Fara í efni  

Bæjarstjórn

1183. fundur 11. febrúar 2014 kl. 17:00 - 17:55 í bæjarþingsalnum, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Sveinn Kristinsson forseti bæjarstjórnar
  • Gunnar Sigurðsson aðalmaður
  • Guðmundur Páll Jónsson aðalmaður
  • Ingibjörg Valdimarsdóttir aðalmaður
  • Þröstur Þór Ólafsson aðalmaður
  • Einar Brandsson aðalmaður
  • Dagný Jónsdóttir aðalmaður
  • Gunnhildur Björnsdóttir aðalmaður
  • Einar Benediktsson aðalmaður
  • Guðmundur Þór Valsson varamaður
  • Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
  • Steinar Dagur Adolfsson framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Guðný Jóna Ólafsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson framkvæmdastjóri
Dagskrá
Guðmundur Þór Valsson situr fundinn undir fyrsta liðnum og Gunnhildur Björnsdóttir víkur af fundi.

1.Deiliskipulagsbreyting Skógarhverfi 1. áfangi, Viðjuskógar 8-14, og 16-18.

1104152

Erindi skipulags- og umhverfisnefndar f.h. Sjamma ehf. sem frestað var á fundi bæjarstjórnar 28.1.2014, þar sem skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi Skógahverfis 1. áfanga vegna lóðanna 8-14 og 16-18 við Viðjuskóga.

Til máls tóku EBr, GÞV, ÞÞÓ og GPJ.

Bæjarstjórn samþykkir að deiliskipulagsbreytingin verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt 9:0

Gunnhildur Björnsdóttir tekur aftur sæti á fundinum og Guðmundur Þór Valsson víkur.

2.Orkuveita Reykjavíkur - endurfjármögnun skuldabréfaflokks

1401208

Lagt fram erindi frá Orkuveitu Reykjavíkur dags. 17.1.2014, þar sem óskað er samþykkis eigenda vegna endurfjármögnunar lána.

Til máls tók RÁ.

Bæjarstjórn Akraness samþykkir hér með að veita Orkuveitu Reykjavíkur, sem Akraneskaupstaður á með öðrum sveitarfélögum, einfalda og hlutfallslega ábyrgð m.v. eignarhlut 31. desember 2013 í fyrirtækinu vegna lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð 900.000.000 krónur. Er ábyrgð þessi veitt sbr. heimild í 1. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, og veitir sveitarstjórnin Lánasjóðnum veð í útsvarstekjum sínum til tryggingar þeirri ábyrgð, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sömu laga. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum.
Fari svo að Akraneskaupstaður selji eignarhlut sinn í Orkuveitunni til annars opinbers aðila, skuldbindur Akraneskaupstaður sig til að sjá til þess að nýr eigandi yfirtaki jafnframt ábyrgð á láninu að sínum hluta.

Jafnframt er Regínu Ásvaldsdóttur, kt. 300660-3989, bæjarstjóra Akraneskaupstaðar, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess að samþykkja f.h. Akraneskaupstaðar veitingu ofangreindrar veðtryggingar og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast veitingu tryggingar þessarar."

Bókunin samþykkt 9:0.

3.Viðmiðunarreglur um afmælisgjafir og kveðjur

1311105

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 27.11.2013 að fella úr gildi viðmiðunarreglur Akraneskaupstaðar um gjafir og kveðjur sem samþykktar voru árið 1996 og felur bæjarstjóra að semja verklagsreglur um sama efni.

Til máls tóku: EBr, bæjarstjóri

Bæjarstjórn staðfestir samþykkt bæjarráðs 9:0.

4.Fjárhagsaðstoð 2014

1311087

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 30.1.2014, erindi fjölskylduráðs dags. 22.1.2014, þar sem óskað er eftir heimild til hækkunar á grunnkvarða fjárhagsaðstoðar um 3,6% líkt og önnur sveitarfélög hafa gert. Ennfremur lagt fram minnisblað framkvæmdastjóra fjölskyldusviðs dags. 30. janúar 2014.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs 9:0.

5.Fundargerðir 2014 - bæjarstjórn.

1401184

1182. fundargerð bæjarstjórnar frá 28.1.2014.

Til máls um útsendingu fundargagna almennt og auglýsingar um fundi stjórnmálaflokka tóku GS, RÁ, ÞÞÓ, IV, GPJ, DJ, GB, EB og SK.

Fundargerðin staðfest 9:0.

6.Fundargerðir 2014 - bæjarráð.

1401158

3210. fundargerð bæjarráðs frá 30.1.2014.

Lögð fram.

Til máls um lið 1 og 2 tók GS.

Til máls um lið 3 tóku EBr, ÞÞÓ og GPJ.

Til máls um lið 10 tók EBr og RÁ.

Til máls um bókanir fundargerða almennt tók IV.

7.Fundargerðir 2014 - fjölskylduráðs.

1401159

133. fundargerð fjölskylduráðs frá 4.2.2014.

Lögð fram.

8.Fundargerðir 2014 - framkvæmdaráð.

1401160

114. fundargerð framkvæmdaráðs frá 6.2.2014.

Lögð fram.

9.Fundargerðir 2014 - skipulags- og umhverfisnefnd.

1401161

106. fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar frá 3.2.2014.

Lögð fram.

Fundi slitið - kl. 17:55.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00