Fara í efni  

Bæjarstjórn

1427. fundur 27. janúar 2026 kl. 17:35 - 20:38 í Miðjunni, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Valgarður L. Jónsson forseti bæjarstjórnar
  • Einar Brandsson 1. varaforseti bæjarstjórnar
  • Ragnar B. Sæmundsson 2. varaforseti bæjarstjórnar
  • Líf Lárusdóttir bæjarfulltrúi
  • Liv Aase Skarstad bæjarfulltrúi
  • Guðmundur Ingþór Guðjónsson bæjarfulltrúi
  • Jónína Margrét Sigmundsdóttir formaður
  • Sædís Alexía Sigmundsdóttir bæjarfulltrúi
  • Anna Sólveig Smáradóttir varafulltrúi
Starfsmenn
  • Haraldur Benediktsson bæjarstjóri
  • Steinar Adolfsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs

Forseti býður fundarmenn velkomna til fundar.

Fundurinn byrjaði seinna en fyrirhugað var m.a. vegna fundar bæjarfulltrúa með fulltrúum Veitna og
biðst forseti velvirðingar á því.


1. 2601-0072 - Skammtímadvöl á Vesturlandi

Á 27. fundi notendaráðs þann 7. janúar 2026 var gerð eftirfarandi bókun:
Notendaráð lýsir yfir miklum vonbrigðum með þá tillögu meirihluta velferðar- og mannréttindaráðs
Akraneskaupstaðar að bæjarfélagið verði dregið út úr fyrirhuguðu samstarfi sveitarfélaga á
Vesturlandi og Þroskahjálpar um uppbyggingu skammtímavistunar á Vesturlandi. Samstarf sem að
nokkru er að ágætu frumkvæði og mótað af starfsfólki Akraneskaupstaðar. Þarfir þeirra, er slíkri
skammtímavistun þurfa á að halda, eru mjög misjafnar og margvíslegar. Einungis með auknu
samstarfi sveitarfélaga og félagasamtaka er hægt að fjölga kostum og nálgast betur þarfir hvers og
eins. Skapað í sameiningu tækifæri sem hvert og eitt sveitarfélag getur ekki boðið skjólstæðingum
sínum. Þjónusta við fatlað fólk mun og getur aldrei miðast við eitt afmarkað úrræði og/eða
staðsetningu eins húss. Að halda slíku fram lýsir mikilli skammsýni og vanþekkingu. Ráðið skorar því
á bæjarstjórn Akraness að hafna tillögu meirihluta Velferðar- og mannréttindaráðs og ganga nú
þegar að nýju til áðurnefnds samstarfs á grundvelli undirritaðrar viljayfirlýsingar. Tryggja þannig að
íbúar á Akranesi sitji við sama borð og íbúar nágrannasveitarfélaganna. Ekki síst í ljósi þess að
enginn kostur er til staðar í sveitarfélaginu til þeirrar þjónustu sem um ræðir. Jafnframt átelur
Notendaráðið þau vinnubrögð Velferðar- og mannréttindaráðs að leita ekki umsagnar og álits
Notendaráðs í málinu, ekki síst áður en afgreidd er tillaga um að hverfa frá upphaflegu samstarfi.

Til máls tóku:
Forseti sem gerir grein fyrir forsendum þess að málið var sett á dagskrá fundarins.
LL sem leggur fram eftirfarandi málmeðferðartillögu bæjarfulltrúa Samfylkingar og
Sjálfstæðisflokks:

"Í ljósi þess að mikil þörf er á fjölbreyttum úrræðum fyrir skammtímadvöl fatlaðra barna og
ungmenna á Akranesi og umræðu síðustu vikna leggja bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar og
Sjálfstæðisflokksins fram eftirfarandi tillögur:


• Gert verði mat á þörf fyrir skammtímavistunarúrræði til að geta metið hverskonar úrræði
og form þarf og hvaða möguleikar eru á samnýtingu á öðrum úrræðum fyrir þjónustu við
fatlaða. Í framhaldinu verði skoðað hvernig húsnæði þarf til að mæta þjónustuþörfunum.
• Sá hluti lóðarinnar við Laugarbraut 6, þar sem nú stendur fyrrum áhaldahús bæjarins, verði
tekinn frá til hugsanlegrar uppbyggingar á skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni.
• Ráðist verði í kostnaðargreiningu svo unnt sé að áætla heildarkostnað verkefnisins og
leggja fram raunhæfa áætlun. Því næst verði hafist handa við skipulags- og hönnunarvinnu
á svæðinu með það að markmiði að nálægð við aðra þjónustu, s.s. Bjarnalaug og
búsetukjarnann við Laugarbraut, nýtist sem best.
• Bæjarstjórn Akraness lýsir sig áfram tilbúna til samtals við sveitarfélögin á Vesturlandi um
uppbyggingu skammtímadvalar á Vesturlandi, einnar eða fleiri.


Bæjarstjórn vísar málinu til velferðar- og mannréttindaráðs til úrvinnslu og eftirfylgni."


Framhald umræðu:
RBS sem gerir grein fyrir breytingartillögu Framsóknar og frjálsra við framkomna
málmeðferðartillögu sem óskað er eftir að borin verði upp til atkvæðagreiðslu.

Breytingin er sú að felld verði út fjórða efnisgrein tillögunnar sem er svohljóðandi:
"Bæjarstjórn Akraness lýsir sig áfram tilbúna til samtals við sveitarfélögin á Vesturlandi um
uppbyggingu skammtímadvalar á Vesturlandi, einnar eða fleiri."
og í staðinn komi efnisgrein sem er svohljóðandi:
" Í samræmi við c. lið 15. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar um
afgreiðslu mála í bæjarstjórn að bæjarstjóra verði falið að undirrita viljayfirlýsingu um
uppbyggingu skammtímadvalar fyrir hönd bæjarstjórnarstjórnar Akraness."

Framhald umræðu:
EBr, LÁS, RBS, EBr og RBS.

Forseti gerir grein fyrir efnisinntaki 15. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp og skilningi hans á
greininni og hvernig hann hyggst leggja til afgreiðslu bæjarstjórnar á fyrirliggjandi tillögum.
Framhald umræðu:
LL.
Breytingartillaga Framsóknar og frjálsra er borin upp til atkvæðagreiðslu:

Samþykkt 4:3, 2 sitja hjá. (RBS/LÁS/SAS/GIG : VLJ/LL/EBr), (hjáseta: JMS/ASS)

Forseti ber upp málsmeðferðartillöguna svo breytta:

Samþykkt: 4:1, 4 sitja hjá. (RBS/LÁS/SAS/GIG : EBr), (hjáseta: VLJ/LL/JMS/ASS).


2. 2601-0881- Bæjarmálasamþykkt - samþykkt um stjórn og fundarsköp
(stjórnskipulagsbreytingar)

Samþykkt um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar (bæjarmálasamþykkt Akraneskaupstaðar) -
endurskoðuð og uppfærð.


Breytingar á samþykkt um stjórn og fundarsköp Akraneskaupstaðar eru nauðsynlegar vegna
breytinga á stjórnskipulagi (skipuriti) Akraneskaupstaðar sem samþykktar voru eftir tvær umræður
í bæjarstjórn til samræmis við ákvæði sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Fyrri umræðan um
skipuritsbreytingarnar fór fram þann 9. desember sl. og sú síðari þann 15. janúar sl. þar sem
breytingarnar voru samþykktar.


Fyrri umræðan um breytingar á bæjarmálasamþykkt Akraneskaupstaðar fór fram þann 9.
desember sl og þá vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Til máls tók:
LL
Bæjarstjórn, með hliðsjón af samþykktum breytingum á stjórnskipulagi (skipuriti)
Akraneskaupstaðar, samþykkir tilteknar breytingar á bæjarmálasamþykkt Akraneskaupstaðar
samkvæmt fyrirliggjandi fylgiskjali.

Samþykkt 9:0


Tekið skal fram að breytingarnar hafa verið kynntar sveitarstjórnarráðuneytinu og ekki hafa komið
fram neinar athugasemdir eða ábendingar vegna þessa til stjórnsýslu Akraneskaupstaðar.
Um eftirtaldar breytingar á bæjarmálasamþykktinni er um að ræða sem taki þegar gildi að lokinni
málsmeðferð bæjarstjórnar nema annað sé tekið sérstaklega fram:


A. Niðurlagning menningar- og safnanefndar
1. Samkvæmt 44. gr. samþykktarinnar er ákvæði um menningar- og safnanefnd þar sem
gert er ráð fyrir kosningu í nefndina að loknum sveitarstjórnarkosningum en nefndin er
skipuð sex aðalmönnum og jafnmörgum til vara og tiltekið að nefndin annist verkefni
samkvæmt erindisbréfi og samkvæmt skipulagsskrá Byggðasafnsins. Breyta þarf
greininni og fella út 1. tl. B. liðar 44. gr.
2. Samkvæmt 57. gr. samþykktarinnar er tiltekið að menningar og safnanefnd heyri undir
stjórnsýslu mennta- og menningarráðs. Breyta þarf greininni og fella niður fyrri
undirpunkt hennar (fella nefndina út).
3. Orða þarf breytingatillögur þessu tengdu til samræmis við ætlaðan gildistíma þeirra
sem er við upphaf nýs kjörtímabils að loknum sveitarstjórnarkosningum vorið 2026.

B. Nafnbreyting á stjórnsýslu og fjármálasviði í fjármála- og þjónustusvið
1. Samkvæmt 48. gr. samþykktarinnar kemur fram heitið stjórnsýslu- og
fjármálasvið. Breyta þarf greininni til samræmis við breytt heiti sviðsins.
2. Samkvæmt 74. gr. samþykktarinnar kemur fram heitið stjórnsýslu- og
fjármálasvið. Breyta þarf greininni til samræmis við breytt heiti sviðsins.
3. Samkvæmt 76. gr. samþykktarinnar kemur fram heitið stjórnsýslu- og
fjármálasvið. Breyta þarf greininni til samræmis við breytt heiti sviðsins.
4. Í viðaukum samþykktarinnar sem tengjast valdheimildum starfsmanna kemur fram
heitið stjórnsýslu- og fjármálasvið. Breyta þarf viðkomandi viðaukum til samræmis við
breytt heiti sviðsins.


3. 2601-0713 - Nýtt deiliskipulag Kirkjubraut

Tillaga að nýju deiliskipulagi er lögð fram til auglýsingar fyrir gatnarými við Kirkjubraut og
Kalmansbraut. Skipulagssvæðið afmarkast af Merkigerði til suðurs og Esjubraut til norðurs og nær
yfir um 2 ha svæði. Tillagan tekur til fyrirhugaðra breytinga á gatnarými við Kirkjubraut og
Kalmansbraut og er í samræmi við markmið og stefnu Landskipulagsstefnu og aðalskipulags
Akraness.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir
Kirkjubraut verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr skipulagslaga nr. 123/2010.

Forseti gerir að tillögu sinni að umræður um dagskrárliði nr. 3 til og með nr. 7 verði teknar undir lið
nr. 3 þar sem gerð verði grein fyrir umræðunum en afgreiðslur málanna verði eðli máls samkvæmt
bókaðar undir hverjum og einum dagskrárlið.

Enginn fundarmanna gerði athugasemdir við tillöguna.

Til máls tóku:
SAS, LÁS, VLJ úr stóli forseta og RBS.

Bæjarstjórn samþykkir að nýtt deiliskipulag fyrir Kirkjubraut verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr
skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt 9:0

4. 2601-0717 - Breyting á deiliskipulagi Miðbæjarreits - Kirkjubraut

Breyting á skipulagsmörkum vegna nýs deiliskipulags við Kirkjubraut. Tillaga að breytingu lögð fram
til auglýsingar.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að tillaga verði auglýst skv. 1. mgr. 43. gr
skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir að tillaga að breyttum skipulagsmörkum fyrir deiliskipulag Miðbæjarreits
verði auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt 9:0

5. 2601-0716 - Breyting á deiliskipulagi Stofnanareits - Kirkjubraut

Breyting á skipulagsmörkum vegna nýs deiliskipulags við Kirkjubraut. Tillaga að breytingu lögð fram
til auglýsingar.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að tillaga verði auglýst skv. 1. mgr. 43. gr
skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir að tillaga um breytt skipulagsmörk fyrir deiliskipulag Stofnanareits verði
auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt 9:0

6. 2601-0715 - Breyting á deiliskipulagi Arnardalsreit - Kirkjubraut
Breyting á skipulagsmörkum vegna nýs deiliskipulags við Kirkjubraut. Tillaga að breytingu lögð fram
til auglýsingar. Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að tillaga verði auglýst skv. 1.
mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir að tillaga um breytt skipulagsmörk fyrir deiliskipulag Arnardalsreit verði
auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt 9:0

7. 2601-0714 - Breyting á deiliskipulagi Akratorgsreit - Kirkjubraut

Breyting á skipulagsmörkum vegna nýs deiliskipulags við Kirkjubraut. Tillaga að breytingu lögð fram
til auglýsingar. Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að tillaga verði auglýst skv. 1
mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir að tillaga um breytt skipulagsmörk fyrir deiliskipulag Akratorgsreits verði
auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt 9:0

8. 2601-0265 - Húsnæðisáætlun 2026

Húsnæðisáætlun 2026 lögð fram til samþykktar.

Forseti gerir grein fyrir því að húsnæðisáætlunin hafi ekki farið til umfjöllunar í öllum fagráðum og
gerir þá málsmeðferðartillögu að áætlunin fari til umfjöllunar og afgreiðslu í fagráðum og svo fyrir
vinnufund bæjarstjórnar. Málið komi síðan til formlegrar afgreiðslu bæjarstjórnar.

Samþykkt 9:0


9. 2601-0731 - Suðurgata 108,110 og 112 - Umsókn til skipulagsfulltrúa

Tillaga um breytingu á deiliskipulagi Sementsreits. Breytingin nær til lóða við Suðurgötu 108, 110
og 112. Hámarkshæð bygginga á umræddum lóðum hækkar úr 6,5 m í 7,2 m. Byggingarmagn á
Suðurgötu 110 hækkar úr 230 m² í 245 m² og nýtingarhlutfall hækkar um 0,03, úr 0,49 í 0,52.
Bílastæðum verður fjölgað og verða tvö stæði á hverri lóð. Á Suðurgötu 112 færist byggingarreitur
til innan lóðar. Heimilt verður að láta útistiga ganga allt að 1,3 m út fyrir byggingarreit innan lóðar.
Á lóðamörkum Suðurgötu 112 , er liggja að leiksvæði C3 sem skilgreint er á uppdrætti, verði heimilt
að reisa vegg eða grindverk, hæð allt að 1,5m. Aðrir skilmálar gildandi deiliskipulags haldast
óbreyttir. Grenndarkynnt var frá 8. desember 2025 til og með 12. janúar 2026 fyrir Suðurgötu 106,
107, 109, 111, 113 og 114 í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2012. Engar
athugasemdir bárust.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi breytingu á
deiliskipulag Sementsreits, auglýsa í B-deild Stjórnartíðinda og senda Skipulagsstofnun skv. 2. mgr.
43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Allar kostnaður vegna breytingar leggst á lóðarhafa.

Bæjarstjórn samþykkir breytingu á deiliskipulagi Sementsreits skv. 2. mgr. 43. gr skipulagslaga nr.
123/2010, sem tekur til lóða við Suðurgötu nr. 108, nr. 110 og nr. 112, að breytingarnar verði
auglýstar í B-deild Stjórnartíðinda og sendar Skipulagsstofnun.

Samþykkt 9:0

Hámarkshæð bygginga á lóðunum verður 7,2 m en var 6,5 m. Heimilað er að hafa tvö stæði innan
hverrar lóðar fyrir sig og að útistigi á lóðunum gangi allt að 1,3 m. út fyrir byggingarreit.

Nýtingarhlutfall á Suðurgötu 110 er hækkað um 0,03, var 0,49 en verður 0,52 og heimilað
byggingarmagn lóðarinnar verður 245 fermetrar.

Á lóðarmörkum Suðurgötu 112, er liggja að leiksvæði C3 sem skilgreint er á uppdrætti, verður
heimilt að reisa vegg eða grindverk, hæð allt að 1,5m.

Breyting er gerð á byggingarreit sem færist til innan lóðar.

Aðrir skilmálar deiliskipulags Sementsreits haldast óbreyttir. Allur kostnaður vegna breytinganna
leggst á lóðarhafa.

Samþykkt 9:0


10. 2512-5590 - 3616. fundur bæjarráðs

3616. fundur bæjarráðs þann 15. janúar 2026

Til máls tóku:
LL um dagskrárliði nr. 1 og nr. 2.
VLJ úr stóli forseta um dagskrárlið nr. 2.
RBS um dagskrárliði nr. 1 og nr. 2.
SAS um dagskrárlið nr 1. og nr. 2.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

11. 2601-0710 - 259. fundargerð velferðar- og mannréttindaráðs

259. fundargerð velferðar- og mannréttindaráðs þann 20. janúar 2026

Til máls tók:
LÁS um dagskrárlið nr. 2.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

12. 2601-0508 - 277. fundur skóla- og frístundaráðs

277. fundargerð skóla- og frístundaráðs þann 21. janúar 2026

Til máls tóku:
JMS um dagskrárliði nr. 1, nr. 4 og nr. 8.
LÁS um dagskrárlið nr. 1, nr. 4 og nr. 8.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

13. 2601-0718 - 343. fundur skipulags- og umhverfisráðs

343. fundur skipulags- og umhverfisráðs þann 19. janúar 2026

Til máls tók:
GIG um dagskrárliði nr. 1, nr. 2, nr. 3, nr. 4, nr. 7, nr. 8, nr. 9, nr. 10, nr. 11, nr. 14 og nr. 17.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

14. 2601-0928 - 167. fundur stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis

167. fundur stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis haldinn þann 19. janúar 2026

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

Vegna tæknibilunar var stærstur hluti fundarins ekki mynd en útsending hljóðs var með ágætum.
Unnið er að lausn málsins fyrir næsta bæjarstjórnarfund sem verður þann 10. febrúar næstkomandi.
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu