Fara í efni  

Bæjarráð

3638. fundur 12. nóvember 2026 kl. 08:15 - 11:25 Lindin, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Líf Lárusdóttir formaður bæjarráðs
  • Ragnar B. Sæmundsson varaformaður bæjarráðs
  • Sigurður Vopni Vatnsdal aðalmaður
  • Jón Guðni Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Hrafn Ágúst Björnsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sturlaugur Haraldsson bæjarstjóri
  • Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála- og þróunarsviðs

1. 2606-4745 - Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun vegna tímabilsins 2028-2030

Fjárhagsáætlun vegna ársins 2027 er fastur dagskrárliður á fundum bæjarráðs þar til áætlunin
hefur verið afgreidd.

Kristjana Helga Ólafsdóttir fjármálastjóri situr fundinn undir þessum dagskrárlið sem og undir
dagskrárlið nr. 2.

Vinnu vegna fjárhagsáætlunar verður framhaldið á næsta fundi bæjarráðs.

Samþykkt 3:0

 

2. 2604-3359 - Fjárhagsáætlun 2026 - viðaukar

Tillaga fjármálastjóra varðandi gerð viðauka.

Í viðaukanum eru ýmsar ráðstafanir sem ekki hafa áhrif á rekstrarniðurstöðu en einnig eru
breytingar sem fela í sér auknar tekjur að fjárhæð 256.882.120 kr. vegna nýrra áætlunar frá
Jöfnunarsjóði og endurgreiðslna frá Barna- og fjölskyldustofu.

Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 23 við fjárhagsáætlun ársins 2026 og þær tilfærslur sem lagðar eru
til í honum af fjármálastjóra sbr. fylgiskjal. Viðaukinn felur í sér auknar tekjur að fjárhæð kr.
256.882.120 og er mætt með samsvarandi hækkun á áætlaðri rekstrarniðurstöðu ársins 2026.

Bæjarráð vísar viðaukanum til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Samþykkt 3:0

Kristjana Helga Ólafsdóttir víkur af fundi.

 

3. 2601-0892 - Fjöliðjan - beiðni um aukið stöðugildi leiðbeinanda

Beiðni um nýtt stöðugildi leiðbeinanda í Fjöliðju. Fyrirliggjandi er minniblað og viðauki sem skýrir
og kostnaðarmetur þörfina.

Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 3. nóvember 2026 var gerð eftirfarandi bókun:
Velferðar- og mannréttindaráð er fylgjandi því að samþykkja aukningu um eitt stöðugildi út árið
2027, með möguleika á framlengingu, á grundvelli fyrirliggjandi gagna.

Velferðar- og mannréttindaráð áréttar mikilvægi þess að innleitt verði mönnunarmódel fyrir
Fjöliðjuna til að tryggja öryggi og skýra yfirsýn.

Málinu vísað til afgreiðslu í bæjarráði.

Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs situr fundinn undir þessum
dagskrárlið sem og undir dagskrárliðum nr. 4 til og með nr. 6.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu velferðar- og mannréttindaráðs um um tímabundna
aukningu um eitt stöðugildi hjá Fjöliðjunni og að gera ráð fyrir útgjöldunum í fjárhagsáætlun vegna
ársins 2027.

Bæjarráð samþykkir meðfylgjandi viðauka nr. 24 vegna viðbótarkostnaðar sem fellur til á árinu
2026 vegna þessa, samtals að fjárhæð kr. 1.768.434, en útgjöldunum verður mætt með lækkun á
væntum rekstrarafgangi ársins.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Samþykkt 3:0

 

4. 2609-7066 - Samningur um móttöku flóttafólks 2027

Mikilvægt er að breytingar á móttöku flóttafólks verði undirbúnar í nánu samstarfi við
sveitarfélögin og aðra hlutaðeigandi aðila. Jafnframt er ljóst að breytingar á þjónustukerfum kalla á
vandaðan undirbúning og geta því ekki komið að fullu til framkvæmda fyrr en á síðari hluta árs
2027.

Af þeim sökum óskar ráðuneytið efir því að núgildandi samningar um samræmda móttöku
flóttafólks verði framlengdir til ársloka 2027.

Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 3. nóvember 2026 var gerð eftirfarandi bókun:
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir viðauka við þjónustusamning um samræmda móttöku
flóttafólks fyrir sitt leyti, sem felur í sér lækkun á heildarfjölda samnings úr 100 einstaklingum í 50,
en það er til samræmis við raunnýtingu.

Velferðar- og mannréttindaráð óskar eftir staðfestingu frá ráðuneytinu um að fjöldi í samningi taki
breytingum til samhliða mögulegri fjölgun í hópi flóttafólks á árinu 2027.

Málinu vísað til afgreiðslu í bæjarráði.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi viðauka við þjónustusamning um samræmda móttöku
flóttafólks. Með viðaukanum lækkar sá fjöldi einstaklinga sem samningurinn tekur til úr 100 í 50, í
samræmi við raunnýtingu þjónustunnar.

Bæjarráð tekur undir bókun velferðar- og mannréttindaráðs og óskar eftir staðfestingu
ráðuneytisins á því að fjölga megi þeim sem samningurinn tekur til, ef flóttafólki sem þarf á
þjónustunni að halda fjölgar á árinu 2027.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Samþykkt 3:0

 

5. 2601-0354 - Skógarlundur 42, stofnframlag vegna íbúðakjarna.

Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 3. nóvember 2026 var gerð eftirfarandi bókun:
Velferðar- og mannréttindaráð leggur áherslu á að Akraneskaupstaður geri málið upp með
formlegum hætti.

Bæjarráð tekur undir bókun velferðar- og mannréttindaráðs og felur bæjarstjóra frekari úrvinnslu
málsins og að ítreka ósk Akraneskaupstaðar um fund sem fyrst með fulltrúum Húsnæðismannvirkja- og skipulagsstofnun um málið.

Samþykkt 3:0

 

6. 2601-0726 - Akstursþjónusta Akraneskaupstaðar

Minnisblað framkvæmdastjóra Höfða lagt fram.

Valdís Eyjólfsdóttir framkvæmdastjóri Höfða situr fundinn undir þessum dagskrárlið sem og undir
dagskrárliðum nr. 7 og nr. 8.

Bæjarráð samþykkir beiðni Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis um að Akraneskaupstaður endurnýi
bifreið ferðaþjónustu fatlaðs fólks. Höfði sinnir akstursþjónustunni fyrir hönd Akraneskaupstaðar
samkvæmt samkomulagi þar um.

Áætlað kaupverð bifreiðarinnar er um 13 m.kr. miðað við gengi í byrjun október 2026 en við bætist
allt að 1,0 m.kr. vegna kostnaðar á flutningi til landsins og umsýslu við innflutninginn.

Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 25 við fjárhagsáætlun ársins vegna framangreinds, samtals að
fjárhæð kr. 14,0 m.kr. en útgjöldunum verður mætt með lækkun á væntum rekstrarafgangi ársins.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Samþykkt 3:0

Hildigunnur Árnadóttir víkur af fundi.

 

7. 2610-8224 - Kostnaðaruppgjör - Undirbúningsvinna vegna stækkunar Höfða

Í tengslum við fyrirhugaða stækkun hjúkrunarheimilisins Höfða óskar stjórn Höfða eftir því að
eigendur standi straum af áföllnum kostnaði tengt undirbúningi verkefnisins (frumathugum,
þarfagreining, o.fl.) samtals að fjárhæð kr. 3.822.800 sem og væntum kostnaði vegna komandi
skipulagsvinnu á árinu 2027. Gert er ráð fyrir kostnaðarskiptingu skv. eignarhlutföllum
sveitarfélaganna í heimilin þ.e. að Akraneskaupstaður beri 90% kostnaðarins og Hvalfjarðarsveit
10% kostnaðarins.

Bæjarráð samþykkir erindið og viðauka nr. 26 samtals að fjárhæð kr. 3.444.520 sem mætt verður
með lækkun á væntum rekstrarafgangi ársins 2026.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Samþykkt 3:0

Bæjarráð samþykkir að gera ráð fyrir útgjöldum í fjárhagsáætlun ársins 2027 til samræmis við
fyrirliggjandi kostnaðaraðaráætlun sem er af stærðargráðunni 5,8 til 7,8 m.kr.

Samþykkt 3:0

 

8. 2611-8501 - Framkvæmdasjóður aldraðra 2027

Varðar fyrirhugaða umsókn stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis í Framkvæmdasjóð
aldraðra vegna viðhaldsverkefna árið 2027.
Stjórn höfða óskar eftir aðkomu eigenda Höfða að fjármögnun verkefnanna samhliða umsóknum
um framlag úr Framkvæmdasjóði aldraðra á árinu 2027.

Bæjarráð samþykkir beiðni stjórnar Höfða um að Akraneskaupstaður taki þátt í fjármögnun
fjögurra viðhaldsverkefna við fasteign Höfða árið 2027. Framlag Akraneskaupstaðar miðast við
hlut bæjarins í mótframlagi eigenda samkvæmt fyrirliggjandi kostnaðaráætlun og er háð því að
Framkvæmdasjóður aldraðra veiti 50% styrk til verkefnanna. Verði styrkhlutfallið lægra en 50% eða
forsendur kostnaðaráætlunar breytist skal leggja málið að nýju fyrir bæjarráð.

Áætlaður heildarkostnaður framkvæmdanna er kr. 25.015.589 og hlutur Akraneskaupstaðar í
samræmi við 90% eignarhlut áætlaður kr. 11.257.015.

Samþykkt 3:0

Valdís Eyjólfsdóttir víkur af fundi.

 

9. 2609-6807 - Vesturgata 62 - Sala

Til kynningar eru gögn vegna fyrirhugaðrar mögulegrar sölu á Vesturgötu 62.

Skipulags- og umhverfisráð samþykkir fyrirliggjandi sölugögn og vísar málinu til afgreiðslu í
bæjarráði. Sölugögn skulu send Framkvæmdasýslu – Ríkiseignum til yfirferðar.
Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs situr fundinn undir þessum
dagskrárlið.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi sölugögn vegna Vesturgötu 62. Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir
hafa samþykkt gögnin.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að auglýsa eignina til sölu.

Samþykkt 3:0

 

10. 2611-8295 - Heimgreiðslur til foreldra ungra barna

Lögð er fram tillaga að fyrirkomulagi heimgreiðslna til foreldra ungra barna en þeim er ætlað að
brúa bilið þar til barn fær pláss hjá dagforeldri eða í leikskóla.

Mennta- og menningarráð telur mikilvægt að unnið verði að útfærslu heimgreiðslna sem
tímabundins valkosts fyrir foreldra til að brúa bil þar til barn fær leikskólapláss eða pláss hjá
dagforeldri. Ráðið lýsir vilja til þess að fyrirkomulagið taki gildi 1. janúar 2027.

Við nánari útfærslu verði jafnframt horft til núverandi fyrirkomulags niðurgreiðslna vegna
dagforeldra og samspils þessara úrræða, með það að markmiði að tryggja samræmt fyrirkomulag
stuðnings við foreldra.

Málinu er vísað til afgreiðslu hjá bæjarráði ásamt tillögum að útfærslu heimgreiðslna og
verklagsreglum um framkvæmd þeirra.

Dagný Hauksdóttir sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu um tímabundið fyrirkomulag heimgreiðslna til foreldra
ungra barna og meðfylgjandi verklagsreglur um framkvæmd þeirra. Fyrirkomulagið tekur gildi 1.
janúar 2027. Heimgreiðslum er ætlað að brúa bilið þar til barn fær pláss hjá dagforeldri eða í
leikskóla.

Samþykkt 3:0

Bókun fulltrúa HÁB, oddvita Miðflokksins:
Það er mat Miðflokksins að mikilvægt sé að styðja vel við barnafjölskyldur í Akranesi og skapa þeim
sem bestar aðstæður til að samræma fjölskyldulíf og atvinnuþátttöku.

Þegar 12 mánaða fæðingarorlofi lýkur getur myndast erfitt tímabil þar til barn fær leikskólapláss.
Það getur skapað fjölskyldum bæði fjárhagslegar og félagslegar áskoranir.

Miðflokkurinn leggur jafnframt áfram áherslu á að meginmarkmiðið verði að efla leikskóla á
Akranesi, tryggja nægt framboð leikskólaplássa og skapa fjölskyldum fyrirsjáanleika í dagvistun
barna sinna.

Við verðum að meta kostnað, meta kosti, meta gallana og hvað við verðum að gera til að
raunverulega laga þau vandamál sem við stöndum frammi fyrir.

Hrafn Ágúst Björnsson (sign)

Dagný Hauksdóttir víkur af fundi. 

 

11. 2611-8502 - Lækjarflói 23 Skil á lóð

Forsvarsmenn Þróttar hafa óskað eftir að fá að skila lóðinni Lækjarflói 23 en úthlutun hennar
byggist á kaupsamningi/úthlutunarsamningi frá mars 2023.

Sigurður Páll Harðarsson situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Bæjarráð samþykkir beiðni Þróttar ehf. um skil á Lækjarflóa 23.

Samþykkt 3:0

Sigurður Páll Harðarson víkur af fundi.

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

 

 

 

 

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu