Bæjarráð
|
1. 2602-1792 : Afskriftir 2025 Erindi frá Sýslumanninum á Vesturlandi varðandi afskriftir skulda. Kristjana Helga Ólafsdóttir fjármálastjóri situr fundinn undir þessum dagskrárlið. Bæjarráð samþykkir erindi sýslumannsins á Vesturlandi um afskriftir sem tekur til fyrndra krafna vegna álagðra opinberra gjalda sem þrátt fyrir ítrekaðar innheimtutilraunir og e.a. árangurlaust fjárnám hafa ekki innheimst. Einnig tekur erindið til fyrndra krafna gjaldþrota- og dánarbúa. Elstu kröfurnar eru frá árinu 2016. Samtals eru þessar kröfur að fjárhæð 88.390.538. Samþykkt 3:0 Kristjana Helga Ólafsdóttir víkur af fundi.
|
|
2. 2602-1506 - Lánasjóður sveitarfélaga - Auglýst eftir framboðum til stjórnar og varastjórnar Lánasjóður sveitarfélaga auglýsir eftir framboðum til stjórnar og varastjórnar, framboðsfrestur er til kl. 12 á hádegi þann 27. febrúar 2026. Lagt fram.
|
|
3. 2602-1375 - Aðgerðaráætlun um þjónustu við fólk með heilabilun Verktakasamningur við aðila sem sinnt hefur þjónustu við fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra rennur út 28. febrúar 2026. Óskað er eftir heimild til að framlengja samninginn út árið 2026. Heildarkostnaður fyrir árið 2026 verður að hámarki 2.880.000 kr. Velferðar- og mannréttindaráð telur mikilvægt að standa vörð um þessa þjónustu við fólk með heilabilun og mælir með áframhaldandi fjárveitingu til verkefnisins. Málinu vísað til afgreiðslu í bæjarráði ásamt viðauka. Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindarsviðs og Sveinborg Kristjánsdóttir deildarstjóri farsældar fullorðinna sitja fundinn undir þessum dagskrárlið. Bæjarráð samþykkir viðbótarútgjöld samtals að fjárhæð kr. 2.880.000 til að standa straum af kostnaði vegna þjónustu til fólks sem glímir við heilabilun og aðstandenda þeirra. Útgjöldunum er mætt með úthlutun fjármagns af deild 20830-4995 og fært á deild 02530-4980. Samþykkt 3:0 Bæjarráð samþykkir viðauka að fjárhæð kr. 2.880.000 vegna framangreindrar ráðstöfunar og vísar málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar. Samþykkt 3:0
|
|
4. 2602-1216 - Fjöliðjan - sumarafleysingar 2026 Beiðni um heimild til að ráða tvo sumarafleysinga starfsmenn í Fjöliðjuna í þrjá mánuði. Beiðnin kemur til þar sem farið hefur verð fram á það við forstöðumann að hafa Fjöliðjuna opna í allt sumar til að koma á móts við þarfir hinna fötluðu starfsmanna. Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 17.02.2026 var eftirfarandi bókað: Velferðar- og mannréttindaráð samþykkir ofangreinda beiðni og vísar henni til afgreiðslu í bæjarráði. Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindaráðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið. Bæjarráð samþykkir viðbótarútgjöld samtals að fjárhæð kr. 4.500.000 til að standa straum af kostnaði vegna ráðningar sumarafleysingafólks í Fjöliðjunni. Útgjöldunum er mætt með úthlutun fjármagns af deild 20830-4995 og fært á deild 02220-1691. Samþykkt 3:0 Bæjarráð samþykkir viðauka að fjárhæð kr. 4.500.000 vegna framangreindrar ráðstöfunar og vísar málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar. Samþykkt 3:0
|
|
5. 2602-1440 - Ægisbraut 2-4 - leigusamningur Þróttur ehf. óskar eftir breytingum á væntum leigusamningi vegna tafa á afhendingu lóðar við Lækjarflóa 23-25. Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið sem og undir dagskrárliðum nr. 6 og nr. 7. Bæjarráð felur bæjarstjóra frekari úrvinnslu málsins. Samþykkt 3:0
|
|
6. 2601-0228 - Sementsverksmiðjan - áframhaldandi rekstur Erindi Sementsverksmiðjunnar vegna möguleika á áframhaldandi rekstri. Málið hefur verið til úrvinnslu í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar. Bæjarráð felur bæjarstjóra frekari úrvinnslu málsins og lokadrög komi til afgreiðslu á næsta fundi bæjarráðs þann 12. mars nk. Samþykkt 3:0
|
|
7. 2601-0650 : Umsókn um styrk vegna fyrirhugaðra kaupa á björgunarskipi - 2512035 Bæjarráð afgreiddi beiðni Björgunarfélagsins um styrk vegna fyrirhugaðra kaupa félagsins á björgunarskipi á fundi ráðsins þann 15. janúar sl. Í bókun bæjarráðs var bæjarstjóra einnig falið að eiga samskipti við Faxaflóahafnir og var sá þáttur orðaður með eftirfarandi hætti: "Bæjarráð felur bæjarstjóra að eiga samskipti við Faxaflóahafnir um gerð viðbragðsáætlunar og áhættumats fyrir Akraneshöfn í ljósi atburða sem átt hafa sér stað á svæðinu. Á síðasta ári var lögfest breyting við Siglingaverndarlög nr. 50/2004 um að útbúa skuli áhættumat fyrir hafnaraðstöður og verndaráætlun sem Siglingastofnun Ísland þarf að staðfesta. Mikilvægt er að ná utan um áhættu á svæðinu og móta áhættuminnkandi aðgerðir. Bæjarráð leggur mikla áherslu á lykilhlutverk og ábyrgð Faxaflóahafna við slíka vinnu og að hún verði unnin í samvinnu við hagsmunaaðila og viðbragðsaðila." Gunnar Tryggvason hafnarstjóri Faxaflóahafna og Inga Rut Hjaltadóttir sviðsstjóri framkvæmdasviðs sitja fundinn undir þessum dagskrárlið. Bæjarráð þakka Gunnari og Ingu Rut kærlega fyrir komuna á fundinn en farið var yfir mörg sameiginleg hagsmunamál félagsins og Akraneskaupstaðar, svo sem framkvæmdir í Akraneshöfn, nauðsynlegar úrbætur sem ráðast þarf í vegna nýlegs hörmulegs slyss þar er tveir menn voru gripnir af öldu sem gekk yfir garðinn, fyrirhuguð uppbygging starfsemi félagsins á Grundartanga o.fl. Gestir víkja af fundi sem og Sigurður Páll Harðarson.
|
|
8. 2601-1079 : Fjöliðjan - húsnæðismál / Smiðjuvellir 9 - frjáls skráning leigusala Málið hefur verið til úrvinnslu í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar. Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og þjónustusviðs frekari úrvinnslu málsins. Samþykkt 3:0
|
|
9. 2601-1067 - Frístundamiðstöðin Garðavellir - uppgjör vegna uppbyggingar Bæjarráð fjallaði um málið á fundi sínum þann 29. janúar 2026 og fól sviðsstjóra fjármála- og þjónustusviðs frekari úrvinnslu málsins. Golfklúbburinn Leynir hefur óskað eftir endurskoðuná uppgjörssamningnum sem og fyrirliggjandi rekstrarsamningi og að fá að fylgja málinu eftir á fundi bæjarráðs. Dagný Hauksdóttir sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið sem og undir dagskrárliðum nr. 10 til og með 12. Bæjarráð felur sviðsstjórum fjármála- og þjónustusviðs og skóla- og frístundasviðs frekari úrvinnslu málsins. Samþykkt 3:0
|
|
10. 2601-0227 : Hvalfjarðarsveit - þjónustusamningur við Akraneskaupstað vegna bókasafns Bæjarráð afgreiddi málið á fundi sínum þann 29. janúar 2026 og tillaga varðandi umsýslukostnað send til Hvalfjarðarsveitar í kjölfar fundarins. Þar með var heildstæð nálgun um innihald væntsþjónustusamningsins komin fram af hálfu Akraneskaupstaðar. Bæjarráð felur sviðsstjórum fjármála- og þjónustusviðs og skóla- og frístundasviðs frekari úrvinnslu málsins en sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 25. febrúar sl. að ganga til samningsviðræðna við Akraneskaupstað um bókasafnsþjónustu. Ráðgert er að fulltrúar sveitarfélaganna hittist nk. miðvikudag þann 4. mars. Samþykkt 3:0
|
|
11. 2601-0653 - Bíóhöllin - Útboð og samningur 2026 - 2029 (rekstur og umsjón) Útboð á rekstri Bíóhallarinnar hefur verið í vinnslu í stjórnsýslu bæjarráðs. Ástandsskýrsla liggur fyrir sbr. mál nr. 2601-0933 og á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 16. febrúar sl. fól ráðið verkefnastjóra að fara í verðkönnun á minniháttar viðhaldi utanhúss í samræmi við niðurstöður skýrslunnar. Afgreiðslu málsins frestað til næsta fundar bæjarráðs sem fram fer þann 12. mars 2026. Samþykkt 3:0
|
|
12. 2602-1575 : Hljóðkerfi fyrir Akranesvöll Knattspyrnufélag ÍA endurnýjar beiðni sína um að Akraneskaupstaður kaupi nýtt hljóðkerfi fyrir Akranesvöll. Skóla- og frístundaráð tók jákvætt í erindið og vísar málinu til umfjöllunar hjá bæjarráði. Ráðið leggur til að fjárfest verði í færanlegu hljóðkerfi sem nýst getur Akranesvelli og öllu Jaðarsbakkasvæðinu. Hljóðkerfið verði hluti af almennum búnaði íþróttamiðstöðvarinnar og á forræði forstöðumanns íþróttamála- og íþróttamannvirkja. Bæjarráð tekur jákvætt í erindið á þeim forsendum að búnaðurinn verði hluti af almennum búnaði íþróttamiðstöðvarinnar og geti nýst öðrum íþróttafélögum á svæðinu. Samþykkt 3:0 Bæjarráð felur forstöðumanni íþróttamála og íþróttamannvirkja frekari úrvinnslu mála, öflun tilboða o.fl. og málið komi að nýju fyrir bæjarráð þegar það verður tækt til fullnaðarafgreiðslu. Samþykkt 3:0 Dagný Hauksdóttir víkur af fundi.
|
|
13. 2602-1377 : Úttekt á upplýsingatæknimálum Akraneskaupstaðar - Október 2025 Skýrsla ytri ráðgjafa um upplýsingatæknimál var framkvæmd í október 2025. Málið er til úrvinnslu í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar. Málið er til áframhaldandi úrvinnslu í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar og gert ráð fyrir að það komi að nýju fyrir bæjarráð á fundi ráðsins þann 12. mars nk. Samþykkt 3:0 |
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





