Bæjarráð
- 2606-4745 - Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun vegna tímabilsins 2028-2030
Fjárhagsáætlun 2027 - 2030 Samkvæmt tíma- og verkáætlun á dagskrá bæjarráðs á öllum fundum fram að samþykkt fjárhagsáætlunar í desember nk.
Kristjana Helga Ólafsdóttir fjármálastjóri situr fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram.
Stefnt er á vinnufund bæjarfulltrúa í byrjun september um fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun vegna ársins 2027.
Kristjana Helga Ólafsdóttir víkur af fundi.
- 2605-3504 - Fjárhagsáætlun leikskóla 2026-2027
Á fundi mennta- og menningarráðs 4. ágúst lagði sviðsstjóri fram minnisblað vegna fjárhagsáætlunar leikskóla fyrir skólaárið 2026–2027.
Málinu var vísað áfram til afgreiðslu hjá bæjarráði.
Bæjarráð samþykkir breytingu á fjárhagsáætlun leikskóla vegna skólarársins 2026 - 2027 í kjölfar innritunar sl. vor.
Þörf er að viðbótarfjármagni sem nemur 1,28 stöðugildi vegna tímabilsins 5. ágúst 2026 til og með 31. desember 2026 og nemur viðbótin kr. 6.457.944.
Breytingin er eftirfarandi:
- Akrasel, breyting um 3,3 stöðugildi (aukning), kr. 16.822.751.
- Garðasel, breyting um 2,97 stöðugildi (fækkun), kr. - 14.829.859.
- Teigasel, breyting um 0,7 stöðugildi (aukning), kr. 3.377.381.
- Vallarsel, breyting um 0,22 stöðugildi (aukning), kr. 1.097.671.
Samtals aukning um kr. 6.467.944.
Fjármagnið er fært á lykla 1691 á hverjum leikskóla fyrir sig skv. framangreindu.
Samþykkt 3:0
Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 18 samkvæmt framangreindu og er útgjöldunum mætt með lækkun á áætluðum rekstrarafgangi ársins 2026 og vísar til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.
Samþykkt 3:0
- 2607-5417 - Beiðni um kaup á húsgögnum í Brekkubæjarskóla
Beiðni frá Brekkubæjarskóla um kaup á húsbúnaði í 10 kennslustofur.
Bæjarráð samþykkir viðbótarfjármagn að fjárhæð kr. 2.529.526 vegna kaupa á nýjum húsbúnaði (skápar og hillur) en við eldri framkvæmd varð að farga eldri búnaði og ekki ráðist í nýkaup á þeim tíma. Fjármagnið er fært á deild 0422-2880 og er mætt með lækkun á áætluðum rekstrarafgangi ársins 2026.
Samþykkt 3:0
Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 19 samkvæmt framangreindu og vísar málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.
Samþykkt 3:0
- 2608-5774 - Heimild til að sinna starfi skipulagsfulltrúa
Halla Marta Árnadóttir, skipulagsfulltrúi Akraneskaupstaðar, er í fæðingarorlofi. Lagt er til að Berglind Sigurðardóttir, skipulagsfræðingur, gegni starfi skipulagsfulltrúa tímabundið þar til Halla Marta snýr aftur til starfa.
Með vísan til 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkir bæjarráð að Berglind Sigurðardóttir, skipulagsfræðingur, gegni tímabundið starfi skipulagsfulltrúa Akraneskaupstaðar þar til Halla Marta Árnadóttir snýr aftur til starfa úr fæðingarorlofi.
Berglind uppfyllir hæfnisskilyrði skipulagsfulltrúa samkvæmt 5. mgr. 7. gr. skipulagslaga.
Ráðningin verði tilkynnt Húsnæðis, mannvirkja- og skipulagsstofnunnar í samræmi við 1. mgr. 7. gr. skipulagslaga.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar sbr. áskilnað laga.
Samþykkt 3:0
- 2606-5360 - Langtímaveikindi starfsfólks 2026 (veikindapottur) fyrri hluti
Umsóknir í veikindapott frá stofnunum til að mæta kostnaði vegna langtímaveikinda starsfólks fyrir hluta ársins 2026, vegna tímabilsins janúar til og með júní.
Bæjarráð fjallaði um málið á fundi sínum þann 2. júlí sl. og óskaði eftir að fyrirliggjandi umsóknir í veikindapott Akraneskaupstaðar yrðu rýndar frekar og frestaði afgreiðslu málsins.
Harpa Hallsdóttir situr fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð þakkar mannauðsstjóra fyrir yfirferðina.
Bæjarráð áréttar að þegar hefur verið ráðist í tilteknar aðgerðir sem varða velferð starfsfólks svo sem upptöku svokallaðs Bradford kvarða, sérstakrar viðverustefnu og -samtala sem eru í innleiðingafasta og vonir standa til að þær skili árangri er fram líða stundir.
Þróunin hjá Akraneskaupstað er í augljóslega í takt við þróunina hjá öðrum sveitarélögum og ljóst að huga þarf að leiðum og úrræðum sem leitt geta til fækkunar fjarvista og lækkunar veikindahlutfalls (langtímaveikindi).
Málið verður skoðað sérstaklega í komandi fjárhagsáætlunargerð.
Bæjarráð samþykkir úthlutun fjármuna vegna kostnaðar stofnana Akraneskaupstaðar við afleysingar vegna veikindaforfalla starfsmanna á árinu 2026. Úthlutunin er vegna tímabilsins 1. janúar til og með 30. júní og nemur samtals kr. 80.350.345 sbr. meðfylgjandi fylgiskjal.
Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 20 að fjárhæð kr. 80.350.345 og er ráðstöfuninni mætt af deild 20830-1691, samtals að fjárhæð kr. 60.000.000 og kr. 20.350.345 með lækkun á áætluðum rekstrarafgangi ársins 2026.
Fjármunirnir eru færðir á tegundarlykilinn 1691 á hverja stofnun fyrir sig samkvæmt skiptingu sbr. meðfylgjandi fylgiskjal.
Samþykkt 3:0
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.
Samþykkt 3:0
Harpa Hallsdóttir víkur af fundi.
- 2608-6052 - Nýsköpunarnet Vesturlands (NýVest) - Aðalfundarboð 04.09.2026
Aðalfundarboð með dagskrá fundar - Ársreikningur 2025 og ársskýrsla. Boðað til aðalfundar Nývestses. föstudaginn 4. september kl. 11:00. og fer hann fram á skrifstofu SSV að Bjarnarbraut 8, Borgarnesi.
Lagt fram.
- 2606-4258 - Þjóðaratkvæðagreiðsla 29.08.2026 - Upplýsingar um fjárframlög ríkisins o.fl.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB verða þann 29. ágúst nk. og kjörstaður á Akranesi verður í Grundaskóla Espigrund 1. Fyrir liggja upplýsingar um fjárframlög ríkisins til sveitarfélaga vegna kosninganna.. Minnisblað sviðsstjóra vegna framkvæmdar kosninganna o.fl. lagt fram að nýju með breyttum upplýsingum. Fjárframlag ríkisins vegna kosningar liggur nú fyrir og er kr. 1.027 kr. per kjósanda á kjörskrá og kr. 764.000 per kjörstað. Miðað við viðmiðunardag kjörskrár yrði framlag ríkisins vegna þess þáttar samtals kr. 6.220.539 og heildarframlagið samtals kr. 6.984.539.
Ljóst er að útgjöld vegna framkvæmdarinnar eru nokkuð hærri en til viðmiðunar má geta þess að kostnaður vegna sveitarstjórnarkosninganna var áætlaður um 11,5 m.kr. en endaði í um 13,0 m.kr.
Framlag ríkisins dugar fyrir launaútgjöldum en ýmis annar kostnaður (aðkeypt vinna Björgunarfélagsins, auglýsingar, ýmis búnaður, ritföng o.fl.) fellur til vegna þessa sem fellur þá á sveitarfélagið eins og fyrirkomulagið er samkvæmt lögum.
Lagt fram.
- 2601-0072 - Skammtímadvöl á Vesturlandi
Sveitarfélögin á Vesturlandi hafa frá sl. vori verið í með í undirbúningi stofnun félags um skammtímavistun fyrir börn í húsnæði Holts í Borgarbyggð en húsnæðið er í eigu Þroskahjálpar.
Haldinn var samráðsfundur stjórnenda velferðarþjónustu á Vesturlandi ásamt sveitarstjórum á Vesturlandi þann 26. ágúst sl. til frekari undirbúnings málsins og nýr fundur fyrirhugaður nk. föstudag.
Ragnar B. Sæmundsson bæjarfulltrúa sat fundinn f.h. Akraneskaupstaðar en Sturlaugur Haraldsson átti ekki kost að því vegna annarra verkefna.
Bæjarráð samþykkir að Ragnar B. Sæmundsson sæki fyrirhugaðan nk. föstudag f.h. Akraneskaupstaðar þar sem til umfjöllunar er framangreint og hafi þar heimild til að samþykkja f.h. Akraneskaupstaðar, með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar, drög að rekstrarfyrirkomulagi úrræðisins í húsnæði Holts í Borgarbyggð.
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





