Fara í efni  

Bæjarstjórn

1438. fundur 25. ágúst 2026 kl. 17:00 - 18:30 Miðjan, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Ragnar B. Sæmundsson forseti bæjarstjórnar
  • Bjarnheiður Hallsdóttir 1. varaforseti bæjarstjórnar
  • Jón Guðni Guðmundsson 2. varaforseti bæjarstjórnar
  • Líf Lárusdóttir bæjarfulltrúi
  • Guðmundur Ingþór Guðjónsson bæjarfulltrúi
  • Liv Aase Skarstad bæjarfulltrúi
  • Sigurður Vopni Vatnsdal bæjarfulltrúi
  • Jónína Margrét Sigmundsdóttir bæjarfulltrúi
  • Hrafn Ágúst Björnsson bæjarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sturlaugur Haraldsson bæjarstjóri
  • Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála - og þjónustusviðs

Forseti býður fundarmenn velkomna til fundar að loknu sumarleyfi bæjarstjórnar.

Forseti býður nýjan bæjarstjóra Akraneskaupstaðar, Sturlaug Haraldsson, hjartanlega velkomin til starfa og á hans fyrsta bæjarstjórrnarfund.

Forseti þakkaði jafnframt Steinari Adolfssyni fyrir hans störf sem bæjarstjóri.

 

1. 2601-0744 - Farsældarráð Vesturlands

 

Mennta- og menningarráð gerir tillögu til bæjarstjórnar um tilnefningu fulltrúa úr ráðinu til setu í farsældarráði Vesturlands.

 

Til máls tók:

LÁS.

Mennta- og menningarráð gerir það að tillögu sinni að Liv Aase Skarstad verði fulltrúi fyrir hönd mennta- og menningarráðs Akraneskaupstaðar í farsældarráði Vesturlands og Finney Aníta Telmudóttir verði til vara.

Samþykkt 9:0

 

2. 2605-3704 - Breyting á deiliskipulagi Höfðasels

 

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis í Höfðaseli á Akranesi. Breytingin felur í sér breytingu á gatnakerfi með tengingu Grjótkelduflóa við Akrafjallsveg ásamt tengingu við skipulagssvæði Æðarodda. Skipulagsmörk deiliskipulagsins breytast ekki og breytingin hefur ekki áhrif á landnotkun, byggingarmagn eða nýtingarhlutfall lóða innan svæðisins. Gert er ráð fyrir að endanleg útfærsla gatnamóta við Akrafjallsveg verði unnin í samráði við Vegagerðina.

 

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Höfðasels skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Bæjarstjórn samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulag Höfðasels skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt 9:0

 

3. 2605-3703 - Deiliskipulag Æðaroddi

 

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Æðarodda á Akranesi. Breytingin felur í sér breytingu á gatnakerfi og útfærslu tengingar við Akrafjallsveg ásamt lokun núverandi tengingar milli Grjótkelduflóa og Æðarodda.

 

Tillagan er unnin samhliða breytingu á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis í Höfðaseli þar sem um er að ræða sömu gatnamót og sömu tengingu við Akrafjallsveg. Gert er ráð fyrir að endanleg útfærsla gatnamóta við Akrafjallsveg verði unnin í samráði við Vegagerðina.

 

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Æðarodda skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Bæjarstjórn samþykkir að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Æðarodda skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt 9:0

 

4. 2604-3181 - Deiliskipulagsbreyting - Skógarlundur 30, 32 og 34

 

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs 15. maí 2026 var fjallað um fyrirhugaða breytingu á deiliskipulagi Skógahverfis, áfanga 3C, vegna lóða við Skógarlund 30, 32 og 34.

 

Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi, dags. 12. ágúst 2026. Breytingin felst í að nýtingarhlutfall lóðanna lækkar úr 0,40 í 0,28. Aðrir skilmálar deiliskipulagsins eru óbreyttir. Skipulags- og umhverfisráð samþykkir tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Skógahverfis, áfanga 3C, vegna Skógarlundar 30, 32 og 34, skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytinguna og að hún verði birt í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni málsmeðferð skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Allur kostnaður sem hlýst af breytingunni fellur á lóðarhafa.

 

Bæjarstjórn samþykkir breytingu á deiliskipulagi Skógarhverfis, áfanga 3C, vegna lóða við Skógarlund 30, 32 og 34 og að breytingin verði birt í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni málsmeðferð skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Allur kostnaður sem hlýst af breytingunni falli á lóðarhafa.

Samþykkt 9:0

 

5. 2605-3848 - Eyrarflöt 13 - Deiliskipulagsbreyting

 

Lögð er fram umsókn um óverulega breytingu á deiliskipulagi Flatahverfis vegna lóðarinnar að Eyrarflöt 13. Breytingin felst í því að skilgreindur verði byggingarreitur á lóðinni þar sem fyrirhugaðar svalir og breytingar á útistiga falla innan hans. Jafnframt verður skilgreint svæði fyrir skjólvegg, smáhýsi og saunaklefa.

 

Erindið var grenndarkynnt í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2012 fyrir Eyrarflöt 6, 9 og 11.

 

Engar athugasemdir bárust.

 

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að grenndarkynning sem gerð var skv. 43. gr. 2. mgr. skipulagslaga nr 123/2010 verði samþykkt og send á Skipulagsstofnun og í B-deild stjórnartíðinda. Allur kostnaður sem hlýst af breytingunni fellur á lóðarhafa.

 

Bæjarstjórn samþykkir breytingu á deiliskipulagi Flatarhverfis vegna lóðarinnar Eyrarflöt 13 og að breytingin verði send Skipulagsstofnun og birt í B-deild Stjórnartíðinda.

Allur kostnaður sem hlýst af breytingunni falli á lóðarhafa.

Samþykkt 9:0

 

6. 2606-4941 - 3627. fundur bæjarráðs

 

3627. fundargerð bæjarráðs frá 18. júní 2026.

 

Forseti gerir það að tillögu sinni að umræða um dagskrárliði nr. 6 til og með 9 verði tekin í einni umræðu undir dagskrárlið nr. 6 en færðir til bókar undir viðeigandi dagskrárlið.

Samþykkt 9:0

Til máls tók: LL um dagskrárlið nr. 2.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

7. 2606-5102 - 3628. fundur bæjarráðs

 

3628. fundargerð bæjarráðs frá 2. júlí 2026.

 

Til máls tóku:

LL um dagskrárliði nr. 2 og nr. 9.

HÁB um dagskrárlið nr. 10.

LL um dagskrárlið nr. 10.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

8. 2607-5529 - 3629. fundur bæjarráðs

 

3629. fundargerð bæjarráðs frá 29. júlí 2026.

 

Til máls tók: LL um dagskrárliði nr. 1.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

9. 2608-5620 - 3630. fundur bæjarráðs

 

3630. fundargerð bæjarráðs frá 13. ágúst 2026.

 

Til máls tóku:

HÁB um dagskrárlið nr. 4.

LL um dagskrárlið nr. 4.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

10. 2606-4836 - 1. fundur mennta- og menningarráðs

 

1. fundur mennta- og menningarráðs frá 16. júní 2026.

 

Forseti gerir að tillögu sinni að umræða um dagskrárliði nr. 10 til og með 12 verði tekin í einni umræðu undir dagskrárlið nr. 10 en færð til bókar undir viðeigandi dagskrárlið.

Samþykkt 9:0

Til máls tók: LÁS um dagskrárliði nr. 1, nr. 2 og nr. 3.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

11. 2607-5384 - 2. fundur mennta- og menningarráðs

 

2. fundargerð mennta- og menningarráðs frá 4. ágúst 2026.

 

Til máls tóku:

LÁS um dagskrárlið nr. 1, nr. 2 og nr. 3.

JGG um dagskrárlið nr. 3.

LÁS um dagskrárlið nr. 3.

SVV um dagskrárlið nr. 3.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

12. 2608-5725 - 3. fundur mennta- og menningarráðs

 

3. fundargerð mennta- og menningarráðs frá 18. ágúst 2026.

 

Til máls tóku:

LÁS um dagskrárliði nr. 1 og nr. 5.

LÁS um dagskrárlið nr. 2.

JMS um dagskrárlið nr. 5.

LÁS um dagskrárlið nr. 5.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

13. 2605-4200 - 356. fundur skipulags- og umhverfisfráðs

 

356. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 15. júní 2026

 

Forseti gerir að tillögu sinni að umræða um dagskrárliði nr. 13 til og með 16 verði tekin í einni umræðu undir dagskrárlið nr. 13 en færð til bókar undir viðeigandi dagskrárlið.

Samþykkt 9:0

Forseti óskar eftir að 1. varaforseti leysi hann af í stóli forseta þar sem hann hyggst taka til máls undir fundargerðunum.

BH tekur við stjórn fundarins.

TIl máls tóku:

RBS um dagskrárliði nr. 1, nr. 5. og nr. 12.

SVV um dagskrárlið nr. 2.

RBS um dagskrárlið nr. 2.

SVV um dagskrárlið nr. 2.

RBS um dagskrárlið nr. 2.

SSV um dagskrárlið nr. 2 og almennt um birtingu fundargerða á heimasíðu Akraneskaupstaðar.

HAB um dagskrárlið nr. 9.

LÁS um dagskrárlið nr. 2.

JMS um dagskrárlið nr. 2.

JGG um dagskrárlið nr. 2.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

14. 2606-4621 - 357. fundur skipulags- og umhverfisráðs

 

357. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs þann 30. júní 2026.

 

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

15. 2606-5373 - 358. fundur skipulags- og umhverfisfráðs

 

358. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs þann 6. júlí 2026.

 

Til máls tók: RBS um dagskrárlið nr. 4, nr. 6, nr. 7 og nr. 8.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

16. 2607-5411 - 359. fundur skipulags- og umhverfisráðs

 

359. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 17. ágúst 2026.

 

Til máls tóku:

RBS um dagskrárlið nr. 9.

HÁB um dagskrárlið nr. 4.

LÁS dagskrárlið nr. 4.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

RBS tekur við fundarstjórn að nýju og þakkar 1. varaforseta fyrir afleysinguna.

RBS úr stóli forseta svarar SVV varðandi birtingu fundargerða á heimasíðu Akraneskaupstaðar og mun fylgja því eftir.

 

17. 2605-4000 - 269. fundur velferðar- og mannréttindaráðs

 

269. fundargerð velferðar- og mannréttindaráðs frá 23. júní 2026.

 

Forseti gerir það að tillögu sinni að umræða um dagskrárliði nr. 17 og nr. 18 verði tekin í einni umræðu undir máli nr. 17 en færð til bókar undir viðeigandi dagskrárlið.

Samþykkt 9:0

Til máls tóku:

BH um dagskrárlið nr. 1.

SVV um dagskrárlið nr. 1.

HÁB um dagskrárliði nr. 3, nr. 4, nr. 5, nr. 6 og nr. 7.

LÁS um dagskrárlið nr. 1.

BH um dagskrárliði nr. 3, nr. 4, nr. 5, nr. 6 og nr. 7.

SVV um dagskrárlið nr. 1.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

18. 2606-4965 - 270. fundur velferðar- og mannréttindaráðs

 

270. fundargerð velferðar- og mannréttindaráðs frá 18. ágúst 2026.

 

Fundargerðin lögð fram til kynningar.


Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu