Fara í efni  

Bæjarstjórn

1437. fundur 18. júní 2026 kl. 17:00 - 17:10 í Miðjunni, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Ragnar B. Sæmundsson forseti bæjarstjórnar
  • Bjarnheiður Hallsdóttir 1. varaforseti bæjarstjórnar
  • Jón Guðni Guðmundsson 2. varaforseti bæjarstjórnar
  • Líf Lárusdóttir bæjarfulltrúi
  • Sigurður Vopni Vatnsdal bæjarfulltrúi
  • Liv Aase Skarstad bæjarfulltrúi
  • Guðmundur Ingþór Guðjónsson bæjarfulltrúi
  • Jónína Margrét Sigmundsdóttir bæjarfulltrúi
  • Hrafn Ágúst Björnsson bæjarfulltrúi
Starfsmenn
  • Steinar Adolfsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson bæjarstjóri

Forseti býður fundarmenn velkomna til fundar.

1. 2606-4468 - Bæjarmálasamþykkt - samþykkt um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar

Síðari umræða um breytingu á bæjarmálasamþykkt Akraneskaupstaðar nr. 650/2026 en fyrri umræðan fór fram á fundi bæjarstjórnar nr. 1436 þann 10. júní sl.

Þær breytingar sem lagðar eru til eru eftirfarandi:

  1. Breyting varðandi tímasetningu bæjarstjórnarfunda og lagt til að þeir verði að jafnaði kl. 15:00 í stað kl. 17:00 en bæjarstjórn fundar tvisvar í hverjum mánuði, annan og fjórða þriðjudag hvers mánaðar.
  2. Breyting varðandi kjörgengi varaformanns í fagráðum Akraneskaupstaðar, annarra en bæjarráðs.
  • Breytingin sem lögð er til að ekki verði áskilið að varaformaður verði kosinn úr hópi kjörinna aðalmanna í bæjarstjórn og tekur til skipunar varaformanns mennta- og menningarráðs, velferðar- og mannréttindaráðs og skipulags- og umhverfisráðs.

     3. Stofnun tveggja nýrra nefnda:

  • atvinnu- og innviðanefndar, sem skipuð verði 6 aðalmönnum og heyri undir stjórnsýslu bæjarráðs.
  • íþróttanefndar, sem skipuð verði 6 aðalmönnum og heyri undir stjórnsýslu mennta- og menningarráðs.

Nefndirnar fara með verkefni samkvæmt erindisbréfi bæjarstjórnar.

Til máls tók: SDA.

Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi breytingar á bæjarmálasamþykkt Akraneskaupstaðar og vísar þeim til staðfestingar ráðuneytis sveitarstjórnarmála og til birtingar í B-deild Stjórnartíðinda.

Samþykkt 9:0

 

2. 2606-4850 - Bæjarráð - Umboð í sumarleyfi bæjarstjórnar 2026

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum og samþykkt um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar, er heimilað að bæjarstjórn fari í sumarleyfi og að bæjarráð fari með valdheimilldir bæjarstjórnar á sama tímabili.

Gert er ráð fyrir að sumarleyfi bæjarstjórnar hefjist að loknum bæjarstjórnarfundi í dag og standi til þriðudagsins 25. ágúst næstkomandi.

Bæjarstjórn samþykkir að næsti reglulegi fundur bæjarstjórnar verði þriðjudaginn 25. ágúst nk. og bæjarráði falin fullnaðarafgreiðsla mála í samræmi við samþykkt um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar meðan bæjarstjórn er í sumarleyfi.

Samþykkt 9:0

 

3. 2602-1645 - Fundargerðir mars 2026 - Heilbrigðiseftilit Vesturlands

Fundargerð aðalfundar Heilbrigðisnefndar Vesturlands frá 25. mars 2026.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

4. 2602-1290 - Fundargerðir júní 2026 - Samband íslenskra sveitarfélaga

1000. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 9. júní 2026.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

Forseti óskaði bæjafulltrúum og fjölskyldum þeirra ánægjulegs orlofs í sumar.

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu