Bæjarráð
|
1. 2602-1702 : Beiðni um endurskoðun samninga - Golfklúbburinn Leynir Fulltrúar Golfklúbbsins Leynis fylgdu eftir erindi um endurskoðun samninga við Akraneskaupstað á fund skóla- og frístundaráðs 4. mars s.l. Ráðið vísaði málinu til umfjöllunar hjá bæjarráði og gerði það að tillögu sinni að málið verði unnið í samstarfi beggja ráða. Fulltrúar Golfklúbbsins mæta á fund bæjarráðs. Dagný Hauksdóttir sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið sem og undir dagskrárliðum nr. 2 og nr. 3. Bæjarráð þakkar forsvarsmönnum Golfklúbbsins Leynis fyrir komuna á fundinn.Bæjarráð er ekki reiðubúið að fara í endurskoðun á fyrirliggjandi samningi um rekstur Garðavalla sem endurnýjaður var á árinu 2019. Margt hefur vissulega breyst á þeim tíma sem liðinn er frá árinu 2019 en þá var framlagið hækkað um 6 m.kr. og tekur samningurinn árlegum breytingum skv. hækkun neysluverðsvísitölu til verðtryggingar. Varðandi endurskoðun á fyrirliggjandi samningi vegna uppbyggingar Frístundamiðstöðvar er bæjarráð jákvætt fyrir samtalinu og hyggst funda með fulltrúum GL í næstu viku um þann þátt sem og fyrirhugað samstarf við Golfsambands Íslands um að á Akranesi rísi þjóðarleikvangur í golfi. Samþykkt 3:0
|
|
2. 2601-0653 : Bíóhöllin - Útboð og samningur 2026 - 2029 (rekstur og umsjón) Útboð vegna reksturs Bíóhallarinnar hefur verið til úrvinnslu í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðsgögn og felur sviðsstjórum skóla- og frístundasviðs, skipulags- og umhverfissviðs og fjármála- og þjónustusviðs frekari úrvinnslu málsins. Samþykkt 3:0
|
|
3. 2601-0227 : Hvalfjarðarsveit - þjónustusamningur við Akraneskaupstað vegna bókasafns Drög að samstarfssamningi milli Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar um rekstur á Bókasafni Akraness lagður fram en fulltrúar sveitarfélaganna hittust 5. mars sl. og fyrirhugaður er fundur síðar í dag. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samningsdrög og gerir ráð fyrir að endanleg drög komi til samþykktar á næsta fundi ráðsins þann 26. mars nk. Samþykkt 3:0 Dagný Hauksdóttir víkur af fundi.
|
|
4. 2603-2089 : Opið bókhald Fjármálastjóri gerir grein fyrir stöðu verkefnisins. Kristjana Helga Ólafsdóttir fjármálastjóri situr fundinn undir þessum dagskrárlið sem og undir dagskrárlið nr. 5. Bæjarráð þakkar fjármálastjóra fyrir yfirferð málsins.Gert er ráð fyrir að verkefnið klárist á næstu misserum og stefnt að "opnun" þess á vormánuðum en bæjarráð leggur áherslu á að verkefnið klárist eins fljótt og mögulegt er. Samþykkt 3:0
|
|
5. 2603-2088 : Sjóðsstreymisáætlanir Verið er að innleiða gerð sjóðsstreymisáætlana í fjármála- og innkaupadeild. Fjármálastjóri sýnir "demo" útgáfu af forminu sem notað verður. Bæjarráð lýsir yfir ánægju sinni með þessa vinnu og gerir ráð fyrir til framtíðar litið að þetta verði hluti af reglubundnum kynningum fjármálastjóra í bæjarráði við yfirferð mánaðaryfirlita eða ársfjórðungsuppgjöra. Samþykkt 3:0 Kristjana Helga Ólafsdóttir víkur af fundi.
|
|
6. 2603-2001 : SSV - Aðalfundarboð 25. mars 2026 Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi boða til aðalfundar á Hótel Borgarnesi þann 25. mars n.k. Lagt fram. Fulltrúar Akraneskaupstaðar á aðalfundinum verða bæjarfulltrúarnir Líf Lárusdóttir, Ragnar B. Sæmundsson, Valgarður L. Jónsson, Einar Brandsson og Liv Aase Skarstad en einnig mun Haraldur bæjarstjóri sitja fundinn.
|
|
7. 2603-2017 : Sorpurðun Vesturlands - Aðalfundarboð 25. mars 2026 Sorpurðun Vesturlands boðar til aðalfundar miðvikudaginn 25. mars 2026 að Hótel Hamri í Borgarnesi Lagt fram. Haraldur Benediktsson sækir aðalfund Sorpurðunar Vesturlands og fer þar með atkvæðarétt Akraneskaupstaðar. Samþykkt 3:0
|
|
8. 2603-2037 : Stofnframlög 2026 - Brynja leigufélag ses. Brynja leigufélag ses. óskar eftir stofnframlagssamningi við Akraneskaupstað vegna kaupa á íbúðum á Akranesi. Bæjarráð samþykkir stofnframlag Akraneskaupstaðar vegna umsóknar Brynju leigufélags ses. til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar þann 5. mars. sl. vegna fyrirhugaðra kaupa á þremur íbúðum fyrir öryrkja á Akranesi. Áætlað heildarstofnvirði íbúðanna er um 180,2 m.kr. og nemur 12% hlutur Akraneskaupstaðar um 21,6 m.kr. sem er í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun vegna ársins 2026. Bæjarráð vísar endanlegri ákvörðun til bæjarstjórnar Akraness og mun niðurstaða þessa liggja fyrir í kjölfar fundar bæjarstjórnar þann 24. mars nk. Samþykkt 3:0
|
|
9. 2602-1860 : Fjöliðjan - aukið rými á Smiðjuvöllum Borist hefur beiðni um heimild til að taka á leigu viðbótarrými fyrir Fjöliðjuna meðal annars til að mæta þörfum stækkandi hóps og ólíkra stuðningsþarfa. Minnisblað yfirþroskaþjálfa lagt fram. Bókun velferðar- og mannréttindaráðs 3. mars 2026. Velferðar- og mannréttindaráð tekur jákvætt í erindið og vísar því áfram til umfjöllunar í bæjarráði Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og þjónustusviðs frekari úrvinnslu málsins sem komi að nýju fyrir næsta fund ráðins þann 26. mars nk. Samþykkt 3:0
|
|
10. 2601-1079 : Fjöliðjan - húsnæðismál / Smiðjuvellir 9 frjáls skráning leigusala Lokagögn vegna áframhaldandi leigu Fjöliðjunnar á Smiðjuvöllum 9. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi lokagögn og fela sviðsstjóra fjármála- og þjónustusvið frekari úrvinnslu málsins. Samþykkt 3:0
|
|
11. 2602-1440 : Ægisbraut 2-4 - leigusamningur Bæjarráð afgreiddi málið á fundi sínum nr. 3619 þann 26. febrúar sl. Svar viðsemjanda liggur fyrir sbr. póst þess efnis. Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið sem og undir dagskrárliðum nr. 12 til og með nr. 14. Bæjarráð felur bæjarstjóra frekari úrvinnslu málsins og lúkningu þess með undirritun leigusamnings. Samþykkt 3:0
|
|
12. 2601-0244 : Samningsgögn um kaup á Suðurgötu 57 og lóð Suðurgötu 47. 2510186 Vegna atriði sem höfundarréttarvernd arkitekta er nauðsynlegt að endurskoða fyrirliggjandi samning sem samþykktur var í bæjarstjórn þann 15. janúar sl. Einnig hafa komið fram ábendingar og athugasemdir frá kaupanda sem rétt þykir að koma til móts við og taka ný gögn mið af þessu. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að endurskoðuðum kaupsamningi og vísar málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar. Samþykkt 3:0
|
|
13. 2601-1007 - Umsókn um lóð á Grænum iðngörðum Beiðni frá lóðarhafa í tengslum við fyrirhugaða uppbyggingu - minnisblað frá 4. mars 2026. Bæjarráð er jákvætt fyrir erindinu og felur bæjarstjóra frekari úrvinnslu málsins. Samþykkt 3:0
|
|
14. 2602-1449 : Jaðarsbakkar klefar íþróttahúss - Skilrúm og augnskanni Sameiginlegur liður frá forstöðumanni íþróttamála- og íþróttamannvirkja og framkvæmdarstjóra ÍA varðandi skipulag og nýtingu á búningsklefum í nýja íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum. Skipulags- og umhverfisráð fjallaði um málið á 345. fundi ráðsins þann 16. febrúar sl.,tók jákvætt í erindið og vísaði því til umfjöllunar í bæjarráði. Bæjarráð óskar eftir að ráðist verði í frekari verðkönnun og afgreiðslu málsins frestað til næsta fundar sem haldinn verður þann 26. mars nk. Samþykkt 3:0
|
|
15. 2602-1607 : Tímabundinn samningur um akstur með heimsendan mat 01.03.2026 - 28.02.2027 Beiðni um framlengingu á samningi við verktaka varðandi heimsendan mat. Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs var málinu vísað til afgreiðslu í bæjarráði. Afgreiðslu málsins frestað til næsta fundar bæjarráðs. Samþykkt 3:0
|
|
16. 2603-2077 : 499. mál - Varnir gegn sjóflóðum og skriðuföllum og Vegagerðin, framkvæmdastofnun samgöngumála (markmið nýting eigna, framkvæmdaumsjón) - Frestur til 19.03.2026 Mál til umsagnar frá Alþingi nr. 499 – Varnir gegn sjóflóðum og skriðuföllum og Vegagerðin, framkvæmdastofnun samgöngumála Lagt fram.
|
|
17. 2603-2018 : 505. mál – Sveitarstjórnarlög - Frestur til 20.03.2026 Mál til umsagnar frá Alþingi nr. 505 - Sveitarstjórnarlög Lagt fram. Frumvarpið fer í nánari rýningu í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar. Samþykkt 3:0
|
|
18. 2603-1893 : Slysaskráningarkerfi ATVIK - Kynning og val á kerfi Til skoðunar hefur verið að taka upp sérstakt slysaskráningarkerfi en lagaskylda hvílir á kaupstaðnum að tryggja utanumhald varðandi slys sem verða í starfsemi hans á starfsfólki og þjónustuþegum. Harpa Hallsdóttir mannauðsstjóri situr fundinn undir þessum dagskrárlið sem og undir dagskrárlið nr. 22. Bæjarráð samþykkir erindið og felur sviðsstjóra fjármála- og þjónustusviðs að ganga til samninga við þjónustuveitanda um upptöku kerfisins hjá Akraneskaupstað og að málið komið að nýju fyrir bæjarráð er formleg samningsdrög liggja fyrir. Samþykkt 3:0
|
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





