Fara í efni  

Bæjarstjórn

1259. fundur 12. september 2017 kl. 17:00 - 18:55 í bæjarþingsalnum, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Sigríður Indriðadóttir forseti bæjarstjórnar
  • Ólafur Adolfsson aðalmaður
  • Ingibjörg Valdimarsdóttir aðalmaður
  • Ingibjörg Pálmadóttir aðalmaður
  • Einar Brandsson aðalmaður
  • Vilborg Þ. Guðbjartsdóttir aðalmaður
  • Valgarður L. Jónsson aðalmaður
  • Rakel Óskarsdóttir aðalmaður
  • Þórður Guðjónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri
  • Steinar Dagur Adolfsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri
Dagskrá

1.Dagforeldrar - reglur um niðurgreiðslu vegna dvalar barna

1708156

Á fundi skóla- og frístundaráðs þann 5. september 2017, var fjallað um tillögur að nýjum reglum um niðurgreiðslur vegna dvalar barna hjá dagforeldrum.
Skóla- og frístundaráð samþykkir fyrirliggjandi reglur um niðurgreiðslur vegna dvalar barna hjá dagforeldrum.
Skóla- og frístundaráð samþykkir að samfara breyttum reglum um niðurgreiðslur vegna dvalar barna hjá dagforeldrum fari niðurgreiðslur beint til dagforeldra í upphafi hvers mánaðar í stað þess að niðurgreiðslan fari til foreldra.
Skóla- og frístundaráð samþykkir að reglurnar taki gildi frá og með 1. janúar 2018.
Til máls tóku:
VLJ, ÞG, IP, SFÞ, ÞG, SI og ÓA.

Bæjarstjórn samþykkir reglur um niðurgreiðslur vegna dvalar barna hjá dagforeldrum sem taki gildi 1. janúar 2018. Gert verði ráð fyrir auknum kostnaði sbr. 13. gr. reglnanna við gerð fjárhagsáætlunar vegna ársins 2018.

Samþykkt 9:0.

2.Deilisk. - Skógarhverfi 1. áf. breyting

1706002

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs, sem haldinn var þann 4. september 2017, var fjallað um tillögu að breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga Skógahverfis sem var auglýst skv. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43 skipulagslaga nr. 123/2010 þann 6. júlí 2017. Athugasemdafrestur var til 22. ágúst 2017.
Breytingar felast í því að húsahæðum fjölbýlishúsa sunnan Asparskóga þar sem aðallega verður gert ráð fyrir tveggja hæða húsum án bílageymslna í stað þriggja hæða með bílageymslu og hins vegar stækkun skipulagssvæðisins sem nemur einni lóðaröð norðan Asparskóga með sams konar tveggja hæða fjölbýlishúsabyggð. Hærri hús verða á þremur lóðum. Jafnframt eru gerðar breytingar á skilmálum t.d. um íbúðafjölda.
Engin athugasemd barst.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt, send Skipulagsstofnun til yfirferðar og auglýsing um gildistöku hennar birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Til máls tók: EBr.

Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi tillögu um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga Skógarhverfis á Akranesi.
Samþykkt 9:0.

Bæjarstjórn samþykkir að tillagan verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar og að auglýsing um gildistöku tillögunnar verði birt í B-deild Stjórnartíðinda.

Samþykkt 9:0.

3.Deilisk. - Skógarhverfi 2. áf. breyting

1706003

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs, sem haldinn var þann 4. september 2017, var fjallað um tillögu að breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga Skógahverfis sem var auglýst skv. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þann 4. júlí 2017. Athugasemdafrestur var til 22. ágúst 2017.
Í breytingunni felst almenn breyting á ákvæðum um bílastæði fyrir fjölbýlishús þar sem fjöldi bílastæða fer eftir stærð íbúða.
Breyting á lóðamörkum og sameining byggingarreita á lóðunum við Álfalund 6-12 og Akralund 13-23.
Raðhús og parhús við Álfalund 2-26 (jafnar tölur) og Akralund 13-41 (oddatölur) verða einnar hæðar í stað tveggja hæða.
Byggingarreit fjölbýlishúss við Akralund 6 er breytt, hann einfaldaður og skásettur miðað við aðliggjandi reiti.
Engin athugasemd barst.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt, send Skipulagsstofnun til yfirferðar og auglýsing um gildistöku hennar birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Til máls tók: EBr.

Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi tillögu um breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga Skógarhverfis á Akranesi.
Samþykkt 9:0.

Bæjarstjórn samþykkir að deiliskipulagstillagan verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar og að auglýsing um gildistöku hennar verði birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Samþykkt 9:0.

4.Deilisk. - Akraneshöfn, skipulagsmörk

1704025

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs, sem haldinn var þann 4. sept. 2017, var fjallað um tillögu að breytingu á deiliskipulagi Akraneshafnar sem var auglýst skv. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þann 22. júní 2017. Athugasemdafrestur var til 8. ágúst 2017.

Bókun skipulags- og umhverfisráðs.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Akraneshafnar var auglýst skv. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þann 22. júní 2017. Athugasemdafrestur var til 8. ágúst 2017.
Breytingin felst í að breyta skipulagsmörkum deiliskipulags Akraneshafnar á þá leiða að Sementsbryggja og athafnasvæði við Faxabraut 10 verða hluti af deiliskipulagi Sementsreits.
Engin athugasemd barst.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt og send Skipulagsstofnun til yfirferðar og auglýsing um gildistöku hennar birt í B-deild Stjórnartíðinda.
TIl máls tók: RÓ.

Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi tillögu um breytingu á deiliskipulagi Akraneshafnar.
Samþykkt 9:0.

Bæjarstjórn samþykkir að deiliskipulagstillagan verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar og að auglýsing um gildistöku hennar verði birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Samþykkt 9:0.

5.Aðalsk. - Sementsreitur, breyting / íbúafundur

1701210

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs, sem haldinn var þann 4. sept. 2017, var fjallað um tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 vegna Sementsreits. Breytingin var auglýst skv. 1. mgr. 31. gr. sbr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þann 22. júní 2017. Athugasemdafrestur var til 8. ágúst 2017.

Ein athugasemd barst sem bæði á við deiliskipulagið og breytingu á aðalskipulagi.
Í athugasemdinni er viðruð sú hugmynd að fjarlægja mannvirki og skeljasandsþró Sementsverksmiðjunnar þannig að þau umhverfisgæði sem fyrir voru áður en verksmiðjan var reist yrðu endurheimt.

Svæðið er mjög verðmætt til byggðar m.a. með tilliti til eftirfarandi þátta:
Svæðið er í góðum tengslum við þungamiðju núverandi byggðar, miðbæ, höfn og Langasand.
Svæðið er með sjávarsýn og snýr til suðurs.
Uppbygging svæðisins hefur í för með sér þéttingu byggðar, endurbætta bæjarmynd og rekstarhagkvæmni til langs tíma bæði fyrir bæjarfélagið og íbúa þess.
Neikvæð umhverfisáhrif verksmiðjunnar verða afturkölluð að miklu leyti en ekki verður lagt í kostnaðarsamar framkvæmdir til þess að endurheimta fyrra umhverfi að fullu enda felast áhugaverð tækifæri fyrir þróun bæjarfélagsins í framlögðum skipulagsáætlunum.
Svæðið hefur góð tengsl við miðbæ, höfn og Langasand.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir framlagða greinargerð sviðsstjóra sem svar við framkominni athugsemd um breytingu á aðalskipulagi. Ekki er fallist á að tilefni sé til að endurheimta þann hluta Langasands sem lenti undir mannvirkjum Sementsverksmiðjunnar.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að aðalskipulagsbreytingin verði samþykkt óbreytt frá auglýsingu og send Skipulagsstofnun til staðfestingar.
Til máls tók: RÓ.

Bæjarstjórn samþykkir að framlögð greinargerð sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs verði svar bæjarstjórnar við framkomnum athugasemdum.
Samþykkt 9:0.


Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 vegna Sementsreits og að tillagan verði send Skipulagsstofnun til staðfestingar.
Samþykkt 9:0.

6.Deilisk. - Sementsreitur

1604011

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs, sem haldinn var þann 4. sept. 2017, var fjallað um tillögu að deiliskipulagi Sementsreits sem var auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þann 22. júní 2017. Athugasemdafrestur var til 8. ágúst 2017.
Ein athugasemd barst sem bæði á við deiliskipulagið og breytingu á aðalskipulagi.
Í athugasemdinni er viðruð sú hugmynd að fjarlægja mannvirki og skeljasandsþró Sementsverksmiðjunnar þannig að þau umhverfisgæði sem fyrir voru áður en verksmiðjan var reist yrðu endurheimt.

Svæðið er mjög verðmætt til byggðar m.a. með tilliti til eftirfarandi þátta:
Svæðið er í góðum tengslum við þungamiðju núverandi byggðar, miðbæ, höfn og Langasand.
Svæðið er með sjávarsýn og snýr til suðurs.
Uppbygging svæðisins hefur í för með sér þéttingu byggðar, endurbætta bæjarmynd og rekstarhagkvæmni til langs tíma bæði fyrir bæjarfélagið og íbúa þess.
Neikvæð umhverfisáhrif verksmiðjunnar verða afturkölluð að miklu leyti en ekki verður lagt í kostnaðarsamar framkvæmdir til þess að endurheimta fyrra umhverfi að fullu enda felast áhugaverð tækifæri fyrir þróun bæjarfélagsins í framlögðum skipulagsáætlunum.
Svæðið hefur góð tengsl við miðbæ, höfn og Langasand.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir framlagða greinargerð sviðsstjóra sem svar við framkominni athugsemd um deiliskipulagið. Ekki er fallist á að tilefni sé til að endurheimta þann hluta Langasands sem lenti undir mannvirkjum Sementsverksmiðjunnar.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt óbreytt frá auglýsingu. Deiliskipulagið verði sent Skipulagsstofnun til yfirferðar og auglýsing um gildistöku þess birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Til máls tók: RÓ.

Bæjarstjórn samþykkir að framlögð greinargerð sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs verði svar bæjarstjórnar við framkomnum athugasemdum.
Samþykkt 9:0.

Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi deiliskipulagsbreytingu á Sementsreits.
Samþykkt 9:0.

Bæjarstjórn samþykkir að deiliskipulagið verði sent Skipulagsstofnun til yfirferðar og að auglýsing um gildistöku þess verði birt í B-deild Stjórnartíðinda.
Samþykkt 9:0.

7.Deilisk. Stofnanareitur - Vesturgata breyting v/ fimleikahúss

1703203

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs, sem haldinn var þann 4. september 2017, var fjallað um tillögu að breytingu deiliskipulagi Stofnanareits vegna Vesturgötu 130 íþróttahúss sem var auglýst skv. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þann 22. júní 2017. Athugasemdafrestur var til 8. ágúst 2017.
Tvær athugasemdir bárust.
Gerðar voru athugasemdir við málsmeðferð, bílastæðamál, hæð húss og skuggavarp.
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir framlagða greinargerð sviðsstjóra sem svar við framkomnum athugsemdum um deiliskipulagið. Athugasemdirnar gáfu tilefni til eftirtalinna lagfæringa á skipulagstillögunni:
Gert verði ráð fyrir 11 nýjum bílastæðum við Háholt norðan nýbyggingarinnar og gangstétt færð suður fyrir þau.
Ákvæði er sett um að nýbygging skuli vera eins sunnarlega á byggingarreit og kostur er.
Minni háttar breytingar eru gerðar á skipulagsmörkum og mörkum stofnanalóðar vegna bílastæða við Háholt.
Breytingarnar eiga ekki við meginatriði deiliskipulagsins og gefa ekki tilefni til þess að auglýsa það að nýju.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagsbreytingin verði samþykkt með áorðnum breytingum eftir auglýsingartíma, send Skipulagsstofnun til yfirferðar og auglýsing um gildistöku hennar birt í B-deild Stjórnartíðinda.

Til máls tóku: EBr, VLJ og ÞG.

Bæjarstjórn samþykkir að framlögð greinargerð sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs verði svar bæjarstjórnar við framkomnum athugasemdum.
Samþykkt 7:0 (VLJ og IV sitja hjá).

Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi deiliskipulagsbreytingu Stofnanareits vegna Vesturgötu 130 íþróttahúss, með áorðnum breytingum eftir auglýsingatíma, að breytingin verði send Skipulagsstofnun til yfirferðar og birtingu um gildistöku hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
Samþykkt 7:0 (VLJ og IV sitja hjá).

8.Háteigur 2 - Umsókn um byggingarleyfi

1610025

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs, sem haldinn var þann 4. sept. 2017, var fjallað um grenndarkynningu byggingarleyfis fyrir bílskúr.
Grenndarkynningu lokið, engar athugasemdir bárust.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytinguna í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi byggingarleyfi fyrir bílskúr við Háteig 2 á Akranesi.
Samþykkt 9:0.

9.Reglur um leigu á íbúðum Akraneskaupstaðar

1706134

Á 64. fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 30. ágúst 2017 var fjallað drög að reglum um leigu á íbúðum Akraneskaupstaðar. Reglunum er ætlað að koma í stað reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur á Akranesi.

Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir drögin og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Til máls tóku:
VÞG, VLJ, VÞG, IV og EBr.

Bæjarstjórn samþykkir reglur um leigu á íbúðum Akraneskaupstaðar.
Samþykkt 9:0.

10.Fundargerðir 2017 - bæjarráð

1701005

3219. fundargerð bæjarráðs frá 24. ágúst 2017.
Til máls tóku:
IV um lið nr. 3.
EBr um lið nr. 3.
RÓ um liði nr. 3, 8 og 1l.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

11.Fundargerðir 2017 - velferðar- og mannréttindaráð

1701006

64. fundargerð velferðar- og mannréttindaráðs frá 30. ágúst 2017.
Til máls tóku:
IV um lið nr 2.
VÞG um lið nr. 2.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

12.Fundargerðir 2017 - skóla- og frístundaráð

1701007

67. fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 29. ágúst 2017.
68. fundargerð skóla- og frístundaráðs frá 5. september 2017.
Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

13.Fundargerðir 2017 - Fasteignafélagið slf.

1701012

34. fundargerð stjórnar Fasteignafélags Akraness slf. frá 21. ágúst 2017.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

14.Fundargerðir 2017 - skipulags- og umhverfisráð

1701008

67. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 21.ágúst 2017.
68. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs 4. september 2017.
Til máls tók:
EBr um fundargerð nr. 68, lið nr. 10.
SI um fundargerð nr. 68, lið nr. 10.

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

15.Fundargerðir 2017 - Höfði

1701010

74. fundargerð stjórnar Höfða frá 19. júní 2017.
75. fundargerð stjórnar Höfða frá 21. ágúst 2017.
Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

16.Fundargerðir 2017 - Orkuveita Reykjavíkur

1701023

246. fundargerð Orkuveitu Reykjavíkur frá 19. júní 2017.
247. fundargerð Orkuveitu Reykjavíkur frá 17. júlí 2017.
Til máls tóku:
IV um mál sem varðar höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur (OR).
RÓ um mál sem varðar höfuðstöðvar OR, umhverfisslys í Andakílsá og mengunarslys við Nauthólsvík.

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

17.Fundargerðir 2017 - Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi

1701021

131. fundargerð stjórnar SSV frá 14. júní 2017.
132. fundargerð stjórnar SSV frá 23. ágúst 2017.
Til máls tók:
RÓ um fundargerð 131, lið nr. 3 og fundargerð 132, liði nr. 2 og 3.

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

18.Fundargerðir 2017 - Samband íslenskra sveitarfélaga

1701020

852. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 1. september 2017.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:55.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00