Bæjarráð
1.Allsherjarþing Evrópusamtaka sveitarfélaga - CEMR
1207021
2.Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2012
1202024
Lögð fram.
3.Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi - fundargerðir 2012.
1203022
Lögð fram.
4.Sorpurðun Vesturlands - fundargerðir 2012
1206079
Lögð fram.
5.Höfði - fundargerðir 2012
1201438
Lögð fram.
6.Starfshópur um atvinnumál - 20
1206006
Lögð fram.
7.Skipulags- og umhverfisnefnd - 70
1206018
Lögð fram.
8.Stjórn Akranesstofu - 56
1206021
Lögð fram.
9.Einelti heimildarþáttur - Ljósbogi
1206194
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu með vísan til reglna þar um. Umsækjanda er bent á að hægt er að sækja um styrk skv. málsmeðferðarreglum Akraneskaupstaðar um styrkbeiðnir.
10.Stuðningsmenn Skagamanna - styrkur
1207006
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu með vísan til reglna þar um. Umsækjanda er bent á að hægt er að sækja um styrk skv. málsmeðferðarreglum Akraneskaupstaðar um styrkbeiðnir.
11.Rekstrarstaða Akraneskaupstaðar 2012.
1205132
Lagt fram.
12.EFS - Fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga.
1207001
Óskað er eftir áætlun sveitarstjórnar, svör til nefndarinnar skulu berast fyrir 1. september 2012.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra og bæjarritara að fylgja málinu eftir í samræmi við umræður á fundinum.
Einar Brandsson lagði fram eftirfarandi bókun:
,,Hér liggur fyrir bréf eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga þar sem fram kemur sú niðurstaða nefndarinnar að Akraneskaupstaður standist ekki fjárhagslegt viðmið jafnvægisreglu sveitarfélaga. Við fulltrúar Sjálfstæðismanna höfum varað við því, bæði í málflutningi okkar og bókunum, undanfarin misseri að til þessa gæti komið þar sem bæjarsjóður er rekinn með viðvarandi tapi. Við höfum hvatt til þess að farið yrði í sparnaðaraðgerðir til að koma í veg fyrir þá stöðu sem nú er komin upp. Sú ráðstöfun meirihlutans að leggja að minnsta kosti 57 miljónir kr. í kaup og viðhald gamla Landsbankahússins þrátt fyrir að ekki var gert ráð fyrir þeim kaupum á fjárhagsáætlun ber með sér að meirihluti bæjarstjórnar átti sig ekki á þeirri stöðu sem bæjarsjóður stefnir í. Meirihluti bæjarstjórnar verður að bregðast nú þegar við í rekstri sveitarfélagsins og horfast í augu við þær staðreyndir sem hér blasa við. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins munu hér eftir sem hingað til ekki víkjast undan því að taka þátt í þeirri vinnu sem nauðsynleg er ef meirihlutinn falast eftir því."
13.Fasteignamat 2013
1207026
Bæjarráð samþykkir að felur Skipulags- og umhverfisstofu að svara erindinu fyrir tilskilinn frest.
14.Cafe Eyðimörk - rekstrarleyfi
1207004
Bæjarráð getur ekki samþykkt opnunar- og veitingartíma þann sem fram kemur í umsókn um rekstrarleyfi. Vísað er til staðsetningar hússins og þeirrar starfsemi annarrar sem fram fer í nágrenninu og áætlana um uppbyggingu gamla miðbæjarins.
Bæjarráð getur samþykkt opnunartíma til kl. 23:00 alla daga.
15.Orkuveita Reykjavíkur - eigendanefnd
1007020
Bæjarráð samþykkir eigendastefnuna.
Hjördís vill bóka að hún taki undir þá bókun sem fulltrúi Vinstri grænna í borgarstjórn gerði við samþykkt Eigendastefnu Orkuveitu Reykjavíkur og áréttar að jafnvel þótt Gagnaveita Reykjavíkur heyri ekki undir kjarnastarfsemi fyrirtækisins, þá gegni hún ekki síður almannahlutverki en önnur veitustarfsemi Orkuveitunnar. Hún á því bæði að vera í eigu og á forræði almennings. Vinstri græn leggja þunga áherslu á að eigendur hefji þegar samtal við ríkisvaldið um undirbúning sameiginlegs grunnnets sem Gagnaveitan yrði þá hluti af.
16.Starfsmannamál Brekkubæjarskóla
1010199
Greinargerð bréfritara lögð fram. Bæjarráð vísar til svara starfsmanna- og gæðastjóra til bréfritara, dags.20. júní 2012 og 4. júlí 2012.
Bæjarráð bendir bréfritara á að engin ákvörðun í skilningi stjórnsýslureglna hefur verið tekin í málinu heldur lauk því með sátt málsaðila skv. fyrirliggjandi upplýsingum og fyrir milligöngu forseta bæjarstjórnar. Bæjarstjórn fól forseta bæjarstjórnar meðferð málsins vegna vanhæfisaðstæðna er vörðuðu bæjarstjóra.Bæjarráð felur starfsmanna- og gæðastjóra að senda bréfritara þær upplýsingar sem hann óskar eftir og á rétt á skv. viðeigandi lögum og reglum að því marki sem þær hafa ekki þegar verið sendar umbjóðanda hans.
Þá vekur bæjarráð athygli bréfritara á að telji umbjóðandi bréfritara sig órétti beittan við meðferð málsins eða hvað varðar niðurstöðu þess, þ.e. sáttina sem varð í málinu, þá geti hann freistað þess að leita með málið til aðila sem hafi eftirlit með stjórnsýslu sveitarfélaga lögum samkvæmt og/eða dómstóla.
17.Grundaskóli - hvatningarverðlaun
1207019
Lagt fram.
18.Smiðjuvellir deiliskipulag - (Kalmansvellir 6)
1204088
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulags- og umhverfisnefndar í umboði bæjarstjórnar Akraness.
19.Samningur um heimakstur máltíða fyrir elli- og örorkuþega.
1001075
Minnisblað verkefnisstjóra heimaþjónustu, dags. 12. júlí 2012.
Bæjarráð samþykkir erindið.
Fundi slitið - kl. 17:30.
Lagt fram.