Fara í efni  

Bæjarráð

3634. fundur 12. október 2026 kl. 08:15 - 12:45 Lindin, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Líf Lárusdóttir formaður bæjarráðs
  • Ragnar B. Sæmundsson varaformaður bæjarráðs
  • Sigurður Vopni Vatnsdal aðalmaður
  • Jón Guðni Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Hrafn Ágúst Björnsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sturlaugur Haraldsson bæjarstjóri
  • Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs

1. 2606-4745 - Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun vegna tímabilsins 2028-2030

Fjárhagsáætlun er fastur liður á fundum bæjarráðs fram til samþykktar fjárhagsáætlunar vegna ársins 2027.

Kristjana Helga Ólafsdóttir fjármálastjóri situr fundinn undir þessum lið sem og undir dagskrárlið nr. 2.

Vinnu við gerð fjárhagsáætlunar vegna ársins 2027 verður framhaldið á næsta fundi bæjarráðs.

Samþykkt 3:0

 

2. 2603-2485 - Mánaðayfirlit 2026

Mánaðaryfirlit janúar - ágúst 2026

Lagt fram.

Rekstrarniðurstaða 8 mánaða uppgjörs er betri en áætlun með viðaukum gerði ráð fyrir og eru frávikin 42,5%. Tekjur eru umfram áætlun sem nemur 3,88% en rekstrargjöld eru einnig umfram áætlun sem nemur 1,77%. 

Kristjana Helga Ólafsdóttir víkur af fundi.

 

3. 2609-6653 - Beiðni um styrk - Skógræktarfélag Akraness

Lögð er fram beiðni frá Skógræktarfélagi Akraness um styrk fyrir næsta starfsár. Skipulags- og umhverfisráð tekur jákvætt í að styrkja starfsemina um 2,5 milljónir eins og síðustu 2 ár og vísar málinu til bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkir að gera ráð fyrir styrkveitingu til Skógræktarfélagsins að fjárhæð 2,5 m.kr. í fjárhagsáætlun vegna ársins 2027.

Samþykkt 3:0

 

4. 2609-7089 - Beiðni HVE um endurgjaldslaus afnot af húsnæði á vegum Akraneskaupstaðar vegna bólusetningar 26. og 27. október 2026.

Heilbrigðisstofnun Vesturlands óskar eftir húsnæði til afnota endurgjaldslaust dagana 26. og 27. október vegna bólusetningar heilsugæslunnar fyrir inflúensu.

Vilji bæjarráðs stendur til að samþykkja erindið og felur bæjarstjóra að hlutast til um að fundið verði hentugt húsnæði í eigu Akraneskaupstaðar vegna þessa. Komi til þessa verða afnotin endurgjaldslaus en bæjarráð telur eðlilegt að Heilbrigðisstofnunin greiði tilfallandi kostnað sem af þessu kann að skapast fyrir viðkomandi rekstrareiningu Akraneskaupstaðar svo sem vegna þrifa eða annars.

Samþykkt 3:0

 

5. 2609-7005 - Siðareglur kjörinna fulltrúa Akraneskaupstaðar 2026 – 2030

Siðareglur kjörinna fulltrúa Akraneskaupstaðar 2026

Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins til næsta bæjarráðsfundar.

Samþykkt 3:0

 

6. 2609-7097 - Erindi frá Skátafélagi Akraness um aðgang að sundlaug eða Guðlaugu vegna Fálkaskátadags

Skátafélag Akraness óskar eftir aðgangi að sundlauginni að Jaðarsbakkalaug eða Guðlaugu vegna Fálkaskátadagsins sem haldinn verður 7. nóvember næst komandi.

Mennta- og menningarráð tók vel í erindið og vísar málinu áfram til afgreiðslu hjá bæjarráði.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og að þátttakendum í viðburðinum þann 7. nóvember nk. verði boðin gjaldfrjáls aðgangur að Jaðarsbakkalaug á tilteknum tíma dagsins. Eðli máls samkvæmt yrði laugin samt opin almenningi á sama tíma.

Bæjarráð leggur áherslu á að samvinna verði höfð við forstöðumann íþróttamannvirkjanna við útfærslu vegna þessa.

Samþykkt 3:0

 

7. 2609-6659 - Samningstilboð UNICEF - Barnvænt sveitarfélag 2026-2029

Lagt er fram minnisblað um ávinning fyrir Akraneskaupstað af innleiðingu á verkefninu Barnvænt sveitarfélag í tengslum við ákvörðun um endurnýjun samstarfs við UNICEF um áframhald verkefnisins.

Mennta- og menningarráð hefur kynnt sér framlagt minnisblað um ávinning verkefnisins "Barnvænt sveitarfélag" og tekur undir mikilvægi þess að sá árangur sem náðst hefur verði tryggður til framtíðar. Ráðið leggur til við bæjarráð að tekin verði afstaða til endurnýjunar samstarfs við UNICEF á Íslandi um Barnvænt sveitarfélag og leggur áherslu á að ákvörðuninni fylgi tryggt starfshlutfall til umsjónar með verkefninu, enda hefur reynslan sýnt að trygg mönnun er forsenda þess að árangur náist.

Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.

Samþykkt 3:0

 

8. 2610-7590 - Skógarlundur 12 - Skila lóðarhafa um skil á lóðinni

Beiðni er fram komin frá lóðarhafa um að skila inn lóðinni Skógarlundur 12.

Bæjarráð samþykkir erindið og felur bæjarstjóra frekari úrvinnslu málsins.

Samþykkt 3:0

 

9. 2601-0361 - Úthlutun lóða í Flóahverfi - Reglur

Í gildi var viðauki við gjaldskrá um breytta gjalddaga gatnagerðargjalds í Flóahverfi, tímabilið frá 1. janúar 2026 til og með 31. ágúst 2026.

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nr. 3633 þann 22. september sl. að fela bæjarstjóra að láta vinna drög að nýjum viðauka um breytta gjalddaga í Flóahverfi sambærilega þeim sem voru í gildi fyrr á árinu.

Bæjarráð samþykkir úthlutunarreglur vegna úthlutunar atvinnulóða í Flóahverfi sem gilda eiga tímabilið 1. nóvember nk. til og með 31. desember 2027 og vísar reglununum til endanlegrar staðfestingar í bæjarstjórn.

Samþykkt 3:0

 

10. 2601-0362 - Úthlutun lóða í Skógarhverfi 3C - Reglur

Reglur um úthlutun lóða í Skógarhverfi 3C. Gildistími fyrri reglna var til og með 31. ágúst 2026. Til skoðunar er að endurskoða regluverkið og e.a. framlengja skilmálana.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að láta vinna drög að nýjum viðauka um breytta gjalddaga í Skógarhverfi 3C sambærilegar þeim sem voru í gildi fyrr á árinu.

Samþykkt 3:0 

 

11. 2604 - 3242 - Viljayfirlýsing Akraneskaupstaðar og Golfklúbbsins leynis um framtíðarstækkun golvallarins.

Málið hefur verið til úrvinnslu í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar.

Í vinnslu hefur verið erindisbréf o.fl.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að erindisbréfi og að það verði kynnt forsvarsmönnum Leynis.

Samþykkt 3:0

 

12. 2609-7072 - Laun Vinnuskólans

Hækkun á launum vinnuskólans (14-16 ára) -spurning um að tengja við tiltekna % af launaflokk 118. Sett fram til umræðu á þessu stigi.

Bæjarráð þakkar garðyrkjustjóra fyrir framlagt minnisblað og tekur undir nauðsyn þess að mörkuð verði skýr stefna til framtíðar varðandi laun þeirra barna og ungmenna eiga kost á eiga kost á starfi/starfsnámi í Vinnuskóla Akraness.

Bæjarráð minnir hins vegar á þá vegferð sem Akraneskaupstaður og önnur sveitarfélög hafa markað í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar vegna ársins 2027 hvort sem það lítur að hækkun launa eða gjaldskráa sem gæta þarf að í þessu sambandi.

Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar mennta- og menningarráðs og skipulags- og umhverfisráðs og væntir þess að fá málið inn að nýju á síðari stigum.

Samþykkt 3:0

 

13. 2603-2448 - Skotfélagið - Beiðni um endurnýjun lóðaleigusamnings

Beiðni Skotfélagsins um endurnýjun lóðarleigusamnings en eldri samningur rann út1. desember 2024.

Fyrir liggja drög að uppfærðum samningi - það nýjasta frá 29. september sl.

Bæjarráð felur bæjarstjóra frekari úrvinnslu málsins m.a. til samræmis við fyrirliggjandi athugasemdir forsvarsmanna Skotfélagsins og samningsdrögin komin að nýju fyrir næsta fund bæjarráðs.

Samþykkt 3:0

 

14. 2610-7553 - 156. mál - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun, nr.106/1999 (lagfæringar) Frestur til 22.10.2026

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 156. mál – frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun, nr. 106/1999 (lagfæringar). Frestur til að senda inn umsögn er til og með 22. október n.k

Lagt fram en bæjarráð gerir ráð fyrir að Samband íslenskra sveitarfélaga skili umsögn f.h. sveitarfélaganna vegna málsins.

 

15. 2604-3411 - Fundir bæjarráðs 2026

Vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar vegna ársins 2027 og áranna 2028 - 2030 er nauðsynlegt að bæjarráð fundi aukalega þann 22. september nk. og 5. nóvember nk.

Bæjarráð samþykkir að við til viðbótar reglulegum fundum bæjarráðs verði aukafundir vegna fjárhagsáætlunarvinnu Akraneskaupstaðar fimmtudaginn 22. september nk. kl. 08:15 og fimmtudaginn 5. nóvember nk. kl. 08:15.

Samþykkt 3:0

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

 

 

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu