Fara í efni  

Bæjarstjórn

1436. fundur 10. júní 2026 kl. 17:00 - 19:05 í Miðjunni, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Ragnar B. Sæmundsson forseti bæjarstjórrnar.
  • Bjarnheiður Hallsdóttir 1. varaforseti bæjarstjórnar
  • Jón Guðni Guðmundsson 2. varaforseti bæjarstjórnar
  • Líf Lárusdóttir bæjarfulltrúi
  • Sigurður Vopni Vatnsdal bæjarfulltrúi
  • Liv Aase Skarstad bæjarfulltrúi
  • Guðmundur Ingþór Guðjónsson bæjarfulltrúi
  • Jónína Margrét Sigmundsdóttir bæjarfulltrúi
  • Hrafn Ágúst Björnsson bæjarfulltrúi
Starfsmenn
  • Steinar Adolfsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson

Ragnar B. Sæmundsson (RBS) bæjarfulltrúi býður bæjarfulltrúa velkomna til fyrsta fundar nýrrar bæjarstjórnar kjörtímabilið 2026 - 2030 og óskar bæjarfulltrúum til hamingju með kjörið sbr. niðurstöður bæjarstjórnarkosninganna þann 16 maí sl.

RBS hefur það verkefni samkvæmt sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011, sem sá bæjarfulltrúi sem lengstan starfsferil hefur í bæjarstjórn, að boða til þessa fyrsta fundar og stýra honum þar til kosið verður til embætta í bæjarstjórn en að því loknu tekur forseti bæjarstjórnar við stjórn fundarins.

Boðað var til fundar sl. föstudag, þann 5. júní sl. en samkvæmt sveitarstjórnarlögum og bæjarmálasamþykkt Akraneskaupstaðar skal boða til fyrsta fundar að loknum kosningum með fjögurra daga fyrirvara í stað tveggja sem er hin almenna regla.

RBS spyr hvort einhverjar athugasemdir séu gerðar við fundarboðun eða annað sem sem tengist fundinum og framkvæmd hans.

Óskað er eftir, með vísan til c. liðar 15. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar, að taka inn með afbrigðum mál nr. 2606-4633 Ráðning bæjarstjóra. Málið verður nr. 2 í dagskránni verði afbrigðin samþykkt.

Samþykkt 9:0

 

1. 2604-2898 - Sveitarstjórnarkosningar 16.05.2026

Greinargerð yfirkjörstjórnar, til nýkjörinnar sveitarstjórnar um úrslit sveitarstjórnarkosninganna þann 16. maí 2026.

Til máls tóku:

SDA, JGG, SVV, HÁB, LL, LÁS og SDA.

Lagt fram.

 

2. 2606-4633 - Ráðning bæjarstjóra 2026

Ráðning Sturlaugs Haraldsson í starf bæjarstjóra Akraneskaupstaðar til næstu fjögurra ára.

Til máls tóku:

LL, SVV, HÁB, LÁS og RBS úr stóli forseta.

Bæjarstjórn samþykkir ráðningu Sturlaugs Haraldsson sem bæjarstjóra Akraneskaupstaðar kjörtímabilið 2026 til og með 2030 og fyrirliggjandi ráðningarsamning.

Samþykkt 9:0

 

3. 2606-4477 - Málefnasamningur meirihluta bæjarstjórnar 2026-2030

Málefnasamningur Sjálfstæðisflokks og Framsókn og frjálsra vegna kjörstímabilsins 2026 - 2030.

Til máls tóku:

BH, HÁB, SVV, JMS, LÁS, LL, BH, SVV sem leggur fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa Samfylkingar, Viðreisnar og Miðflokksins: 

Minnihlutinn fagnar því að mikið af stefnumálum Miðflokks, Samfylkingar og Viðreisnar hafa verið tekin upp í málefnasamning meirihluta Framsóknar og frjálsra og Sjálfstæðisflokks. Þar er talað fyrir bættri þjónustu við íbúa, mikilvæga uppbyggingu innviða eins og íþróttamannvirki og leikskóla á Neðri Skaga. Stytta leiðir atvinnurekenda í gegnum stjórnsýsluna og endurskoðun á skólastefnu sveitarfélagsins, en þar minnum við á mikilvægi þess að það sé gert í samráði við skólasamfélagið allt. Einnig er áætlað að koma með langtíma viðhaldsáætlanir fyrir mannvirki bæjarins ásamt frekari gagnsæi í upplýsingagjöf. Minnihlutinn mun styðja góð málefni sem þarna er að finna. En orð eru eitt og aðgerðir annað. Nú þarf meirihlutinn því að fylgja orðum eftir með skýrum aðgerðum. 

Við bendum á að í málefnasamningnum eru nokkur mál sem snerta daglegt líf bæjarbúa. En við höfum áhyggjur af því sem snertir daglegt líf fatlaðra og fjölskyldna þeirra. Talað er um að koma á skammtímavistunar úrræði á Vesturlandi, en ekki minnst á skammtímadvöl á Akranesi sem þó hefur verið unnið að af fráfarandi bæjarstjórn og er nauðsynleg þjónusta við fjölskyldur á Akranesi.  

Ekki er minnst akstursþjónustu fatlaðra. Hvort finna á leiðir til þess að hún þjóni tilgangi sínum betur og gefa fötluðum betri möguleika á því að komast leiðar sinna þegar þau þurfa á því að halda, sem er stórt mannréttindamál. Talandi um að komast leiðar sinnar, þá ætti það að vera algjört forgangsatriði hjá nýkjörinni bæjarstjórn að bæta úr aðgengismálum allra hópa við að fara um bæinn sinn. Að fatlað fólk rekist ekki á hindranir eins og háar gangstéttabrúnir eða aðra farartálma sem ætti að vera einfalt mál að kortleggja og lagfæra.  

Í málefnasamningnum er talað um að tryggja öruggt og styðjandi starfsumhverfi fyrir starfs- og hæfingarhluta Fjöliðjunnar. En ekki samfélagsmiðstöð, sem er í dag hugsuð með fleiri starfseiningum. Hver er þá stefnan varðandi aðstöðu Þorpsins og Endurhæfingarhúsið Hver sem veita gríðarlega mikilvæga þjónustu á Akranesi.  

Við fögnum því að setja eigi á heimgreiðslur fyrir foreldra ungra barna eins og staðan er í dag á Akranesi vegna plássleysis á leikskólum. Það er engu að síður brýnt að fólk sem þiggur greiðslurnar, verði vel upplýst af bænum að með þessum greiðslum safnast ekki réttindi til fæðingarorlofs, lífeyrissjóðsréttindi og ekki er greitt til verklýðsfélags. Langtíma markmiðið hlýtur svo alltaf að vera að loka gatinu milli fæðingarorlofs og leikskóla.   

Að lokum viljum við óska meirihlutanum góðs gengis. Við í minnihlutanum munum styðja góð mál - og þau er sannarlega að finna í þessum málefnasamningi, en við munum jafnframt veita aðhald, spyrja spurninga og veita ráðleggingar þegar við teljum þörf á því. 

Sigurður Vopni Vatnsdal (sign)

Jónína Margrét Sigmundsdóttir (sign)

Hrafn Ágúst Björnsson (sign)

Jón Guðni Guðmundsson (sign)

Framhald umræðu:

JGG og HÁB.

Málefnasamningurinn lagður fram.

 

4. 2606-4468 - Breyting á samþykkt um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar (bæjarmálasamþykkt Akraneskaupstaðar)

Lagðar eru fram tillögur að breytingu á samþykkt um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar nr. 650/2026 (bæjarmálasamþykkt Akraneskaupstaðar) en samkvæmt sveitarstjórnarlögum þarf tvær umræður í sveitarstjórn um slíkar breytingar, staðfestingu ráðuneytis sveitarstjórnarmála á þeim í kjölfar afgreiðslunnar og taka breytingarnar svo gildi við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Þær breytingar sem lagðar er til eru eftirfarandi:

1. Breyting varðandi tímasetningu bæjarstjórnarfunda og lagt til að þeir verði að jafnaði kl. 15:00 í stað kl. 17:00 en bæjarstjórn fundar tvisvar í hverjum mánuði, annan og fjórða þriðjudag hvers mánaðar.

2. Breyting varðandi kjörgengi varaformanns í fagráðum Akraneskaupstaðar, annarra en bæjarráðs,

- Breytingin sem lögð er til að ekki verði áskilið að varaformaður verði kosinn úr hópi kjörinna aðalmanna í bæjarstjórn og tekur til skipunar varaformanns mennta- og menningarráðs, velferðar- og mannréttindaráðs og skipulags- og umhverfisráðs.

3. Stofnun tveggja nýrra nefnda:

- atvinnu- og innviðanefndar, sem skipuð verði sex aðalmönnum og heyri undir stjórnsýslu bæjarráðs.

- íþróttanefndar , sem skipuð verði sex aðalmönnum og heyri undir stjórnsýslu mennta- og menningarráðs.

Nefndirnar fara með verkefni samkvæmt erindisbréfi bæjarstjórnar.

Til máls tóku:

SVV, LL, BH, LÁS, SVV og SDA,

Bæjarstjórn samþykkir að vísa fyrirliggjandi tillögum að breytingum á samþykkt um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar til síðari umræðu í bæjarstjórn sem fyrirhugað er að fari fram þann 18. júní nk.

Samþykkt 9:0

 

5. 2606-4474 - Kosning í ráð og nefndir kjörtímabilið 2026-2030

Í upphafi kjörtímabils er kosið í ráð og nefndir sveitarfélagsins.

Kosning forseta og varaforseta bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar skv. 7. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar.

 

1. Forseti bæjarstjórnar

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Forseti bæjarstjórnar verði bæjarfulltrúi Ragnar Baldvin Sæmundsson (B).

Samþykkt 9:0

 

2. Fyrsti varaforseti bæjarstjórnar

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Fyrsti varaforseti verði bæjarfulltrúi Bjarnheiður Hallsdóttir (D).

Samþykkt 9:0

 

3. Annar varaforseti bæjarstjórnar

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Annar varaforseti verði bæjarfulltrúi Jón Guðni Guðmundsson (C).

Samþykkt: 9:0

 

4. Kosning í ráð og nefndir skv. 44. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar.

 

4.1. Bæjarráð

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Aðalmenn:

Líf Lárusdóttir (D), formaður

Ragnar Baldvin Sæmundsson (B), varaformaður

Sigurður Vopni Vatnsdal (S)

Áheyrnarfulltrúar:

Jón Guðni Guðmundsson (C)

Hrafn Ágúst Björnsson (M)

Varamenn:

Bjarnheiður Hallsdóttir (D)

Liv Aase Skarstad (B)

Jónína Margrét Sigmundsdóttir (S)

Varaáheyrnarfulltrúar:

Helga Björg Þrastardóttir (C)

Guðríður Matt Þorbjörnsdóttir (M)

Samþykkt 9:0

 

4.2. Mennta- og menningarráð

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Aðalmenn:

Liv Aase Skarstad (B), formaður

Guðmundur Ingþór Guðjónsson (D), varaformaður

Helga Björg Þrastardóttir (C)

Áheyrnarfulltrúar:

Kristinn Hallur Sveinsson (S)

Finney Aníta Telmudóttir (M)

Varamenn:

Erla Karlsdóttir (D)

Áslaug Guðmundsdóttir (B)

Guðný Sara Birgisdóttir (C)

Varaáheyrnarfulltrúar:

Katrín Valdís Hjartardóttir (S)

Ólafur Rúnar Sigurðsson (M)

Samþykkt 9:0

 

4.3. Skipulags- og umhverfisráð

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Aðalmenn:

Ragnar Baldvin Sæmundsson (B), formaður

Hrafn Ágúst Björnsson (M), varaformaður

Viktor Elvar Viktorsson (D)

Áheyrnarfulltrúar:

Jón Guðni Guðmundsson (C)

Anna Sólveig Smáradóttir (S)

Varamenn:

Sædís Alexía Sigurmundsdóttir (B)

Guðríður Matt Þorbjörnsdóttir (M)

Emil Kristmann Sævarsson (D)

Varaáheyrnarfulltrúar:

Guðmundur Claxton (C)

Þóranna Hildur Kjartansdóttir (S)

Samþykkt 9:0

 

4.4. Velferðar- og mannréttindaráð

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Aðalmenn:

Bjarnheiður Hallsdóttir (D), formaður

Jónína Margrét Sigurmundsdóttir (S), varaformaður

Aníta Eir Einarsdóttir (B)

Áheyrnarfulltrúar:

Ingvar Örn Ákason (C)

Guðríður Matt Þorbjörnsdóttir (M)

Varamenn:

Ragnheiður Helgadóttir (D)

Jón Hjörvar Valgarðsson (S)

Karl Jóhann Haagensen (B)

Varaáheyrnarfulltrúar:

Tinna Steindórsdóttir (C)

Ágúst Snær Þorsteinsson (M)

Samþykkt 9:0

 

5. Stjórn Höfða

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Aðalmenn:

Bjarnheiður Hallsdóttir (D), formaður

Elín Theódóra Reynisdóttir (B), varaformaður

Björn Guðmundsson (S)

Varamenn:

Ragnheiður Helgadóttir (D)

Erla Eðvarðsdóttir (B)

Jónína Margrét Sigmundsdóttir (S)

Samþykkt 9:0

 

6. Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Aðalmaður:

Ragnar Baldvin Sæmundsson (B)

Varamaður:

Liv Aase Skarstad (B)

 

7. Stjórn Faxaflóahafna

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Aðalmaður:

Líf Lárusdóttir (D)

Varamaður:

Guðmundur Ingþór Guðjónsson (D)

Samþykkt 9:0

 

8. Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Aðalmenn:

Ragnar Baldvin Sæmundsson (B)

Hrafn Ágúst Björnsson (M)

Varamenn:

Sædís Alexía Sigurmundsdóttir (B)

Hörður Svavarsson (M)

Samþykkt 9:0

 

9. Sorpurðun Vesturlands

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Aðalmenn:

Emil Kristmann Sævarsson (D)

Ingvar Örn Ákason (C)

Varamenn:

Guðmundur Ingþór Guðjónsson (D)

Ellert Hjelm Gestsson (C)

Samþykkt 9:0

 

10. Stjórn heilbrigðisnefndar Vesturlands

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Aðalmaður:

Karl Jóhann Haagensen (B)

Varamaður:

Magni Grétarsson (B)

Samþykkt 9:0

 

11. Fulltrúaráð Fjölbrautarskóla Vesturlands

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Aðalmenn:

Hjörvar Gunnarsson (D)

Björgvin Viktor Færseth (B)

Íris Petra Jónsdóttir (B)

Jón Hjörvar Valgarðsson (S)

Alexander Aron Guðjónsson (C)

Varamenn:

Erla Karlsdóttir (D)

Adriana Monika Malczyk (B)

Freyr Líndal Sævarsson (B)

Margrét Bjarnadóttir (S)

Guðný Sara Birgisdóttir (C)

Samþykkt 9:0

 

12. Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Aðalmenn:

Líf Lárusdóttir (D)

Guðmundur Ingþór Guðjónsson (D)

Liv Aase Skarstad (B)

Sigurður Vopni Vatnsdal (S)

Jón Guðni Guðmundsson (C)

Varamenn:

Bjarnheiður Hallsdóttir (D)

Viktor Elvar Viktorsson (D)

Aníta Eir Einarsdóttir (B)

Jónína Margrét Sigmundsdóttir (S)

Helga Björg Þrastarsdóttir (C)

Samþykkt 9:0

 

13. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Aðalmenn:

Líf Lárusdóttir (D)

Bjarnheiður Hallsdóttir (D)

Ragnar Baldvin Sæmundsson (B)

Jón Guðni Guðmundsson (C)

Varamenn:

Guðmundur Ingþór Guðjónsson (D)

Viktor Elvar Viktorsson (D)

Liv Aase Skarstad (B)

Guðmundur Claxton (C)

Samþykkt 9:0

 

14. Almannavarnanefnd

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Aðalmaður:

Sturlaugur Haraldsson bæjarstjóri

Samþykkt 9:0

 

15. Fulltrúaráð Brunabótafélags Íslands

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Aðalmaður:

Sturlaugur Haraldsson bæjarstjóri

Varamaður:

Steinar Adolfsson, sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs

Samþykkt 9:0

 

16. Samstarfsnefnd lögreglu og sveitarfélaga

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Sturlaugur Haraldsson bæjarstjóri

Samþykkt 9:0

 

17. Þróunarfélag Grundartanga

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Ólafur Guðmundur Adolfsson

Samþykkt 9:0

 

18. Öldungaráð Akraness

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Aðalmenn:

Erla Dís Sigurjónsdóttir (D) formaður

Erla Björg Kristjánsdóttir (B)

Tinna Steindórsdóttir (C)

Samþykkt 9:0

 

19. Notendaráð um málefni fatlaðra

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Aðalmenn:

Þura Björk Hreinsdóttir (D)

Ólöf Guðmundsdóttir (B)

Margrét Rós Jósefsdóttir (S)

Samþykkt 9:0

 

20. Skipan kjörnefnda

20.1 Yfirkjörstjórn:

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Aðalmenn:

Einar Gunnar Einarsson

Geir Guðjónsson

Karitas Jónsdóttir

Varamenn:

Eva Þórðardóttir

Ingibjörg Valdimarsdóttir

Thelma Vestmann

 

20.2. Undirkjörstjórnir

20.2.1. Undirkjörstjórn 1

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Aðalmenn:

Bára Ármannsdóttir

Guðmundur Brynjar Júlíusson

Kristín Releena Jónasdóttir

Varamenn:

Bernodus Örn Karvelsson

Helgi Reyr Auðarson Guðmundsson

Hulda Björg Þórðardóttir

Samþykkt 9:0

 

20.2.2. Undirkjörstjórn 2

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Aðalmenn:

Bryndís Böðvarsdóttir

Berglind Ósk Pétursdóttir

Vilborg Þórunn Guðbjartsdóttir

Varamenn:

Guðlaug Sverrisdóttir

Stefán Jóhann Hreinsson

Sara Hjördís Blöndal

 

Samþykkt 9:0

 

20.2.3. Undirkjörstjórn 3

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Aðalmenn:

Hjördís Garðarsdóttir

Karitas Gissurardóttir

Veronica Líf Þórðardóttir

Varamenn:

Sigurbjörg Helga Sæmundsdóttir

Erna Björk Jónsdóttir

Berglind Bergsdóttir

Samþykkt 9:0

 

20.2.4 Undirkjörstjórn 4

Fram kom eftirfarandi tillaga:

Aðalmenn:

Lára Dóra Valdimarsdóttir

Ingibjörg Elín Jónsdóttir

Inga Þóra Lárusdóttir

Varamenn:

Ástrós Una Jóhannesdóttir

Íris Guðrún Sigurðardóttir

Fanney Ýr Gunnlaugsdóttir

Samþykkt 9:0

 

6. 2602-1595 - Bárugata 15 - Umsókn til skipulagsfulltrúa

Umsókn til skipulagsfulltrúa um breytt deiliskipulag fyrir lóðina Bárugata nr. 15. Breytingin felst í því að heimiluð bygging er lækkuð úr fjórum hæðum í tvær hæðir og heimilaðar íbúðir fækkað úr átta í fimm. Tillagan var grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, fyrir lóðarhöfum Bárugötu 17, 18 og 19 og Háteig 10 frá 14. apríl til 15. maí 2026.

Engar athugasemdir bárust.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á 355. fundi sínum þann 29. maí sl. að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja deiliskipulagsbreytingu vegna lóðarinnar Bárugata nr. 15 skv. 2. mgr. 43. skipulagslaga nr. 123/2010 og birtingu deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.

Bæjarstjórn samþykkir deiliskipulagsbreytingu vegna lóðarinnar Bárugata nr. 15 skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og birtingu deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.

Samþykkt 9:0

 

7. 2602-1805 - Skagabraut 7 - Umsókn til skipulagsfulltrúa

Umsókn til skipulagsfulltrúa um breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina Skagabraut 7. Í breytingunni felst að heimila þrjá kvisti á þaki hússins ásamt auknu byggingarmagni. Leitað var umsagnar Minjastofnunar Íslands þar sem húsið var byggt 1934 og er því umsagnarskylt. Minjastofnun gerði enga athugasemd í bréfi sínu sem fylgir með tillögunni. . Tillagan var grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 14. apríl til 18. maí 2026, fyrir lóðarhöfum Skagabrautar 5, 8, 9-11, Sunnubraut 21 og 30 ásamt Kirkjubraut 46.

Engar athugasemdir bárust.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á 355. fundi sínum þann 29. maí sl. að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja deiliskipulagsbreytingu vegna lóðarinnar Skagabraut nr. 7 skv. 2. mgr. 43. skipulagslaga nr. 123/2010 og birtingu deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.

Bæjarstjórn samþykkir deiliskipulagsbreytingu vegna lóðarinnar Skagabraut nr. 7 skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og birtingu deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.

Samþykkt 9:0

 

8. 2602-1606 - Aukafundur bæjarstjórnar kl. 17:00 þann 18. júní 2026

Halda þarf aukafund bæjarstjórnar þann 18. júní nk. vegna breytinga á samþykkt um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar.

Bæjarstjórn samþykkir að halda aukafund í bæjarstjórn fimmtudaginn 18. júní 2026 kl. 17:00.

Samþykkt 9:0

 

9. 2605-4035 - 3626. fundur bæjarráðs frá 28. maí 2026

1436. fundargerð bæjarráðs frá 28. maí 2026

Til máls tók:

JGG um fundarlið nr. 1.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

10. 2605-3817 - 355. fundur skipulags- og umhverfisráðs

355. fundur skipulags- og umhverfisráðs frá 29. maí 2026.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

11. 2602-1290 - Fundargerðir maí 2026 - Samband íslenskra sveitarfélaga

999. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28. maí 2026.

Til máls tók:

JGG um fundarlið nr. 8.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu