Fara í efni  

Bæjarstjórn

1414. fundur 27. maí 2025 kl. 17:00 - 17:40 í Miðjunni, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Valgarður L. Jónsson forseti bæjarstjórnar
  • Ragnar B. Sæmundsson 2. varaforseti
  • Kristinn Hallur Sveinsson aðalmaður
  • Liv Aase Skarstad aðalmaður
  • Guðmundur Ingþór Guðjónsson aðalmaður
  • Jónína Margrét Sigmundsdóttir aðalmaður
  • Sædís Alexía Sigurmundsdóttir aðalmaður
  • Ragnheiður Helgadóttir varamaður
  • Einar Örn Guðnason varamaður
Starfsmenn
  • Haraldur Benediktsson bæjarstjóri
  • Steinar Dagur Adolfsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri
Dagskrá
Forseti býður fundarmenn velkomna til fundar.

Forseti óskar eftir að mál nr. 6 í dagskránni, fundargerðir skipulags- og umhverfisráðs 2025, verði tekið af dagskrá þar sem fundargerðin barst mjög seint í gáttina og fundarmenn því ekki átt kost á að kynna sér gagnið.

Samþykkt 9:0

1.Launaviðaukar - fjárhagsáætlun 2025

2505078

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 15. maí 2025 viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun ársins 2025 og vísaði til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Um er að ræða viðauka sem er tilkominn vegna endurútreiknings reiknings kjarasamninga Kennarasambands Íslands, Bandalags háskólanna og Félags slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.



Til máls tók:
HB.

Bæjarstjórn samþykkir samþykkir viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun ársins 2025 samtals að fjárhæð kr. 393.200.733 en útgjöldin eru tilkomin vegna endurreiknings launa vegna kjarasamninga aðildarfélaga Kennarasambands Íslands, Bandalags háskólamanna og Félags slökkviliðsmanna og færast á viðeigandi deildir skv. meðfylgjandi skjali.
Útgjöldunum er mætt með fjármagni af deild 20830-1691, að fjárhæð kr. 200.000.000, af deild 31860-5755 að fjárhæð kr. 53.000.000, og með lækkun á áætlaði rekstrarniðurstöðu ársins 2025, að fjárhæð kr. 140.200.733.

Samþykkt 9:0
Fylgiskjöl:

2.Fjárhagsáætlun 2025 - viðaukar

2503256

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 15. maí 2025 viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun árins 2025 og vísaði til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Viðaukinn var tilkomin vegna villu sem varð við innlestur á tegundarlyklinum 4660, þvert á rekstrareiningar Aðalsjóðs sem gaf ranga niðurstöðu á langflestar deildir og kallar eðli máls samkvæmt á leiðréttingu.



Til máls tók:
HB.

Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun ársins 2025 samtals að fjárhæð kr. 34.890.506 en um er að ræða nauðsynlega leiðréttingu vegna villu við innlestur fjárhagsáætlunar sbr. inngang málsins.

Útgjöldunum er mætt með fjármagni af deild 31860-5755 að fjárhæð kr. 34.890.506 og deilist út á hinar ýmsu deildir Aðalsjóðs sbr. meðfylgjandi fylgiskjali.

Samþykkt 9:0

3.Samþykkt um meðhöndlun úrgangs

2410062

Samþykkt um meðhöndlun úrgangs fyrir Akraneskaupstað.

Heilbrigðiseftirlit Vesturlands fjallaði um málið á fundi sínum þann 10. mars sl. en láðist að senda Akraneskaupstað upplýsingar um það fyrr en í lok apríl sl.

Málsmeðferð samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 er þannig að samþykkt sveitarstjórnar þarf að liggja fyrir áður en málið fer til yfirferðar í ráðuneytinu sem síðan sér um að óska eftir birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.
Bæjarstjórn samþykkir samþykkt Akraneskaupstaðar um meðhöndlun úrgangs og að samþykktin verði send ráðuneytinu til yfirferðar og til birtingar í B-deild Stjórnartíðinda.

Samþykkt 9:0

4.Fundir bæjarstjórnar 2025

2505239

Um allangt skeið hafa verið til vinnslu breytingar á samþykkt Akraneskaupstaðar um stjórn og fundarsköp nr. 696/2023 með síðari breytingum (svokölluð bæjarmálasamþykkt) en slíkar breytingar þurfa tvær umræður í bæjarstjórn með að lágmarki einnar viku millibili.

Vilji er til að ljúka afgreiðslu breytinganna fyrir sumarleyfi bæjarstjórnar sem skv. samþykktri fundardagskrá verður tímabilið frá 10. júní nk. til og með 25. ágúst nk.

Með vísan til framangreinds er gerð tillaga um aukafund í bæjarstjórn sem yrði þann 3. júní nk. kl. 17:00.
Bæjarstjórn samþykkir að haldinn verði aukafundur bæjarstjórnar þann 3. júní nk. kl. 17:00.

Samþykkt 9:0

5.Fundargerðir 2025 - bæjarráð

2501002

3593. fundargerð bæjarráðs frá 15. maí 2025
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

6.Fundargerðir 2025 - skóla- og frístundaráð

2501004

263. fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 21. maí 2025.
Til máls tók:
JMS um dagskrárliði nr. 4 og nr. 6.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

7.Fundargerðir 2025 - velferðar- og mannréttindaráð

2501003

246. fundargerð velferðar- og mannréttindaráðs frá 20. maí 2025.
Til máls tóku:

KHS um dagskrárliði nr. 1 og nr. 2.
GIG um dagskrárlið nr. 2.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

8.Fundargerðir 2025 - Orkuveita Reykjavíkur

2501028

361. fundargerð stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 3. mars 2025.

362. fundargerð stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 7. mars 2025.
Til máls tók:
VLJ úr stóli forseta um fundargerðirnar og ástæður þess að haldnir voru tveir fundir með svo skömmu millibili en um var að ræða afgreiðslu á ársreikningi. Fyrri fundurinn var nýttur til framlagningar og kynningar málsins og sá síðari til formlegrar afgreiðslu.

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

9.Fundargerðir 2025 - Samband íslenskra sveitarfélaga tilkynningar

2501029

979. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 16. maí 2025.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Því miður láðist að kveikja á míkrófoninum í upphafi fundar og því verður upptaka fundarins ekki birt.

Beðist er forláts á þessu.

Fundi slitið - kl. 17:40.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00