Fara í efni  

Bæjarstjórn

1433. fundur 28. apríl 2026 kl. 17:00 - 19:56 Miðjunni Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Valgarður Lyngdal Jónsson forseti bæjarstjórnar
  • Einar Brandsson 1. varaforseti bæjarstjórnar
  • Ragnar B. Sæmundsson 2. varaforseti bæjarstjórnar
  • Líf Lárusdóttir bæjarfulltrúi
  • Kristinn Hallur Sveinsson bæjarfulltrúi
  • Guðmundur Ingþór Guðjónsson bæjarfulltrúi
  • Jónína Margrét Sigmundsdóttir bæjarfulltrúi
  • Sædís Alexía Sigurmundsdóttir bæjarfulltrúi
  • Aníta Eir Einarsdóttir varafulltrúi
Starfsmenn
  • Steinar Adolfsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson bæjarstjóri

Forseti býður fundarmenn velkomna til fundar.

1. 2603-2455 - Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2025 - A hluti

Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2025 - A hluti.

Bæjarráð hefur staðfest ársreikninga Aðalsjóðs og Eignasjóðs með undirritun sinni og lagt til við bæjarstjórn að ársreikningar Aðalsjóðs, Eignasjóðs, Byggðasafnsins í Görðum og Fasteignafélags Akraneskaupstaðar slf. vegna ársins 2025 verði samþykktir.

Forseti leggur fram tillögu um að ræða dagskrárliði nr. 1 til og með 3 saman undir dagskrárlið nr. 1 og að gerð verði grein fyrir umræðunni þar þó hvert og eitt mál verði eðli máls samkvæmt afgreitt sérstaklega undir viðeigandi dagskrárlið.

Samþykkt 9:0

Rekstrarniðurstaða A-hluta fyrir fjármagnsliði og óreglulega liði, er jákvæð um 6,2 m.kr. en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir um 96,8 m.kr. neikvæðri rekstrarniðurstöðu.

Rekstrarniðurstaða A-hluta er jákvæð um 408,5 m.kr. en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir um 13,7 m.kr. jákvæðri rekstrarniðurstöðu.

Lykiltölur A-hluta:

Fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga:

  • Rekstrarjöfnuður síðustu þriggja ára í m.kr. er 957,517 en nam 494,170 árið 2024.
  • Skuldaviðmið er 68% en var 71% árið 2024.
  • EBITDA framlegð er 4,03% en var 2,24% árið 2024.Veltufé frá rekstri er 13,34% en var 6,70% árið 2024.
  • Skuldahlutfall (skuldir/rekstrartekjum) er 110% en var 121% árið 2024.
  • Eiginfjárhlutfall er 44% en var 43% árið 2024.
  • Veltufjárhlutfall er 1,0 en var 1,05 árið 2024.

Til máls tók:SDA sem gerði grein fyrir niðurstöðu ársreiknings Akraneskaupstaðar fyrir árið 2025.

Framhald umræðu:

LL, RBS, EBr, SAS, SDA og VLJ úr stóli forseta.

Bæjarstjórn samþykkir að ársreikningur A- hluta Akraneskaupstaðar vegna ársins 2025 verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn sem fram fer þann 12. maí nk.

Samþykkt 9:0

 

2. 2603-2456 - Ásreikningur Akraneskaupstaðar 2025 - B hluti

Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2025 - B hluti.

Bæjarráð hefur staðfest ársreikning Gámu með undirritun sinni og lagt til við bæjarstjórn að ársreikningar Fasteignafélagsins ehf., Gámu, Háhita ehf. og Höfða hjúkrunar og dvalarheimilis vegna ársins 2025 verði samþykktir.

Rekstrarniðurstaða B-hluta fyrir fjármagnsliði og óreglulega liði var neikvæð um 118,8 m.kr. en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir um 110,7 m.kr. neikvæðri rekstrarniðurstöðu.

Rekstrarniðurstaða B-hluta var neikvæð um 115,0 m.kr. en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir um 114,8 m.kr. neikvæðri rekstrarniðurstöðu.

Bæjarstjórn samþykkir að ársreikningum B- hluta Akraneskaupstaðar vegna ársins 2025 verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn sem fer fram þann 12. maí næstkomandi.

Samþykkt 9:0

 

3. 2604-2982 - Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2025 – Samstæða

Samstæðureikningur Akraneskaupstaðar 2025.

Bæjarráð hefur staðfest samstæðuársreikning Akraneskaupstaðar 2025 með undirritun sinni og lagt til við bæjarstjórn að reikningurinn verði samþykktur.

Rekstrarniðurstaða Akraneskaupstaðar, A- og B- hluta, fyrir fjármagnsliði og óreglulega liði, var neikvæð um 38,9 m.kr. en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir um 130,3 m.kr. neikvæðri rekstrarniðurstöðu.

Rekstrarniðurstaða samstæðureiknings Akraneskaupstaðar með óreglulegum liðum var jákvæð um 293,5 m.kr. en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir um 101 m.kr. neikvæðri rekstrarniðurstöðu.

Lykiltölur samstæðu:

Fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga:

  • Rekstrarjöfnuður síðustu þriggja ára í m.kr. er um 617,2 en nam um kr. 222,4 árið 2024.
  • Skuldaviðmið er 65% en var 67% árið 2024.
  • EBITDA framlegð er 3,48% en var 2,13% árið 2024.
  • Veltufé frá rekstri er 11,34% en var 5,73% árið 2024.
  • Skuldahlutfall (skuldir/rekstrartekjum) er 105% en var 113% árið 2024.
  • Eiginfjárhlutfall er 41% en var 40% árið 2024.
  • Veltufjárhlutfall er 0,97 en var 0,95 árið 2024.

Bæjarstjórn samþykkir að samstæðureikningi A- og B- hluta Akraneskaupstaðar vegna ársins 2025 verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn sem fer fram þann 12. maí næstkomandi.

Samþykkt 9:0

 

4. 2505-1611 - Breytingar á verklagsreglum leikskólanna 2025

Skóla- og frístundaráð samþykkti breytingu á ákvæði 3.6. í verklagsreglum um starfsemi leikskóla, sem tekur til niðurfellingar fæðis- og dvalargjalda þegar foreldrar skrá börn í sumarleyfi samfelld í 5 vikur eða lengur í tengslum við sumarlokun leikskólana. Áður var aðeins hægt að fá gjöld felld niður fyrir eina viku umfram sumarlokunartímann. Málinu var vísað til bæjarráðs til afgreiðslu.

Bæjarráð samþykkti á fundi sinum nr. 3622 þann 16. apríl sl. breytingu á verklagsreglum um starfsemi leikskóla og vísaði málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi breytingar á verklagsreglum um starfsemi leikskóla á Akranesi sem taki þegar gildi.

Samþykkt 9:0

 

5. 2603-2697 - Reglur Akraneskaupstaðar um skólaakstur í grunnskóla

Skóla- og frístundaráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti á fundi sínum þann 8. apríl sl. og vísar þeim til afgreiðslu hjá bæjarráði.

Bæjarráð samþykkti reglurnar á fundi sínum nr. 3622 þann 16. apríl sl. og vísaði þeim til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi reglur um skólaakstur í grunnskólum Akraneskaupstaðar sem taki þegar gildi.

Samþykkt 9:0

 

6. 2604-2840 - 3622. fundur bæjarráðs

3622. fundargerð bæjarráðs frá 16. apríl 2026.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

7. 2604-2930 - 350. fundur skipulags- og umhverfisráðs

350. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 20. apríl 2026.

Til máls tóku:

GIG um fundarliði nr. 1, nr. 3, nr. 4, nr. 6, nr. 11 og nr. 12.

VLJ úr stóli forseta um fundarlið nr. 1.

JMS um fundarlið nr. 1.

SAS um fundarliði nr. 1, nr. 4, nr. 11 og nr. 12.

JMS um fundarlið nr. 1.Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

8. 2603-2567 - 264. fundur velferðar- og mannréttindaráðs

264. fundargerð velferðar- og mannréttindaráðs frá 13. apríl 2026.

Til máls tók:

KHS um fundarliði nr. 1, nr. 2 og nr. 3.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

9. 2604-3191 - 283. fundur skóla- og frístundaráðs

283. fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 24. apríl 2026.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

10. 2601-0928 - Fundargerðir mars 2026 Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili

169. fundargerð stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis frá 30. mars 2026

Forseti geri að tillögu sinni að dagskrárliðir nr. 10 og nr. 11 verði ræddir saman en umræðan verði færð til bókar undir hvorum lið fyrir sig. Engar athugasemdir gerðar við tillöguna af hálfu bæjarfulltrúa.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

11. 2601-0928 - Fundargerðir apríl 2026 Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili

170. fundargerð stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis frá 16. apríl 2026.

Til máls tók:

EBr um fundarlið nr. 1.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

12. 2604-2885 - Fundargerðir 2026 - Orkuveita Reykjavíkur

Undirrituð fundargerð aðalfundar Orkuveitu Reykjavíkur frá 17. apríl 2026.

Til máls tók:

VLJ úr stóli forseta um fundarlið nr. 3.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

13. 2603-2640 - Fundargerðir 2026 - Sorpurðun Vesturlands

Fundargerð aðalfundar Sorpurðunar Vesturlands hf. frá 25. mars 2026.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu