Fara í efni  

Bæjarráð

3622. fundur 16. apríl 2026 kl. 08:15 - 11:55 Lindin, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Líf Lárusdóttir formaður bæjarráðs
  • Valgarður L. Jónsson varaformaður
  • Ragnar B. Sæmundsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Steinar Adolfsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson bæjarstjóri

1. 2603-2455 - Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2025 - A hluti

Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2024 - A hluti. Ársreikningar Aðalsjóðs, Eignarsjóðs, Byggðarsafnsins í Görðum og Fasteignafélags Akraneskaupstaðar slf. Kristjana Helga Ólafsdóttir fjármálastjóri, situr fundinn undir þessum dagskrárlið sem og undir liðum nr. 2 og nr. 3.

Bæjarráð staðfestir ársreikninga Aðalsjóðs og Eignasjóðs með undirritun sinni og leggur til við bæjarstjórn að ársreikningar Aðalsjóðs, Eignasjóðs, Byggðasafnsins í Görðum og Fasteignafélags Akraneskaupstaðar slf. vegna ársins 2025 verði samþykktir

Samþykkt 3:0

 

2. 2603-2456 - Ásreikningur Akraneskaupstaðar 2025 - B hluti

Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2024 - B hluti. Ársreikningar Fasteignafélag Akraneskaupstaðar ehf., Gámu, Háhita ehf og Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis.

Bæjarráð staðfestir ársreikning Gámu með undirritun sinni og leggur til við bæjarstjórn Akraness að ársreikningar Fasteignafélagsins ehf., Gámu, Háhita ehf. og Höfða hjúkrunar og dvalarheimilis vegna ársins 2025 verði samþykktir.

Samþykkt 3:0

 

3. 2604-2982 - Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2025 – Samstæða

Samstæðureikningur Akraneskaupstaðar 2025.

Bæjarráð staðfestir samstæðuársreikning Akraneskaupstaðar 2025 með undirritun sinni og leggur til við bæjarstjórn að reikningurinn verði samþykktur.

Samþykkt 3:0

Kristjana Helga Ólafsdóttir víkur af fundi.

 

4. 2603-2527 - Ársreikningur 2025 - Heilbrigðiseftirlit Vesturlands

Ársreikningur HEV fyrir árið 2025.

Lagt fram.

 

5. 2604-2974 - Stefna og viðbragðsáætlun í EKKO málum

Drög að stefnu og viðbragðsáætlunar Akraneskaupstaðar í EKKO málum.

Bæjarráð vísar stefnunni til umfjöllunar í fagráðum og nefndum Akraneskaupstaðar.

Samþykkt 3:0

 

6. 2505-1611 - Breytingar á verklagsreglum leikskólanna 2025

Skóla- og frístundaráð samþykkir breytingu á ákvæði 3.6. í verklagsreglum um starfsemi leikskóla, sem tekur til niðurfellingar fæðis- og dvalargjalda þegar foreldrar skrá börn í sumarleyfi samfelld í 5 vikur eða lengur í tengslum við sumarlokun leikskólana. Áður var aðeins hægt að fá gjöld felld niður fyrir eina viku umfram sumarlokunartímann. Málinu var vísað til bæjarráðs til afgreiðslu.

Dagný Hauksdóttir sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið sem og undir dagskrárliðum 7 til og með 10.

Bæjarráð samþykkir breytingu á verklagsreglum um starfsemi leikskóla og vísar málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Samþykkt 3:0

 

