Fara í efni  

Bæjarráð

3627. fundur 18. júní 2026 kl. 08:15 - 11:05 í Lindinni Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Líf Lárusdóttir formaður bæjarráðs
  • Ragnar B. Sæmundsson varaformaður
  • Sigurður Vopni Vatnsdal aðalmaður
  • Jón Guðni Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Hrafn Ágúst Björnsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Harpa Sólbjört Másdóttir upplýsingastjóri
Fundargerð ritaði: Harpa Sólbjört Másdóttir upplýsingastjóri

1. 2606-4745 - Fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun vegna tímabilsins 2028-2030

Tíma- og verkáætlun vinnu vegna fjárhagsáætlunar 2027-2030 lögð fram.

Kristjana Helga Ólafsdóttir fjármálastjóri situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Bæjarráð samþykkir tíma- og verkáætlun fjárhagsáætlunar vegna tímabilsins 2027 til og með 2030.Samþykkt 3:0

Bæjarráð óskar eftir að áætlunin verði kynnt í fagráðum Akraneskaupstaðar sem og fyrir öllum forstöðumönnum líkt og hefðbundið er.

Samþykkt 3:0

Kristjana Helga Ólafsdóttir víkur af fundi.

 

2. 2602-1702 - Viljayfirlýsing milli Akraneskaupstaðar og Golfklúbbsins Leynis um framtíðarstækkun golfvallarins

Erindi GolfklúbbinsLeynis (GL) varðandi mögulega framtíðarstækkun Garðarvallar hafa verið til úrvinnslu í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar.

Hróðmar Halldórsson formaður GL, Óli B. Jónsson stjórnarmaður og Rakel Óskarsdóttir framkvæmdastjóri GL sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.

Fulltrúar Akraneskaupstaður og Golfklúbbsins Leynis undirrituðu viljayfirlýsingu um framtíðarstækkun Garðarvallar þann 27. apríl sl. Bæjarráð fjallaði um málið á fundi sínum nr. 3623 þann 30. apríl sl. og fól sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að setja af stað vinnu með skipulagshöfundi f.h. Akraneskaupstaðar sem hafi m.a. til hliðsjónar fyrirliggjandi hugmyndir Golfklúbbsins Leynis um stækkun Garðavallar. Málið er á dagskrá að beiðni formanns til að fylgja málinu eftir.

Bæjarráð þakkar fulltrúum GL fyrir komuna á fundinn.

Bæjarráð felur skipulags- og umhverfissráði að vinna málið áfram m.t.t. deiliskipulagsvinnu.

Samþykkt 3:0

Gestir víkja af fundi.

 

3. 2606-4753 - Árshlutauppgjör 2026

3. mánaða uppgjör jan - mars 2026.

Kristjana Helga Ólafsdóttir fjármálastjóri situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Bæjarráð þakkar fjármálastjóra fyrir kynninguna.

Árshlutauppgjörið lagt fram.

Kristjana Helga Ólafsdóttir víkur af fundi.

 

4. 2605-3734 - Tækifærisleyfi - Pílumót á Írskum dögum - 03-05.07.2026

Tækifærisleyfi vegna pílumóts á Írskum dögum 3.-5. júlí 2026. Uppfærð umsókn var komin fram. Umsögn forvarnarhópsins Brúin var neikvæð miðað við fyrri umsókn en hópurinn gerir ekki athugasemdir miðað við breytta umsókn.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins en með fyrirvara um að jákvæðar umsagnir berist frá öðrum umsagnaraðilum.

Samþykkt 3:0

 

5. 2605-4210 - Tækifærisleyfi Írskir dagar - Lengri opnun 03.07.2026 og 05.07.2026

Sýslumaðurinn á Vesturlandi óskar eftir um sögn vegna erindis um tækifærisleyfi þar sem Ásborg ehf. fyrir hönd Útgerðarinnar bar óskar eftir leyfi fyrir lengri opnunartíma 03.07.2026 og 05.07.2026.

Óskað er eftir lengri opnunartíma:

  • aðfararnótt föstudagsins 3. júlí nk., til kl. 02:00 í stað til kl. 01:00.
  • aðfararnótt laugardagsins 4. júlí nk., til kl. 04:30 í stað til kl. 03:00.
  • aðfararnótt sunnudagsins 5. júlí nk., til kl. 04:30 í stað til kl. 03:00.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins en með fyrirvara um að jákvæðar umsagnir berist frá öðrum umsagnaraðilum.

Samþykkt 3:0

 

6. 2605-3954 - Safnaðarheimilið Vinaminni - Beiðni um niðurfellingu fasteignagjalda

Sóknarnefnd Akraneskirkju hefur óskað eftir niðurfellingu fasteignagjalda vegna safnaðarheimilisins Vinaminni.

Bæjarráð er jákvætt fyrir erindinu en lokaafgreiðslu þess frestað til næsta fundar.

Samþykkt 3:0

 

7. 2604-3411 - Dagsetningar funda bæjarráðs í júlí 2026

Staðfesting á fundum bæjarráðs í júlí 2026. Fundirnir fari fram þann 2. júlí nk. og þann 29. júlí nk.

Bæjarráð samþykkir að fundir ráðsins munu fara fram þann 2. júlí nk. kl. 08:15 og þann 29. júlí nk. kl. 08:15.

Samþykkt 3:0

 

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu