Bæjarráð
|
1. 2601-0739 - Mánaðayfirlit 2025 Mánaðayfrlit vegna tímabilsins janúar til og með nóvember 2025. Kristjana Helga Ólafsdóttir fjármálastjóri situr fundinn undir þessum dagskrárlið. Lagt fram. Bæjarráð fagnar að áfram eru batamerki í rekstrinum en vissulega eru til staðar tilteknar áskoranir sem vinna þarf með. Rekstrartekjur fyrir tímabilið janúar til og með nóvember eru að aukast um 4% frá áætlun eða um 517 m.kr. Rekstrargjöldin á tímabilinu eru einnig að aukast og nemur aukningin um 3% eða um 394 m.kr. Tekjuaukning er því umfram gjaldaukningu en áfram verður áhersla á lækkun rektrarkostnaðar. Launaútgjöld eru um 85 m.kr. undir áætlun eða 1,25% en stærsti áhrifaþátturinn gjaldamegin er vegna lífeyrisskuldbindingar en gjaldfærsla tímabilsins er 312 m.kr. umfram áætlun eða um 65%! Ánægjulegt er að sjá tiltekin rekstrarleg batamerki á velferðar- og mannréttindasviði sem náð hefur verið fram án skerðingar í þjónustu. Sem fyrr er rekstur stærsta málaflokksins, þ.e. skóla- og frístundasviðs (fræðslu- og uppeldismál), undir áætlun og nemur um 1,2% eða um 55 m.kr. Þá er búið að greiða upp þá skammtímafjármögnun sem nauðsynlegt var að ráðast í og uppgreiðslan hefur í för með sér lækkun vaxtakostnaðar sem er mikilvægt. Kristjana Helga Ólafsdóttir víkur af fundi. |
|
2. 2601-0228 - Sementsverksmiðjan - áframhaldandi rekstur 2409322 Erindi Sementsverksmiðjunnar vegna möguleika á áframhaldandi rekstri. Athugasemdir bárust í tölvupósti þann 30. janúar 2026. Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfisráðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið. Málið er til áframhaldandi vinnslu í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar. Afgreiðslu frestað til næsta fundar. Samþykkt 3:0 |
|
3. 2602-1265 - Landsþing Samband íslenskra sveitarfélaga á Akureyri 23.09.2026-25.09.2026 Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026 fer fram í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri dagana 23.-25. september nk. Landsþingið hefur æðsta vald í málefnum Sambands íslenskra sveitarfélaga og er haldið árlega, að jafnaði í mars eða apríl. Á því ári sem almennar sveitarstjórnarkosningar eru haldnar er landsþing þó haldið að hausti. Lagt fram. |
|
4. 2602-1181 - Tækifærisleyfi - Árshátíðarball Fjölbrautarskóli Vesturlands 18.02.2026 Sýslumaðurinn á Vesturlandi óskar eftir umsögn fyrir tækifærisleyfi Fjölbrautaskóla Vesturlands vegna árshátíðarballs sem fyrirhugað er þann 18. febrúar næstkomandi. Viðburðurinn stendur yfir frá kl. 21:00 til 00:00. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að leyfi verði veitt umsækjanda með fyrirvara um jákvæðir umsagnir annarra umsagnaraðila. Samþykkt 3:0 |
|
5. 2602-1294 - Hafðu áhrif - Taktu þátt - Átak til hvatningar framboða "Hafðu áhrif - Taktu þátt" er átak Sambands íslenskra sveitarfélaga og Innviðaráðuneytisins og er ætlað að styrkja lýðræðið á sveitarstjórnarstigi. Markmið átaksins er tvíþætt: 1. Hvetja nýtt fólk til þátttöku í stjórnmálum á sveitarstjórnarstigi. 2. Stuðla að áframhaldandi þáttöku núverandi kjörinna fulltrúa. Lagt fram. Bæjarráð tekur undir hvatningu Sambands íslenskra sveitarfélaga og mikilvægi átaksins sem lýtur að þátttöku í sveitarstjórnarmálum. Bæjarráð felur upplýsingafulltrúa Akraneskaupstaðar að birta kynningarefni átaksins á miðlum Akraneskaupstaðar. Samþykkt 3:0 |
|
6. 2601-1118 - Endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð á Akranesi - febrúar 2026 Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 03.02.2026 samþykkti ráðið drög að endurskoðuðum reglum um fjárhagsaðstoð á Akranesi. Málinu var vísað til afgreiðslu í bæjarráði. Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið sem og undir lið nr. 7. Bæjarráð samþykkir að vísa reglunum um fjárhagsaðstoð á Akranesi til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar. Samþykkt 3:0 |
|
7. 2601-1147 - Samræmdar greiðslu til stuðningsfjölskyldna á Vesturlandi Samráðshópur stjórnenda í velferðarþjónustu á Vesturlandi tilnefndi árið 2025 í hóp fagaðila, frá hverju sveitarfélagi, til að yfirfara greiðslur til stuðningsfjölskyldna á svæðinu og leggja fram tillögu að samræmdri gjaldskrá. Verkefnahópurinn fundaði í átta skipti tímabilið október - desember 2025 og hefur nú lagt fram tillögu að samræmdri gjaldskrá sem lögð er fram til kynningar og umræðu. Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs þann 03.02.2026 þakkaði ráðið verkefnahópnum fyrir vel unnin störf. Ráðið samþykkti nýja samræmda gjaldskrá til stuðningsfjölskyldna á Vesturlandi og vísaði málinu til afgreiðslu í bæjarráði. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu um að sett verði samræmd gjaldskrá til stuðningsfjölskyldna á Vesturlandi. Samþykkt 3:0 Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar. Samþykkt 3:0 Hildigunnur Árnadóttir víkur af fundi. |
|
8. 2601-0244 - Fyrirspurn um kaup á Suðurgötu 57 og lóð Suðurgötu 47. 2510186 Bæjarstjórn samþykkti sölu á eigninni á fundi sínum þann 15. janúar 2026. Unnið hefur verið að frágangi kaupsamnings á milli aðila. Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfisráðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi kaupsamning sem er efnislega í samræmi við samþykkt bæjarstjórnar frá 15. janúar sl. og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn f.h. Akraneskaupstaðar. Samþykkt 3:0 Sigurður Páll Harðarson víkur af fundi. |
|
9. 2601-0253 - Stofnframlög - Samningar 2025 Brynja leigufélag Samstarf við Brynju leigufélag varðandi stofnframlög á árinu 2026. Bæjarráð leggur áherslu á að samhliða samstarfi við Brynju leigufélag varðandi stofnframlög á árinu 2026 verði eignasafn Akraneskaupstaðar yfirfarið. Samþykkt 3:0 |
|
10. 2601-1079 - Fjöliðjan - húsnæðismál / Smiðjuvellir 9 Framlenging leigusamnings vegna nota Fjöliðjunnar á húsnæði að Smiðjuvöllum 9 Akranesi. Málið er til áframhaldandi vinnslu í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar. Afgreiðslu frestað til næsta fundar. Samþykkt 3:0 |
|
11. 2602-1377 - Úttekt á upplýsingatæknimálum Akraneskaupstaðar - Október 2025 Skýrsla vegna úttektar á upplýsingatæknimálum Akraneskaupstaðar lögð fram. Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og þjónustusviðs frekari úrvinnslu málsins. Afgreiðslu frestað til næsta fundar. Samþykkt 3:0 |
|
12. 2602-1379 - Húsnæðismál bæjarskrifstofu 2026 Húsnæðismál bæjarskrifstofu. Sviðsstjórar mæta á fund bæjarráðs til að fara yfir stöðuna í húsnæðismálum starfsfólks bæjarskrifstofu. Bæjarráð þakkar sviðsstjórum fyrir veittar upplýsingar og samtalið um þetta mikilvæga atriði. Bæjarráð er meðvitað um að núverandi staðsetning bæjarskristofu er eingöngu til bráðabirgða og að finna þurfi varanlega lausn. Unnið er að útfærslu hugmyndar sem gerir ráð fyrir að staðsetning "ráðhúss" verði á Sementsreit í húsnæði sem yrði samnýtt af Akraneskaupstað og ríkinu en erfitt hefur reynst að fá skýr svör frá ríkinu og ekki síst mögulega tímalínu í þessu sambandi. Bæjarráð fyrir sitt leyti og fyrir hönd allrar bæjarstjórnar leggur áherslu á málið og að reynt verði eftir fremsta megni að varpa skýru ljósi á mögulega framvindu verkefnisins því óvissan í svona málum er eðli máls samkvæmt erfiðust fyrir alla hlutaðeigandi. Vilji bæjarfulltrúa stendur til þess að starfsemi bæjarskrifstofu verði á einum stað með góðum og nútímalegum aðbúnaði fyrir starfsfólk og góðu aðgengi fyrir íbúa. Samþykkt 3:0 Sviðsstjórar víkja af fundi. |
|
13. 2601-0265 - Húsnæðisáætlun 2026 Húsnæðisáætlun Akraneskaupstaðar vegna ársins 2026 hefur farið fyrir tiltekin fagráð og vinnufund bæjarstjórnar. Frestur til að skila inn áætluninni var til 31. janúar en Húsnæðis- og mannvirkjastofnun veitti Akraneskaupstað viðbótarfrest. Bæjarráð samþykkir húsnæðisáætlun Akraneskaupstaðar 2026 og vísar áætluninni til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar. Samþykkt 3:0 |
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafrænt.





