Bæjarráð
1. 2606-4745 - Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun vegna tímabilsins 2028-2030
Fjárhagsáætlun er fastur liður á fundum bæjarráðs fram til samþykktar fjárhagsáætlunar vegna ársins 2027.
Kristjana Helga Ólafsdóttir fjármálastjóri situr fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð leggur til að við gerð fjárhagsáætlunar Akraneskaupstaðar fyrir árið 2027 verði hækkun gjaldskráa sem snúa að barnafjölskyldum takmörkuð við 2,5%.
Með því vill Akraneskaupstaður leggja sitt af mörkum til að verja ráðstöfunartekjur barnafjölskyldna, draga úr verðbólguþrýstingi og styðja við forsendur gildandi kjarasamninga. Mikilvægt er að hið opinbera sýni ábyrgð og samstöðu í þeirri viðleitni að ná tökum á verðbólgu og skapa skilyrði fyrir lækkun vaxta.
Ákvörðunin verði þó háð þeim fyrirvara að forsendur kjarasamninga haldi og að ríki og önnur sveitarfélög grípi jafnframt til sambærilegra aðgerða.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og fjármálastjóra að greina fjárhagsleg áhrif tillögunnar og leggja fram yfirlit yfir þær gjaldskrár sem hún tekur til við áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2027.
Samþykkt 3:0
Vinnu við gerð fjárhagsáætlunar vegna ársins 2027 verður framhaldið á næsta fundi bæjarráðs.
Kristjana Helga Ólafsdóttir víkur fundi.
2. 2609-6436 - Vogabraut 4 - Eign og lóð fyrirspurn
Erindi framkvæmdasýslunnar - ríkiseigna varðandi endurnýjun lóðarleigusamnings vegna Fjölbrautarskóla Vesturlands o.fl.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi lóðarsamning vegna Vogabrautar 4, L131464, og vísar málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.
Samþykkt 3:0
3. 2609-6847 - Þjóðarsátt um verðstöðugleika - Áskorun til Akraneskaupstaðar
Meðfylgjandi er áskorun frá Starfsgreinasambandi Íslands og 18 aðildarfélögum þess um þjóðarsátt um verðstöðugleika. SGS skorar á sveitarfélög landsins að taka þátt í sameiginlegu átaki til að ná niður verðbólgu og vöxtum og stuðla þannig að því að kjarasamningar haldi.
Lagt fram.
Lagt er til grundvallar í fyrstu drögum að fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2027 að hækkun gjaldskráa sem snúa að barnafjölskyldum verði takmörkuð við 2,5%.
Bæjarráð tekur fram að undanfarin ár, hefur Akraneskaupstaður fylgt forsendum kjarasamninga sem gerðir voru árið 2024, og gætt sérstaklega að gjaldskrám sem varða barnafjölskyldur og fólk í viðkvæmri stöðu vegna áranna 2024, 2025 og 2026.
Þá bendir bæjarráð á og vill upplýsa Starfsgreinasambandið um að í nýjum rekstrarsamningi Akraneskaupstaðar og ÍA vegna áranna 2027 til og með 2031 skuldbindur Akraneskaupstaður sig til að veita þeim aðildafélögum ÍA sem hækka ekki æfingjöld umfram kjarasamningsbundar launahækkanir, tiltekin fjárhagslegan viðbótarstuðning. Þannig er í raun innbyggður fjárhagslegur hvati til íþróttafélaganna til að stilla hækkun æfingagjalda í hóf.
Samþykkt 3:0
4. 2609-6793 - Ósk um heimild til lokunar íþróttamannvirkja vegna starfsdags starfsfólks
Forstöðumaður íþróttamannvirkja óskar eftir heimild til að loka íþróttamannvirkjum Akraneskaupstaðar, Íþróttamiðstöðinni á Jaðarsbökkum, Íþróttahúsinu við Vesturgötu og Bjarnalaug, vegna starfsdags á vegum Símenntunar á Vesturlandi. Tímasetning starfsdagsins liggur ekki fyrir en við ákvörðun hennar yrði leitast við að lágmarka röskun á starfsemi mannvirkjanna, meðal annars með hliðsjón af vikudegi.
Mennta- og menningarráð fjallaði um málið á fundi sínum þann 16. september sl. og tók jákvætt í erindið og vísaði því til umfjöllunar hjá bæjarráði. Ráðið lagði áherslu á lokunin verði ákveðin í samráði við hagsmunaaðila og tímasett þannig að hún valdi sem minnstri röskun á starfsemi mannvirkjanna og forstöðumanni íþróttamannvirkjanna falið að ákveða heppilega tímasetningu með hliðsjón af framangreindu.
Bæjarráð samþykkir og heimilar lokun íþróttamannvirkja Akraneskaupstaðar í einn dag vegna starfsdags starfsfólks á vegum Símenntunar á Vesturlandi á komandi hausti.
Við ákvörðun tímasetningar starfsdagsins verði leitast við að lágmarka röskun sem óhjákvæmilega hlýst af slíkri lokun og mikilvægt er að lokunin verði kynnt íbúum með góðum fyrirvara.
Samþykkt 3:0
5. 2608-5813 - Íþróttavika - Be Active 2026
Í tilefni af Íþróttaviku 2026 leggur Íþróttabandalag Akranes og mennta- og menningarsvið Akraneskaupstaðar til að frítt verði í sund laugardaginn 26. september 2026. ÍA og Akraneskaupstaður bjóði upp á ýmsa viðburði dagana 23. - 30. september og lagt er til að boðið verði upp á einn gjaldfrjálsan dag á tímabilinu.
Mennta- og menningarráð fjallaði um málið á fundi sínum þann 16. september sl. og tók jákvætt í erindið og vísaði til afgreiðslu hjá bæjarráði.
Bæjarráð samþykkir einn gjaldfrjálsan dag í sundlaugina á Jaðarsbökkum á tímabilinu 23. - 30. september nk. en leggur áherslu á að samráð verði haft við forstöðumann íþróttamannvirkjanna um val á degi og útfærsluna.
Samþykkt 3:0
6. 2601-0653 - Bíóhöllin - Útboð og samningur 2026 - 2029 (rekstur og umsjón)
Tilboð voru opnuð þann 12. júní sl. í verkið "Rekstur og umsjón Bíóhallar 2026 - 2029".
Eitt tilboð barst frá Vinir Hallarinnar ehf. og tilboðið uppfyllir öll skilyrði Akraneskaupstaðar skv. útboðsgögnum.
SH víkur af fundi.
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda.
Samþykkt 3:0
SH tekur sæti á fundinum að nýju.
7. 2609-6632 - Erindi frá BM Vallá varðandi lóðirnar á Höfðaseli nr. 2-4 og nr. 6.
Borist hefur erindi frá BM Vallá ehf. í tengslum við möguleg áform félagsins til eflingar starfseminnar en fyrir nokkru síðan var tekin sú ákvörðun að flytja alla einingarframleiðslu fyrirtækisins til Akraness. Gangi þessi áform eftir verða að loknum breytingum um 60 stöðugildi við framleiðslu fyrirtækisins á Akranesi.
Málið var tekið fyrir á 3632. fundi bæjarráðs og tekið jákvætt í erindið og bæjarstjóra og sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs falin frekari úrvinnsla málsins.
Bæjarráð fagnar áformum BM Vallá ehf. um eflingu á starfsemi fyrirtækisins á Akranesi.
Bæjarráð samþykkir erindi fyrirtækisins um tímbundin afnot á lóðinni HöfðaselI nr. 6 undir lagerstarfsemi félagsins.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra skipulags– og umhverfissviðs að ganga frá samningi við BM Vallá ehf. varðandi afnotin.
Varðandi lóðina Höfðasel nr. 2-4 þá er það erindi þegar í lögbundnu skipulagsferli hjá Akraneskaupstað skv. ákvæðum skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt 3:0
8. 2605-3586 - Dalbraut 14 og Þjóðbraut 9 - viðaukar við fyrirliggjandi leigusamninga
Beiðni forsvarsmanna Festi um viðauka við fyrirliggjandi leigusamninga á Dalbraut 14 og Þjóðbraut 9.
Bæjarráð samþykkir viðauka við fyrirliggjandi leigusamninga vegna Dalbrautar nr. 14 og Þjóðbrautar nr. 9, sem fela í sér framlengingu um 6 mánuði á meðan verið er að klára nýja aðstöðu N1 á Elínarvegi.
Samþykkt 3:0
9. 2601-0361 - Úthlutun lóða í Flóahverfi - Reglur
Í gildi var viðauki við gjaldskrá um breytta gjalddaga gatnagerðargjalds í Flóahverfi, tímabilið frá 1. janúar 2026 til og með 31. ágúst 2026.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að láta vinna drög að nýjum viðauka um breytta gjalddaga í Flóahverfi sambærilega þeim sem voru í gildi fyrr á árinu.
10. 2609-6761 - Fundarboð - Haustþing SSV 2026
Fundarboð á Haustþing SSV 2026 sem haldið verður á hótel Varmalandi dagana 14. og 15. október nk.
Lagt fram.
11. 2609-6596 - Tækifærisleyfi Dansleikir jól og áramót 26.12.2026 og 01.01.2027
Óskað er eftir tækifærisleyfi vegna dansleikja um komandi jól og áramót í íþróttahúsinu Vesturgötu.
Sótt er um tækifærisleyfi þann 26. desember nk. frá kl. 22:00 til kl. 04:30 aðfararnótt þann 27. desember nk. og svo þann 1. janúar 2027 frá kl. 00:30 til kl. 04:30.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að viðburðirnir fari fram í íþróttahúsinu að Vesturgötu en viðburðarhaldari þarf að kanna hvort hvort húsnæðið sé laust á umbeðnum tíma.
Bæjarráð fellst á að viðburðurinn um áramótin standi til kl. 04:30 en að viðburðurinn þann 26. desember standi til kl. 04:00 aðfararnótt þess 27. desember nk.
Umsögn bæjarráðs er veitt með fyrirvara um jákvæðar umsagnir annarra umsagnaraðila.
Samþykkt 3:0
12. 2609-6863 - 5. mál - Sveitarstjórnarlög - Frestur til og með 01.10.2026
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 5. mál - Sveitarstjórnarlög - frestur til og með 1. október nk.
Lagt fram.
13. 2609-6867 - 4. mál - Varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl. (markmið, nýting eigna, framkvæmdaumsjón), Frestur til 01.10.2026
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl. (markmið, nýting eigna, framkvæmdaumsjón), 4. mál - frestur til og með 1. október nk.
Lagt fram.
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





