Fara í efni  

Bæjarstjórn

1428. fundur 10. febrúar 2026 kl. 17:00 - 17:45 í Miðjunni, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Einar Brandsson 1. varaforseti bæjarstjórnar
  • Ragnar B. Sæmundsson 2. varaforseti bæjarstjórnar
  • Líf Lárusdóttir bæjarfulltrúi
  • Kristinn Hallur Sveinsson bæjarfulltrúi
  • Liv Aase Skarstad bæjarfulltrúi
  • Guðmundur Ingþór Guðjónsson bæjarfulltrúi
  • Jónína Margrét Sigmundsdóttir formaður
  • Sædís Alexía Sigurmundsdóttir bæjarfulltrúi
  • Anna Sólveig Smáradóttir varafulltrúi
Starfsmenn
  • Haraldur Benediktsson bæjarstjóri
  • Steinar Adolfsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs

Forseti býður fundarmenn velkomna til fundar.

1. 2602-1307 - Kosning í ráð og nefndir tímabilið 2022 - 2026

Einar Brandsson bæjarfulltrúi hefur sagt sig frá setu í velferðar- og mannréttindaráði og kjósa þarf fulltrúa í hans stað.

Gerð er tillaga um að Líf Lárusdóttir komi inn í velferðar- og mannréttindaráð í stað Einars Brandssonar og að Líf verði varaformaður ráðsins.

Til máls tóku:

LL, KHS og LÁS.

EBr úr stóli forseta.

Samþykkt 9:0

2. 2601-0924 - 3617. fundur bæjarráðs þann 29. janúar 2026

3617. fundargerð bæjarráðs frá 29. janúar 2026 lögð fram til kynningar.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

3. 2601-0917 - 260. fundargerð velferðar- og mannréttindaráðs

260. fundargerð velferðar- og mannréttindaráðs frá 3. febrúar 2026 lögð fram til kynningar.

Til máls tóku:

KHS um dagskrárliði nr. 2, nr. 3 og nr. 5.

LÁS um dagskrárliði nr. 2, nr. 3, nr. 4 og nr. 5.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

4. 2602-1203 - 278. fundur skóla- og frístundaráðs

278. fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 4. febrúar 2026 lögð fram til kynningar.

Til máls tóku:

JMS um dagskrárliði nr. 1 og nr. 4.

LÁS um dagskrárliði nr. 1 og nr. 4.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

5. 2601-1037 - 344. fundur skipulags- og umhverfisráðs

344. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 2. febrúar 2026 lögð fram til kynningar.

Til máls tók:

GIG um dagskrárliði nr. 1, nr. 2, nr. 4, nr. 5, nr. 8, nr. 9 og nr. 10.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

6. 2602-1290 - Fundargerðir 2026 - Samband íslenskra sveitarfélaga

992. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 23. janúar 2026

Til máls tók:

EBr úr stóli forseta um dagskrárlið nr. 7.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

7. 2601-0754 - Fundargerðir 2025 - Faxaflóahafnir

263. fundargerð stjórnar Faxaflóahafna frá 12. desember 2025

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

8. 2602-1293 - Fundargerðir 2026 - Faxaflóahafnir

264. fundargerð stjórnar Faxaflóahafna frá 23. janúar 2026

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu