Fara í efni  

Bæjarráð

3624. fundur 07. maí 2026 kl. 08:15 - 11:30 í Lindinni Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Líf Lárusdóttir formaður bæjarráðs
  • Valgarður L. Jónsson varaformaður
  • Ragnar B. Sæmundsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Steinar Adolfsson bæjarstjór
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson bæjarstjóri

1. 2604-3359 - Fjárhagsáætlun 2026 - sameiginlegur viðauki

Sameiginlegur viðauki við fjárhagsáætlun 2026. Tekið saman af Kristjönu Helgu Ólafsdóttur fjármálastjóra sem situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 11 við fjárhagsáætlun ársins 2026 sem felur í sér auknar tekjur að fjárhæð kr. 152.070.000 og vísar honum til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Samþykkt 3:0

Í viðaukanum er ýmsar ráðstafanir og eru bæði á útgjaldahlið sem og tekjuhlið en einnig eru gerðar tilteknar umsvifsmiklar aðgerðir sem hafa ekki áhrif á rekstrarniðurstöðu ársins. Þar er helst að nefna hækkun prósentu fjármagnskostnaðar sem var hækkuð úr 4,5% í 6,5% og hefur áhrif á innri leigu sbr. fylgiskjal viðaukans.

Samþykkt 3:0

Kristjana Helga Ólafsdóttir víkur af fundi.

 

2. 2505-2509 Tillaga að breytingu á framlagi frístundastyrkja

Samhliða endurskoðun þjónustusamnings milli Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness hefur skóla- og frístundaráð unnið að tillögum um breytingar á frístundastyrkjum. Tillögurnar fela í sér fjögurra ára áætlun um hækkun styrkjanna þar sem gert er ráð fyrir að frístundastyrkur hækki um 20% á ári, á tímabilinu 2027-2030.

Skóla- og frístundaráð leggur til við bæjarráð að frístundastyrkur Akraneskaupstaðar verði hækkaður í áföngum á næstu fjórum árum, um 20% árlega. Með tillögunni er stigið mikilvægt skref efla frístundastuðning sveitarfélagsins og færa hann nær því sem almennt gerist í öðrum sveitarfélögum, stuðla að aukinni þátttöku barna í skipulögðu íþrótta- og frístundastarfi og styðja við barnafjölskyldur á Akranesi.

Dagný Hauksdóttir sviðsstjóri skóla- og frístundaráðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið sem og undir dagskrárliðum nr. 3 til og með 6.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu um breytingar á frístundastyrkjum og að gert verði ráð fyrir þessari breytingu við komandi fjárhagsáætlunargerð vegna ársins 2027. Breytingin er áætluð að fjárhæð 10,3 m.kr. á árinu 2027.

Samþykkt 3:0

 

3. 2601-0028 ÍA - rekstur. samskipti og samningur 2026

Vinnuhópur um endurskoðun á þjónustusamningi Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness hefur lokið störfum og leggur hér fram nýjan samning til áranna 2027-2031 og vísar honum til umfjöllunar hjá bæjarráði.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu um nýjan þjónustusamning Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness og vísar málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Samþykkt 3:0

Bæjarráð þakkar öllum þeim fjölmörgu einstaklingum sem komu að vinnuni f.h. Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalagsins en málið hefur verið til vinnslu um allangt skeið og lýsir jafnframt yfir ánægju með niðurstöðuna.

Samþykkt 3:0

Fjárhagslegra viðbótaráhrifa samningsins gætir ekki fyrr en á árinu 2027 og felur í sér viðbót frá því sem nú er að fjárhæð kr. 6.550.000. Árleg fjárveiting Akraneskaupstaðar til Íþróttabandalagsins á grundvelli þjónustusamningins er um 100,0 mkr.

Samþykkt 3:0

 

4. 2602-1449 - Jaðarsbakkar klefar íþróttahúss - Skilrúm og augnskanni

Sameiginlegur liður frá forstöðumanni íþróttamála- og íþróttamannvirkja og framkvæmdarstjóra ÍA varðandi skipulag og nýtingu á búningsklefum í nýja íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum. Skipulags- og umhverfisráð fjallaði um málið á 345. fundi ráðsins þann 16. febrúar sl.,tók jákvætt í erindið og vísaði því til umfjöllunar í bæjarráði. Bæjarráð fjallaði um málið á fundi sínum þann nr. 3620 þann 12. mars sl. og óskaði eftir að ráðist yrðir í frekari verðkönnun og afgreiðslu málsins frestað.

Bæjarráð samþykkir viðbótarútgjöld að fjárhæð kr. 1.351.000 vegna málsins sem mætt verði með lækkun á væntum rekstrarafgangi ársins.

Samþykkt 3:0

Afgreiðslu málsins með viðauka verður að bíða til gerðar sameiginlegs viðauka bæjarráðs sbr. fyrirliggjandi reglur þar að lútandi þar sem fjárhæð ráðstöfunar er lægri en 2,0 m.kr.

Samþykkt 3:0

 

5. 2601-0830 - Beiðni Klifurfélags Akraness um kaup á dýnum

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum nr. 3617. þann 29. janúar sl. kaup á dýnum sem yrðu hluti af almennum búnaði íþróttamannvirkjanna og fól Daníel Glad Sigurðssyni forstöðumanni íþróttamála og íþróttamannvirkja frekari úrvinnslu málsins. Gert var ráð fyrir að málið kæmi að nýju til bæjarráðs er endanlegt verð lægi fyrir svo unnt væri að bóka ráðstöfun fjármuna vegna kaupanna með viðauka við fjárhagsáætlun ársins.

Bæjarráð samþykkir úthlutun viðbótarfjármagns til íþróttamannvirkja Akraneskaupstaðar samtals kr. 2.590.000 vegna kaupa á dýnum. Fjármagnið er fært á deild 06520-4660 og er mætt með lækkun á væntum rekstrarafgangi ársins 2026.

Samþykkt 3:0

Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 12 vegna framangreindrar ráðstöfunar og vísar málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Samþykkt 3:0

 

6. 2601-0034 - Leikskólamál - Valkostagreining 2025-2026

Málið hefur verið til úrvinnslu í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar og á fundi bæjarráðs nr. 3623 þann 30. apríl sl. fól bæjarráð sviðsstjórum skipulags- og umhverfissviðs og skóla- og frístundasviðs frekari úrvinnslu málsins í samráði við leikskólastjóra Akrasels. Sigurður Páll Harðarson situr fundinn undir þessum dagskrárlið.sem og undir dagskrárliðum nr. 7 og nr. 8.

Málið er til áframhaldandi úrvinnslu sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs og skóla- og frístundasviðs og er m.a. fyrirhugaðar fundir með hönnuðum mannvirkisins Akrasels föstudaginn 8. maí nk.

Bæjarráð er meðvitað um að ekki næst að klára ákvörðunartöku um næstu skref á í tíð núverandi bæjarfulltrúa en sem kunnugt er fara sveitarstjórnarkosningar fram þann 16. maí nk. en meta þarf fjárhagsleg áhrif á framkvæmdarinnar fyrir Akraneskaupstað og hvernig þeim viðbótarútgjöldum verði mætt.

Bæjarráð er þeirrar skoðunar að lausnin eigi að fela í sér viðbótarrými í formi varanlegrar viðbyggingar í stað færanlegra kennslustofa og að miða beri við 3 deildir eins og áður var bókað á fundi bæjarráðs nr. 3622 þann 16. apríl sl.

Samþykkt 3:0

Dagný Hauksdóttir víkur af fundi.

 

7. 2605-3445 - Fjárfestingaráætlun 2026-2027

Lögð er fram frumáætlun fyrir breytingu á fjárfestingar- og framkvæmdaráætlun fyrir árin 2026 og 2027 vegna eftirfarandi verkefna: - Þrjár varanlegar leikskóladeildir við Akrasel, - Breytingar í Grundaseli, - Breytingar á Vallarhúsi og veitingaraðstöðu (Akraborgin) á Jaðarsbökkum. Skipulags- og umhverfisráð óskar eftir afstöðu bæjarráðs til verkefnanna en þau munu hafa í för með sér viðbótarútgjöld og kalla á breytingu á fyrirliggjandi fjárfestingar- og framkvæmdaáætlun.

Lagt fram.

Ljóst er það bíður nýrrar bæjarstjórnar að taka ákvörðun um næstu skref í málinu.

Samþykkt 3:0

 

8. 2604-3252 - Fyrirhuguð stækkun Dvalarheimilisins Höfða

Breyting á deiliskipulagi Sólmundarhöfða vegna Dvalarheimilisins Höfða.

Fyrir liggja áform um verulega stækkun Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis við Sólmundarhöfða. Drög að frumathugun vegna verkefnisins, dags. 26. mars 2026, gera ráð fyrir verulegri fjölgun hjúkrunarrýma og viðbyggingu við núverandi húsnæði. Í frumathugun eru settir fram nokkrir valkostir um útfærslu uppbyggingarinnar og liggur endanleg staðsetning og umfang viðbyggingar ekki fyrir. Ljóst er að eftir því hvaða valkostur verður fyrir valinu kann að þurfa að taka nánar afstöðu til samræmis við gildandi skipulagsheimildir. Svæðið er skilgreint sem samfélagsþjónusta (S208) í Aðalskipulagi Akraness 2021–2033 og er uppbygging hjúkrunarheimilis í samræmi við þá landnotkun. Hins vegar kann útfærsla einstakra valkosta að hafa áhrif á afmörkun byggingarreita og nýtingu lóðar.

Málið var tekið fyrir á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 28. apríl sl. en á þeim fundi voru eftirfarandi bæjarfulltrúar sem gestir: Valgarður Lyngdal Jónsson, Líf Lárusdóttir, Ragnar B. Sæmundsson, Einar Brandsson, Kristinn Halldur Sveinsson og Aníta Eir Einarsdóttir (varabæjarfulltrúi).

Bókun ráðsins var eftirfarandi:

Skipulags- og umhverfisráð og aðrir fundarmenn frá bæjarstjórn tóku jákvætt í og fagna áformum um stækkun Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis. Ljóst er að fyrirhuguð uppbygging felur í sér verulega breytingu á byggingarmagni og skipulagsforsendum. Skipulags- og umhverfisráð felur sviðstjóra/verkefnastjóra skipulags- og umhverfissviðs að hefja vinnu við verulega breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Horft verði til þess að stækkunin verði til suðurs frá núverandi hjúkrunarheimili.

Bæjarráð lýsir yfir vilja sínum til að farið verði í stækkun Hjúkrunar- og dvalarheimili Höfða um allt að 60 hjúkrunarrými í samvinnu við félags- og húsnæðismálaráðuneytið og Hvalfjarðarsveit.

Samþykkt 3:0

Bæjarráð beinir því til skipulags- og umhverfisráð að hafin verði vinna við gerð skipulags vegna framangreinda áforma.

Samþykkt 3:0

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til endanlegar samþykktar.

Samþykkt 3:0

Sigurður Páll Harðarson víkur af fundi.

 

9. 2601-0072 - Skammtímadvöl á Vesturlandi

Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 5. maí var lögð fram til umfjöllunar tillaga um uppbyggingu og rekstur sameiginlegrar skammtímadvalar fyrir börn og ungmenni með fötlun og umfangsmiklar stuðningsþarfir á Vesturlandi. Verkefnið er unnið í samstarfi sveitarfélaga á Vesturlandi og Þroskahjálpar á Vesturlandi og miðar að því að tryggja jafnt aðgengi að lögbundinni þjónustu óháð búsetu. Gert er ráð fyrir að skammtímadvölin starfi í húsnæðinu að Holti í Borgarbyggð, rekin af sjálfseignarstofnun í atvinnurekstri. Lagt er til að sveitarfélög á Vesturlandi stofni sjálfseignarstofnunina, en hún sjái um rekstur þjónustunnar og leigi fasteignina að Holti. Fyrir liggur ítarlegt minnisblað ásamt fylgigögnum: Drög að samþykktum fyrir skammtímadvöl Vesturlands ses., tillaga að rekstrarmódeli og fjárhagsáætlun, þarfagreining á húsnæði Holts og drög að leigusamningi. Velferðar- og mannréttindaráð vísaði málinu til kynningar í bæjarráði en frestaði afgreiðslu málsins til aukafundar ráðsins sem fram fer mánudaginn 11. maí nk.

Lagt fram.

Bæjarráð gerir ráð fyrir að málið komi aftur til umfjöllunar bæjarráðs á lokafund ráðsins á kjörtímabilinu sem verður þann 13. maí nk. kl. 13:00.

Samþykkt 3:0

 

10. 2604-3062 - Útgerðin - Breyting á rekstrarleyfis - Lengri opnunartími fyrir frídaga

Sýslumaðurinn á Vesturlandi óskar eftir umsögn vegna breytinga á rekstraleyfi Útgerðarinnar, óskað er eftir lengingu opnunartíma til kl. 04:00 þá daga sem rauðir frídagar eru.

Bæjarráð bendir á að samkvæmt fyrirliggandi lögreglusamþykkt fyrir Akranes er almennur opnunartíma veitingastaða til kl. 03:00. Í sameiginlegri lögreglusamþykkt sveitarfélaganna á Vesturlandi sem til stóð að setja og Akraneskaupstaður afgreiddi fyrir sitt leyti í bæjarstjórn á sínum tíma, var ekki lögð til breyting á þessum þætti samþykktarinnar.

Bæjarráð er ekki reiðubúið til að fallast á umbeðna ósk rekstrarhafa um varanlega breytingu rekstrarleyfisins sem gengur í berhögg við meginregluna.

Bæjarráð tekur samt fram að bæjarráð hefur undanfarið verið með jákvæðar umsagnir vegna umsókna rekstraraðilans um tækifærisleyfi þar sem óskað hefur eftir leyfi til lengingar opnunartíma til samræmis við þá breytingu sem hann óskar eftir nú. Engar kvartanir eða athugasemdir hafa borist Akraneskaupstað frá nágrönnum eða öðrum í kjölfar slíkra viðburða. Það breytir þó ekki þeirri meginforsendu að núverandi fyrirkomulag veitir umsagnaraðilum tækifæri til að láta uppi afstöðu til umsókna um lengingu opnunartíma.

Samþykkt 3:0

 

11. 2604-2898 - Sveitarstjórnarkosningar 16.05.2026

Sveitarstjórnarkosningar fara fram þann 16. maí nk. og verða í Grundaskóla. Minnisblað sviðsstjóra vegna framkvæmdar kosninganna o.fl. lagt fram.

Bæjarráð samþykkir tillögu sviðsstjóra fjármála- og þjónustudeildar um launagreiðslur til starfsmanna kjörstjórna og annarra þeirra sem koma að framkvæmd kosninganna.Á kjörskrá á Akranesi á viðmiðunardegi þann 8. apríl sl. voru samals 6.296 einstaklingar.

Samþykkt 3:0

 

12. 2605-3554 - Mannauðsstefna Akraneskaupstaðar

Mannauðsstefna Akraneskaupstaðar hefur verið til vinnslu um nokkurn tíma í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar. Lögð fram til kynningar.

Bæjarráð vísar mannauðsstefnunni til umfjöllunar í fagráðum og nefndum Akraneskaupstaðar.

Samþykkt 3:0

 

13. 2605-3526 - Frítt í Guðlaugu - Gönguhátíð á Akranesi - Frá fjalli til fjöru 20.06.2026

Fyrirhugaður er viðburðurinn Gönguhátíð á Akranesi - frá fjalli til fjöru þann - þann 20. júní nk.

Bæjarráð samþykkir að þáttakendur fái gjafabréf í Guðlaugu.

Samþykkt 3:0

 

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu