Bæjarstjórn
Forseti býður fundarmenn velkomna til fundar.
Forseti óskar eftir, með vísan til c. liðar 15. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar nr. 696/2013, að tekið verði inn með afbrigðum mál nr. 2602-1423, 345. fundur skipulags- og umhverfisráðs frá 16. febrúar 2026.
Verði afbrigðin samþykkt verður málið nr. 8 í dagskránni og verða þá samtals 8 mál á dagskrá fundarins í stað 7 eins og boðað var í útsendri dagskrá.
Samþykkt 9:0
|
1. 2601-1118 - Endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð á Akranesi - febrúar 2026 Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 3. febrúar 2026 samþykkti ráðið drög að endurskoðuðum reglum um fjárhagsaðstoð á Akranesi og vísaði málinu til afgreiðslu í bæjarráði. Á fundi bæjarráðs þann 12. febrúar 2026 samþykkti ráðið drögin og vísaði þeim til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar. Bæjarstjórn samþykkir endurskoðaðar reglur um fjárhagsaðstoð á Akranesi. Samþykkt 9:0 |
|
2. 2601-1147 - Samræmdar greiðslu til stuðningsfjölskyldna á Vesturlandi Samráðshópur stjórnenda í velferðarþjónustu á Vesturlandi tilnefndi árið 2025 í hóp fagaðila, frá hverju sveitarfélagi, til að yfirfara greiðslur til stuðningsfjölskyldna á svæðinu og leggja fram tillögu að samræmdri gjaldskrá. Verkefnahópurinn fundaði í átta skipti tímabilið október - desember 2025 og hefur nú lagt fram tillögu að samræmdri gjaldskrá sem lögð er fram til kynningar og umræðu. Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 3. febrúar 2026 þakkaði ráðið verkefnahópnum fyrir vel unnin störf, samþykkti nýja samræmda gjaldskrá til stuðningsfjölskyldna á Vesturlandi og vísaði málinu til afgreiðslu í bæjarráði. Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 12. febrúar fyrirliggjandi tillögu um samræmda gjaldskrá til stuðningsfjölskyldna á Vesturlandi sem og gjaldskrána sjálfa og vísaði til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar. Til máls tóku: KHS og forseti sem gerir grein fyrir að GIG hafi vikið af fundi vegna vanhæfissjónarmiða og gert það áður en KHS hafi tekið til máls. Engin fundarmanna gerði athugasemd við ákvörðun bæjarfulltrúans. Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá til stuðningsfjölskyldna á Akranesi en gjaldskráin er samræmd fyrir öll sveitarfélög á Vesturlandi. Samþykkt 8:0 GIG tekur sæti á fundinum að nýju. |
|
3. 2601-0265 - Húsnæðisáætlun 2026 Húsnæðisáætlun Akraneskaupstaðar vegna ársins 2026 hefur farið fyrir tiltekin fagráð og vinnufund bæjarstjórnar. Frestur til að skila inn áætluninni var til 31. janúar en Húsnæðis- og mannvirkjastofnun veitti Akraneskaupstað viðbótarfrest. Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 12. febrúar að vísa málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar. Bæjarstjórn samþykkir húsnæðisáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2026. Samþykkt 9:0 |
|
4. 2602-1285 - 3618. fundur bæjarráðs 3618. fundargerð bæjarráðs - frá 12. febrúar 2026 - lögð fram til kynningar. Til máls tóku: LL um dagskrárlið nr. 1. LÁS um dagskrárlið nr. 1. Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
|
5. 2602-1278 - 261. fundur velferðar- og mannréttindaráðs Fundargerð velferðar- og mannréttindaráðs frá 17. febrúar 2026 lögð fram. Til máls tóku: EBr um dagskrárliði nr. 2 og nr. 4. KHS um dagskrárliði nr. 2 og nr. 4. RBS um dagskrárliði nr. 2 og nr. 4. LÁS um dagskrárliði nr. 2 og nr. 4. Forseti um dagskrárlið nr. 2. EBr um dagskrárliði nr. 2 og nr. 4. KHS um dagskrárliði nr. 2 og nr. 4. RBS um dagskrárliði nr. 2 og nr. 4. KHS um dagskrárlið nr. 4. Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
|
6. 2602-1316 - 279. fundur skóla- og frístundaráðs 279. fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 16. febrúar 2026. Til máls tóku: JMS um dagskrárliði nr. 1 og nr. 6. VLJ úr stóli forseta um dagskrárlið nr. 6. Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
|
7. 2602-1645 - Fundargerðir febrúar 2026 - Heilbrigðiseftilit Vesturlands 200. fundargerð Heilbrigðisnefndar Vesturlands frá 12. febrúar 2026. Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
|
8. 2602-1423 - 345. fundur skipulags- og umhverfisfráðs 345. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 16. febrúar 2026 lögð fram til kynningar. Til máls tóku: GIG um dagskrárliði nr. 2, nr. 3, nr. 8, nr. 10, nr. 13, nr. 15, nr. 18, nr. 20 og nr. 21. RBS um dagskrárlið nr. 3. EBr um dagskrárlið nr. 3. KHS um dagskrárlið nr. 7. JMS um dagskrárlið nr. 3. GIG um dagskrárlið nr. 7. Fundargerðin lögð fram til kynningar. |
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





