Fara í efni  

Bæjarráð

3632. fundur 10. september 2026 kl. 08:15 - 11:00 Lindin, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Líf Lárusdóttir formaður bæjarráðs
  • Ragnar B. Sæmundsson varaformaður bæjarráðs
  • Sigurður Vopni Vatnsdal aðalmaður
  • Jón Guðni Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Hrafn Ágúst Björnsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sturlaugur Haraldsson bæjarstjóri
  • Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs

1. 2606-4745 - Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun vegna tímabilsins 2028-2030

Fjárhagsáætlun er fastur liður á fundum bæjarráðs fram til samþykktar fjárhagsáætlunar vegna ársins 2027. Kristjana Helga Ólafsdóttir fjármálastjóri situr fundinn undir þessum lið sem og undir dagskrárliðum nr. 2 og nr. 3.

Lagt fram.

Vinnu við gerð fjárhagsáætlunar vegna ársins 2027 verður framhaldið á næsta fundi bæjarráðs.

Samþykkt 3:0

 

2. 2606-4753 - Árshlutauppgjör 2026

Árshlutauppgjör janúar til júní 2026.

Lagt fram.

Bæjarráð þakkar fjármálastjóra fyrir greinargóða yfirferð.

 

3. 2605-4211 - Reglur um innkaupakort Akraneskaupstaðar

 Uppfærsla á reglum um notkun kreditkorta (innkaupakort) hjá Akraneskaupstað. Eldri reglur eru frá árinu 2012. Bergþóra Friðriksdóttir verkefnastjóri innkaupa og rekstrar situr fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð þakkar innkaupastjóra og fjármálastjóra fyrir yfirferðina.

Bæjarráð samþykkir uppfærðar reglur um kreditkort (innkaupakort) og vísar málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Samþykkt 3:0

Bergþóra Friðriksdóttir og Kristjana Helga Ólafsdóttir víkja af fundi.

 

4. 2606-4474 - Kosning í ráð og nefndir kjörtímabilið 2026-2030 - viðaukabeiðni vegna fjölgunar fulltrúa í fagráðum

Uppfærðar kostnaðartölur vegna ráða og nefnda að loknum sveitarstjórnarkosningum. Vegna nýrra framboða sem hlutu kosningu fjölgar í fagráðum um tvo áheyrnarfulltrúa og nú eiga fimm fullltrúar sæti í ráðum í stað þriggja fulltrúa áður.

Bæjarráð samþykkir úthlutun viðbótarfjármagns vegna breytinga í ráðum og nefndum Akraneskaupstaðar til samræmis við niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna þann 16. maí sl.. Um er að ræða útgjaldaauka samtals að fjárhæð kr. 11.311.140 sem færist á tilteknar deildir samkvæmt meðfylgjandi fylgiskjali.

Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 22 vegna framangrends að sömu fjárhæð og er útgjöldunum mætt með lækkun á áætluðum rekstrarafgangi ársins 2026.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Samþykkt 3:0

 

5. 2608-6220 - Endurhæfingarhúsið Hver - viðbótarrými fyrir starfsemina á Smiðjuvöllum 28

Forstöðumaður Endurhæfingarhússins Hver óskaði eftir heimild til að leigja viðbótarrými að Smiðjuvöllum 28 fyrir starfsemina.viðbótarrými fyrir starfsemina. Fjöldi notenda og fjölþætt þjónustuþörf þeirra kallar á aukið rými.

Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 1. september. sl. var eftirfarandi bókað: Velferðar - og mannréttindaráð skilur þörfina og vísar þessari umræðu í yfirstandandi fjárhagsáætlun fyrir 2027. Vísað til umræðu í bæjarráði.

 Bæjarráð telur brýnt að húsnæðisþörf Endurhæfingahússins Hver verði skoðuð heildstætt og leitað hentugra lausna en sem stendur er fjárhagslegt svigrúm Akraneskaupstaðar til að stofna til frekari leiguskuldbindinga ekki til staðar.

Samþykkt 3:0

Bæjarráð gerir ráð fyrir að málið fái áframhaldandi úrvinnslu á velferðar- og mannréttindasviði miðað við framangreindar forsendur.

Samþykkt 3:0

 

6. 2603-2581 - Vesturgata 62 - Tilboð og greinagerð

Endurnýjað samtal hefur farið fram á milli fulltrúa Akraneskaupstaðar og ríkisins varðandi frekari útfærslu málsins. Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið sem og undir dagskrárlið nr. 7.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs frekari úrvinnslu málsins.

Samþykkt 3:0

 

7. 2609-6632 - Erindi frá BM Vallá varðandi lóðirnar á Höfðaseli nr. 2-4 og nr. 6.

Borist hefur erindi frá BM Vallá ehf. í tengslum við möguleg áform félagsins til eflingar starfseminnar.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra og sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs frekari úrvinnslu málsins og afgreiðslu þess frestað til næsta fundar.

Samþykkt 3:0

Sigurður Páll Harðarson víkur af fundi.

 

8. 2606-4258 - Þjóðaratkvæðagreiðsla 29.08.2026 - Kjörskrá og fleira

Framlagning yfirlits vegna kostnaðar við framkvæmda atkvæðagreiðslunnar. Yfirlit lagt fram sem sýnir raunstöðu bókhalds miðað við upphaf september mánaðar 2026.

Lagt fram.

Bæjarráð óskar eftir að fá til sín frekari upplýsingar er endanlegur kostnaður liggur fyrir.

Samþykkt 3:0

 

9. 2608-6125 - Þróun gagnaverssvæðis í Grjótkelduflóa á Akranesi

Viljayfirlýsing Akranesskaupstaðar við samstarfsaðila um þróun gagnaverssvæðis í Grjótkelduflóla var undirrituð miðvikudaginn 2. september sl. með fyrirvara um samþykkti bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi viljayfirlýsingu og vísar málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Samþykkt 3:0

 

10. 2604-3411 - Fundir bæjarráðs 2026

Næsti reglulegi fundur bæjarráðs á að fara fram þann 25. september nk. en þá eru þrír bæjarráðsfulltrúar og bæjarstjóri á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga sem fram fer á Akureyri dagana 22. til 25. september nk.

Þá er einnig ljóst að finna þarf nýjan fundardag vegna bæjarráðsfundar þann 15. október nk. því þann dag fer fram haustþing Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi.

Bæjarráð samþykkir að næsti fundur bæjarráðs verði þann 22. september nk., kl. 11:00 og að fundur bæjarráðs þann 25. september nk. falli niður.

Samþykkt 3:0

Bæjarráð samþykkir einnig að fundur bæjarráðs sem fyrirhugaður er þann 15. október nk. falli niður og að bæjarráð fundi í þess stað þann 12. október nk. kl. 08:15.

Samþykkt 3:0

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu