Bæjarráð
Valgarður L. Jónsson, varaformaður bæjarráðs, stýrir fundi í fjarveru Lífar Lárusdóttur formanns.
Einar Brandsson bæjarfulltrúi og varamaður í bæjarráði tekur sæti á fundinum vegna forfalla Lífar
Lárusdóttur.
1. 2601-0739 - Mánaðayfirlit 2025
Mánaðaryfirlit janúar til nóvember 2025.
Lagt fram.
Málið verður áfram til úrvinnslu og verður tekið fyrir á næsta fundi ráðsins þann 12. febrúar nk.
2. 2601-0227 - Hvalfjarðarsveit - þjónustusamningur við Akraneskaupstað vegna bókasafns
Þjónustusamningur Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar vegna Bókasafns Akraness. Erindi
barst frá Hvalfjarðarsveit þann 22. desember sl. þar sem óskað var tiltekinna viðbótarupplýsinga
svo sem um sundurliðun rekstrarkostnaðar undanfarin 6 ár, fjölda virkra bókasafnskorta
undanfarin þrjú ár sundurliðað eftir lögheimiliskráningu, áætluðum umsýslukostnaði vegna
rekstrareiningarinnar (bókasafnsins) og hvort starfsemi innan bókasafns feli í sér aðra þjónustu en
tilgreind er í bókasafnslögum nr. 150/2012. Erindinu var svarað þann 11. janúar sl. að
undanskildum umsýslukostnaðarþættinum.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og þjónustusviðs að senda til Hvalfjarðarsveitar fyrirliggjandi
tillögu varðandi umsýslukostnað.
Bæjarráð hefur væntingar um að samningur milli Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar liggi
fyrir eigi síðar en í febrúar nk. og gildi fyrir rekstrarárið 2026. Bæjarráð, í ljósi fyrirliggjandi
samskipta við Hvalfjarðarsveit, telur rétt að endurskoða fyrri ákvörðun varðandi útgáfu
bókasafnskorta til íbúa Hvalfjarðarsveitar og heimilar að fyrra fyrirkomulag verði tekið upp. Sú
ákvörðun yrði þá fremur endurskoðuð ef svo ólíklega vilji til að sveitarfélögin nái ekki saman um
þjónustusamning varðandi þessa grunnþjónustu sem sveitarfélögum ber að veita.
Samþykkt 3:0
3. 2601-1079 - Fjöliðjan - húsnæðismál / Smiðjuvellir 9 frjáls skráning leigusala - 2011049
Núverandi leigusamningur milli Akraneskaupstaðar (leigutaki) og Faseignafélagsins Smiðjuvöllum 9
ehf. (leigusali) rennur út þann 28. febrúar nk. Leigusali hefur óskað eftir tilteknum breytingum á
leigusamningnum komi til þess að framlenging verði á.
Bæjarráð lýsir yfir vilja til að eiga áfram kost á nýtingu mannvirkisins fyrir hluta af starfsemi
Fjöliðjunnar.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og þjónustusviðs frekari úrvinnslu málsins sem komi að nýju
fyrir bæjarráð er drög að leigusamningi liggja fyrir.
Samþykkt 3:0
4. 2601-1067 - Frístundamiðstöðin Garðavellir - uppgjör vegna uppbyggingar mannvirkisins -
2103335
Uppgjörsamningur milli Akraneskaupstaðar og Golfklúbbsins Leynis vegna uppbyggingar
Frístundamiðstöðvar á Garðavöllum á Akranesi var undirritaður 19. júní 2023. Fulltrúar
Akraneskaupstaðar og Golfklúbbsins áttu fund mánudaginn 26. janúar sl. vegna málsins til að
yfirfara stöðuna.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og þjónustusviðs frekari úrvinnslu málsins og gerir ráð fyrir að
málið verði tekið fyrir aftur á næsta fundi ráðsins sem fram fer þann 12. febrúar nk.
Samþykkt 3:0
5. 2601-1066 - Tækifærisleyfi Super Bowl í sjónvarpi - Útgerðin bar - 09.02.2026
Umsagnarbeiðni frá sýslumanninum á Vesturlandi vegna umsóknar Sigmundar Heiðars Árnasonar
um tækifærisleyfi á Útgerðin bar Stillholti 16-18, Akranesi, aðfararnótt mánudagsins 9. febrúar nk.
frá kl. 01:00 - 04:00 vegna útsendingar á úrslitaleik í bandarískum ruðningi "Super Bowl ".
Áætlaður gestafjöldi er 20 manns. Aðrir umsagnaraðilar eru Heilbrigðiseftirlit Vesturlands, Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar og lögreglan á Vesturlandi.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt en með fyrirvara um jákvæðar
umsagnir annarra umsagnaraðila.
Samþykkt 3:0
6. 2601-0977 - Skógræktarfélag Akraness - styrkbeiðni - 2509152
Styrkbeiðni frá Skógræktarfélagi Akraness barst Akraneskaupstað þann 23. september sl. og var
vísað til fjárhagsáætlunargerðar. Fjárhagsáætlun var afgreidd á fundi bæjarstjórnar þann 9.
desember sl.
Bæjarráð vísar til þess að gert er ráð fyrir fjárveitingu til Skógræktarfélagsins á árinu 2026 samtals
að fjárhæð 2,5 m.kr. og felur sviðsstjóra fjármála- og þjónustusviðs frekari úrvinnslu málsins.
Samþykkt 3:0
7. 2601-1007 - Umsókn um lóð á Grænum iðngörðum
Umsókn um lóð í grænum iðngörðum frá Hæðir þróunarfélag ehf. Sigurður Páll Harðarson
sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs tekur sæti á fundinum og situr einnig undir dagskrárlið nr.
8.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar Lækjarflói 13 til umsækjanda.
Samþykkt 3:0
8. 2601-0324 - Aðgangur að þjónustu í Gámu
Beiðni frá Hvalfjarðarsveit um aðgang að Gámu. Skipulags- og umhverfisráð vísaði málinu áfram til
bæjarráðs þar sem bæjarráð er með alla samninga við Hvalfjarðarsveit í skoðun.
Erindið lagt fram.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og þjónustusviðs að koma á framfæri Hvalfjarðarsveitar
fyrirliggjandi minnisblaði umhverfisstjóra Akraneskaupstaðar varðandi aðgengi Hvalfjarðarsveitar
að þjónustu í Gámu.
Bæjarráð vekur sérstaka athygli á að til að þetta sé yfir höfuð mögulegt þarf Hvalfjarðarsveit að
komi sér upp "appi" sambærilegu því sem Akraneskaupstaður hefur verið með til vinnslu. Það felur í
sér að aðgengi íbúanna er eðli máls samkvæmt í gegnum aðskilin öpp og greiðsla fyrir notkun
(klipp) yrði beint á milli Terra og Hvalfjarðarsveitar. Sú vinna er tímafrek og felur í sér tiltekinn
stofnkostnað. Vinnsla Akraneskaupstaðar vegna þess þáttar er á lokastigi og gert ráð fyrir að
fyrirkomulagið hvað íbúa Akraneskaupstaðar komist til framkvæmda á allra næstu dögum. Það
gæti leitt til þess að þar með lokist fyrir aðra greiðslumöguleika almenning nema í gegnum
"Akranesappið" og þar af leiðandi hafi íbúar Hvalfjarðarsveitar eftir þann tímapunkt ekki lengur
aðgang að svæðinu.
Gert er ráð fyrir að málið kunni að koma að nýju fyrir bæjarráð þann 12. febrúar nk.
Bæjarráð gerir athugasemdir við að Hvalfjarðarsveit hafi ekki beint fyrirspurn um aðgengi að
þjónustunni í upphafi til Akraneskaupstaðar sem eigandi móttökustöðvarinnar Gámu heldur til
Terru sem þjónustuveitanda.
Samþykkt 3:0
Sigurður Páll Harðarson víkur af fundi.
9. 2601-0166 - Íþróttabandalag Akraness - ósk um afnotum af öllu húsnæði Kirkjuhvols
Íþróttabandalag Akraness óskar eftir afnotum af öllu húsnæði Kirkjuhvols þegar Brekkubæjarskóli
hættir notkun á húsinu. Skóla- og frístundaráð tók jákvætt í erindið og vísaði því til umræðu í
skipulags- og umhverfisráði. Skipulags- og umhverfisráð tók jákvætt í samning við
Íþróttabandalagið um afnot af húsnæðinu fyrir aðildarfélög og fól sviðsstjóra áframhaldandi vinnu.
Dagný Hauksdóttir sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið
sem og undir dagskrárliðum nr. 9 til og með 12.
Bæjarráð samþykkir að heimila Íþróttabandalaginu tímabundin afnot af húsinu en að það verði
gert í samráði rekstrarstjóra áhaldahúss og sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs. Fyrirhugað er
að selja húsið og því þarf að gera ráð fyrir uppsagnarfresti sem eigi verði lengri en 6 mánuðir og
kostur ef hann væri þrír mánuðir. Varðandi mögulegan forkaupsrétt bandalagsins þá kemur slíkt til
álita á síðari stigum en rétt að taka fram hið augljósa sem er að vegna staðsetningar hússins yrðu
hagsmunir tengdir starfsemi Heilbrigðisstofnunar Vesturlands væntanlega alltaf í forgrunni áður en
slíkt ákvæði yrði virkjað.
Bæjarráð leggur áherslu á að koma til afnota Íþróttabandalagsins af mannvirkinu yrði
leigufjárhæðin færð sem styrkur en bandalagið þyrfti að standa straum af öllum rekstrarkostnaði,
minniháttar viðhaldi, o.fl. sem nánar yrði útfært í leigusamningi líkt og hefðbundið er.
Hafa þarf samráð við eldvarnareftirlit vegna fyrirhugaðra afnota og tekið fram að
Akraneskaupstaður mun ekki standa straum af neinum kostnaði vegna þeirra ráðstafana sem
kunna að verða settar sem skilyrði vegna fyrirhugaðrar nýtingar.
Bæjarráð felur sviðsstjórum fjármála- og þjónustusvið, skipulags- og umhverfissviðs, mennta- og
menningarsviðs og rekstrarstjóra áhaldahússins frekari úrvinnslu málsins.
Samþykkt 3:0
10. 2512-5753 - KFÍA - Rekstrarsamningur um Jaðarsbakkasvæðið - 2410099
Til vinnslu hefur verið gerð áframhaldandi rekstrarsamningur milli Akraneskaupstaðar og KFÍA
varðandi Jaðarsbakkasvæðið.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi forsendur við gerð áframhaldandi rekstrarsamnings og gerir ekki
athugasemdir við að hluti samningsins, sem lýtur að launakostnaði, taki mið af umsömdum
kjarasamningshækkunum eins og þau liggja fyrir vegna áranna 2026 og 2027. Bæjarráð tekur fram
að eðlilegt er forsendurnar séu sem líkastar því sem almennt gildir hjá Akraneskaupstað við gerð
fjárhagsáætlun gagnvart einstökum stofnunum enda hefði fyrirkomulagið verið með þeim hætti ef
Jaðarsbakkasvæðið teldist áfram hluti af rekstri íþróttamannvirkjanna.
Bæjarráð gerir ráð fyrir að endanleg samningsdrög komi fyrir ráðið er þau liggja fyrir.
Samþykkt 3:0
11. 2601-0832 - Beiðni Brekkubæjarskóla um kaup á hljóðkerfi í sal skólans
Stjórnendur Brekkubæjarskóla óska eftir fjármagni til kaupa á nýju hljóðkerfi í endurbættan sal
skólans. Skóla- og frístundaráð vísar málinu til umfjöllunar hjá bæjarráði.
Bæjarráð samþykkir erindið en hefði talið eðlilegt að kaupin teldust hluti fjárfestingarkostnaði
vegna endurbóta á mannvirkinu.
Að öðrum kosti verða fjármunir til verkefnisins færðir af deild 20830-4660 og á deild 04220-4660
með sameiginlegum viðauka bæjarráðs sbr. meðfylgjandi fylgiskjal.
Samþykkt 3:0
12. 2601-0830 - Beiðni Klifurfélags Akraness um kaup á dýnum
Klifurfélag óskar eftir aðkomu Akraneskaupstaðar við kaup á dýnum í nýja aðstöðu Klifurfélagsins í
íþróttahúsinu á Vesturgötu. Skóla- og frístundaráð vísaði málinu til umfjöllunar hjá bæjarráði.
Bæjarráð samþykkir kaup á dýnum sem teljast hluti af almennum búnaði íþróttamannvirkjanna og
felur Daníel Glad Sigurðssyni forstöðumanni íþróttamála og íþróttamannvirkja frekari úrvinnslu
málsins.
Málið komi að nýju til bæjarráðs er endanlegt verð liggur fyrir svo unnt sé að bóka varðandi
ráðstöfun fjármuna vegna kaupanna með viðauka við fjárhagsáætlun.
Samþykkt 3:0
Dagný Hauksdóttir víkur af fundi.
13. 2601-0379 - Styrkir til menningartengdra verkefna 2026 - 2511054
Alls bárust 32 umsóknir og heildar umsóknarfjárhæð var kr. 24.350.500 en til úthlutunar eru alls kr.
3.520.000.
Nefndin hefur valið 22 verkefni sem hljóta styrk að þessu sinni. Tillögur sendar til bæjarráðs til
endanlegrar ákvörðunar. Nefndin þakkar fyrir áhugann og fjölda umsókna til menningartengdra
verkefna 2026.
Við úrvinnslu var horft til áherslna menningarstefnu Akraneskaupstaðar 2018-2023.
Verkefnastjóra var falið að koma tillögum nefndarinnar um styrkveitingar til afgreiðslu bæjarráðs
sem fer með endanlega ákvörðun úthlutunarinnar.
Vera Líndal Guðnadóttir verkefnastjóri menningarmála tekur sæti á fundinum undir þessum
dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögur um úthlutun styrkjanna sem kynntar verða á heimasíðu
Akraneskaupstaðar.
Samþykkt 3:0
Vera Líndal Guðnadóttir víkur af fundi.
14. 2601-0722 - Tónlistarnám fyrir fullorðið fatlað fólk
Kynning á tillögu um tónlistarkennslu fyrir fatlað fólk í Tónlistarskóla Akraness sem tilraunaverkefni
á vorönn 2026. Ef verkefnið gengur vel sér skólastjóri fyrir sér að búa til stöðu fyrir þetta verkefni
haustið 2026. Hér er um sjálfsprottið og verðmætt verkefni að ræða með það að markmiði að
tryggja aðgengi fatlaðs fólks að tónlistarkennslu. Um er að ræða 20% stöðugildi, um kr. 260.000 á
mánuði eða um kr. 1.200.000 fyrir vorönnina, til að halda utan um verkefnið. Samkvæmt
fyrirliggjandi fjárheimildum TOSKA á vorönn vegna launa er fjárþörfin samtals kr. 600.000 verði
fallist á erindið.
Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs situr fundinn undir þessum
dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir að veita fjármagn til Tónlistarskóla Akraness vegna verkefnisins samtals að
fjárhæð kr. 600.000.Úgjöldunum verður mætt af liðnum 20830-4995 og ráðstafað á deild 04510-
1691. Ákvörðun varðandi haustönn 2026 þarf að liggja fyrir með vorinu og erindið þess efnis þá að
berast bæjarráði. Bæjarráð gerir ráð fyrir að fyrirkomulag varðandi skólagjöld á tíma
tilrauanverkefnisins verði með sama hætti og almennt gildir.
Samþykkt 3:0
Hildigunnur Árnadóttir víkur af fundi.
15. 2601-1101 - Tilnefningar til Skagamanns ársins árið 2025
Tilnefningar til Skagamanns ársins árið 2025 lagðar fram.
Bæjarráð samþykkir útnefningu Skagamanns ársins 2025 sem kynnt verður á Þorrablóti
Skagamanna þann 7. febrúar nk.
Samþykkt 3:0
Fundi slitið, fundargerð samþykkt og undirrituð rafræn





