Bæjarstjórn
|
1. 2512-5542 - Breyting á deiliskipulagi Garðalundar og Lækjarbotna - Hringtorg Akranesvegur Á 348. fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 16. mars 2026 fjallaði ráðið um málið og lagði til við bæjarstjórn að tillaga að breyttu deiliskipulagi verði auglýst skv. 1 mgr. 43. gr skipulagslaga nr. 123/2010. Til máls tóku:GIG og RBS.Bæjarstjórn samþykkir að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Garðalundar og Lækjarbotna skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Samþykkt 9:0
|
|
2. 2601-0074 - Kirkjubraut 4-6 umsókn til skipulagsfulltrúa Skipulags- og umhverfisráð fjallaði um málið á 348. fundi sínum þann 16. mars 2026 en sótt er um breytingu á deiliskipulagi Akratorgsreits vegna Kirkjubraut 4-6, 6A og Suðurgötu 67 þannig að heimilt verði að reka gistiheimili á jarðhæð hússins (12. herbergi í flokki II) með aðkomu frá Suðurgötu, ásamt atvinnurými við Kirkjubraut. Lóðarmörk milli Kirkjubrautar 4-6 og Suðurgötu 67 færast um 4 m., gluggum verði komið fyrir að lóðarmörkum 67 og sorpaðstaða verði sameiginleg með lóð 6A (samþykki eiganda liggur fyrir). Tillagan var grenndarkynnt frá 21. janúar 2026 til og með 20. febrúar 2026 og bárust tvær umsagnir á kynningartímanum. Ráðið samþykkti framlagt minnisblað verkefnastjóra sem svar við framkomnum athugasemdum. Ráðið taldi að um óverulega breytingu sé að ræða skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, breytingin feli hvorki í sér aukið byggingarmagn né breytingu á hæð eða nýtingarhlutfalli og sé í samræmi við aðalskipulag Akraness 2021 - 2033. Skipulags- og umhverfisráð vísaði tillögunni til staðfestingar í bæjarstjórn. Til máls tóku:VLJ úr stóli forseta, LÁS, GIG, RBS og KHS.Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi greinargerð skipulagsfulltrúa sem svar bæjarstjórnar við framkomnum athugasemdum.Bæjarstjórn samþykkir breytingar á deiliskipulagi Akratorgsreits vegna Kirkjubrautar 4-6, 6A og Suðurgötu 67, að deiliskipulagsbreytingin verði send Skipulagsstofnun og til birtingar í B-deild Stjórnartíðinda.Samþykkt 5:0, (LL/GIG/JMS/EBr/SAS:0), 4 sitja hjá (VLJ/KHS/LÁS/RBS)
|
|
3. 2601-1089 - Umsókn um Framkvæmdaleyfi - Jarðhitaleit á Akranesi Skipulags- og umhverfisráð fjallaði um málið á 348. fundi sínum þann 16. mars 2026 og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi greinagerð skipulagsfulltrúa sem umsögn um framkvæmdina og svör við framkomnum athugasemdum en framkvæmdaleyfið var grenndarkynnt frá 4. febrúar sl. til og með 4 mars sl. og bárust þrjár umsagnir á kynningartímanum. Almennur kynningarfundar var þann 11. mars sl. í sal Grundaskóla. Framkvæmdasvæðið er ráðgert við hlið bílastæðis við enda Jaðarsbrautar, vestan við fótboltavöll Skagamanna. Ráðið lagði einnig til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út framkvæmdaleyfi vegna rannsóknarborunar eftir jarðhita í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ráðið lagði áherslu á að við framkvæmdina verði tryggt öryggi vegfarenda, að ónæði gagnvart nágrönnum verði haldið í lágmarki og að umgengni á svæðinu verði góð. Sett verði viðbótarskilyrði fyrir leyfinu um að áður en framkvæmdir hefjist, framkvæmi Veitur ástandsúttekt á nærliggjandi húsnæði m.t.t. athugasemda íbúa. Til máls tóku:GIG og KHS.Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi greinargerð skipulagsfulltrúa sem svar bæjarstjórnar við framkomnum athugasemdum.Samþykkt 9:0Bæjarstjórn samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis til Veitna vegna rannsóknarborunar eftir jarðhita á Akranesi í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 4. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi. Gætt verði sérstaklega að setningu viðbótarskilyrðis um að Veitur hlutist til um framkvæmd ástandsskoðunar á nærliggja húsnæði áður en framkvæmdir hefjist sbr. athugasemdir íbúa þar að lútandi.Samþykkt 9:0
|
|
4. 2601-0244 : Samningsgögn um kaup á Suðurgötu 57 og lóð Suðurgötu 47. 2510186 Vegna atriði er lúta að höfundarréttarvernd arkitekta er nauðsynlegt að endurskoða fyrirliggjandi samning sem samþykktur var í bæjarstjórn þann 15. janúar sl. Einnig hafa komið fram ábendingar og athugasemdir frá kaupanda sem rétt þykir að koma til móts við og taka ný gögn mið af þessu. Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nr. 3620 þann 12. mars 2026 fyrirliggjandi drög að endurskoðuðum kaupsamningi og vísaði málinutil bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar. Til máls tóku:EBr, HB, RBS og EBr.Bæjarstjórn samþykkir uppfærðan kaupsamning Akraneskaupstaðar og Hraun 900 fasteignafélags ehf. varðandi Suðurgötu 57 með tilteknum athugasemdum varðandi dagsetningu í gr. 4.3 og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn og önnur nauðsynleg skjöl tengd fasteignaviðskiptunum.Samþykkt 8:0, 1 situr hjá (EBr)
|
|
5. 2603-1960 - 3620. fundur bæjarráðs 12. mars 2026 3620. fundargerð bæjarráðs frá 12. mars 2026 lögð fram. Til máls tóku:LL um dagskrárliði nr. 4 og nr. 5.SAS um dagskrárlið nr. 4.KHS um dagskrárlið nr. 8.Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
6. 2603-1979 - 347. fundur skipulags- og umhverfisráðs 347. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 6. mars 2026 lögð fram. Forseti leggur til að umræður um dagskrárliði nr. 6 og nr. 7 fari fram saman þó bókað verði svo undir hlutaðeigandi dagskrárliðum eftir framvindu umræðunnar.Engin fundarmanna gerði athugasemdir við tillöguna.Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
7. 2603-2231 - 348. fundur skipulags- og umhverfisfráðs 348. fundargerð skipulags- og umhverfis frá 16. mars 2026 lögð fram. Til máls tók:GIG um dagskrárliði nr. 3, nr. 4, nr. 7, nr. 8, nr. 9, nr. 12 og nr. 13.Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
8. 2602-1293 : Fundargerðir febrúar 2026 - Faxaflóahafnir 265. fundargerð stjórnar Faxaflóahafna frá 27. febrúar 2026lögð fram. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
9. 2602-1290 : Fundargerðir mars 2026 - Samband íslenskra sveitarfélaga 994. fundargerðar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 3. mars 2026 lögð fram. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
10. 2601-0928 : Fundargerðir mars 2026 - Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili 168. fundargerð stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis frá 2. mars 2026 lögð fram. Til máls tók:EBr um dagskrárlið nr. 2, stafliði nr. b og c, og þakkar bæjarfulltrúinn hlutaðeigandi starfsmönnum heimilisins, sem ákveðið hafa að láta af störfum, kærlega fyrir þeirra störf. Um er að ræða Ólínu Ingibjörgu Gunnarsdóttur hjúkrunarforstjóra og Sigurð Jóhann Hauksson umsjónarmann fasteigna.EBr um dagskrárlið nr. 3.Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
Útsending fundarins rofnaði undir dagskrárlið nr. 4 en þá datt út hringnettenging "bæjarrnetsins" vegna framkvæmda í Brekkubæjarskóla. Beðist er forláts á þessu.
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





