Bæjarstjórn
Forseti býður fundarmenn velkomna til fundar.
|
1. 2603-1993 : Lánasjóður sveitarfélaga ohf - Aðalfundarboð 20. mars 2026 Lánasjóður sveitarfélaga boðar til aðalfundar þann 20. mars 2026 á Grand hótel í Reykjavík. Allir sveitarstjórnarfulltrúar eiga rétt á að sækja aðalfundinn og sveitarstjóri er sjálfkrafa handhafi atkvæðisréttar sveitarfélagsins. Aðalfundarboðið lagt fram til kynningar.
|
|
2. 2602-1375 : Aðgerðaráætlun um þjónustu við fólk með heilabilun Bæjarráð samþykkti á fundi nr. 3619 þann 26. febrúar 2026 viðbótarútgjöld samtals að fjárhæð kr. 2.880.000 til að standa straum af kostnaði vegna þjónustu til fólks sem glímir við heilabilun og aðstandenda þeirra. Útgjöldunum yrði mætt með úthlutun fjármagns af deild 20830-4995 og fært á deild 02530-4980. Bæjarráð samþykkti viðauka að fjárhæð kr. 2.880.000 vegna ráðstöfunarinnar og vísaði málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar. Til máls tóku: LL, LÁS og KHS. Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun ársins 2026, samtals að fjárhæð kr. 2.880.000 sem færist af deild 20830-4995 og á deild 02530-4980. Samþykkt 9:0
|
|
3. 2602-1216 - Fjöliðjan - sumarafleysingar 2026 Beiðni um heimild til að ráða tvo sumarafleysinga starfsmenn í Fjöliðjuna í þrjá mánuði. Beiðnin kemur til þar sem farið hefur verð fram á það við forstöðumann að hafa Fjöliðjuna opna í allt sumar til að koma á móts við þarfir hinna fötluðu starfsmanna. Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 17.02.2026 var eftirfarandi bókað: Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir ofangreinda beiðni og vísar henni til afgreiðslu í bæjarráði. Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 26. febrúar 2026 viðbótarútgjöld samtals að fjárhæð kr. 4.500.000 til að standa straum af kostnaði vegna ráðningar sumarafleysingafólks í Fjöliðjunni. Utgjöldunum verði mætt með úthlutun fjármagns af deild 20830-4995 og fært á deild 02220-1691. Bæjarráð samþykkt viðauka að fjárhæð kr. 4.500.000 vegna ráðstöfunarinnar og vísaði málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar. Til máls tóku: KHS og RBS. Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 3 við fjárhagsáætlun ársins 2026, samtals að fjárhæð kr. 4.500.000 sem færist af deild 20830-4995 og á deild 02220-1691. Samþykkt 9:0
|
|
4. 2602-1689 - 3619. fundur bæjarráðs 3619. fundargerð bæjarráðs frá 26. febrúar 2026 lögð fram. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
5. 2602-1803 - 346. fundur skipulags- og umhverfisfráðs 346. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 2. mars 2026 lögð fram. Til máls tóku: GIG um dagskrárliði nr. 1, nr. 4 og nr. 9. SAS um dagskrárliði nr. 1, nr. 7 og nr. 9. KHS um dagskrárlið nr. 2. GIG um dagskrárlið nr. 2. KHS um dagkrárlið nr. 2. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
7. 2602-1758 - 280. fundur skóla- og frístundaráðs 280. fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 4. mars 2026 lögð fram. Til máls tók: JMS um dagskrárlið nr. 5.
|
|
8. 2602-1808 - 262. fundur velferðar- og mannréttindaráðs Fundargerð 262. fundar velferðar- og mannréttindaráðs frá 3. mars 2026 lögð fram. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
|
9. 2602-1290 : Fundargerðir febrúar 2026 - Samband íslenskra sveitarfélaga 993. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 18. febrúar 2026 lögð fram. Fundargerðin lögð fram til kynningar.
|
Forseti þakkar bæjarfulltrúum fyrir góðar og málefnalegar umræður og tekur undir mikilvægi þeirra mála sem afgreidd voru undir liðum nr. 2. og nr. 3 á fundinum.
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





