Bæjarráð
|
1. 2603-2485 - Mánaðayfirlit 2026 Mánaðayfirlit janúar 2026. Kristjana Helga Ólafsdóttir fjármálastjóri situr fundinn undir þessum dagskrárlið. Lagt fram. Bæjarráð óskar eftir að unnin verði tiltekin greining vegna launafrávika sem yfirlitið ber með sér. Kristjana Helga Ólafsdóttir víkur af fundi.
|
|
2. 2601-0227 : Hvalfjarðarsveit - þjónustusamningur við Akraneskaupstað vegna bókasafns Málið hefur verið til úrvinnslu í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar og fulltrúar sveitarfélaganna hafa hist á vinnufundum. Dagný Hauksdóttir sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að þjónustusamningi við Hvalfjarðarsveit vegna Bókasafns Akraness og vísar málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.
Samþykkt 3:0
Bæjarráð lýsir yfir ánægju með niðurstöðuna og telur samninginn feli í sér tækifæri fyrir bæði sveitarfélögin til eflingar því mikilvæga menningarstarfi sem fram fer á vegum safnsins. íbúum til heilla.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samninginn með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar.
Samþykkt 3:0
Dagný Hauksdóttir víkur af fundi.
|
|
3. 2602-1377 - Úttekt á upplýsingatæknimálum Akraneskaupstaðar - Október 2025 Úttekt á upplýsingamálum Akraneskaupstaðar sem framkvæmd var í október sl. hefur verið í rýningu á fjármála- og þjónustusviði frá þeim tíma. Jóhann Guðmundsson kerfisstjóri Akraneskaupstaðar situr fundinn undir þessum dagskrárlið. Bæjarráð þakkar greinargóða kynningu á efnisatriðum skýrslunnar og felur sviðsstjóra fjármála- og þjónustusviðs og kerfisstjóra frekari úrvinnslu málsins.
Samþykkt 3:0
Jóhann Guðmundsson víkur af fundi.
|
|
4. 2603-1888 - Mannauðs- og launakerfi - Kynningar og val á kerfi Mannauðs- og launadeild hefur haft til skoðunar að taka upp nýtt launakerfi - Kjarni - í stað núverandi launakerfis frá WISE (BC) sbr. fyrirliggjandi minnisblað mannauðsstjóra. Harpa Hallsdóttir mannauðsstjóri situr fundinn undir þessum lið. Bæjarráð samþykkir og heimilar að tekið verði upp nýtt launakerfi. Bæjarráð leggur áherslu á að vandað verði vel til innleiðingarinnar og að áform um kostnað standist. Þá þarf að gæta að uppsagnarákvæðum vegna eldra kerfis. Bæjarráð samþykkir viðbótarútgjöld sem af verkefninu skapast en þar vegur þyngst einskiptiskostnaður í innleiðingarferlingu enda kemur til frádráttar þjónstugjöldum kerfisins kostnaður sem tengist núverandi launakerfi ásamt ýmsum afleiddum kostnaði.
Bæjarráð samþykkir viðbótarfjárveitingu vegna verkefnisins, samtals að fjárhæð kr. 5.191.500.
Samþykkt 3:0
Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 5 vegna framangreinds sem færist á deild 21670-4992, er mætt með lækkun á áætluðum rekstrarafgangi ársins 2026 og vísar málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.
Samþykkt 3:0
Harpa Hallsdóttir víkur af fundi.
|
|
5. 2601-1079 : Fjöliðjan - húsnæðismál / Smiðjuvellir 9 frjáls skráning leigusala Undirrituð gögn lögð fyrir bæjarráð sem og umsókn um viðauka vegna viðbótarútgjalda sem óhjákvæmilega falla til vegna leigu á stærra rými en var í fyrri leigusamningi. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi húsasleigusamning og samþykki á frjálsri skráningu leigusala sem og viðauka nr. 6 vegna þeirra viðbótaútgjalda sem af málinu leiða.
Samþykkt 3:0
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar. Um er að ræða viðbótarútgjöld að fjárhæð kr. 2.112.000 sem er mætt af deild 20830-4995 og færist á tilteknar deildir í málaflokki 02 samkvæmt fyrirliggjandi fylgiskjali.
Samþykkt 3:0
|
|
6. 2602-1860 : Fjöliðjan - aukið rými á Smiðjuvöllum Á fundi bæjarráðs þann 12. mars 2026 fól sviðsstjóra fjármála- og þjónustusviðs frekari úrvinnslu málsins sem komi að nýju fyrir næsta fund ráðins þann 26. mars nk. Málið er enn til úrvinnslu í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar og afgreiðslu þess frestað til næsta fundar.
Samþykkt 3:0
|
|
7. 2603-2021 - Umsókn um lóð - Freyjugata 1 Freyjugata ehf. sækir um lóðina Freyjugata 1 á Sementsreit. Bæjarráð samþykkir úthlutun byggingarlóðarinnar til umsækjanda.
Samþykkt 3:0
|
|
8. 2602-1295 - Reglur um leigu á íbúðum Akraneskaupstaðar - endurskoðun Reglurnar hafa verið til endurskoðunar í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar. Velferðar- og mannréttindaráð hefur afgreitt reglurnar og eru hér með lagðar fyrir bæjarráð. Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindaráðs situr fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið sem og undir liðum nr. 9 og nr. 10. Bæjarráð samþykkir endurskoðaðar reglur um leigu á íbúðum Akraneskaupstaðar og vísar þeim til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.
Samþykkt 3:0
|
|
9. 2602-1607 : Tímabundinn samningur um akstur með heimsendan mat 01.03.2026 - 28.02.2027 Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum þann 12. mars sl. og vildi eiga kost á að fara yfir málið með sviðsstjóra velferðar- og mannréttindasviðs. Bæjarráð samþykkir tillögu sviðsstjóra um samningsforsendur vegna þjónustunnar. Gæta þarf að tímalengd samningsins og gera ráð fyrir að uppsagnarákvæði ef forsendur breytast með tilliti til mögulegrar verðkönnunar eða nýs útboðs.
Samþykkt 3:0
|
|
10. 2603-2037 : Stofnframlög 2026 - Brynja leigufélag ses. Málið var afgreitt á fundi bæjarráðs þann 12. mars sl. og er til endanlegrar afgreiðslu hjá bæjarstjórn. Bæjarráð óskaði eftir að eiga kost á yfirferð sviðsstjóra velferðar- og mannréttindasviðs um mögulega útfærslu samstarfsins við Brynju leigufélag ses. Bæjarráð felur sviðsstjóra frekari úrvinnslu málsins í samvinnu við Brynju leigufélag ses.
Samþykkt 3:0
|
|
11. 2601-0228 - Sementsverksmiðjan - áframhaldandi rekstur 2409322 Málið hefur verið til úrvinnslu í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar í talsverðan tíma í samvinnu fulltrúa Akraneskauptstaðar og fulltrúa Sementsverksmiðjunnar. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi viljayfirlýsingu, leigusamning um mannvirki og fylgigögn og vísar málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.
Samþykkt 3:0
Málið hefur verið unnið í góðri samvinnu og liggur nú fyrir ásættanleg lausn sem tryggir birgðahald Björgunar Sements á Akranesi á meðan unnið er að næstu skrefum í málinu. Sú breyting er gerð að samningur um afhendingu mannvirkja á svæðinu verður framlengdur til 1. ágúst 2030 í stað 1. ágúst 2028, eins og gert var ráð fyrir í fyrri samningi, gegn leigugjaldi fyrir afnot af tilteknum mannvirkjum. Jafnframt eru skipulagsáform Akraneskaupstaðar á þessum hluta Sementsreits óbreytt.
Samhliða þessu hafa farið fram góðar viðræður við Hornstein, móðurfélag Björgunar Sements og BM Vallár, um frekari uppbyggingu starfsemi BM Vallár í Höfðaseli. Nú þegar hefur smávöruframleiðsla verið flutt til Akraness með tilheyrandi fjölgun starfa, og áfram er unnið að frekari vexti starfseminnar í Höfðaseli.
Bæjarráð fagnar því samkomulagi sem náðst hefur og því góða samstarfi sem að baki því býr. Samkomulagið felur í sér jákvæð áhrif fyrir atvinnulíf á Akranesi, með fjölgun starfa og eflingu mikilvægrar starfsemi í bænum.
|
|
12. 2603-2448 - Lóðaleigusamningur - Beiðni um endurnýjun á samningi um afnot af landi Eldri samningur rann út í desember 2024 og því komið að endurnýjun. Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjórum fjármála- og þjónustusviðs og skipulags- og umhverfissviðs frekari úrvinnslu málsins.
Samþykkt 3:0
|
|
13. 2601-0072 - Skammtímadvöl á Vesturlandi Sveitarfélögin á Vesturlandi undirbúa stofnun félags um skammtímavistun fyrir börn í húsnæði Holts í Borgarbyggð en húsnæðið er í eigu Þroskahjálpar. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hefur f.h. sveitarfélaganna gert verksamning við Miðháls slf. og er markmiðið að taka saman og vinna gögn sem lögð verða fyrir sveitarstjórnir til endanlegrar ákvörðunar. Verksamningurinn er nú lagður fram til samþykktar. Málið var tekið fyrir á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 24. mars 2026 og samþykkti ráðið samninginn og vísaði málinu til bæjarráðs. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning og vísar honum til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.Gert er ráð fyrir að útgjöldunum verði mætt af fjárheimildum bæjarstjórnar á deild 21010.
Samþykkt 3:0
|
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





