Bæjarráð
Dagskrá
1.Árshlutauppgjör 2025
2505216
Árshlutauppgjör janúar - mars 2025.
Kristjana Helga Ólafsdóttir fjármálastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum dagskrárlið sem og undir lið nr. 2.
Kristjana Helga Ólafsdóttir fjármálastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum dagskrárlið sem og undir lið nr. 2.
2.Fjárhagsáætlun 2026 og þriggja ára áætlun vegna tímabilsins 2027-2029
2505217
Drög að tímaáætlun vegna fjárhagsáætlunarvinnu vegna ársins 2026.
Lagt fram.
Gert ráð fyrir að málið komi að nýju fyrir næsta reglulega fund bæjarráðs þann 12. júní 2025.
Kristjana Helga Ólafsdóttir víkur af fundi.
Gert ráð fyrir að málið komi að nýju fyrir næsta reglulega fund bæjarráðs þann 12. júní 2025.
Kristjana Helga Ólafsdóttir víkur af fundi.
3.Akstursþjónusta Akraneskaupstaðar 2024
2401211
Drög að útboði akstursþjónustu á Akranesi og staða kostnaðar vegna þjónustu Consensa lögð fram til kynningar.
Hildirgunnur Árnadóttir tekur sæti á fundinum undir þessum dagskrárlið sem og undir lið nr. 4.
Hildirgunnur Árnadóttir tekur sæti á fundinum undir þessum dagskrárlið sem og undir lið nr. 4.
Lagt fram.
4.Barnvænt sveitarfélag - lokaskýrsla og viðurkenning
2505112
Lokaskýrsla Akraneskaupstaðar um innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í gegnum verkefnið Barnvæn sveitarfélög lögð fram til kynningar.
Akranes mun hljóta formlega viðurkenningu sem Barnvænt sveitarfélag þann 2. júní 2025.
Lokaskýrslan hefur verið lögð fram til kynningar fyrir velferðar- og mannréttindaráð, skóla- og frístundaráð og skipulags- og umhverfisráð sem fagna því að Akraneskaupstaður muni brátt hljóta viðurkenningu sem Barnvænt sveitarfélag.

Bæjarráð þakkar fyrir afar vandaða lokaskýrslu og öllum þeim starfsmönnum og bæjarfulltrúum sem hafa komið að vinnunnu undanfarin ár fyrir þá miklu vinnu sem liggur að baki áfanganum en vegferðin hófst á árinu 2021.
Hildigunnur Árnadóttir víkur af fundi.
Hildigunnur Árnadóttir víkur af fundi.
5.Roð ehf - rekstrarleyfi
2505200
Breytt umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis fyrir Roð veitingar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins til umsækjanda með fyrirvara um jákvæðar umsagnir slökkviliðstjóra, Heilbrigðiseftirlits og annarra viðbragðsaðila.
Samþykkt 3:0
Samþykkt 3:0
6.Skógarlundur 17-21 - fyrirspurn um lóðir
2505235
Fyrirspurn frá Bjarnabryggju ehf. um lóðir við Skógarlund 17-21.
Sigurður Páll Harðarson tekur sæti á fundinum undir þessum dagskrárlið sem og undir dagskrárliðum nr. 7 til og með 9.
Sigurður Páll Harðarson tekur sæti á fundinum undir þessum dagskrárlið sem og undir dagskrárliðum nr. 7 til og með 9.
Bæjarráð þakkar erindið en telur samanburð á gatnagerðar- og byggingarréttargjöldum annarra sveitarfélaga ekki gefa sérstakt tilefni til umfjöllunar um breytingar á gjaldskrá fyrir gatnagerðargjald í Akraneskaupstað.
Samþykkt 3:0
Samþykkt 3:0
7.Krafa um stöðvun samningsgerðar vegna rekstur líkamsræktarstöðvar
2505226
Komin er fram krafa frá forsvarsmanni Sporthúsið ehf. um stöðvun samningsgerðar, áskilnað um skaðabætur o.fl. vegna líkamsræktar á Jaðarsbökkum.
Lagt fram.
Unnið er að svörum við erindinu í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar í samvinnu við ytri ráðgjafa.
Samþykkt 3:0
Unnið er að svörum við erindinu í stjórnsýslu Akraneskaupstaðar í samvinnu við ytri ráðgjafa.
Samþykkt 3:0
8.Sementsreitur útboð á byggingarrétti C4 og E
2505171
Skipulags- og umhverfisráð samþykkti á fundi sínum þann 22. maí 2025 að leggja til við bæjarráð að bjóða út fyrirliggjandi útboðsgögn á byggingarrétti á Sementsreit. Um er að ræða C4 og E reit.
Arnór Mór Guðmundsson verkefnastjóri á skipulags- og umhverfissviði situr fundinn undir þessum dagskrárlið sem og undir lið nr. 9.
Arnór Mór Guðmundsson verkefnastjóri á skipulags- og umhverfissviði situr fundinn undir þessum dagskrárlið sem og undir lið nr. 9.
Lagt fram.
Afgreiðslu málsins frestað til næsta fundar bæjarráðs.
Samþykkt 3:0
Afgreiðslu málsins frestað til næsta fundar bæjarráðs.
Samþykkt 3:0
9.Ræsting stofnana - útboð 2026
2410074
Útboðsgögn vegna ræstinga stofnunum Akraneskaupstaðar.
Lagt fram.
Afgreiðslu málsins frestað til næsta reglulega fundar bæjarráðs.
Samþykkt 3:0
Sigurður Páll Harðarson og Arnór Már Guðmundsson víkja af fundi.
Afgreiðslu málsins frestað til næsta reglulega fundar bæjarráðs.
Samþykkt 3:0
Sigurður Páll Harðarson og Arnór Már Guðmundsson víkja af fundi.
10.298. mál til umsagnar - veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða - frestur til og með 28. maí
2505131
Alþingi 298. mál til umsagnar - veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða - frestur til og með 28. maí 2025.
Lagt fram.
11.Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja) frestur er til 9. júní nk.
2505132
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja) frestur til að veita umsögn er til 9. júní nk.
Lagt fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna drög að umsögn.
Samþykkt 3:0
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna drög að umsögn.
Samþykkt 3:0
12.Frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum (endurskoðun sveitarstjórnarlaga).frestur til að veita umsögn er til 9. júní nk.
2505133
Frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum (endurskoðun sveitarstjórnarlaga) frestur til að veita umsögn er til 9. júní nk.
Lagt fram.
Bæjarráð gerir ráð fyrir að umsögn verði veitt af hálfu Samband íslenskra sveitarfélaga.
Bæjarráð gerir ráð fyrir að umsögn verði veitt af hálfu Samband íslenskra sveitarfélaga.
13.Aðalfundur Faxaflóahafna sf. 4. júní 2025
2505166
Aðalfundur Faxaflóahafna sf. verður miðvikudaginn 4. júní 2025 kl. 15:00
Lagt fram.
Fulltrúar Akraneskaupstaðar á aðalfundinum verða Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri, sem fer með umboð eigenda vegna atkvæðagreiðslu og Guðmundur Ingþór Guðjónsson, bæjarfulltrúi og stjórnarmaður Akraneskaupstaðar í stjórn Faxaflóahafna sf.

Fundi slitið - kl. 14:15.
Árshlutauppgjör fyrsta ársfjórðungs sýnir ótvíræð batamerki á rekstri bæjarsjóðs Akraneskaupstaðar. Bæjarráð fagnar þessu og þakkar stjórnendum og starfsfólki bæjarins og stofnana hans fyrir að hafa brugðist vel við ákalli bæjarfulltrúa um aðhald í rekstri. Enn er þó langt í land að við náum að snúa við rekstri bæjarsjóðs og uppfylla þau fjárhagslegu markmiðum sem sett hafa verið og samþykkt af bæjarstjórn, því hvetur bæjarráð stjórnendur og forstöðumenn til að halda áfram góðu verki við að halda aftur af rekstrarkostnaði Akraneskaupstaðar.
Samþykkt 3:0