Fara í efni  

Bæjarráð

3630. fundur 13. ágúst 2026 kl. 08:15 - 11:00 Lindin, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Líf Lárusdóttir formaður bæjarráðs
  • Ragnar B. Sæmundsson varaformaður bæjarráðs
  • Sigurður Vopni Vatnsdal aðalmaður
  • Jón Guðni Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Hrafn Ágúst Björnsson áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Harpa Sólbjört Másdóttir upplýsingastjóri

1. 2603-2485 - Mánaðayfirlit 2026

Mánaðaryfirlit janúar til maí 2026.

Lagt fram.

Kristjana Helga Ólafsdóttir fjármálastjóri situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

 

2. 2601-0244 - Heimsókn forsvarsmanna Landsbankahússins á fund bæjarráðs

Heimsókn uppbyggingaraðila á fund bæjarráðs til að kynna stöðu framkvæmdanna o.fl.

Nýverið staðfesti Skipulagsstofnun breytingu á deiliskipulagi vegna Suðurgötu 57.

Bæjarráð fékk kynningu frá forsvarsmönnum Landsbankahússins á þeim framkvæmdum sem nú geta hafist. Ívar F. Sturluson og Höskuldur Gunnlaugsson mættu f.h. forsvarsmanna Landsbankahússins og þakkar bæjarráð þeim fyrir kynninguna og gott samtal.

Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, sat fundinn undir dagskrárlið.

 

3. 2607-5458 - Yfirferð og lærdómur af framkvæmd Írskra daga 2026

Írskir dagar - fjölskylduhátíð á Akranesi fóru fram í byrjun júlí sl. og boðar bæjarráð viðburðastjóra og verkefnastjóra til að fara yfir framkvæmd hátíðarinnar.

Fulltrúar Írskra daga fóru yfir framkvæmd bæjarhátíðarinnar. Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna og lýsa ánægju með hversu vel tókst til við undirbúning og framkvæmd hátíðarinnar.

Gestir á fundi undir dagskrárlið voru Hjörvar Gunnarsson viðburðastjóri og Vera Líndal Guðnadóttir verkefnastjóri menningar- og safnamála.

 

4. 2606-4258 - Þjóðaratkvæðagreiðsla 29.08.2026 - Ákvörðun um kjörstað o.fl.

Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB verða þann 29. ágúst nk. og kjörstaður á Akranesi verður í Grundaskóla Espigrund 1.

Minnisblað sviðsstjóra vegna framkvæmdar kosninganna o.fl. lagt fram.

Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir tillögu bæjarstjóra um launagreiðslur til starfsmanna kjörstjórna og annarra þeirra sem koma að framkvæmd kosninganna. Ekki eru enn komnar upplýsingar varðandi uppfærðar fjárhæðir sem ríkið greiðir til sveitarfélaga vegna framkvæmd þjóðartkvæðagreiðslunnar en um þetta er kveðið í reglugerð nr. 442/2024 um skiptingu kostnaðar milli ríkis og sveitarfélaga í kosningum. Slíkt er nauðsynlegt, til að unnt sé að setja fram nákvæma fjárhagsáætlun, þar sem ákvörðun um kosningarnar lá einfaldlega ekki fyrir við gerð fjárhagsáætlunar Akraneskaupstaðar í desember sl.

Samþykkt 3:0

 

5. 2604-3198 - Suðurgata 68 - Umsókn til skipulagsfulltrúa

Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Akratorgsreits vegna lóðarinnar Suðurgötu 68. Breytingin felur í sér að skilgreindur verði nýr byggingarreitur fyrir bílgeymslu á lóðinni, á svæði þar sem áður var bílgeymsla. Jafnframt er gert ráð fyrir stækkun svala á efri hæð hússins þannig að þau nái yfir þak bílgeymslunnar.

Tillagan var grenndarkynnt í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2012 fyrir Suðurgötu 65, 67, 69 og 70, ásamt Mánabraut 3 og 5. Engar athugasemdir bárust á kynningartímanum.

Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarráð í umboði bæjarstjórnar að grenndarkynning sem gerð var skv. 43. gr. 2. mgr. skipulagslaga nr 123/2010 verði samþykkt og send á Skipulagsstofnun og birt í B-deild stjórnartíðinda.

Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir að grenndarkynning sem gerð var skv. 43. gr. 2. mgr. skipulagslaga nr 123/2010 verði samþykkt og send á Skipulagsstofnun og birt í B-deild stjórnartíðinda.

Samþykkt: 3:0

 

6. 2608-5832 - Tækifærisleyfi - Knattspyrnuleikur - 23.08.2026

Umsagnarbeiðni fyrir Knattspyrnufélag ÍA um tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna knattspyrnuleiks sem halda á 23.ágúst 2026.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins til umsækjanda, með fyrirvara um jákvæðar umsagnir annarra umsagnaraðila.

Samþykkt 3:0

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu