Fara í efni  

Bæjarráð

3637. fundur 04. nóvember 2026 kl. 16:30 - 18:28 Lindin, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Líf Lárusdóttir formaður bæjarráðs
  • Ragnar B. Sæmundsson varaformaður bæjarráðs
  • Sigurður Vopni Vatnsdal aðalmaður
  • Jón Guðni Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Hrafn Ágúst Björnsson áheyrnarfulltrú
Starfsmenn
  • Sturlaugur Haraldsson bæjarstjóri
  • Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála- og þróunarsviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála- og þróunarsviðs

1. 2610-8223 - Fjárhagsáætlun Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis - Fyrri umræða í stjórn Höfða

Dvalarheimið Höfði - Fjárhagsáætlun 2027 - 2029.

Kristjana Helga Ólafsdóttir fjármálastjóri situr fundinn undir þessum dagskrárlið sem og undir
dagskrárliðum nr. 2 og nr. 3.

Bæjarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun Höfða vegna ársins 2027 og þriggja ára áætlun vegna
tímabilsins 2028 til og með 2030 til fyrri umræðu í bæjarstjórn sem fram fer þriðjudaginn 10.
nóvember nk.

Samþykkt 3:0

Frekari rýning á áætluninni mun fara fram á milli umræðna.



2. 2605-3445 - Fjárfestingaráætlun 2026-2029

Áframhaldandi vinna við fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun ársins 2027 og vegna tímabilsins
2028 til og með 2030. Lokafundur bæjarráðs fyrir framlagningu fjárhagsáætlunar til fyrri umræðu í
bæjarstjórn.

Bæjarráð samþykkir að vísa fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun ársins 2027 og þriggja ára áætlun
vegna tímabilsins 2028 til og með 2030 til fyrri umræðu í bæjarstjórn sem fram fram þriðjudaginn
10. nóvember nk.

Samþykkt 3:0

Frekari rýning á áætluninni mun fara fram á milli umræðna. 


3. 2606-4745 - Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun vegna tímabilsins 2028-2030

Áframhaldandi vinna við gerð fjárhagsáætlunar vegna ársins 2027 og vegna tímalsins 2028 til og
með 2030. Lokafundur bæjarráðs fyrir framlagningu fjárhagsáætlunar til fyrri umræðu í
bæjarstjórn.

Bæjarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun vegna ársins 2027 og þriggja ára áætlun vegna
tímabilsins 2028 til og með 2030 ásamt tillögum sem meðfylgjandi eru áætluninni til fyrri umræðu í
bæjarstjórn sem fram fer þriðjudaginn 10. nóvember nk.

Samþykkt 3:0

Frekari rýning á áætluninni mun fara fram á milli umræðna.Kristjana Helga Ólafsdóttir víkur af
fundi.

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu