Fara í efni  

Bæjarstjórn

1432. fundur 14. apríl 2026 kl. 17:00 - 20:02 í Miðjunni, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Valgarður Lyngdal Jónsson forseti bæjarstjórnar
  • Einar Brandsson 1. varaforseti bæjarstjórnar
  • Ragnar B. Sæmundsson 2. varaforseti bæjarstjórnar
  • Líf Lárusdóttir bæjarfulltrúi
  • Kristinn Hallur Sveinsson bæjarfulltrúi
  • Liv Aase Skarstad bæjarfulltrúi
  • Guðmundur Ingþór Guðjónsson bæjarfulltrúi
  • Jónína Margrét Sigmundsdóttir bæjarfulltrúi
  • Sædís Alexía Sigurmundsdóttir bæjarfulltrúi
Starfsmenn
  • Steinar Adolfsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs

Forseti býður fundarmenn velkomna til fundar.

1. 2601-0227 - Hvalfjarðarsveit - þjónustusamningur við Akraneskaupstað vegna bókasafns

Fyrir liggja drög að þjónustusamningi á milli Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar sem hefur verið til úrvinnslu í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar. Bæjarráð hefur samþykkt fyrirliggjandi samningsdrög á fundi sínum nr. 3621 þann 26. mars sl. og vísaði þeim til endanlegrar ákvörðunar í bæjarstjórn. Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur samþykkt samninginn fyrir sitt leyti.

Til máls tóku:

LL, LÁS og KHS.

Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi þjónustusamning Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar vegna Bókasafns Akraness.

Samþykkt 9:0

 

2. 2603-2037 : Stofnframlög 2026 - Brynja leigufélag ses.

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 12. mars sl. stofnframlag Akraneskaupstaðar vegna umsóknar Brynju leigufélags ses. til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 5. mars. sl., um kaup á þremur íbúðum fyrir öryrkja á Akranesi. Áætlað heildarstofnvirði íbúðanna er um 180,2 m.kr. og nemur 12% hlutur Akraneskaupstaðar um 21,6 m.kr. sem er í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun vegna ársins 2026. Bæjarráð vísaði málinu til endanlegrar ákvörðun bæjarstjórnar Akraness.

Til máls tóku:

KHS, RBS, SDA, KHS og RBS.

Bæjarstjórn samþykkir stofnframlag Akraneskaupstaðar vegna umsóknar Brynju leigufélags ses. til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar vegna ársins 2026. Áætlað stofnvirði íbúðanna er um kr. 180,2 m.kr. og 12% hlutur Akraneskaupstaðar um 21,6 m.kr.

Samþykkt 9:0

 

3. 2604-2889 - Sveitarstjórnarkosningar 2026 - Lýðræðisleg þáttaka barna

Bréf umboðsmanns barna til bæjarstjórnar vegna komandi sveitarstjórnarkosninga og um mikilvægi þáttöku barna í lýðræðislegu samfélagi.

Til máls tók:

JMS.

Bæjarstjórn felur bæjarstjóra og sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs að hlutast til um að raungera umræðufund nemenda í grunnskólum Akraneskaupstaðar með fulltrúum þeirra fimm framboða sem bjóða fram til sveitarstjórnarkosninga á Akranesi en kosningarnar fara sem kunnugt er fram þann 16. maí nk.

Samþykkt 9:0

 

4. 2604-2898 - Sveitarstjórnarkosningar 2026

Sveitarstjórnarkosningar 2026 verða þann 16. maí nk. og er það hlutverk sveitarstjórna að ákveða fjölda og staðsetningu kjörstaða í sínu sveitarfélagi. Yfirkjörstjórn leggur til að kjörstaður að þessu sinni verði í Grundaskóla og að fjöldi kjördeild verðisamtals fjórar líkt og verið hefur undanfarin ár.

Til máls tók:

SDA.

Bæjarstjórn samþykkir að kjörstaður vegna sveitarstjórnarkosninganna á Akranesi þann 16. maí verði Grundaskóli og að fjöldi kjördeilda verði fjórar.

Samþykkt 9:0

 

5. 2602-1207 - Reglur um innritun í grunnskóla Akraneskaupstaðar

Skóla- og frístundaráð samþykkti breytingar á reglum um innritun í grunnskóla Akraneskaupstaðar á fundi sínum 26. mars sl. og vísaði þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir nýjar reglur um innritun í grunnskóla Akraneskaupstaðar sem taki þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi eldri reglur um sama efni frá 20. febrúar 2003.

Samþykkt 9:0

 

6. 2512-5184 : Menningarstefna Akraness undirbúningsvinna 2023

Menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar samþykkti drög að uppfærðri menningarstefnu kaupstaðarins og vísaði henni til umfjöllunar hjá skóla- og frístundaráði. Skóla- og frístundaráð samþykkti stefnuna fyrir sitt leyti og vísaði til bæjarstjórnarnar til endanlegrar samþykktar.

Til máls tók:

JMS.

Bæjarstjórn samþykkir uppfærða menningarstefnu Akraneskaupstaðar sem taki þegar gildi. Gert er ráð fyrir að menningarstefnan sé endurskoðuð á fimm ára fresti til að tryggja að stefnan endurspegli þarfir samfélagsins, þróun í menningarmálum og breyttar áherslur í starfsemi Akraneskaupstaðar.

Samþykkt 9:0

 

7. 2603-2496 - Fundarboð - Aðalfundur Orkuveitunnar 17. apríl 2026

Aðalfundur Orkuveitunar verður haldinn þann 17. apríl nk. kl. 13:00 og fer fundurinn fram í húsakynnum Orikuveitunnar að Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík (fundarboð, dagskrá og fundargögn).

Samkvæmt 5. gr. sameignarsamnings Orkuveitunnar er aðalfundur opinn kjörnum fulltrúum í sveitarstjórnum eigenda sem og fjölmiðlum. Tillögu- og atkvæðarétt hafa fulltrúar í sveitarstjórnum eigenda, stjórn, forstjóri, endurskoðendur og formaður starfsmannfélags Orkuveitunnar.

Samkvæmt 6. gr. sameignarsamnings Orkuveitunnar skal stjórn skipuð sex mönnum, fimm kjörnum af borgarstjórn Reykjavíkur og einum kjörnum af bæjarstjórn Akraness. Borgarstjórn Reykjavíkur kýs formann og varaformann stjórnarinnar úr hópi fulltrúa Reykjavíkurborgar. Sveitarstjórn Borgarbyggðar skal heimilt að tilnefna einn áheyrnarfulltrúa í stjórn með málfrelsi og tillögurétt. Varamenn, jafnmargir, skulu kjörnir á sama hátt og aðalmenn. Kjörtímabil stjórnarinnar er eitt ár í senn, frá aðalfundi Orkuveitunnar á viðkomandi ári til aðalfundar á næsta ári. Sveitarstjórnir skulu skv. framangreindu hafa greint frá kjöri stjórnar fyrir aðalfund sbr. 6. lið dagskár aðalfundar.

Lagt fram.

 

8. 2601-0968 - Deiliskipulag - Skógarhverfi 3C - Skógarlundur 36 - 38 - 40

Tillaga að breyttu deiliskipulagi var grenndarkynnt frá 24. febrúar til 27. mars 2026 í skipulagsgátt. Tvær umsagnir bárust án efnislegra athugasemda. Breytingin felst í að lóð nr. 36 við Skógarlund breytist úr einbýlishúsi í raðhús á einni hæð með þremur íbúðum. Þá er lóðum nr. 38 og 40 breytt þannig að þær skiptast í þrjár lóðir, nr. 38, 40 og 40a, og verður heimilt að byggja fjórar íbúðir á hverri lóð. Með breytingunni fjölgar íbúðum úr 10 í 15. Nýtingarhlutfall lækkar úr 0,50 í 0,45. Breytingin felur í sér þéttingu byggðar innan íbúðarsvæðis án breytinga á megin landnotkun.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á fundi sínum nr. 349. þann 30. mars sl. að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja óverulega breytingu á deiliskipulagi Skógarhverfis, áfanga 3C, vegna Skógarlundar 36, 38, 40 og 40a, skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og umhverfisráð felur verkefnastjóra að annast frágang gagna og birtingu breytingarinnar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni málsmeðferð í bæjarstjórn verði breytingin samþykkti.

Bæjarstjórn samþykkir breytingu á deiliskipulagi Skógarhverfis 3C, vegna Skógarlundar nr. 36, nr. 38, nr. 40 og nr. 40a, og birtingu þess í B - deild Stjórnartíðinda.

Samþykkt 9:0

Breytingin felst í að lóð nr. 36 breytist úr einbýlishúsi í raðhús á einni hæð með þremur íbúðum, lóðum nr. 38 og nr. 40 er breytt þannig að þær skiptast í þrjár lóðir, nr. 38, nr. 40 og nr. 40a og heimilt verður að byggja fjórar íbúðir á hverri lóð. Nýtingarhlutfall lækkar úr 0,5 og í 0,45 og felur breytingin í sér þéttingu byggðar innan íbúðarsvæðis án breytinga á megin landnotkun og fjölgun íbúða úr 10 í 15.

Samþykkt 9:0

 

9. 2602-1777 - Umsókn til skipulagsfulltrúa - Lækjarflói 13

Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flóahverfis vegna Lækjarflóa 13. Breytingin felst í minnkun lóðar úr 4.291 m² í 3.618 m². Ekki er gert ráð fyrir breytingum á byggingarmagni, nýtingarhlutfalli eða landnotkun. Skipulags- og umhverfisráð samþykki á fundi sínum nr. 349 þann 30. mars sl. að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja óverulega breytingu á deiliskipulagi Flóahverfis vegna Lækjarflóa 13, skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og birtingu í B - deild Stjórnartíðinda verði breytingin samþykkt.

Bæjarstjórn samþykkir breytingu á deiliskipulagi Flóahverfis vegna Lækjarflóa 13 og birtingu þess í B - deild Stjórnartíðinda.

Samþykkt 9:0

Breytingin í sér minnkun lóðar um 673 m², úr 4.291 m² í 3.618 m² en ekki er gert ráð fyrir breytingum á byggingarmagni, nýtingarhlutfalli eða landnotkun.

Samþykkt 9:0

 

10. 2602-1295 - Reglur um leigu á íbúðum Akraneskaupstaðar - endurskoðun

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nr. 3621 þann 26. mars sl. endurskoðaðar reglur um leigu á íbúðum Akraneskaupstaðar og vísaði þeim til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Bæjarstjórn samþykkir endurskoðaðar reglur um leigu á íbúðum Akraneskaupstaðar sem taki þegar gildi. Jafnframt falla þá úr gildi eldri reglur um sama efni frá 12. september 2017.

Samþykkt 9:0

 

11. 2601-0228 - Sementsverksmiðjan - áframhaldandi rekstur 2409322

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nr. 3621 þann 26. mars sl. fyrirliggjandi viljayfirlýsingar, leigusamning um mannvirki og fylgigögn og vísaði málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Til máls tók:

LÁS.

Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi viljayfirlýsingar við Björgun - Sement ehf. og B.M. Vallá, leigusamning um mannvirki við Björgun - Sement ehf., ásamt fylgigögnum.

Samþykkt 9:0

 

12. 2601-0072 - Skammtímadvöl á Vesturlandi

Sveitarfélögin á Vesturlandi undirbúa stofnun félags um skammtímavistun fyrir börn í húsnæði Holts í Borgarbyggð en húsnæðið er í eigu Þroskahjálpar. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hafa f.h. sveitarfélaganna gert verksamning við Miðháls slf. og er markmiðið að taka saman og vinna gögn sem lögð verða fyrir sveitarstjórnir til endanlegrar ákvörðunar. Verksamningurinn er nú lagður fram til endanlegrar ákvörðunar í bæjarstjórn en áður höfðu velferðar- og mannréttindaráð og bæjarráð samþykkt samninginn fyrir sitt leyti. Gert er ráð fyrir að útgjöldunum verði mætt af fjárheimildum bæjarstjórnar á deild 21010.

Til máls tóku:EBr, KHS, RBS, VLJ úr stóli forseta, EBr, RBS, EBr, RBS, GIG og KHS.

Bæjarstjórn samþykkir þátttöku í greiðslu þess hluta sem óskað er eftir að falli á Akraneskaupstaðar vegna fyrirliggjandi verksamnings Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi f.h. sveitarfélaganna á Vesturlandi við Miðháls slf. Hlutur Akraneskaupstaðar er kr. 160.000 og gert ráð fyrir að útgjöldunum verði mætt af gildandi fjárheimildum bæjarstjórnar á deild 21010.

Samþykkt 8:0, 1 á móti (EBr)

 

13. 2603-2357 - 3621. fundur bæjarráðs

3621. fundargerð bæjarráðs frá 26. mars 2026.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

14. 2603-2418 - 349. fundur skipulags- og umhverfisráðs

349. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 30. mars 2026.

GIG um dagskrárliði nr. 1, nr. 2, nr. 3, nr. 5, nr. 7, nr. 8, nr. 9, nr. 10, nr. 11 og nr. 12.

SAS um dagskrárliði nr. 4 og nr. 12.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

15. 2603-2024 - 263. fundur velferðar- og mannréttindaráðs

263. fundargerð velferðar- og mannréttindaráðs frá 24. mars 2026.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

16. 2603-2044 - 281. fundur skóla- og frístundaráðs

281. fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 26. mars 2026.

Forseti gerir að tillögu sinni að dagskrárliðir nr. 16 og nr. 17 verði ræddir saman í einni umræðu en umræðan bókuð undir hvorum lið fyrri sig. Fundarmenn gerðu engar athugasemdir við tillöguna.

Til máls tóku:

LÁS um dagskrárlið nr. 6.

LL um dagskrárlið nr. 6.

LÁS um dagskrárlið nr. 6.

SAS um dagskrárlið nr. 6.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

17. 2603-2698 - 282. fundur skóla- og frístundaráðs

282. fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 8. apríl 2026.

Til máls tók:

JMS um dagskrárliði nr. 1 og nr. 4.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

18. 2601-0493 - Fundargerðir desember 2025 - Orkuveita Reykjavíkur

372. fundargerð stjórna Orkuveitu Reykjavíkur frá 15. desember 2025.

Forseti gerir að tillögu sinni að dagskrárliðir nr. 18 og nr. 19 verði ræddir saman í einni umræðu en umræðan bókuð undir hvorum lið fyrri sig. Fundarmenn gerðu engar athugasemdir við tillöguna.

Til máls tók:

VLJ úr stóli forseta um dagskrárlið nr. 3.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

19. 2604-2885 - Fundargerðir janúar 2026 - Orkuveita Reykjavíkur

373. fundargerð stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 26. janúar 2026.

Til máls tók:

VLJ úr stóli forseta um dagskrárlið nr. 3.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

20. 2602-1290 - Fundargerðir mars 2026 - Samband íslenskra sveitarfélaga

995. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 10. mars 2026.

Forseti gerir að tillögu sinni að dagskrárliðir nr. 20 og nr. 21 verði ræddir saman í einni umræðu en bókaðir undir hvorum lið fyrri sig. Fundarmenn gerðu engar athugasemdir við tillöguna.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

21. 2602-1290 - Fundargerðir mars 2026 - Samband íslenskra sveitarfélaga

996. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 20. mars 2026.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

22. 2602-1645 - Fundargerðir mars 2026 - Heilbrigðiseftilit Vesturlands

201. fundargerð Heilbrigðisnefndar Vesturlands frá 23. mars 2026.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

Forseti þakkar fundarmönnum fyrir góðar umræður á fundinum.

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu