Bæjarstjórn unga fólksins
|
1. 2602-1589 - Þorpið - Frístundamiðstöð I Erindi á bæjarstjórnarfundi unga fólksins Eydís Glóð Guðlaugs Drífudóttir heldur erindi um Þorpið Frístundasmiðstöð. Börn og ungmenni eru heilt yfir mjög ánægð með Þorpið og segja það gegna mikilvægu hlutverki í félagslífi og uppeldi barna og ungmenna á Akranesi. Ákall á opnun fáein skipti yfir sumarið og þá sérstaklega í tengslum við viðburði sem eiga sér stað í bænum eins og t.d. í kringum Írska daga. Börn og ungmenni óska eftir fleiri viðburðum sem miða að þeirra aldurshópi og Þorpið er talið vera kjörinn vettvangur til að skipuleggja slíkt starf. Einnig er ákall eftir fjármagni til endurnýjar húsgagna og annarra búnaðar í Þorpinu en slíkt er í stöðugri notkun daglega og því margt orðið gamalt og lúið. |
|
2. 2602-1590 - Bæjarhátíðir - Barna- og unglingamenning I Erindi á bæjarstjórnarfundi unga fólksins Sandra Björk Freysdóttir heldur erindi um Barna- og unglingamenningu á bæjarhátíðum. Sandra byrjar á því að hrósa Akraneskaupstað fyrir að hafa gripið vel í öryggismál á Írskum dögum. Ákall eftir frekari dagskrá og viðburðum fyrir ungmenni og unglinga undir 20 ára á Írskum dögum. Hugmyndirnar eru t.d. íþróttamót, ungmennaböll, áfengislausir kvöldviðburðir og að tívolítækin væru ekki eins mikið miðuð að yngri börnum. 14-15 ára krakkar segja sig vera "gleymdi aldurinn". Sandra stingur uppá að hafa tvö böll á laugardagskvöldinu á Írskum dögum, eitt fyrir 13-15 ára og annað fyrir 16-19 ára. Hugmyndir að viðburðum á Vökudögum fyrir ungmenni eru m.a. söngvakeppni, íþróttamót, hæfileikakeppni, fatahönnunarnámskeið og námskeið í tónlistargerð. |
|
3. 2602-1591 - Frítími og félagsmál I Erindi á bæjarstjórnarfundi unga fólksins Arndís Elfa Pálsdóttir heldur erindi um frítíma og félagsmál. Hún byrjar á því að hrósa Akraneskaupstað fyrir stórkostlegt nýtt rými í Brekkubæjarskóla og lýsir einnig yfir mikilli ánægju frístundastrætós fyrir börn á Akranesi. Unglingar upplifa að þeir falli á milli kerfa, séu of gamlir fyrir barnamiðað starf og lýsa yfir þörf fyrir að búa til meira pláss fyrir unglinga. Það gæti falist í sveigjanlegri opnunartíma í félagsmiðstöð, fjölbreyttari viðburðum og afþreyingu. Sundaðstaðan á Akranesi eitt mikilvægasta samkomurými samfélagsins. Er meira en staður fyrir íþróttaiðkun heldur einnig mikilvægur vettvangur fyrir félagslíf og samveru. Vantar betra flæði á sundsvæðið. Kallað er eftir betri rennibrautum, stærri aðstöðu og almennum endurbótum. |
|
4. 2602-1592 - Skólamál I Erindi á bæjarstjórnarfundi unga fólksins Sigurður Brynjarsson heldur erindi um skólamál. Mikil ánægja á Barnaþingi með starfsfólk og kennara skólanna á Akranesi, frímínútur og sérstaklega nýju nemenda aðstöðuna í Brekkubæjarskóla. Óskað eftir því að skólinn byrji seinna á morgnanna svo að hægt sé að stunda íþróttir og eyða tíma með vinum lengur á kvöldin. Ákall eftir betri stólum og borðum í skólastofum, að 8.bekkur í Grundaskóla sé á sama svæði og 9. og 10. bekkur, fleiri einn og einn samtöl nemenda og kennara/sálfræðing eða öðrum trúnaðaraðilum. Börn vilja frekari kennslu í fjármálalæsi, samfélagsmálum, raunvísindum og frönsku og/eða spænsku. Meira samstarf á milli skólanna. |
|
5. 2602-1600 - Íþrótta- og tómstundastarf I Erindi á bæjarstjórnarfundi unga fólksins Gunnar Heimir Ragnarsson heldur erindi um íþrótta- og tómstundastarf. Börn upplifa áhyggjur vegna kostnaðar fjölskyldna vegna íþróttaiðkunar. Er hægt að leita leiða til þess að auðvelda fjölskyldum fyrir? Börn og unglingar kalla eftir handbolta á Akranesi og vilja að með opnun nýs íþróttahús og eftir endurbætur á Vesturgötu skuli skoða það aftur. Ósk um að opna tíma í íþróttahúsum fyrir börn og ungmenni. Ákall eftir hita í Akraneshöll. |
|
6. 2602-1601 - Ungmennasjóður Akraneskaupstaðar I Erindi á bæjarstjórnarfundi unga fólksins Eva Júlíana Bjarnadóttir heldur erindi um Ungmennasjóð Akraneskaupstaðar Markmið sjóðsins er að styðja við frumkvæði ungs fólks, svo hægt sé að fá raunverulegt tækifæri til að láta hugmyndir þeirra verða að veruleika og þróa hæfileika. Sjóðurinn myndi einnig veita styrki til ýmissa verkefna. Eva þakkar fyrir tækifærið að fá að tala á bæjarstjórnarfundi og er ánægð með það hversu vel hefur verið brugðist við erindum ungmenna síðastliðin ár, dæmi má nefna lengdan opnunartíma sundlaugar, ný líkamsræktarstöð og stærri sleðahóll. |
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





