Bæjarstjórn
Forseti býður fundarmenn velkomna til fundar.
Um síðasta fund bæjarstjórnar er að ræða á kjörtímabilinu en umboð kjörinna fulltrúa rennur sitt skeið nú um mánaðamótin og þá tekur ný bæjarstjórn við keflinu næstu fjögur árin.
Forseti óskar nýkjörnum bæjarfulltrúum innilega til hamingju og megi þeim farnast sem allra best í sínum mikilvægu störfum fyrir íbúa Akraness.
Forseti óskar eftir, með vísan til c. liðar 15. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar nr. 696/2013, að tekin verði inn með afbrigðum mál nr. 2512-5542, Breyting á deiliskipulagi Garðalundar og Lækjarbotna, Hringtorg Akranesvegar, mál nr. 2605-3705, Framkvæmdaleyfi - Nýtt hringtorg og undirgöng við Akrafjallsveg ásamt fleiri verkþáttum og mál nr. 2605-3582 Fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 26. maí sl.
Verði afbrigðin samþykkt verða fyrstnefndu málin nr. 5 og nr. 6 í dagskránni og síðastnefnda málið nr. 11 í dagskrárnni og verða þá samtals 16 mál á dagskrá fundarins í stað 13 eins og boðað var í útsendri dagskrá.
Samþykkt 9:0
|
1. 2605-3553 - Bæjarlistarmaður Akraness 2026 Árlega útnefnir Akraneskaupstaður bæjarlistamann til eins árs í senn. Menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar óskaði eftir tillögum frá almenningi um bæjarlistamann Akraness árið 2026 og alls bárust 26 tilnefningar að þessu sinni. Niðurstaðan verður tilkynnt við hátíðlega athöfn á Þjóðhátíðardaginn þann 17. júní nk. Forseti gerir þá tillögu að þar sem leynd hvílir yfir hver það er sem hlýtur nafnbótina, verði afgreiðslu málsins frestað þar til í lok fundar og slökkt hefur verið á útsendingu fundarins. Engar athugasemdir voru gerðar við tillögu forseta. Málinu framhaldið: Bæjarstjórn samþykkir tilnefningu menningar- og safnanefndar um bæjarlistamann Akraness 2026. Samþykkt 9:0
|
|
2. 2602-1828 - Sementsreitur Deiliskipulag Reitir A og B Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Sementsreits, reita A og B, að lokinni grenndarkynningu samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Skipulags- og umhverfisráð hefur fjallað um framkomnar athugasemdir og viðbrögð við þeim og samþykkti á fundi sínum nr. 352 þann 4. maí sl. framlagða samantekt og svör við athugasemdum. Jafnframt lagði ráðið til við bæjarstjórn að samþykkja óverulega breytingu á deiliskipulagi Sementsreits, reita A og B, og að málið verði auglýst í B-deild Stjórnartíðinda samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bæjarstjórn samþykkir framlagða greinargerð f.h. skipulagsfulltrúa sem svar bæjarstjórnar við framkomnum athugasemdum. Samþykkt 9:0 Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi breytingu á deiliskipulagi Sementsreits, reita A og B og birtingu deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda. Samþykkt 9:0
|
|
3. 2605-3514 - Matarmiðar - Endurskoðun verðgildis Til skoðunar hefur verið að hækka verðgildi matarmiða Akraneskaupstaðar að kröfu þjónustuveitanda. Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nr. 3625 þann 13. maí sl. að verðgildi matarmiða Akraneskaupstaðar verði kr. 2.400 með gildistíma frá 1. júní 2026, og taldi bæjarráð vera rými innan samþykktrar fjárhagsáætlunar vegna þessa útgjaldaliðar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar. Bæjarstjórn samþykkir að verðgildi matarmiða Akraneskaupstaðar verði kr. 2.400 með gildistíma frá 1. júní 2026. Samþykkt 9:0
|
|
4. 2602-1606 - Breyting á dagsetningu fundar bæjarstjórnar fundurinn verði 10. júní 2026 í stað 9. júní 2026 Bæjarfulltrúar óska eftir að færa fund bæjarstjórnar, sem samkvæmt samþykktri fundaáætlun á að vera þriðjudaginn 9. júní nk. kl. 17:00, til 10. júní nk. kl. 17:00 vegna útskrifta sem fram fara í grunnskólum Akraneskaupstaðar þann 9. júní nk. Bæjarstjórn samþykkir að næsti fundur bæjarstjórnar, fundur nr. 1436, verði kl. 17:00 þann 10. júní nk. Samþykkt 9:0
|
|
5. 2512-5542 - Breyting á deiliskipulagi Garðalundar og Lækjarbotna - Hringtorg Akranesvegur Lögð er fram tillaga að verulegri breytingu á deiliskipulagi Garðalundar og Lækjarbotna að lokinni auglýsingu skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felur í sér stækkun skipulagssvæðis, aðlögun göngustíga og gerð hringtorgs við gatnamót Akranesvegar, Akrafjallsvegar og Lækjaskógar. Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 24. mars 2026 og var auglýst frá 7. apríl til 24. maí 2026. Tvær umsagnir bárust á auglýsingatíma. Heilbrigðiseftirlit Vesturlands gerði ekki athugasemdir við tillöguna. Veitur bentu á legu háspennulagnar innan svæðisins og óskuðu eftir að stofnlagnir yrðu sýndar á uppdrætti eða þeirra getið í greinargerð, auk samráðs við áframhaldandi hönnun og framkvæmdir. Ekki er talið að framkomnar umsagnir kalli á breytingar á meginforsendum tillögunnar. Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á fundi sínum nr. 353 þann 26. maí sl. framlagða samantekt umsagna vegna breytingar á deiliskipulagi Garðalundar og Lækjarbotna vegna hringtorgs við Akranesveg. Skipulags- og umhverfisráð taldi að framkomnar umsagnir gefi ekki tilefni til efnislegra breytinga á tillögunni og lagði til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt og send Skipulagsstofnun til yfirferðar skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, áður en hún taki gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda. Bæjarstjórn samþykkir deiliskipulagsbreytingu Garðalundar og Lækjarbotna, sem felur í sér stækkun skipulagssvæðis, aðlögun göngustíga og gerð hringtorgs við gatnamót Akranesvegar, Akrafjallsvegar og Lækjaskóga og að breytinging verði send Skipulagsstofnun og birt í B-deild Stjórnartíðinda. Samþykkt 9:0
|
|
6. 2605-3705 - Framkvæmdaleyfi - nýtt hringtorg og undirgöng við Akrafjallsveg ásamt fleiri verkþáttum Lögð fram umsókn Vegagerðarinnar dags. 11. maí 2026 um framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda við nýtt hringtorg á vegamótum Akrafjallsvegar (51-01/02) og Akranesvegar ásamt nýrri tengingu við Skógarhverfi, undirgöngum undir Akrafjallsveg fyrir göngu- og hjólastíg, stígagerð og veitulögnum. Framkvæmdin er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Akraneskaupstaðar, Landsnets og Veitna. Markmið framkvæmdarinnar er að bæta umferðaröryggi allra vegfarenda, auka greiðfærni og efla göngu- og hjólatengingar á svæðinu. Framkvæmdin er í samræmi við Aðalskipulag Akraness 2021–2033. Samhliða er í auglýsingu tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðalundar og Lækjarbotna vegna hringtorgs við þjóðveg. Auglýsingartíma tillögunnar lýkur 25. maí 2026. Með umsókninni fylgja framkvæmdalýsing og teikningar sem sýna fyrirhugaða framkvæmd, m.a. hringtorg, undirgöng og tengdar framkvæmdir. Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á fundi sínum nr. 354 þann 26. maí sl. að veita framkvæmdaleyfi fyrir nýju hringtorgi við Akrafjallsveg/Akranesveg, undirgöngum fyrir göngu- og hjólastíg, stígagerð og veitulögnum á grundvelli framlagnar umsóknar og meðfylgjandi gagna. Framkvæmdaleyfið taki ekki gildi fyrr en breyting á deiliskipulagi Garðalundar og Lækjarbotna, hringtorg við þjóðveg hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda. Verkefnastjóra skipulags- og umhverfissviðs var falið að ganga frá útgáfu framkvæmdaleyfis að uppfylltum framangreindum skilyrðum fyrir hönd skipulagsfulltrúa. Bæjarstjórn samþykkir að veita Vegagerðinni framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda við nýtt hringtorg á vegamótum Akrafjallsvegar og Akranesvegar ásamt nýrri tenginu við Skógarhverfi, undirgöngum undir Akrafjallsveg fyrir göngu- og hjólastíg, stígagerð og veitulögnum. Framkvæmdaleyfið taki þó ekki gildi fyrir en breyting á deiliskipulagi Garðalundar og Lækjarbotna - Hringtorg Akranesvegur, hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda. Samþykkt 9:0
|
|
7. 2605-3699 - 3625. fundur bæjarráðs 3625. fundargerð bæjarráðs frá 13. maí 2026. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
8. 2605-3498 - 267. fundur velferðar- og mannréttindaráðs 267. fundargerð velferðar- og mannréttindaráðs frá 11. maí 2026. Forseti gerir að tillögu sinni að dagskrárliðir nr. 8 og nr. 9 verði ræddir saman undir dagskrárlið nr. 8 en umræðurnar verði færðar til bókar undir viðeigandi máli. Enginn fundarmanna hreyfði andmælum við tillögunni. Til máls tóku: KHS um fundarliði nr. 1 og nr. 2. EBr um fundarlið nr. 1. LÁS um fundarlið nr. 1. KHS um fundarlið nr. 1. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
9. 2605-3755 - 268. fundur velferðar- og mannréttindaráðs 268. fundargerð velferðar- og mannréttindaráðs frá 19. maí 2026. Til máls tók: KHS um fundarlið nr. 1. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
10. 2604-3343 - 353. fundur skipulags- og umhverfisráðs 353. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 18. maí 2026. Forseti gerir að tillögu sinni að dagskrárliðir nr. 10 og nr. 11 verði ræddir saman undir dagskrárlið nr. 10 en umræðurnar verði færðar til bókar undir viðeigandi máli. Enginn fundarmanna hreyfði andmælum við tillögunni. Til máls tóku: GIG um fundarliði nr. 1, nr. 2 og nr. 4. SAS um fundarliði nr. 2 og nr. 4. VLJ úr stóli forseta um fundarlið nr. 2. JMS um fundarlið nr. 3. LÁS um fundarlið nr. 3. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
11. 2605-3582 - 354. fundur skipulags- og umhverfisfráðs 354. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 26. maí 2026. Til máls tók: GIG um fundarliði nr. 1, nr. 2 og nr. 3. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
12. 2605-3906 - 285. fundur skóla- og frístundaráðs 285. fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 20. maí 2026. Til máls tóku: JMS um fundarlið nr. 6. LÁS um fundarliði nr. 6. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
13. 2602-1293 - Fundargerðir apríl 2026 - Faxaflóahafnir 267. fundargerð stjórnar Faxaflóahafna sf. frá 22. apríl 2026. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
14. 2604-2885 - Fundargerðir febrúar og mars 2026 - Orkuveita Reykjavíkur 374. fundargerð stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 23. febrúar 2026. 375. fundargerð stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 6. mars 2026. Til máls tók: VLJ úr stóli forseta um fundargerð nr. 374 frá 23. febrúar 2026, fundarliði nr. 3 og nr. 5. VLJ úr stóli forseta um fundagerð nr. 375 frá 6. mars 2026, fundarliði nr. 1 og nr. 2. VLJ úr stóli forseta þar sem hann vekur athygli á frétt Veitna frá því fyrr í dag varðandi rannsóknir á mögulega vatnstökusvæði í norðanverðu Akrafjalli en Veitur hafa undirritað samkomulag þess efnis við landeigendur á Bekanstöðum, Hvítanesi og Arkarlæk. Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.
|
|
15. 2602-1290 - Fundargerðir maí 2026 - Samband íslenskra sveitarfélaga 998. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 8. maí 2026. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
16. 2602-1645 - Fundargerðir maí 2026 - Heilbrigðiseftirlit Vesturlands 202. fundargerð Heilbrigðisnefndar Vesturlands frá 18. maí 2026. Til máls tók: KHS um þær áskoranir sem Heilbrigðisnefndir og þar með sveitarfélögin munu standa frammi fyrir vegna fyrirhugaðra lagabreytinga sem ráðgert er að taka gildi um næstu áramót og fela í sér yfirfærslu verkefnisins til ríkisins. Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
Forseti opnar fyrir almennar umræður í lok kjörtímabilisins.
VLJ úr stóli forseta, JMS, SAS, EBr, KHS, LÁS, SDA, RBS og GIG.
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





