Bæjarráð
|
1. 2601-0485 - Eigendanefnd Orkuveitunnar - Endurskoðun eigendastefnu - Erindisbréf - 2512108 Á eigendafundi Orkuveitunnar þann 14. desember 2025 var samþykkt að gera tillögu til eigenda um að skipa eigendanefnd, sambærilega þeirri sem vann að undirbúningi eigendastefnu sem samþykkt var árið 2010. Drög að erindisbréfi var sent eigendum og það síðar samþykkt. Á fundum 18. desember 2025 samþykktu byggðaráð eigenda Orkuveitunnar erindisbréf fyrir nefndina og kusu í hana fulltrúa. Eigendanefnd skyldi skila tillögum til sveitarstjórna eigenda fyrir 31. desember 2026. Í marsmánuði sl. kynnti nefndin byggðarráðum eigenda áfangaskýrslu um starfið er einkum laut að félagaformi. Við lok kjörtímabils sveitarstjórna í maí sl. féll hins vegar umboð nefndarinnar niður, sbr. 39. gr. sveitarstjórnarlaga. Á fundi eigendanefndar 8. apríl sl. samþykkti nefndin að mælast til þess við eigendur að starfinu yrði haldið áfram að loknum kosningum. Nú liggur fyrir erindi þess efnis þ.e. að sveitarstjórnir eigenda endurnýi efni fyrirliggjandi erindisbréfs og staðfesti skipan fulltrúa í eigendanefndinni. Fulltrúar Akraneskaupstaðar í nefndinni voru bæjarstjóri, sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs og Jóhann Þórðarson endurskoðandi Akraneskaupstaðar. Fulltrúar Orkuveitunnar sitja fundinn undir þessum lið en um að ræða eftirtalda einstaklinga: Sævar Freyr Þráinsson forstjóri, Elín Smáradóttir yfirlögfræðingur, Snorri Hafsteinn Þorkelsson framkvæmdastjóri fjármála og Eiríkur Hjálmarsson sjálfbærnistjóri. Bæjarráð þakkar fulltrúum Orkuveitunnar fyrir komuna á fundinn. Gert er ráð fyrir að bæjarráð gangi frá tilnefningum fulltrúa Akraneskaupstaðar í eigendanefnd á næsta fundi ráðsins sem haldinn verður þann 29. júlí nk. Samþykkt 3:0 Gestir víkja af fundi.
|
|
2. 2606-5328 - Stofnun innviðafélags um hagsmuni vegna bættra samgangna Þann 18. júní sl. voru samþykkt lög á Alþingi um innviðafélag og er tilgangur félagsins m.a. að hrinda í framkvæmd uppbyggingu stórra þjóðhagslega mikilvægra samgönguverkefna og tryggja fjármögnun og hraðari framvindu slíkra verkefna. Gestir koma á fund bæjarráðs og kynnt verður fyrirliggjandi hugmyndafræði innviðafélagsins miðað við löggjöfina. Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna varðandi nýstofnað innviðafélag ríkisins en félagið hefur fengið nafnið Göng og brú ohf. Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar tekur að fullu undir ályktun sveitarfélaganna á Vesturlandi sem samþykkt var á auka aðalfundi þann 1. júlí sl. og er birt er á heimasíðu Akraneskaupstaðar. Samþykkt 3:0 Gestir víkja af fundi.
|
|
3. 2603-2485 - Mánaðayfirlit 2026 Mánaðaryfirlit janúar - apríl 2026. Kristjana Helga Ólafsdóttir fjármálastjóri situr fundinn undir þessum dagskrárlið. Lagt fram. Kristjana Helga Ólafsdóttir víkur af fundi.
|
|
4. 2604-3387 - Suðurgata 57 - Breyting á deiliskipulagi Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á fundi sínum þann 30. júní sl. að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja deiliskipulagsbreytingu Akratorgsreits vegna Suðurgötu 57, að senda skipulagið til skipulagsstofnunar og birtingu þess í B- deild Stjórnartíðinda . Tillagan var auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 18. maí 2026 til og með 29. júní 2026 og engar athugasemdir bárust. Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir deiliskipulagsbreytingu Akratorgsreits vegna Suðurgötu 57, að skipulagið verði sent skipulagsstofnun og birtingu þess í B-deild Stjórnartíðinda. Samþykkt 3:0
|
|
5. 2606-5063 - Fyrirhuguð stækkun á Höfða hjúkrunar- og dvalarheimili Viljayfirlýsing Akraneskaupstaðar, Hvalfjarðarsveitar og félags- og húsnæðismálaráðuneytisins um stækkun Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis um allt að 60 hjúkrunarrýma var undirrituð á heimilinu þann 30. júní sl. Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir viljayfirlýsinguna. Samþykkt 3:0 Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar fagnar mjög að þessum mikilvæga áfanga sé náð enda þörfin brýn og biðlistinn langur. Akraneskaupstaður leggur áherslu á að áætlun um uppbyggingu gangi eftir þannig að framkvæmdir geti hafist á árinu 2027 og að taka megi heimilið í notkun á árinu 2028 eða fyrri hluta árs 2029. Samþykkt 3:0
|
|
6. 2603-2522 - Akraborgin félagsaðstaða, Jaðarsbakkar - Tillaga ÍA Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á fundi sínum þann 15. júní 2026 beiðni/tillögu frá Íþróttabandalagi Akraness um tilteknar breytingar við Akraneshöllina sem felast í að breyta svokölluðu "Akraborgarrými" úr geymslurými í félagsaðstöðu með heimild til veitingasölu án eldunaraðstöðu, Jafnframt er óskað eftir að opna tengingu milli rýmisins og Akraneshallar. Skipulags- og umhverfisráð vísaði málinu áfram til bæjarráðs. Bæjarráð óskar eftir að eiginlegt viðaukaskjal verði unnið svo unnt verði að gera með fullnægjandi hætti grein fyrir fjárhagslegum áhrifum ákvörðunarinnar á fjárhagshagsáætlun ársins 2026 og þar á meðal hvernig mæta skuli fyrirhuguðum viðbótarútgjöldum. Afgreiðslu málsins frestað. Samþykkt 3:0
|
|
7. 2604-2909 - Jaðarsbakkar Sundlaugarbygging - Klefar og afgreiðsla Hönnun Skipulags- og umhverfisráð fjallað á fundi sínum þann 15. júní 2026 um tillögu að breytingum á sundlaugarbyggingu og vallarhúsi á Jaðarsbökkum, samþykkti 1. áfanga verkefnisins og vísaði málinu áfram til bæjarráðs. Bæjarráð óskar eftir að eiginlegt viðaukaskjal verði unnið svo unnt verði að gera með fullnægjandi hætti grein fyrir fjárhagslegum áhrifum ákvörðunarinnar á fjárhagshagsáætlun ársins 2026 og þar á meðal hvernig mæta skuli fyrirhuguðum viðbótarútgjöldum. Afgreiðslu málsins frestað. Samþykkt 3:0
|
|
8. 2606-4693 - Breyting á fjárhagsáætlun - framkvæmdir og fjárfesting 2026-27 Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á fundi sínum þann 15. júní 2026 breytingu á fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun til samræmis við mál nr. 2604-2909 - Jaðarsbakkar Sundlaugarbygging - Klefar og afgreiðsla Hönnun og mál nr. 2603-2522 - Akraborgin félagsaðstaða, Jaðarsbakkar - Tillaga ÍA og fól sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna viðauka við áætlun og vísað málinu til bæjarráðs. Bæjarráð óskar eftir að eiginlegt viðaukaskjal verði unnið svo unnt verði að gera með fullnægjandi hætti grein fyrir fjárhagslegum áhrifum ákvarðanna (breytinganna) á fjárhagsáætlun ársins 2026 og þar á meðal hvernig mæta skuli fyrirhuguðum viðbótarútgjöldum. Afgreiðslu málsins frestað. Samþykkt 3:0
|
|
9. 2606-5195 - Börn með fjölþættan vanda - Breytingar á reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytis Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur undirritað nýja reglugerð um málsmeðferð þegar börn með fjölþættar stuðningsþarfir þurfa sértæka þjónustu. Hefur stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga gagnrýnt reglugerðina með yfirlýsingu dags. 24. júní sl. og telur að með henni sé ríkið að brjóta samkomulag ríkis og sveitarfélaga um skýra ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda frá 19. mars 2025, en einhliða hefur ráðuneytið endurskilgreint og þrengt þann hóp barna sem fellur undir samkomulagið. Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið. Bæjarráð bendir á hið augljósa sem er að breytingar ráðuneytisins á skilgreiningu á fjölþættum vanda hafa neikvæðar fjárhagslegar afleiðingar fyrir Akraneskaupstað. Sú breyting hefði hins vegar ekki verið eins mikið reiðarinnar högg líkt og raun ber vitni, ef Jöfnunarsjóður myndi mæta kostnaði vegna vistunar fatlaðra barna með umfangsmiklar stuðningsþarfir að mestu leyti, líkt og áður var. Breytingar voru hins vegar gerðar á reglum sjóðsins, frá janúar 2026, á þá leið að framlög vegna barna eru ekki lengur veitt á grundvelli raunkostnaðar, líkt og áður og jafnvel þó unnt sé að fara fram á aukna álagsflokka vegna vistana barna utan heimilis, mætir það einungis brotabroti af fyrirliggjandi raunkostnaði. Bæjarráð Akraneskaupstaðar lýsir yfir þungum áhyggjum vegga þessa og mótmælir harðlega einhliða ákvörðunum og breytingum ríkisvaldsins á reglugerðum og fjármögnun er varða þjónustu við börn með fjölþættan vanda, sbr. reglugerð nr. 1038/2018. Bæjarráð tekur heils hugar undir varnaðarorð og umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem sýnt er fram á að ríkið standi ekki við gerð samkomulög í þessum viðkvæma málaflokki. Samþykkt 3:0 Hildigunnur Árnadóttir víkur af fundi.
|
|
10. 2606-5360 - Langtímaveikindi starfsfólks 2026 (veikindapottur) fyrri hluti Umsóknir í veikindapott frá stofnunum til að mæta kostnaði vegna langtímaveikinda starsfólks fyrir hluta ársins 2026, vegna tímabilsins janúar til og með júní. Bæjarráð óskar eftir að fyrirliggjandi umsóknir í veikindapott Akraneskaupstaðar verði rýnt frekar og afgreiðslu málsins frestað til næsta fundar. Samþykkt 3:0
|
|
11. 2605-3954 - Safnaðarheimilið Vinaminni - Beiðni um niðurfellingu fasteignagjalda Sóknarnefnd Akraneskirkju hefur óskað eftir niðurfellingu fasteignagjalda vegna safnarðarheimilisins Vinaminni. Bæjarráð fjallaði um málið á fundum sínum þann 28. maí sl. og þann 18. júní sl. og bókaði á seinni fundinum að það væri jákvætt fyrir erindinu en frestaði lokaafgreiðslu til næsta fundar. Bæjarráð bendir Akraneskirkju á að samkvæmt núverandi skráningu mannvirkisins í Fasteignaskrá er með þeim hætti að fasteignin fellur í flokk fasteigna sem greiða skal fasteignagjöld af. Akraneskaupstaður gerir ekki athugasemdir við breytta skráningu sem fæli í sér undanþágu frá greiðslu fasteignagjalda til samræmis við ákvæði 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995. Bæjarráð bendir Akraneskirkju á sbr. framangreint, að óska eftir breyttri skráningu mannvirkisins með formlegu erindi til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar enda er slík breyting ekki á forræði Akraneskaupstaðar. Samþykkt 3:0 |
|
|
|
12. 2606-4996 - Umsókn um stöðuleyfi Umsókn frá Kötlu Bjarnadóttur um stöðuleyfi fyrir matarvagn á Stillholti 16-18. Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti veitingu stöðuleyfis til umsækjanda fyrir matarvagn á Stillholti 16-18. Bæjarráð heimilar opnunartíma matarvagnsins til samræmis við fyrirliggjandi opnunartíma rekstraraðila "Útgerðarinnar" (samkvæmt fyrirliggjandi rekstrarleyfi sem og tækifærisleyfa) en áskilur sér rétt til endurskoðunar á þessum þætti en til skoðunar er í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar endurnýjun reglna er varðar stöðuleyfi. Samþykkt 3:0
|
|
13. 2605-3675 - Tækifærisleyfi Lopapeysan / tónleikar 30.06.2026 - 04.07.2026 Umsögn Akraneskaupstaðar vegna tækifærisleyfis fyrir viðburðinn Lopapeysuna lögð fram til kynningar. Lagt fram.
|
|
14. 2606-5123 - Tækifærisleyfi - Tónleikar á írskum dögum - 02.07.2026-05.07.2026 Umsögn Akraneskaupstaðar vegna umsóknar um tækifærisleyfi vegna Tónleika á írskum dögum á Kirkjubraut 10 Akranesi, lögð fram til kynningar. Lagt fram.
|
|
15. 2606-4761 - Tækifærisleyfi - Knattspyrnuleikur 12.06.2026 Umsögn Akraneskaupstaðar vegna umsóknar KFÍA um tækifærisleyfi í tengslum við knattspyrnuleik þann 12. júní 2026, lögð fram til kynningar. Lagt fram.
|
|
16. 2606-4648 - Tækifærisleyfi - Knattspyrnuleikur 16.06.2026 Umsögn Akraneskaupstaðar vegna umsóknar KFÍA um tækifærisleyfi í tengslum við knattpyrnuleik þann 16. júní 2026, lögð fram til kynningar. Lagt fram.
|
|
17. 2606-5289 - Tækifærisleyfi Knattspyrnuleiks-skemmtun 29.06.2026 Umsögn Akraneskaupstaðar vegna umsóknar KFÍA um tækifærisleyfi í tengslum við knattspyrnuleik þann 29. júní 2026, lögð fram til kynningar. Lagt fram.
|
|
18. 2606-5291 - Tækifærisleyfi Knattspyrnuleiks-skemmtun 04.07.2026 Umsögn Akraneskaupstaðar vegna umsóknar KFÍA um tækifærisleyfi í tengslum við knattspyrnuleik þann 4. júlí 2026, lögð fram til kynningar. Lagt fram.
|
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





