Fara í efni  

Bæjarráð

3596. fundur 12. júní 2025 kl. 08:15 - 11:30 í Lindinni Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Líf Lárusdóttir formaður bæjarráðs
  • Valgarður L. Jónsson varaformaður
  • Sædís Alexía Sigurmundsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Haraldur Benediktsson bæjarstjóri
  • Steinar Dagur Adolfsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2026 og þriggja ára áætlun vegna tímabilsins 2027-2029

2505217

Forsendur fjárhagsáætlunar 2026 og verk- og tímaáætlun fjárhagsáætlunarvinnunar.
Bæjarráð samþykkir grunnforsendur sem og verk- og tímaáætlun sem lagðar verða til grundvallar við gerð fjárhagsáætlunar vegna rekstrarársins 2026 og þriggja ára áætlunar vegna tímabilsins 2027 til og með 2029.

Samþykkt 3:0

2.Áskorun frá félagi atvinnurekanda vegna fasteignaálagningar á atvinnuhúsnæði

2506059

Áskorun frá félagi atvinnurekanda vegna fasteignaálagningar á atvinnuhúnsnæði. Félagið hvetur sveitarfélögin eindregið til að lækka álagningarprósentu fasteignaskatta og halda þannig sköttum á atvinnuhúsnæði óbreyttum á milli ára.
Áskorun móttekin.

Málið er til skoðunar hjá bæjarráði og endanleg ákvörðun mun liggja fyrir við afgreiðslu fjárhagsáætlunar ársins 2026.

Samþykkt 3:0

3.Brák íbúðafélag hses - ársreikningur 2024

2506068

Brák íbúðafélag hses - ársreikningur 2024.
Lagt fram.

4.Írskir dagar 2025 - tjaldsvæði

2505237

Fyrirkomulag á tjaldsvæðinu á Írskum dögum.

Vera Líndal Guðnadóttir verkefnastjóri menningarmála situr fundinn undir þessum dagskrárlið sem og undir lið nr. 5.
Bæjarráð samþykkir breytingu á aldurstakmarki gesta á tjaldsvæðinu um Írska daga og það verði nú miðað við að þeir þurfi að vera orðnir 20 ára gamlir en ekki miðað við 23 ára aldurinn eins og það hefur verið undanfarin ár. Bæjarráð væntir þess að skipulag og umgjörð rekstraraðila tjaldsvæðisins taki mið af því að vænta má miklum gestafjölda þessa tilteknu helgi.

Samþykkt 3:0

5.Lopapeysan - Írskir dagar - tækifærisleyfi

2505140

Tækifærisleyfi - Írskir dagar 2025 - lopapeysan
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins til umsækjanda en gert er ráð fyrir aldurtakmörkum sem miðast við 20 ár á Lopapeysunni sem verður laugardaginn 5. júlí nk. frá kl. 00:00 til kl. 03:00 (aðfararnótt 6. júlí nk.) og gestafjölda að hámarki 5000.

Þá gerir Akraneskaupstaður heldur ekki athugasemdir við tímasetningar og fyrirkomulag viðburða í aðdraganda helgarinnar en á þeim er gert ráð fyrir sömu aldurstakmörkum en mun minni fjölda en á Lopapeysunni:

Miðvikudaginn 2. júlí frá kl. 20:00 til kl 23:00.
Fimmtudaginn 3. júlí frá kl. 20:00 til kl 23:00.
Föstudaginn 4. júlí frá kl. 20:00 til kl. 03:00 (aðfararnótt 5. júlí).

Akraneskaupstaður vekur athygli leyfisveitanda á að misræmi virðist vera í tímasetningum vegna viðburðar á föstudeginum en í umsóknargögnum kemur fram að hann eigi að standa til miðnættis en samkvæmt upplýsingum frá skipuleggjanda í tölvupósti til Akraneskaupstaðar er gert ráð fyrir að viðburðurinn standi til kl. 03:00 aðfararnótt 5. júlí nk. sbr. hér að framan. Þá er heldur ekki í umsókninni gerð grein fyrir viðburðinum sem fyrirhugaður er á miðvikudeginum þann 2. júlí nk.

Umsögn Akraneskaupstaðar er veitt með fyrirvara um jákvæðar umsagnir slökkviliðstjóra, Heilbrigðiseftirlits, lögreglu og annarra viðbragðsaðila.

Bæjarráð beinir því til leyfisveitanda að aflað verði umsagnar frá Faxaflóahöfnum þar sem hluti þess svæðis sem fyrirhugað er að nýta undir Lopapeysuna er í eigu þeirra.

Samþykkt 3:0

Vera líndal Guðnadóttir víkur af fundi.

6.Útgerðin bar - tækifærisleyfi um lengri opnunartíma á Írskum dögum

2506032

Útgerðin bar - tækifærisleyfi um lengri opnunartíma á Írskum dögum en rekstrarleyfið heimilar opnun til kl. 03:00. Sótt er um heimild til að hafa opið til kl. 04:30 aðfaranætur 5. og 6. júlí nk.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu tækifærisleyfis til umsækjanda en með fyrirvara um jákvæða umsögn slökkviliðsstjóra, Heilbrigðiseftirlits og annarra viðbragðsaðila en um er að ræða beiðni um lengri opnunartíma aðfararnætur laugardagsins 5. júlí nk. og sunnudagsins 7. júlí nk. til kl. 04:30 báða dagana.

Samþykkt 3:0

7.Líkamsrækt á Jaðarsbökkum

2501063

Áframhaldandi vinna, undirritun samnings o.fl.

Dagný Hauksdóttir sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs og Daníel Glad Sigurðusson, forstöðumaður íþróttamála og íþróttamannvirkja sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.

Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið sem og undir liðum nr. 8 og nr. 9.
Bæjarráð samþykkir lokun þrekasalar að Jaðarsbökkum frá og með þann 26. júní nk en áætlanir gera ráð fyrir afhendingu til nýs rekstraraðila (Laugar ehf.) frá 1. júlí nk.

Bæjarráð samþykkir endurgreiðslu til korthafa sem eiga gild kort í þrek og þrek/sund, hlutfallslega miðað við það sem ónýtt verður vegna breytinganna.

Bæjarráð felur sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs og forstöðumanni íþróttamála og íþróttamannvirkja frekari úrvinnslu málsins og gert ráð fyrir frekari upplýsingagjöf um þennan þátt á heimasíðu og samfélagsmiðlum Akraneskaupstaðar innan tíðar.

Samþykkt 3:0

Dagný Hauksdóttir og Daníel Glad Sigurðsson víkja af fundi.

8.Ræsting stofnana - útboð 2026

2410074

Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs þann 27. maí 2025 en málinu því vísað til næsta reglulega fundar bæjarráðs.

Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Arnór Már Guðmundsson verkefnastjóri á skipulags- og umhverfissviði sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðsgögn og felur verkefnastjóra skipulags- og umhverfissviðs ásamt sviðsstjórum skipulags- og umhverfissviðs og stjórnsýslu- og fjármálasviðs frekari úrvinnslu málsins.

Samþykkt 3:0

Arnór Már Guðmundsson verkefnastjóri víkur af fundi.

9.Vatnsmál á Akranesi - athugasemdir

2310137

Bréf varðandi vatnsmál á Akranesi o.fl.
Lagt fram.

Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs taka saman fyrirliggjandi samskipti vegna málsins m.a. með tilliti til þeirra spurninga sem erindreki telur enn ósvarað eða óskar nánari skýringar á.

Afgreiðslu málsins frestað til næsta reglulega fundar bæjarráðs.

Samþykkt 3:0

Sigurður Páll Harðason víkur af fundi.

10.Gott að eldast, aðgerðaráætlun um þjónustu við fólk með heilabilun

2410206

Á fundi bæjarráðs þann 13.03.25 samþykkti bæjarráð að samið yrði við verktaka um þjónustu við heilabilaða og aðstandendur þeirra til 3ja mánaða (mars til með maí). Bókað var að málið kæmi aftur fyrir fund bæjarráðs í maí þar sem tekin yrði ákvörðun um áframhaldandi þjónustu verktaka. Á þeim tímapunkti er einnig von um að upplýsingar um aðkomu ríkins í þessum málaflokki liggi fyrir.



Líf Lárusdóttir víkur af fundi og tekur ekki frekari þátt í afgreiðslu þeirra mála sem eftir eru í dagskránni.
Bæjarráð samþykkir erindið en óskar eftir nánari kynningu á fyrirhugaðri útfærslu þjónustunnar m.a. yfir sumarmánuðina. Þá leggur bæjarráð áherslu á að þrýst sé á frekari svör frá ráðuneytinu m.t.t. fjármögnunar verkefnis af þessum toga sbr. bókun bæjarráðs frá fundi ráðsins nr. 3589 þann 13. mars síðastliðinn.

Samþykkt 2:0

Gert ráð fyrir að Sveinborg Kristjánsdóttir deildarstjóri farsældar fullorðinna geri nánari grein fyrir málinu á næsta reglulega bæjarráðsfundi þann 26. júní nk.

Samþykkt 2:0

11.Stúkuhúsið Kaffi - rekstrarleyfi/veitingarleyfi í flokki II - E Kaffihús.

2506047

Stúkuhúsið Kaffi - rekstrarleyfi/veitingarleyfi.

Fyrirhugaður opnunartími er frá kl. 10:00 til og með 21:00 alla daga.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu veitingaleyfis til umsækjanda sbr. m.a. fyrirliggjandi samþykki forstöðumanns Byggðasafnsins varðandi leyfisumsóknina. Bæjarráð setur þó fyrirvara þess efnis að jákvæðar umsagnir berist frá slökkviliðsstjóra, byggingarfulltrúa, Heilbrigðiseftirliti og lögreglu.

Samþykkt 2:0

Bæjarráð beinir þeim athugasemdum til leyfisveitanda að ósamræmi er í umsóknargögnum varðandi "útiveitingarleyfi" þar sem tilgreindur er sami opnunartími og gildir um "inniveitingar" en merkt við að ekki sé sótt um slíkt leyfi.

Fundi slitið - kl. 11:30.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00