Bæjarráð
|
1. 2601-0485 - Eigendanefnd Orkuveitunnar - Endurskoðun eigendastefnu - Erindisbréf - 2512108 Á eigendafundi Orkuveitunnar þann 14. desember 2025 var samþykkt að gera tillögu til eigenda um að skipa eigendanefnd, sambærilega þeirri sem vann að undirbúningi eigendastefnu sem samþykkt var árið 2010. Drög að erindisbréfi var sent eigendum og það síðar samþykkt. Á fundum 18. desember 2025 samþykktu byggðaráð eigenda Orkuveitunnar erindisbréf fyrir nefndina og kusu í hana fulltrúa. Eigendanefnd skyldi skila tillögum til sveitarstjórna eigenda fyrir 31. desember 2026. Í marsmánuði sl. kynnti nefndin byggðarráðum eigenda áfangaskýrslu um starfið er einkum laut að félagaformi. Við lok kjörtímabils sveitarstjórna í maí sl. féll hins vegar umboð nefndarinnar niður, sbr. 39. gr. sveitarstjórnarlaga. Á fundi eigendanefndar 8. apríl sl. samþykkti nefndin að mælast til þess við eigendur að starfinu yrði haldið áfram að loknum kosningum. Fyrir liggur erindi Orkuveitunnar til eigenda um að þeir endurnýi efni fyrirliggjandi erindisbréfs og staðfesti skipan fulltrúa í eigendanefndinni. Fulltrúar Akraneskaupstaðar í nefndinni voru bæjarstjóri, sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs og Jóhann Þórðarson endurskoðandi Akraneskaupstaðar. Bæjarráð fékk fulltrúa Orkuveitunnar á sinn fund þann 2. júlí sl. og gert ráð fyrir að gengið yrði frá tilnefningum fulltrúa Akraneskaupstaðar í eigendanefnd á fundi þann 29. júlí nk. Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir að tilnefna Líf Lárusdóttur bæjarfulltrúa og formann bæjarráðs og Jóhann Þórðarson endurskoðanda Akraneskaupstaðar sem fulltrúa Akraneskaupstaðar í eigendanefnd. Bæjarstjóri eða staðgengill hans hefur síðan seturétt á fundum eigendanefndar sbr. ákvæði fyrirliggjandi erindisbréfs. Samþykkt 3:0
|
|
2. 2606-4745 - Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun vegna tímabilsins 2028-2030 Forsendur fjárhagsáætlunar 2027-2030. Kristjana Helga Ólafsdóttir fjármálastjóri situr fundinn undir þessum dagskrárlið. Bæjarráð samþykkir tillögu fjármálastjóra um fyrstu forsendur fjárhagsáætlunar vegna ársins 2027 og þriggja ára áætlunar vegna tímabilsins 2028 til og með 2030. Samþykkt 3:0 Kristjana Helga víkur af fundi.
|
|
3. 2603-2522 - Akraborgin félagsaðstaða, Jaðarsbakkar - Tillaga ÍA Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á fundi sínum þann 15. júní 2026 beiðni/tillögu frá Íþróttabandalagi Akraness um tilteknar breytingar við Akraneshöllina sem felast í að breyta svokölluðu "Akraborgarrými" úr geymslurými í félagsaðstöðu með heimild til veitingasölu án eldunaraðstöðu, Jafnframt er óskað eftir að opna tengingu milli rýmisins og Akraneshallar. Skipulags- og umhverfisráð vísaði málinu áfram til bæjarráðs. Bæjarráð fjallaði um málið á fundi sínum þann 2. júlí sl. og óskaði ráðið eftir að eiginlegt viðaukaskjal verði unnið svo unnt verði að gera með fullnægjandi hætti grein fyrir fjárhagslegum áhrifum ákvörðunarinnar á fjárhagshagsáætlun ársins 2026 og þar á meðal hvernig mæta skuli fyrirhuguðum viðbótarútgjöldum. Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið sem og undir dagskrárliðum nr. 4 til og með nr. 6. Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir breytingu á fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar vegna framkvæmdar við Akraneshöllina (svokallað Akraborgarrými) og viðauka nr. 15 vegna þessa. Breyting á áætlun 2026 felst í lækkun á viðhaldi stúku Akranesvallar á deild 31610-4620 um kr. 3,0 mkr. og ráðstöfun þeirra fjármuna til framkvæmdar í Akraneshöll á deild 31540-4320 vegna kaupa á verkfræði- og arkitektaþjónustu. Fjárhagsleg áhrif breytinganna á áætlun 2026 eru engin en fela í sér tilfærslu fjármuna innan áætlunar. Samþykkt 3:0
|
|
4. 2604-2909 - Jaðarsbakkar Sundlaugarbygging - Klefar og afgreiðsla Hönnun Skipulags- og umhverfisráð fjallaði á fundi sínum þann 15. júní 2026 um tillögu að breytingum á sundlaugarbyggingu og vallarhúsi á Jaðarsbökkum, samþykkti 1. áfanga verkefnisins og vísaði málinu áfram til bæjarráðs. Bæjarráð fjallaði um málið á fundi sínum þann 2. júlí sl. og óskaði eftir að eiginlegt viðaukaskjal yrði unnið svo unnt verði að gera með fullnægjandi hætti grein fyrir fjárhagslegum áhrifum ákvörðunarinnar á fjárhagshagsáætlun ársins 2026 og þar á meðal hvernig mæta skuli fyrirhuguðum viðbótarútgjöldum. Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir breytingu á fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar vegna framkvæmdar við Vallarhús Akraneshöllina (svokallað Akraborgarrými) og viðauka nr. 16 vegna þessa. Breyting á áætlun 2026 felst í lækkun á viðhaldi stúku á deild 31610-4620 um kr. 30,0 mkr. og ráðstöfun þeirra fjármuna til framkvæmdar við vallarhús á deild 31530-4620. Fjárhagsleg áhrif breytinganna á áætlun 2026 eru engin en fela í sér tilfærslu fjármuna innan áætlunar. Samþykkt 3:0
|
|
5. 2603-2581 - Vesturgata 62 – Möguleg næstu skref Lagt er fram erindi frá Snikkerí ehf. þar sem óskað er eftir afstöðu Akraneskaupstaðar til kaupa og uppbyggingar á fasteigninni að Vesturgötu 62. Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar felur bæjarstjóra og sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að funda með fulltrúum ríkisins um næstu mögulegu skref en meirihlutaeign er á hendi ríkisins en ekki Akraneskaupstaðar og fyrir liggur ákvörðun á fyrri stigum um niðurrif mannvirkisins.Ljóst er að komi til þess að ný ákvörðun verði tekin og mannvirkið endurbyggt þarf að fylgja hefðbundnu auglýsingaferli þar sem áhugasömum aðilum verði gefist kostur á þátttöku. Samþykkt 3:0
|
|
6. 2512-5374 - Útboð Vegagerðarinnar í verk „Vg2026-002 Akrafjallsvegur (51), hringtorg við Akranesveg“ Lögð er fram niðurstaða á útboði Vegagerðarinnar í verkinu „Vg2026-002 Akrafjallsvegur (51), hringtorg við Akranesveg“. Verklok eru áætluð 25. nóvember 2027. Lægsta tilboð í framkvæmd verksins er frá Borgarverk ehf., kr. 527.440.200, sem er 85,5% af kostnaðaráætlun. Um er að ræða samvinnuverkefni þar sem hlutdeild Akraneskaupstaðar í samningsupphæð verksins er um 22% skv. kostnaðaráætlun. Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir fyrir hönd Akraneskaupstaðar að Vegagerðin gangi til samninga við Borgarverk ehf. um verkið. Samþykkt 3:0 Sigurður Páll Harðarson víkur af fundi.
|
|
7. 2607-5527 - Tækifærisleyfi - Dansleikur - Árgangamót Knattspyrnufélags ÍA - 26.09.2026 Umsagnarbeiðni og umsókn um tækifærisleyfi til áfengisveitinga frá Knattspyrnufélag ÍA vegna Dansleiks – Árgangamóts knattspyrnufélagsins ÍA sem halda á í íþróttahúsinu að Vesturgötu 130, 300 Akranesi, 26. september n.k. Gert er ráð fyrir að viðburðurinn standi frá kl. 19.00 þann 26. september nk. til kl. 02:00 aðfararnótt þess 27. september nk. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu tækifærisleyfis til Knattspyrnufélags ÍA vegna viðburðarins með fyrirvara um jákvæðar umsagnir annarra umsagnaraðila og að húsið sé laust til útleigu á umbeðnum tíma. Samþykkt 3:0
|
|
8. 2607-5577 - Boð á aðalfund 2026 Heilbrigðiseftirlits Vesturlands - 5. ágúst 2026 kl 11:30 Hótel Hamar Fundarboð á auka aðalfund Heilbrigðiseftirlits Vesturlands sem haldinn verður þann 5. ágúst 2026 kl 11:30 að Hótel Hamri Borgarnesi. Samkvæmt samþykktum um Heilbrigðiseftirlit Vesturlands skal heilbrigðisnefnd kosin eftir hverjar sveitarstjórnarkosningar á aðalfundi Heilbrigðiseftirlits Vesturlands. Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar felur Ragnari B. Sæmundssyni bæjarfulltrúa og forseta bæjarstjórnar umboð til að fara með atkvæðarétt Akraneskaupstaðar á auka aðalfundinum þann 5. ágúst nk. en bæjarstjóri á ekki kost á að sækja fundinn. Samþykkt 3:0
|
|
9. 2606-4258 - Þjóðaratkvæðagreiðsla 29.08.2026 - Ákvörðun um kjörstað o.fl. Þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið verða þann 29. ágúst nk. Samkvæmt 78. gr. kosningalaga nr. 112/2021 er það á hendi sveitarstjórnar að ákveða kjörstað kjördeilda. Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir að kjörstaður vegna væntanlegrar þjóðaratkvæðagreiðslu verði í Grundaskóla, Espigrund 1. Samþykkt 3:0
|
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





