Bæjarstjórn
Forseti býður fundarmenn velkomna til fundar.
Forseti óskar eftir, með vísan til c. liðar 15. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar nr. 696/2013, að tekið verði inn með afbrigðum mál nr. 2601-0265, Húsnæðisáætlun 2026.
Verði afbrigðin samþykkt verður málið nr. 19 í dagskránni og verða þá samtals 29 mál á dagskrá fundarins í stað 28 eins og boðað var í útsendri dagskrá.
Samþykkt 9:0
|
1. 2603-2455 - Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2025 - A hluti Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2025 - A hluti. Bæjarráð hefur staðfest ársreikninga Aðalsjóðs og Eignasjóðs með undirritun sinni og lagt til við bæjarstjórn að ársreikningar Aðalsjóðs, Eignasjóðs, Byggðasafnsins í Görðum og Fasteignafélags Akraneskaupstaðar slf. vegna ársins 2025 verði samþykktir en fyrri umræða um ársreikningana fór fram á 1433. fundi bæjarstjórnar þann 28. apríl sl. Rekstrarniðurstaða A-hluta fyrir fjármagnsliði og óreglulega liði, er jákvæð um 6,2 m.kr. en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir um 96,8 m.kr. neikvæðri rekstrarniðurstöðu. Rekstrarniðurstaða A-hluta er jákvæð um 408,5 m.kr. en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir um 13,7 m.kr. jákvæðri rekstrarniðurstöðu. Lykiltölur A-hluta: Fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga:
Forseti leggur fram tillögu um að ræða dagskrárliði nr. 1 til og með 3 saman undir dagskrárlið nr. 1 og að gerð verði grein fyrir umræðunni þar þó hvert og eitt mál verði eðli máls samkvæmt afgreitt sérstaklega undir viðeigandi dagskrárlið. Samþykkt 9:0 Til máls tók: SDA sem gerir grein fyrir helstu hagstærðum ársreikninganna í stuttu máli. Framhald umræðu: LL og VLJ úr stóli forseta. Forseti leggur fram eftirfarandi tillögu um afgreiðslu ársreikninga A-hluta Akraneskaupstaðar: Bæjarstjórn samþykkir ársreikninga A-hluta Akraneskaupstaðar vegna ársins 2025 og staðfestir með áritun sinni. Samþykkt 9:0
|
|
2. 2603-2456 - Ásreikningur Akraneskaupstaðar 2025 - B hluti Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2025 - B hluti. Bæjarráð hefur staðfest ársreikning Gámu með undirritun sinni og lagt til við bæjarstjórn að ársreikningar Fasteignafélagsins ehf., Gámu, Háhita ehf. og Höfða hjúkrunar og dvalarheimilis vegna ársins 2025 verði samþykktir en fyrri umræða bæjarstjórnar um ársreikningana fór fram á 1433. fundi bæjarstjórnar þann 28. apríl sl. Rekstrarniðurstaða B-hluta fyrir fjármagnsliði og óreglulega liði var neikvæð um 118,8 m.kr. en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir um 110,7 m.kr. neikvæðri rekstrarniðurstöðu. Rekstrarniðurstaða B-hluta var neikvæð um 115,0 m.kr. en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir um 114,8 m.kr. neikvæðri rekstrarniðurstöðu. Forseti leggur fram eftirfarandi tillögu um afgreiðslu ársreiknings B-hluta Akraneskaupstaðar: Bæjarstjórn samþykkir ársreikninga B-hluta Akraneskaupstaðar vegna ársins 2025 og staðfestir með áritun sinni. Samþykkt 9:0
|
|
3. 2604-2982 - Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2025 – Samstæða Samstæðureikningur Akraneskaupstaðar 2025. Bæjarráð hefur staðfest samstæðuársreikning Akraneskaupstaðar 2025 með undirritun sinni og lagt til við bæjarstjórn að reikningurinn verði samþykktur en fyrri umræða um áreikninginn fór fram á 1433. fundi bæjarstjórnar þann 28. apríl sl. Rekstrarniðurstaða Akraneskaupstaðar, A- og B- hluta, fyrir fjármagnsliði og óreglulega liði, var neikvæð um 38,9 m.kr. en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir um 130,3 m.kr. neikvæðri rekstrarniðurstöðu. Rekstrarniðurstaða samstæðureiknings Akraneskaupstaðar með óreglulegum liðum var jákvæð um 293,5 m.kr. en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir um 101 m.kr. neikvæðri rekstrarniðurstöðu. Lykiltölur samstæðu: Fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga:
Forseti leggur fram eftirfarandi tillögu um afgreiðslu samstæðuársreiknings (A- og B- hluta) Akraneskaupstaðar: Bæjarstjórn samþykkir samstæðuársreikning Akraneskaupstaðar og ábyrgða- og skuldbindingayfirlit vegna ársins 2025 og staðfestir með áritun sinni. Samþykkt 9:0
|
|
4. 2601-0028 ÍA - rekstur,samskipti og samningur 2026 Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nr. 3624 þann 7. maí sl. fyrirliggjandi tillögu um nýjan þjónustusamning Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness og vísaði málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar. Til máls tóku: JMS, RBS,, LÁS og LL. Bæjarstjórn samþykkir nýjan þjónustusamning Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness vegna tímabilsins 1. janúar 2027 til og með 31. desember 2031. Samþykkt 9:0
|
|
5. 2603-1888 - Mannauðs- og launakerfi - Kynningar og val á kerfi Bæjarráð samþykkti viðauka nr. 5 á fundi sínum nr. 3621 þann 26. mars sl. og vísaði honum til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar. Viðaukinn er vegna úthlutunar á viðbótarfjármagni vegna nýs launakerfis, samtals að fjárhæð kr. 5.191.500, er fært á deild 21670-4992 og er mætt með lækkun á áætluðum rekstrarafgangi ársins 2026. Til máls tóku: SDA, LÁS og SDA. Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun ársins 2026. Samþykkt 9:0
|
|
6. 2601-1079 - Fjöliðjan - húsnæðismál / Smiðjuvellir 9 frjáls skráning leigusala Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nr. 3621 þann 26. mars sl. viðauka nr. 6 og vísaði honum til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar. Viðaukinn er vegna úthlutunar viðbótarfjármagns til Fjöliðjunnar samtals að fjárhæð kr. 2.112.00, vegna útgjalda sem óhjákvæmilega falla til vegna leigu á stærra rými en var í fyrri leigusamningi. Fjármagninu er ráðstafað innan fjárhagsáætlunar af deild 20830-4995 og inn á tilteknar deildir sem tilheyra Fjöliðjunni skv. meðfylgjandi fylgiskjali. Til máls tók: KHS. Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 6 við fjárhagsáætlun ársins 2026. Samþykkt 9:0
|
|
7. 2604-2862 - Kirkjugarður Akraness - kostnaður við jarðvegsskipti Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nr. 3623 þann 30. apríl sl. viðauka nr. 7 og vísaði honum til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar. Viðaukinn er tilkominn vegna úthlutunar fjármuna til Akraneskirkju vegna endurgreiðslu á fyrirliggjandi kostnaði vegna jarðvegsskipta sem fram fóru árið 2023 og eru að heildarfjárhæð kr. 4.074.000 og byggir endurgreiðslan á viðmiðunarreglum Kirkjugarðaráðs og Sambands íslenskra sveitarfélaga um kirkjugarðsstæði og fleira frá 1. júlí 2015. Útgjöldunum er mætt innan fjárhagsáætlunar með úthlutun fjármagns af deild 20830-4995 og fært á deild 11230-4636. Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 7 við fjárhagsáætlun ársins 2026. Samþykkt 9:0
|
|
8. 2604-3126 - Erindi leikskólastjóra til skóla- og frístundaráðs Barngildi í leikskólum Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nr. 3623 þann 30. apríl sl. viðauka nr. 8 og vísaði honum til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar. Viðaukinn er vegna úthlutunar viðbótarfjármagns til leikskóla Akraneskaupstaðar, samtals að fjárhæð kr. 16,8 m.kr., vegna aukningar barngilda í elsta árgangi leikskólanna úr 0,8 í 1,0. Fjármagnið er fært á rekstrardeildir leikskólanna samkvæmt réttri hlutfallsskiptingu miðað við barngildi hvers skóla fyrir sig og er mætt með lækkun á væntum rekstrarárgangi ársins 2026. Gera þarf ráð fyrir þessari breytingu við komandi fjárhagsáætlunargerð vegna ársins 2027 en áætlaður heildarkostnaður breytingarinnar á ársgrunni er um 40,0 m.kr. Til máls tók: JMS. Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 8 við fjárhagsáætlun ársins 2026. Samþykkt 9:0
|
|
9. 2604-3210 - Erindi frá leikskólastjórum um breytingar á reiknilíkani leikskólanna Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nr. 3623 þann 30. apríl sl. viðauka nr. 9 og vísaði honum til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar. Viðaukinn er vegna úthlutunar viðbótarfjármagns til leikskóla Akraneskaupstaðar samtals að fjárhæð kr. 4.584.000. Fjármagnið er fært á rekstrardeildir leikskólanna samkvæmt réttri hlutfallsskiptingu miðað við útreikninga samkvæmt reiknilíkani og er mætt með lækkun á væntum rekstrarafgangi ársins. Áætlaður heildarkostnaður á ársgrundvelli er um 11,0 m.kr. og gera þarf fyrir þessari aukningu við gerð fjárhagsáætlunar vegna ársins 2027. Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 9 við fjárhagsáætlun ársins 2026. Samþykkt 9:0
|
|
10. 2602-1575 - Hljóðkerfi fyrir Akranesvöll Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nr. 3623 þann 30. apríl sl. viðauka nr. 10 og vísaði honum til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar. Viðaukinn er vegna úthlutunar viðbótarfjármagns til íþróttamiðstöðvarinnar Jaðarsbökkum að fjárhæð kr. 3.675.000 vegna kaupa á hljóðkerfi fyrir Akranesvöll á þeim forsendum að búnaðurinn verði hluti af almennum búnaði íþróttamiðstöðvarinnar og geti nýst öðrum íþróttafélögum á svæðinu. Fjármagninu er ráðstafað innan fjárhagsáætlunar af deild 20830-4660 og inn á deild 06510-4660. Til máls tók: SDA. Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 10 við fjárhagsáætlun ársins 2026. Samþykkt 9:0
|
|
11. 2604-3359 - Fjárhagsáætlun 2026 - sameiginlegur viðauki Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nr. 3624 þann 7. maí sl. viðauka nr. 12 og vísaði honum til bæjarstjórnar til endanlegrar samþykktar. Um sameiginlegan viðauka bæjarráðs er að ræða en í honum eru ýmsar ráðstafanir, bæði á tekju- og útgjaldahlið en einnig eru gerðar tilteknar umsvifamiklar aðgerðir sem hafa ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu ársins. Þar er helst að nefna hækkun prósentu fjármagnskostnaðar sem var hækkuð úr 4,5% í 6,5% og hefur áhrif á innri leigu sbr. meðfylgjandi fylgiskjal viðaukans. Heildarfjárhagsleg áhrif viðaukans er tekjuaukning að fjárhæð kr. 152.070.000. Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 12 við fjárhagsáætlun ársins 2026. Samþykkt 9:0
|
|
12. 2601-0830 - Beiðni Klifurfélags Akraness um kaup á dýnum Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nr. 3624. þann 7. maí sl. viðauka nr. 13 og vísaði honum til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar. Viðaukinn er vegna úthlutunar viðbótarfjármagns til íþróttamannvirkja Akraneskaupstaðar samtals kr. 2.590.000 vegna kaupa á dýnum sem verða hluti af almennum búnaði íþróttamannvirkjanna. Fjármagnið er fært á deild 06520-4660 og er mætt með lækkun á væntum rekstrarafgangi ársins 2026. Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 13 við fjárhagsáætlun ársins 2026. Samþykkt 9:0
|
|
13. 2505-2509 Tillaga að breytingu á framlagi frístundastyrkja Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nr. 3624 þann 7. maí fyrirliggjandi tillögur um breytingar á frístundastyrkjum og að gert verði ráð fyrir þessari breytingu við komandi fjárhagsáætlunargerð vegna ársins 2027. Breytingin er áætluð að fjárhæð 10,3 m.kr. á árinu 2027. Bæjarstjórn samþykkir breytingar á frístundastyrkjum sem fela í sér áætlun um áfangahækkun styrkjanna á tímabilinu 2027 til og með 2030 (árleg hækkun um 20%). Samþykkt 9:0
|
|
14. 2512-5181 - Reglur vegna umsókna um menningarstyrki teknar til endurskoðunar Uppfærðar reglur vegna menningarstyrkja Akraneskaupstaðar. Bæjarstjórn samþykkir uppfærðar reglur vegna menningarstyrkja. Samþykkt 9:0
|
|
15. 2604-3252 - Fyrirhuguð stækkun Dvalarheimilisins Höfða Á fundi bæjarráðs nr. 3624 þann 7. maí sl. lýsti ráðið yfir vilja sínum til að farið yrði í stækkun Hjúkrunar- og dvalarheimili Höfða um allt að 60 hjúkrunarrými í samvinnu við félags- og húsnæðismálaráðuneytið og Hvalfjarðarsveit og vísaði málinu til endanlegrar ákvörðunar bæjarstjórnar. Til máls tóku: GIG, EBr, RBS, KHS og LL. Bæjarstjórn samþykkir viljayfirlýsingu um stækkun Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Höfða um allt að 60 hjúkrunarrými í samvinnu við félags- og húsnæðismálaráðuneytið og Hvalfjarðarsveit. Samþykkt 9:0
|
|
16. 2601-0713 - Nýtt deiliskipulag Kirkjubraut Skipulags- og umhverfisráð fjallaði á fundi sínum nr. 352 þann 4. maí sl. um tillögu að nýju deiliskipulagi Kirkjubrautar að loknum auglýsingatíma og samþykkti framlagða samantekt skipulagshönnuðar og lagði til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt og birt í B-deild Stjórnartíðinda. Bæjarstjórn samþykkir framlagða greinargerð skipulagshönnuðar sem svar bæjarstjórnar við framkomnum athugasemdum vegna nýs deiliskipulags fyrir Kirkjubraut og Kalmansbraut. Samþykkt 9:0 Bæjarstjórn samþykkir nýtt deiliskipulag fyrir Kirkjubraut og Kalmansbraut, deiliskipulagið verði sent Skipulagsstofnun og birt í B-deild Stjórnartíðinda. Samþykkt 9:0
|
|
17. 2604-3387 - Suðurgata 57 - Breyting á deiliskipulagi Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Akratorgsreits vegna Suðurgötu 57. Tillagan felur í sér hækkun núverandi húss um eina hæð, þannig að það verði fjórar hæðir með kjallara, auk þess sem gert er ráð fyrir auknu byggingarmagni. Nýtingarhlutfall hækkar úr 1,36 í 1,78. Jafnframt er gert ráð fyrir breyttri starfsemi í húsinu, þar sem áformað er að starfrækja hótel á efri hæðum og veitingastað á jarðhæð, ásamt fjölnotasal á 4. hæð. Svæðið er skilgreint sem miðsvæði í Aðalskipulagi Akraness 2021–2033 og er tillagan í samræmi við stefnu aðalskipulags um þéttingu byggðar og blandaða starfsemi í miðbæ. Kynningarfundur með íbúum og hagsmunaaðilum var haldinn 27. apríl þar sem um 85 manns mættu. Viðbrögð voru almennt jákvæð og fram komu ábendingar sem unnið hefur verið með við frekari útfærslu tillögunnar. Skipulags- og umhverfisráð þakkar íbúum Akraness fyrir góða þátttöku og uppbyggilega umræðu. Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Akratorgsreits vegna Suðurgötu 57, skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Til máls tók: KHS. Bæjarstjórn samþykkir að auglýst verði tillaga að breytingu á deiliskipulagi Akratorgsreits vegna Suðurgötu 57 skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt 9:0
|
|