7. 2603-2697 - Reglur Akraneskaupstaðar um skólaakstur í grunnskóla

Í samræmi við lög um grunnskóla er það á ábyrgð sveitarfélaga að nemendur komist í skóla á öruggan og viðunandi hátt og getur skólaakstur verið liður í að tryggja slíkt. Hvert sveitarfélag setur sér reglur og viðmið um skólaakstur sem byggja á reglugerð nr. 656/2009. Samkvæmt þeim reglum sem hér eru lagðar fram til afgreiðslu, er gert ráð fyrir að skólaakstur á Akranesi sé með tvennum hætti; með gjaldfrjálsum almenningsvögnum eða með sérstökum greiðslum til foreldra fyrir eigin akstur að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Miðað er við að fjarlægð frá heimili að hverfisskóla sé að lágmarki 2 kílómetrar (radíus), að leiðin falli utan almenningssamgöngukerfis sveitarfélagsins og að ekki sé fyrir hendi örugg gönguleið frá heimili að skóla. Uppfylla þarf öll skilyrði til að eiga rétt á greiðslum. Skóla- og frístundaráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu hjá bæjarráði.

Bæjarráð samþykkir reglur Akraneskaupstaðar um skólaakstur í grunnskóla og vísar þeim til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Samþykkt 3:0

 

8. 2601-0034 - Leikskólamál - Valkostagreining 2025-2026

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs nr. 349 þann 30. mars sl. fjallaði ráðið um málið og var farið yfir kynningu á byggingarlausnum vegna fyrirhugaðrar stækkunar Akrasels og var fundurinn sameiginlegur dagskrárliður með skóla- og frístundaráði. Ráðin voru sammála um að hefja undirbúning að útboði og fól skipulags- og umhverfisráð sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna málið hratt áfram. Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið sem og undir dagskrárliðum nr. 9 til og með 11.

Bæjarráð staðfestir vilja sinn um fyrirhugaða stækkun Akrasels og að um þrjár deildir sé að ræða.

Bæjarráð vísar málinu til áframhaldandi úrvinnslu skipulags- og umhverfisráðs.

Samþykkt 3:0

 

9. 2602-1702 - Beiðni um endurskoðun samninga - Golfklúbburinn Leynir

Sameiginlegur dagskrárliður skóla- og frístundaráðs og bæjarráðs þann 26. mars sl. Daníel Sigurðsson Glad forstöðumaður íþróttamannvirkja, Rakel Óskarsdóttir framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis, Hróðmar Halldórsson formaður og Óli B. Jónsson varaformaður Golfklúbbsins Leynis sátu fundinn undir dagskrárliðnum. Bókun fundar skóla- og frístundaráðs: Skóla- og frístundaráð og bæjarráð lýsa yfir vilja til að vinna markvisst að mótun framtíðarstækkunar Garðavallar í samstarfi við Golfklúbbinn Leyni og undirrita yfirlýsingu þess efnis. Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs er falið, í samráði við skipulags- og umhverfisráð, að skipa vinnuhóp um verkefnið. Í vinnuhópnum eigi sæti fulltrúi frá skipulags- og umhverfissviði, fulltrúi frá Leyni, hönnuður fyrir hönd Akraneskaupstaðar og hönnuður GL. Hlutverk hópsins er að móta og skila hugmyndum og tillögum að áfangaskiptri framtíðarstækkun golfvallarins.

Bæjarráð staðfestir vilja sinn til að vinna markvisst að mótun framtíðarstækkunar Garðavalla og að formgera viljayfirlýsingu þess efnis á milli Akraneskaupstaðar og Golfklúbbsins Leynis (GL). Ákvæði sveitarstjórnarlaga gera ráð fyrir að umboð skipaðra vinnuhópa falli sjálfkrafa niður við lok kjörtímabils og því til staðar ákveðinn ómöguleiki við að fara þá leið miðað við að sveitarstjórnarkosningar fara fram þann 16. maí nk. Bæjarráð vísar málinu til skipulags- og umhverfisráðs til áframhaldandi vinnu í samræmi við þann vilja og hugmyndir sem bókaðar voru á fundi skóla- og frístundaráðs þann 26, mars sl. Útfært verði vinnulag á milli ráðsfunda skipulags- og umhverfisráðs, sem sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs stýri og kalli til hönnuð fyrir hönd Akraneskaupstaðar sem vinni málið áfram í samstarfi við hönnuð GL.

Samþykkt 3:0

 

10. 2604-2862 - Kirkjugarður Akraness - kostnaður við jarðvegsskipti

Erindi frá Akraneskirkju/Kirkjugörðum Akraness um fjárstuðning vegna jarðvegsskipta o.fl. Til grundvallar óskinn eru gildandi viðmiðunarreglur Kirkjugarðsráðs og Sambands íslenskrar sveitarfélaga um kirkjugarðsstæði og fleira frá 1. júlí 2015.

Bæjarráð samþykkir erindið og fjárframlag að fjárhæð kr. 2.712.000. Útgjöldunum er mætt af með úthlutun fjármagns af deild 20830-4995 að fjárhæð kr. 2.712.000 og fært á deild 11230-4636.

Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 5 vegna framangreindrar ráðstöfunar og vísar til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Samþykkt 3:0

 

11. 2603-2037 - Stofnframlög 2026 - Brynja leigufélag ses.

Bæjarstjórn samþykkti stofnframlag Akraneskaupstaðar vegna umsóknar Brynju leigufélags ses. á fundi nr. 1432 þann 14. apríl sl.

Bæjarráð vísar frekari úrvinnslu til velferðar- og mannréttindaráðs.

Samþykkt 3:0

 

12. 2602-1860 : Fjöliðjan - aukið rými á Smiðjuvöllum

Málið hefur verið til úrvinnslu í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar og var tekið fyrir á fundi bæjarráðs nr. 3621 þann 26. mars sl. og frestað til næsta fundar.

Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við leigusalann miðað við fyrirliggjandi boð um leiguverð. Málið komi að nýju fyrir ráðið er endanleg samningsdrög liggja fyrir.

Samþykkt 3:0

 

13. 2604-2850 - Stefna í málefnum fatlaðs fólks

Velferðar- og mannréttindaráð hefur haft á sinni stefnuskrá að unnin verði stefna í málefnum fatlaðs fólks. Önnur sveitarfélög á Vesturlandi hafa einnig hug á gerð slíkrar stefnu. Stjórnendur í velferðarþjónustu á Vesturlandi hafa rætt um hvort grundvöllur sé fyrir gerð sameiginlegrar stefnu í málefnum fatlaðs fólks á Vesturlandi, sem hvert sveitarfélag eða svæði myndi í framhaldinu taka áfram og staðfæra. Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 13. apríl sl. var eftirfarandi bókað: Velferðar- og mannréttindaráð telur að stefna í málefnum fatlaðs fólks sé verkefni sem skynsamlegt væri að vinna í samvinnu við önnur sveitarfélög á Vesturlandi og sviðsstjóra falið umboð til áframhaldandi samtals.

Bæjarráð er fylgjandi því að stefna í málefnum fatlaðs fólks sé unnin í samvinnu við önnur sveitarfélög á Vesturlandi og eðlilegast að það sé gert undir hatti Samtaka sveitarfélaganna.

Samþykkt 3:0

 

14. 2601-0726 - Akstursþjónusta Akraneskaupstaðar 2024

Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 13. apríl sl. var áframhaldandi umræða um akstursþjónustu Akraneskaupstaðar frá síðasta fundi ráðsins. Minnisblað starfsmanna lagt fram. Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 13. apríl sl. var gerð eftirfarandi bókun: Velferðar- og mannréttindaráð hvetur til þess að útboðsleið verði skoðuð að nýju en jafnframt verði brugðist við þeim vanda sem snýr að bílaflota þjónustunnar.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra velferðar- og mannréttindasviðs frekari úrvinnslu málsins.

Samþykkt 3:0

 

15. 2604-2820 - Tækifærisleyfi - Konu- og karlakvöld KFÍA 30.04.2026

Sýslumaðurinn á Vesturlandi óskar eftir umsögn vegna umsóknar um tækifærisleyfi fyrir Konu- og karlakvöld KFÍA þann 30.04.2026. Viðburðurinn (dansleikur) er fyrihugaður í íþróttahúsinu Vesturgötu 130 þann 30. apríl nk. og á að standa frá kl. 18:00 til kl. 02:30 aðfararnótt 1. maí nk. Gert er ráð fyrir allt að 300 manns.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins til umsækjanda með fyrirvara um jákvæðar umsagnir annarra umsagnaraðila, þ.e. Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, slökkviliðsstjóra og lögreglunnar á Vesturlandi.

Samþykkt 3:0

 

16. 2604-2945 - Tækifærisleyfi - Lokaball FVA 30.04.2026

Tækifærisleyfi - lokaball FVA 30. apríl 2026. Viðburðurinn er fyrirhugaður í Fjölbrautarskóla Vesturlands, Vogabraut 5 þann 30. apríl nk. frá kl. 21:00 - 00:00 og áætlaður gestafjöldi er 220 manns.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins til umsækjanda með fyrirvara um jákvæðar umsagnir annarra umsagnaraðila, þ.e. Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, slökkviliðsstjóra og lögreglunnar á Vesturlandi.

Samþykkt 3:0

 

17. 2604-2999 - Tækifærisleyfi - Útgerðin bar - 01.05.2026

Umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Vesturlandi vegna umsóknar um tækifærisleyfi um lengda opnun 1. maí næstkomandi á Útgerðinni bar og að opið verði til kl. 04:00.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins til umsækjanda með fyrirvara um jákvæðar umsagnir annarra umsagnaraðila, þ.e. Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, slökkviliðsstjóra og lögreglunnar á Vesturlandi.

Samþykkt 3:0

 

18. 2603-2516 - 530. mál - Lax og silungsveiði o.fl. - Frestur til 10.04.2026

Frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis - Til umsagnar 530. mál - Lax- og silungsveiði o.fl. - Frestur til og með 10.04.2026.

Lagt fram.

 

19. 2603-2515 - 529. mál - Lagareldi - Frestur til 10.04.2026

Frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis - Til umsagnar 529. mál - Lagareldi - Frestur til og með 10.04.2026

Lagt fram.

 

20. 2603-2529 - 535. mál - Innviðafélag - Frestur til 10.04.2026

Til umsagnar frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis mál 535. - Innviðafélag - Frestur til og með 10.04.2026

Lagt fram.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að tryggja að umsagnir Akraneskaupstaðar sem settar voru fram um málið er þær voru í samráðsgátt stjórnvalda skili sér til nefnda- og greiningarsviðs Alþingis.

Samþykkt 3:0

 

21. 2603-2561 - 565. mál - Verndar- og orkunýtingaráætlun ( vindorka og verndarflokkur ) Frestur til 14.04.2026

Til umsagnar 565.mál – verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur) - Frestur til og með 14.04.2026.

Lagt fram.

 

22. 2603-2615 - 582. mál - Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits)

Til umsagnar 582. mál - einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits)- Frestur til og með 165.04. 2026.

Lagt fram.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að tryggja að umsagnir Akraneskaupstaðar sem settar voru fram um málið er þær voru í samráðsgátt stjórnvalda skili sér til nefnda- og greiningarsviðs Alþingis.

Samþykkt 3:0

 

23. 2603-2626 - 568. mál - Stofnun atvinnuveganna - Frestur til 15.04.2026

Til umsagnar 568. mál - Stofnun atvinnuveganna - Frestur til og með 15.04.2026.

Lagt fram.

 

24. 2604-2955 - Skógarlundur 30 - Umsókn um lóð

Trésmiðjan Akur ehf sækir um lóðina Akralundur 30.

Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar til umsækjanda.

Samþykkt 3:0

 

25. 2604-2954 - Skógarlundur 32 - Umsókn um lóð

Trésmiðjan Akur ehf sækir um lóðina Skógarlundur 32.

Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar til umsækjanda.

Samþykkt 3:0

 

26. 2604-2952 - Skógarlundur 34 - Umsókn um lóð

Trésmiðjan Akur ehf sækir um lóðina Skógarlundur 34.

Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar til umsækjanda.

Samþykkt 3:0

 

 

 

Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu