Fara í efni  

Bæjarráð

3626. fundur 28. maí 2026 kl. 08:15 - 10:25 í Lindinni Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Líf Lárusdóttur formaður
  • Valgarður L. Jónsson varaformaður
  • Sædís Alexía Sigmundsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Steinar Adolfsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson bæjarstjóri

1. 2604-3228 - Skammtímadvöl á Laugarbraut - Frumáætlun

Frumáætlun um uppbyggingu skammtímadvalar á lóðinni við Laugarbraut 6 liggur fyrir.

Lárus Ársælsson umhverfisstjóri kom inn á fund velferðar- og mannréttindaráðs þann 19.05.2026 og kynnti frumáætlunina, á fundinum var gerð eftirfarandi bókun:

Velferðar- og mannréttindaráð leggur til að farið verði í frumhönnun. Ráðið leggur jafnframt til að verkefnahópurinn sem skilaði frumáætlun haldi áfram störfum við undirbúning frumhönnunar en fái jafnframt stuðning þvert á svið Akraneskaupstaðar.

Málinu var vísað til umfjöllunar í bæjarráði, skipulags- og umhverfisráði, mennta- og menningaráði og til kynningar í notendaráði um málefni fatlaðs fólks á Akranesi.

Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs situr fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð þakkar fyrir yfirferðina.

Lagt fram.

Hildigunnur Árnadóttir víkur af fundi

 

2. 2605-3734 - Tækifærisleyfi - Pílumót á Írskum dögum - 03-05.07.2026

Tækifærisleyfi vegna pílumóts á Írskum dögum 3-5. júlí 2026.

Lagt fram.

Bæjarráð vísar umsagnarbeiðni til nánari úrvinnslu í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar.

Samþykkt 3:0

 

3. 2605-3954 - Safnaðarheimilið Vinaminni - Beiðni um niðurfellingu fasteignagjalda

Sóknarnefnd Akraneskirkju óskar eftir niðurfellingu fasteignagjalda vegna safnaðarheimilisins Vinaminni.

Lagt fram.

Erindið tekið til úrvinnslu í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar og gert ráð fyrir að það komi að nýju fyrir næsta fund bæjarráðs.

Samþykkt 3:0

 

4. 2605-4014 - Mál nr. S-93/2026 Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum (gjaldaákvæði hafnalaga) Frestur til 19.06.2026

Innviðaráðuneyti óskar eftir umsögn hagsmunaaðila vegna áforms um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum (Gjaldaákvæði hafnalaga). Umsagnarfrestur er til 19.06.2026

Lagt fram.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að kanna afstöðu til áformanna innan Faxaflóahafna.

Samþykkt: 3:0

 

5. 2605-3993 - Stofnframlög HMS - Umsóknafrestur frá 26.05.2026-26.06.2026

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um stofnframlög Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, umsóknarfrestur er opinn frá 26. maí 2026 til og með 26. júní 2026.

Lagt fram.

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu