Bæjarráð
Dagskrá
1.Úttekt á rekstri og fjárhag
2312188
Umfjöllun um aðgerðir 2025.
Kristjana Helga Ólafsdóttir fjármálastjóri, Dagny Hauksdóttir sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs, Hildigunnur Árnadóttir sviðsstjóri velferðar- og mannréttindasviðs og Sigurður Páll Harðason sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sitja fundinn undir þessum dagskrárlið.

2.Krafa um stöðvun samningsgerðar vegna rekstur líkamsræktarstöðvar
2505226
Komin er fram krafa frá forsvarsmanni Sporthúsið ehf. um stöðvun samningsgerðar, áskilnað um skaðabætur o.fl. vegna líkamsræktar á Jaðarsbökkum.
Lögð fram greinargerð Landslaga vegna fyrirliggjandi kröfu.
Bæjarráð samþykkir greinargerðina sem svar Akraneskaupstaðar og felur bæjarstjóra frekari úrvinnslu málsins.
Samþykkt 3:0
Bæjarráð samþykkir greinargerðina sem svar Akraneskaupstaðar og felur bæjarstjóra frekari úrvinnslu málsins.
Samþykkt 3:0
3.Sementsreitur útboð á byggingarrétti C4 og E
2505171
Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á fundi sínum þann 22. maí 2025 að leggja til við bæjarráð að bjóða út fyrirliggjandi útboðsgögn á byggingarrétti á Sementsreit. Um er að ræða C4 og E reit.
Bæjarráð fjallaði um málið á fundi sínum þann 27. maí sl. en frestaði afgreiðslu málsins.
Bæjarráð fjallaði um málið á fundi sínum þann 27. maí sl. en frestaði afgreiðslu málsins.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tilboðsgögn dagsett í maí 2025 um að óska eftir tilboðum í byggingarrétt á Sementsreit, reitir C4 og E, sbr. skipulag á Sementsreit.
Lágmarksgjöld í byggingarrétt, gatnagerðargjald innifalið, skulu vera eftirfarandi á hvern heimilaðan brúttófermetra húsnæðis:
Íbúðarhúsnæði kr. 75.000.
Atvinnuhúsnæði kr. 30.000.
Bílakjallari kr. 12.000.
Ofangreind lágmarksgjöld eru sett í samræmi við 2. mgr. 6. gr. gjaldskrár Akraneskaupstaðar fyrir gatnagerðargjald nr. 1543/2022 og skulu verðbætt miðað við byggingarvísitölu sbr. fyrirliggjandi tilboðsgögn.

4.Boðun ársfundar Brákar íbúðafélags hses 11. júní 2025
2505264
Boðun ársfundar Brákar íbúðafélags hses þann 11. júní 2025 kl. 11:30.
Lagt fram.
Fundi slitið - kl. 11:15.
Vinnunni verður framhaldið á næsta fundi bæjarráðs þann 12. júní nk.
Gestir víkja af fundi.