18. 2604-2974 - Stefna og viðbragðsáætlun í EKKO málum - Afgreiðslur ráða Drög að stefnu og viðbragðsáætlunar Akraneskaupstaðar í EKKO málum var til umfjöllunar á fundi bæjarráðs þann 16. apríl sl. og þá vísað til fagráða Akraneskaupstaðar en gert er ráð fyrir að bæjarstjórn geti afgreitt málið á fundi sínum þann 12. maí nk. Fagráð Akraneskaupstaðar hafa síðan tekið stefnuna til umfjöllunar og samþykkt hana fyrir sitt leyti og vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Velferðar- og mannréttindaráð áréttaði mikilvægi skýrra verkferla og leiðbeininga til að tryggja gagnsæi málsmeðferðar. Til máls tók. SDA. Bæjarstjórn samþykkir stefnu og viðbragðsáætlun Akraneskaupstaðar í svo nefndum EKKO málum (E: Einelti, K: Kynferðisleg áreitni, K: Kynbundin áreitni, O: Ofbeldi). Samþykkt 9:0
|
|
19. 2601-0265 - Húsnæðisáætlun 2026 Yfirlit frá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun vegna stöðu húsnæðisuppbyggingar í sveitarfélaginu og verkefna sveitarstjórnar á sviði húsnæðis- og skipulagsmála. Til máls tóku: SDA, VLJ úr stóli forseta og RBS. Lagt fram.
|
|
20. 2604-3159 - 3623. fundur bæjarráðs 3623. fundargerð bæjarráðs frá 30. apríl 2026. Forseti gerir það að tillögu sinni að umræður um dagskrárliði nr. 20 og nr. 21 verði tekin í einu lagi en færðar til bókar undir hvorum dagskrárlið fyrir sig. Enginn bæjarfulltrúi gerði athugasemdir við tillöguna. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
21. 2605-3423 - 3624. fundur bæjarráðs 3624. fundargerð bæjarráðs frá 7. maí 2026. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
22. 2604-2932 - 351. fundur skipulags- og umhverfisfráðs 351. fundargerð skipulags- og umhverfisfráðs frá 28. apríl 2026. Forseti gerir það að tillögu sinni að umræður um dagskrárliði nr. 22 og nr. 23 verði tekin í einu lagi en færðar til bókar undir hvorum dagskrárlið fyrir sig. Enginn bæjarfulltrúi gerði athugasemdir við tillöguna. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
23. 2604-3180 - 352. fundur skipulags- og umhverfisráðs 352. fundargerð skipulags- og umhverfisfráðs frá 4. maí 2026. Til máls tóku: LÁS um fundarlið nr. 11. GIG um fundarlið nr. 11. GIG um fundarliði nr. 5, nr. 7, nr. 8, nr. 11 og nr. 13. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
24. 2604-2990 - 265. fundur velferðar- og mannréttindaráðs 265. fundur velferðar- og mannréttindaráðs frá 21. apríl 2026. Forseti gerir það að tillögu sinni að umræður um dagskrárliði nr. 24 og nr. 25 verði tekin í einu lagi en færðar til bókar undir hvorum dagskrárlið fyrir sig. Enginn bæjarfulltrúi gerði athugasemdir við tillöguna. Til máls tók:KHS um fundarlið nr. 1. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
25. 2604-3187 - 266. fundur velferðar- og mannréttindaráðs 266. fundur velferðar- og mannréttindaráðs frá 5. maí 2026. Til máls tók: KHS um dagskrárlið nr. 1. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
26. 2604-3243 - 284. fundur skóla- og frístundaráðs 284. fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 6. maí 2026. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
27. 2601-0928 - Fundargerð apríl 2026 Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili 171. fundargerð stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis frá 27. apríl 2026. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
28. 2602-1290 - Fundargerð apríl 2026 Samband íslenskra sveitarfélaga 997. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 17. apríl 2026. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
29. 2602-1293 - Fundargerð 20.03.2026 Faxaflóahafnir 266. fundargerð stjórnar Faxaflóahafna sf. frá 20. mars 2026. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





