Bæjarráð
|
1. 2605-3707 - Tækifærisleyfi - Knattspyrnuleikur ÍA 13.05.2026 Umsagnarbeiðni og umsókn fyrir Knattspyrnufélag Í.A. um tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna Knattspyrnuleik ÍA sem halda á 13. maí 2026 í hátíðarsal Jaðarsbökkum. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins til umsækjanda, með fyrirvara um jákvæðar umsagnir annarra umsagnaraðila. Samþykkt 3:0
|
|
2. 2605-3712 - Tækifærisleyfi - Sumargleði - 13.06.2026 Umsagnarbeiðni og umsókn ásamt teikningum af svæði fyrir tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna tónleika, sumargleði sem halda á 13. júní 2026 á planinu að Stillholti 16-18 Akranesi. Bæjarráðs gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins til umsækjanda með fyrirvara um jákvæðar umsagnir annarra umsagnaraðila. Samþykkt 3:0 Bæjarráð vekur athygli leyfisveitanda á að rétt sé að afla umsagnar frá húsfélagi Stillholts 16-18 vegna fyrirliggjandi umsóknar rekstrarhafa. Samþykkt 3:0
|
|
3. 2605-3675 - Tækifærisleyfi Lopapeysan / tónleikar 30.06.2026 - 04.07.2026 Tækifærisleyfi á Írskum dögum - Lopapeysan / tónleikar 30. júní - 4. júlí 2026. Lagt fram. Málið fer í frekari úrvinnslu í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar. Samþykkt 3:0
|
|
4. 2605-3700 - Rafrænir reikningar Frá og með 1. janúar 2022 hefur Akraneskaupstaður eingöngu tekið við rafrænum reikningum. Fyrirkomulagið hefur gengið vel í góðri samvinnu við lánadrottna. Á árinu 2025 bárust Akraneskaupstað alls 18.398 reikningar og þar af alls 17.931 rafrænir reikningar í gegnum skeytamiðlun. Tillaga er komin fram frá fjármálastjóra um að frá 1. júlí nk. taki Akraneskaupstaður eingöngu við rafrænum reikningum í gegnum skeytamiðlun. Markmiðið með breytingunni er m.a. að auka skilvirkni í skráningu, greiðslu reikninga og lágmarka villur. Bæjarráð samþykkir að frá 1. júlí 2026 taki Akraneskaupstaður eingöngu við rafrænum reikningum í gegnum skeytamiðlun. Samþykkt 3:0
|
|
5. 2604-3405 - Gott að eldast - samþætt stuðningsþjónusta og heimahjúkrun Gerð var úttekt á aðstæðum Höfða til að mæta þörfum samþættrar stuðningsþjónustu og heimahjúkrunar. Úttektin lögð fram til kynningar. Málið var tekið fyrir á fundi velferðar- og mannréttindaráðs nr. 267 og vísað til bæjarráðs til kynningar. Bæjarráð leggur áherslu að samtal eigi sér stað við Hvalfjarðarsveit varðandi hlutdeild í húsnæðinu og aðkomu að verkefninu. Einnig telur bæjarráð mikilvægt að skýra aðkomu og hlutverk Heilbrigðisstofnunar Vesturlands í aðlögun húsnæðisins að þjónustunni. Samþykkt 3:0 Bæjarráð felur sviðsstjóra velferðar- og mannréttindasviðs frekari úrvinnslu málsins. Samþykkt 3:0
|
|
6. 2601-0072 - Skammtímadvöl á Vesturlandi Fyrir liggja tillögur varðandi fyrirkomulag og er sveitarfélögunum ætlað að taka afstöðu til:
Málið var til umfjöllunar á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 11. maí sl. g málinu vísað til afgreiðslu bæjarráðs. Bókun ráðsins var svofelld: Velferðar- og mannréttindaráð tekur undir tillögur verkefnahóps um afgreiðslu allra liða að undanskildum lið 2, er varðar útfærslu tekjumódels. Velferðar- og mannréttindaráð er mótfallið báðum þeim útfærslum sem verkefnahópur lagði fram og leggur til að farin verði tillaga C, sem gerir ekki ráð fyrir neinum fastakostnaði af hálfu sveitarfélaganna, heldur greiði þau hærra gjald fyrir þá sólarhringa sem þau nýta í skammtímadvölinni. Áætlað gjald yrði ákvarðað í upphafi hvers árs á grundvelli rekstraráætlunar og áætlaðrar nýtingar. Velferðar- og mannréttindaráð leggur einnig til að öðrum sveitarfélögum standi til boða að kaupa pláss í úrræðinu sem sveitarfélögin á Vesturlandi sjá ekki fram á að geta nýtt. Tekjur af sölu ónýttra rýma til annarra sveitarfélaga kæmu til lækkunar á heildarkostnaði áður en innra gjald yrði endanlega gert upp. Sviðsstjóra er falið að upplýsa verkefnahópinn um afstöðu velferðar- og mannréttindaráðs Akraneskaupstaðar. Bæjarráð tekur undir bókun velferðar- og mannréttindaráðs varðandi leið C. Bæjarráð leggur til að auk stofnframlags verði til viðbótar gert ráð fyrir tilteknu viðbótarfjármagni sem tryggi rekstur úrræðisins (fastan kostnað) til að lágmarki þriggja mánaða. Verði félaginu slitið endurgreiðast stofnframlögin til sveitarfélaganna í sama hlutfalli og það var greitt inn. Samþykkt 3:0
|
|
7. 2605-3514 - Matarmiðar - Endurskoðun verðgildis Til skoðunar hefur verið að hækka verðgildi matarmiða Akraneskaupstaðar að kröfu þjónustuveitanda. Bæjarráð samþykkir að verðgildi matarmiða Akraneskaupstaðar verði kr. 2.400 með gildistíma frá 1. júní 2026. Samþykkt 3:0 Bæjarráð telur vera rými innan samþykktrar fjárhagsáætlunar vegna þessa útgjaldaliðar og vísar málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar. Samþykkt 3:0
|
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





