Fara í efni  

Bæjarráð

3593. fundur 15. maí 2025 kl. 08:15 - 11:40 í Lindinni Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Valgarður L. Jónsson varaformaður
  • Ragnar B. Sæmundsson aðalmaður
  • Einar Brandsson varamaður
Starfsmenn
  • Haraldur Benediktsson bæjarstjóri
  • Steinar Dagur Adolfsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri
Dagskrá

1.Launaviðaukar - fjárhagsáætlun 2025

2505078

Endurreikningur kjarasamninga í launaáætlun 2025.
Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun ársins 2025 samtals að fjárhæð kr. 393.200.733 sem er tilkomin vegna endurreiknings launa vegna kjarasamninga aðildarfélaga Kennarasambands Íslands, Bandalags háskólamanna og Félags slökkviliðsmanna. Útgjöldunum er mætt með fjármagni af deild 20830-1691, að fjárhæð kr. 200.000.000, af deild 31860-5755 að fjárhæð kr. 53.000.000, og með lækkun á áætlaði rekstrarniðurstöðu ársins 2025, að fjárhæð kr. 140.200.733.

Samþykkt 3:0

Bæjarráð vísar viðaukanum til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Samþykkt 3:0

2.Fjárhagsáætlun 2025 - viðaukar

2503256

Viðauki nr. 5 vegna viðhalda áhalda.
Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun ársins 2025 samtals að fjárhæð kr. 34.890.506 en við innlestur fjárhagsáætlunar í fjárhagskerfið kom upp villa á deild 4660 - viðhald áhalda - þvert á rekstrareiningar Aðalsjóðs sem gaf ranga niðurstöðu á nánast öllum deildum. Útgjöldunum er mætt með fjármagni af deild 31860-5755 að fjárhæð kr. 34.890.506.

Samþykkt 3:0

Bæjarráð vísar viðaukanum til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.

Samþykkt 3:0

3.Garðavöllur - aðgengi viðbragðsaðila

2505113

Aðgengismál viðbragðsaðila að Garðavelli vegna óhappa, slysa eða veikinda.

Framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis hefur óskað eftir samtali vegna atviks sem upp kom fyrr í þessari viku.

Bæjarráð þakkar Rakel Óskarsdóttur fyrir komuna og samtalið.

Fyrirhugaður er fundur fulltrúa Golfklúbbsins Leynis (GL) og viðbragðsaðila en aðilarnir hafa þegar verið í samskiptum vegna málsins. Í framhaldinu er gert ráð fyrir að GL skili inn tillögum til bæjarráðs um bætt aðgengi viðbragðsaðila að Garðavellum.

Samþykkt 3:0

4.270. mál til umsagnar - Jöfnunarsjóður sveitarfélaga - frestur til og með 13. maí 2025

2504191

Til umsagnar 270. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis - Jöfnunarsjóður sveitarfélaga - frestur Akraneskaupstaðar til að skila umsögn hefur verið framlengdur til 16. maí nk.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að umsögn Akraneskaupstaðar og felur bæjarstjóra frágang hennar og skilum til nefndasviðs Alþingis.

Samþykkt 3:0

5.351. mál til umsagnar - frumvarp til laga um veiðigjald - frestur til og með 26. maí

2505106

351. mál til umsagnar - frumvarp til laga um veiðigjald (aflaverðmæti í reiknistofni) frestur til og með 26. maí 2025.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að umsögn Akraneskaupstaðar og felur bæjarstjóra frágang hennar og skilum til nefndasviðs Alþingis.

Samþykkt 3:0

6.Tækifærisleyfi vegna pílumóts 3. og 4. júlí 2025

2504147

Sýslumaðurinn á Vesturlandi óskar eftir umsögn vegna umsóknar Keilufélags Akraness um tækifærisleyfi vegna pílumóts þann 3. og 4. júlí 2025.

Umsókn hafði áður borist en rangur aðili skráður sem umsóknaraðili af leyfisveitanda.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins til umsækjanda með þeim fyrirvara að jákvæðar umsagnir berist frá slökkviliðsstjóra, Heilbrigðiseftirliti og öðrum viðbragðsaðilum (umsagnaraðilum).

Samþykkt 3:0

7.Húsmæðraorlof 2025 - framlag sveitarfélaga til orlofsnefnda

2504199

Erindi Sambands borgfirskra kvenna vegna húsmæðraorlofs 2025.
Bæjarráð telur gildandi löggjöf um húsmæðraorlof nr. 53/1972 í hróplegri mótsögn við nútímasjónarmið um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna sbr. lög nr. 150/2020 og mun, sem fyrr, senda áskorun á Alþingismenn um að beita sér fyrir afnámi löggjararinnar.

Bæjarráð synjar erindinu.

Samþykkt 3:0

8.Brú hses - Skógarlundur 42, stofnframlag vegna íbúðakjarna 2023

2303217

HMS - Erindi/tilkynning Húsnæðis- og mannvirkjarstofnunar (HMS) um tilnefningu tímabundins eftirlitsmanns vegna skoðunar málefnis leigufélagsins Brúar hses. vegna stofnframlags.
Lagt fram.

Bæjarráð felur bæjarstjóra frekari úrvinnslu málsins í samvinnu við HMS.

Samþykkt 3:0

Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að fylgja málinu eftir fyrir notendaráði.

Samþykkt 3:0

9.Sólmundarhöfði 2 - Árnahús

2301245

Málefni Árnahúss - endurnýjun húss, hlöðu og fleira. Erindi dags. 5. maí 2025.
Bæjarráð vísar erindi til umsagnar stjórnar Höfða.

Samþykkt 3:0

10.Fundir bæjarráðs 2025

2504070

Næsti reglulegi fundur bæjarráðs samkvæmt samþykktri fundaáætlun vegna ársins 2025 er þann 29. maí nk. sem er lögboðinn frídagur.
Næsti reglulegi fundur bæjarráðs verðu þann 27. maí nk. kl. 13:00 en ekki þann 29. maí nk. sem er lögboðinn frídagur.

Samþykkt 3:0

Fundi slitið - kl. 11:40.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00