akranesi.

Til máls tóku:
SVV, LL, SVV, BH, HÁB, SVV, JGG, LÁS og JMS.

Bæjarstjórn samþykkir að málið fari til umfjöllunar í velferðar- og mannréttindaráði og mennta- og menningarráði sem og í notendaráði þegar það hefur verið fullmannað.

Samþykkt 9:0

 

7. 2609-6462 - Fundartími bæjarstjórnarfunda - Haustið 2026

Ákvörðun liggur fyrir um breytingu á bæjarmálasamþykkt Akraneskaupstaðar varðandi fundartíma bæjarstjórnar sem framvegis verði að jafnaði kl. 15:00 en beðið er birtingar þessa í Stjórnartíðindum.

Þrátt fyrir framangreint eru aðstæður bæjarfulltrúa þannig sem stendur að tímasetning bæjarstjórnarfundar haustið 2026 verði kl. 16:00.

Gert er ráð fyrir að á fundi bæjarstjórnar þann 8. desember nk. verði tekin ákvörðun um fundartíma vorsins 2027.

Bæjarstjórn samþykkir að fundartími bæjarstjórnarfunda haustið 2026 verði kl. 16:00.

Samþykkt 9:0

 

8. 2608-6081 - 3631. fundur bæjarráðs

  1. fundargerð bæjarráðs frá 27. ágúst 2026.

Til máls tóku:
HÁB um dagskrárlið nr. 7.
LL um dagskrárlið nr. 7.
SVV um dagskrárlið nr. 7.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

9. 2608-6169 - 4. fundur mennta- og menningarráðs

Fundargerð 4. fundar mennta- og menningarráðs frá 1. september 2026.

Til máls tóku:
LÁS um dagskrárliði nr. 1, nr. 2, nr. 3, nr. 4, nr. 5 og nr. 6.
SVV um dagskrárlið nr. 1.
JMS um dagskrárliði nr. 1, nr. 5 og nr. 4.
JGG um dagskrárliði nr. 1, nr. 2 og nr. 5.
LÁS um dagskrárlið nr. 5.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

10. 2608-5997 - 271. fundur velferðar- og mannréttindaráðs

  1. fundargerð velferðar- og mannréttindaráðs frá 1. september 2026.

Til máls tóku:
BH um dagskrárlið nr. 3.
HÁB um dagskrárlið nr. 3 og svör forseta í upphafi fundar vegna fyrirspurnar frá síðasta bæjarstjórnarfundi.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

11. 2608-5737 - 360. fundur skipulags- og umhverfisráðs

360. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 31. ágúst 2026.

Til máls tóku:
HÁB um dagskrárliði nr. 2 og nr. 8.
Forseti óskar eftir 1. varaforseti leysi hann af við stjórn fundarins þar sem hann hyggst taka til máls.

BH, 1. varaforseti, tekur við stjórn fundarins og gefur orðið laust.

Til máls tóku:
RBS um dagskrárliði nr. 2, nr. 8, nr. 3, nr. 4, nr. 5 og nr. 6.
HÁB um dagskrárlið nr. 8.

RBS um dagskrárlið nr. 8.

Forseti tekur að nýju við stjórn fundarins og þakkar 1. varaforseta fyrir afleysinguna.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

12. 2601-0928 - Fundargerðir júní 2026 Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili

172. fundargerð stjórnar Höfða frá 25. júní 2026

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

13. 2602-1293 - Fundargerðir maí og júní 2026 - Faxaflóahafnir

268. fundargerð stjórnar Faxaflóahafna frá 22. maí 2026. 269. fundargerð stjórnar Faxaflóahafna frá 12. júní 2026.

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

 

14. 2605-4012 - Fundargerð aðalfundar Faxaflóahafna sf 2026

Fundargerð aðalfundar Faxaflóahafna sf. sem haldinn var 12. júní 2026.

Til máls tóku:
SVV um dagskrárlið nr. 7.
HÁB um efni sem var utan fundargerðarinnar og varðar dvöl skipsins Bandero í Akraneshöfn.
LL um dagskrárlið nr. 7 og varðandi fyrirspurn HÁM um dvöl skipsins Banderó í Akraneshöfn.
HÁB um fundargerðir og almennar fyrirspurnir tengdar þeim.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

15. 2602-1645 - Fundargerðir ágúst 2026 - Heilbrigðiseftilit Vesturlands

203. fundargerð Heilbrigðisnefndar Vesturlands frá 19. ágúst 2026.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu