Fara í efni  

Bæjarráð

3636. fundur 29. október 2026 kl. 08:15 - 13:15 Lindin, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Líf Lárusdóttir formaður bæjarráðs
  • Ragnar B. Sæmundsson varaformaður bæjarráðs
  • Sigurður Vopni Vatnsdal aðalmaður
  • Jón Guðni Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Hrafn Ágúst Björnsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sturlaugur Haraldsson bæjarstjóri
  • Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála- og þjónustusvið
  • Harpa Sólbjört Másdóttir upplýsingastjóri
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs

1. 2606-4745 - Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun vegna tímabilsins 2028-2030

Fjárhagsáætlun er fastur liður á fundum bæjarráðs fram til samþykktar fjárhagsáætlunar vegna
ársins 2027.

Kristjana Helga Ólafsdóttir fjármálastjóri situr fundinn undir þessum lið.

Lagt fram.

Vinnu við gerð fjárhagsáætlunar vegna ársins 2027 og tímabilsins 2027 til og með 2029 verður
framhaldið á næsta fundi bæjarráðs en sá fundur verður síðasti fundur fyrir fyrri umræðu
áætlunarinnar sem fram fer í bæjarstjórn þann 10. nóvember nk.

Samþykkt 3:0

Kristjana Helga Ólafsdóttir víkur af fundi.

 

2. 2610-8255 - Kynning Veitna 29.10.2026 fyrir bæjarráð

Fulltrúar Veitna mæta á fund bæjarráðs.

Bæjarráð Akraneskaupstaðar þakkar fulltrúum Veitna fyrir komuna og greinargóða kynningu á
verkefnum sem eru í gangi hjá fyrirtækinu og eru framundan á næstu árum.

Bæjarráð leggur áherslu á áframhaldandi þétt samstarf og reglulegt samtal um uppbyggingu og
viðhald innviða í bæjarfélaginu.

Samþykkt 3:0

Gestir víkja af fundi.

 

3. 2605-3445 - Fjárfestingaráætlun 2026-2029

Fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun 2027 lögð fram til kynningar. Skipulags- og umhverfisráð
samþykkti fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun vegna áranna 2027 - 2033 á fundi sínum nr. 364 og
vísaði henni til bæjarráðs.

Kristjana Helga Ólafsdóttir fjármálastjóri og Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og
umhverfissviðs sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lagt fram.

Vinnu við gerð fjárhagsáætlunar vegna ársins 2027 verður framhaldið á næsta fundi bæjarráðs.

Samþykkt 3:0


4. 2610-8223 - Fjárhagsáætlun Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis - Fyrri umræða í stjórn Höfða

Fjárhagsáætlun Höfða 2027 - Fyrri umræða í stjórn Höfða.

Lagt fram.

Vinnu við gerð fjárhagsáætlunar vegna ársins 2027 verður framhaldið á næsta fundi bæjarráðs.

Samþykkt 3:0

 

5. 2610-8224 - Kostnaðaruppgjör - Undirbúningsvinna vegna stækkunar Höfða

Kostnaðaruppgjör við eigendur. Um er að ræða kostnað sem féll til þegar undirbúningsnefnd um
stækkun Höfða var að störfum og áður en skipulagsferlið sjálft hófst.

Lagt fram.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og þjónustusviðs frekari úrvinnslu málsins.

Samþykkt 3:0


6. 2603-2275 - Heimasíða Akraneskaupstaðar - Heimasíður skóla og stofnanna - Þörf á
endurnýjun

Þörf er á að endurnýja heimasíður Akraneskaupstaðar sem eru vistaðar í vefumsjónarkerfinu
Moya, þar sem það kerfi er á útleið. Búið er að setja af stað vinnuhóp um verkefnið og gera þarf
ráð fyrir tíma hjá starfsfólki og fjármagni í verkefnið.

Bæjarráð leggur áherslu á mikilvægi heimasíðu Akraneskaupstaðar sem upplýsingaveitu og hyggst
ráðstafa fjármunum til vinnunnar í fjárhagsáætlun næsta árs.

Bæjarráð væntir þess að ný og uppfærð heimasíða líti dagsins ljós á næsta ári.

Samþykkt 3:0


7. 2610-8208 - Mál nr. S-198/2026 Frumvarp til laga um breytingar á lögreglulögum og fleiri
lögum (skipulagsbreytingar hjá lögreglu)

Akraneskaupstaður hefur fengið til umsagnar mál nr. S-198/2026, Frumvarp til laga um breytingar
á lögreglulögum o.fl. (skipulagsbreytingar hjá lögreglu).

Bæjarráð lýsir yfir miklum efasemdum um þær umfangsmiklu breytingar á lögregluembættum sem
felast í frumvarpi dómsmálaráðherra og samþykkir fyrirliggjandi umsögn um málið.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og þjónustusviðs frekari úrvinnslu málsins og að
skila umsögninni til Alþingis með afriti á þingmenn kjördæmisins.

Samþykkt 3:0


8. 2609-7005 - Siðareglur kjörinna fulltrúa Akraneskaupstaðar 2026

Siðareglur kjörinna fulltrúa Akraneskaupstaðar 2026 - 2030. Málið var á dagskrá bæjarráðsfundar
nr. 3634 þann 12. október 2026 en afgreiðslu þess frestað.

Bæjarráð samþykkir siðareglur kjörinna fulltrúa Akraneskaupstaðar vegna tímabilsins 2026 - 2030
og vísar reglunum til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Samþykkt 3:0

 

9. 2601-0362 - Úthlutun lóða í Skógarhverfi 3C - Reglur

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nr. 3634. þann 12. október sl. að fela bæjarstjóra að láta vinna
drög að nýjum viðauka um breytta gjalddaga í Skógarhverfi 3C sambærilegar þeim sem voru í gildi
fyrr á árinu.

Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til bæjarstjórnar til endanlegrar samþykktar.

Samþykkt 3:0


10. 2609-7003 - Aggapallur - leigusamningur vegna húss (færanlegt mannvirki/húsnæði).

Ósk hefur borist um endurnýjun fyrirliggjandi leigusamnings varðandi Aggapall en þá undir
kennitölu annars lögaðila 1214gv ehf. kt. 460326-1250. Fyrir liggur útgefið nýtt stöðuleyfi
byggingarfulltrúa til 12 mánaða frá því að fyrra leyfi rann út.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi leigusamning og felur bæjarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og
þjónustusviðs frekari úrvinnslu og frágang málsins.

Samþykkt 3:0

 

11. 2605-4116 - Skógarlundur 23 - fyrirhuguð afturköllun lóðaúthlutunar

Byggingarfulltrúi leggur til afturkalla úthlutun á lóð Skógarlundar 23 með formlegum hætti þar sem
gatnagerðargjöld hafa ekki verið greidd. Bréf var sent á lóðarhafa i gegnum island.is þann 1.
október sl. og lóðarhafa gefin kostur á að bregðast við innan tiltekins tíma en enginn viðbrögð hafa
borist. 

Bæjarráð samþykkir afturköllun á úthlutun lóðarinnar enda allir greiðslufrestir liðnir og engin
viðbrögð hafa borist frá lóðarhafa.

Samþykkt 3:0

 

12. 2610-7984 - Gjaldskrá 2027 - Sorpurðun Vesturlands

Sorpurðun Vesturlands - Tillaga að gjaldskrá 2027 fyrir urðunarstaðinn í Fíflholtum. Gert er ráð fyrir
2,5% hækkun á öllum liðum.

Bæjarráð samþykkir gjaldskrá Sorpuðurnar Vesturlands og vísar málinu til bæjarstjórnar til
endanlegrar ákvörðunar. Hækkun gjaldskrárinnar er 2,5% og er til samræmis við ákvörðun
Akraneskaupstaðar um takmarkanir á hækkunum til að stemma stigu við verðbólguþrýstingi og
lækkun vaxtastigs.

Samþykkt 3:0

 

13. 2603-2448 - Skotfélagið - Beiðni um endurnýjun lóðaleigusamnings

Eldri samningur rann út 01.12.2024. Fyrir liggja drög að samningi með athugasemdum
Skotfélagsins og ÍA.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs frekari úrvinnslu málsins í
samstarfi við fulltrúa Skotfélagsins.

Samþykkt 3:0

 

14. 2601-0726 - Akstursþjónusta Akraneskaupstaðar

Fyrir liggur minnisblað framkvæmdastjóra Höfða um lausnir á bifreið fyrir akstursþjónustu
Akraneskaupstaðar. Bílinn sem nú er í notkun er kominn til ára sinna með tilheyrandi
viðhaldskostnaði og nauðsynlegt að finna lausn sem tryggir veitingu þjónustunnar og öryggi
notenda.

Bókun velferðar- og mannréttindaráðs 27.10.2026: Velferðar- og mannréttindaráð mælir með að
farin verði sú leið að kaupa bifreið til að tryggja öryggi notenda og órofna þjónustu.

Málinu vísað til afgreiðslu í bæjarráði.

Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs situr fundinn undir þessum
dagskrárlið sem og undir dagskrárliðum nr. 15. og nr. 16.

Bæjarráð felur bæjarstjóra frekari úrvinnslu málsins í samvinnu við framkvæmdastjóra Höfða og
sviðsstjóra velferðar- og mannréttindasviðs og frestar afgreiðslu málsins til næsta reglulega fundar
bæjarráðs.

Samþykkt 3:0

 

15. 2609-7099 - Dala.care - innleiðingarferli

Til skoðunar er að taka upp DalaCare sem er vefkerfi fyrir stuðningsþjónustu inn á heimili.

Bókun velferðar- og mannréttindaráðs 27.10.2026: Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir fyrir
sitt leyti að farið verði í innleiðingu á kerfi sem bæði býður upp á fleiri lausnir og er ódýrara en það
kerfi sem notast er við í dag, þrátt fyrir að búsetuþjónustan bætist við.

Málinu vísað til afgreiðslu í bæjarráði.

Sveinborg Kristjánsdóttir deildarstjóri farsældar fullorðinna situr fundinn undir þessum dagskrárlið
sem og undir dagskrárlið nr. 16.

Bæjaráð er jákvætt gagnvart innleiðingu á DalaCare og telur mikilvægt að verkefnið sé unnið í
nánu samstarfi við fjármáladeild og þjónustu- og þróunardeild og felur sviðsstjórum hlutaðeigandi
sviða frekari úrvinnslu málsins.

Samþykkt: 3:0

 

16. 2606-4562 - Innleiðing á BEAM í velferðarþjónustu á Vesturlandi

Gervigreindarlausn fyrir sérfræðinga í framlínuþjónustu sem á að draga úr skráningarvinnu og
breyta samtölum, gögnum og handskrifuðum eða rafrænum upplýsingum í skipulagðar málsskrár,
minnispunkta, matsskýrslur og stuðningsáætlanir.

Stærsti mögulegi ávinningurinn er að:
• Fækka skrefum milli samtals, mats, ákvörðunar og eftirfylgdar.
• Draga úr tíma starfsmanna við stjórnsýslu/skráningu og auka tíma þeirra með notendum
þjónustunnar.

Öllum sveitarfélögum á Vesturlandi býðst að taka þátt í Pilot verkefni sem felur í sér innleiðingu á
þessari lausn.
Mosfellsbær hefur nú þegar gert samning við Beam um innleiðingu þar.

Lagt er til að fundað verði með Daviede þar sem hann fer yfir lausnina og hvað pilot verkefnið þýðir
varðandi tíma og kostnað.

Á fundi 273. fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 06.10.2026 var gerð eftirfarandi bókun:
"Velferðar- og mannréttindaráð styður heilshugar við innleiðingu á gervigreind í velferðarþjónustu
á Akranesi. Um er að ræða aukið gegnsæi fyrir notendur, hagræðingu, tímasparnað og
öryggissjónarmið fyrir notendur og starfsmenn. Er þessi tillaga til samræmis við framlagðan
verkefnalista meirihluta Akraness. Málinu vísað til yfirstandandi fjárhagsáætlunargerðar".

Bæjarráð er jákvætt gagnvart innleiðingu á BEAM gervigreindarlausn fyrir velferðarþjónustu á
Akranesi og hugsanlegu samstarfi sveitarfélaga á Vesturlandi.

Mikilvægt er að verkefnið sé unnið í nánu samstarfi við fjármála- og þjónustusvið en um er að ræða
aukið gegnsæi fyrir notendur, hagræðingu, tímasparnað og öryggissjónarmið fyrir bæði notendur
og starfsmenn.

Bæjarráð felur hlutaðeigandi sviðsstjórum frekari úrvinnslu málsins.

Samþykkt: 3:0

Sveinborg Kristjánsdóttir og Hildigunnur Árnadóttir víkja af fundi.

 

17. 2610-7774 - 59. mál – Frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011
(fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn). Frestur til 27.10.2026

Til umsagnar 59. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis Frumvarp til laga um breytingu á
sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011 (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn).

Lagt fram

 

18. 2610-7829 - 202. mál - Loftslagslög - Frestur til 29.10.2026

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 202. mál - Loftslagslög - Frestur til að
senda inn umsögn er til og með 29. október nk.

Lagt fram

 

19. 2604-3411 - Tilfærsla á dagsetningu aukafundar bæjarráðs 4. nóvember 2026

Lagt til að aukafundur bæjarráðs sem gert var ráð fyrir að færi fram þann 5. nóvember verður
fluttur til miðvikudagsins 4. nóvember kl. 16:30.

Bæjarráð samþykkir að halda aukafund vegna fjárhagsáætlunar þann 4. nóvember nk. kl. 16:30 í
stað þess að hann fari fram fimmtudaginn 5. nóvember kl. 08:15.

Samþykkt 3:0


Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu