Fara í efni  

Bæjarráð

3411. fundur 14. apríl 2020 kl. 10:00 - 14:45 í bæjarþingsalnum, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
  • Elsa Lára Arnardóttir formaður
  • Valgarður L. Jónsson varaformaður
  • Rakel Óskarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri
  • Steinar Dagur Adolfsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri
Dagskrá

1.Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2019 - A hluti

2004036

Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2019 - A hluti
1.1 Aðalsjóður
1.2 Eignasjóður
1.3 Byggðasafnið í Görðum
1.4 Fasteignafélag Akraneskaupstaðar

Jóhann Þórðarson endurskoðandi og Þorgeir Hafsteinn Jónsson fjármálastjóri koma inn á fundinn undir þessum lið.
Rekstrarniðurstaða A-hluta, fyrir óreglulega liði, er jákvæð um 623,1 m.kr. en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir um 243,8 m.kr. jákvæðri rekstrarniðurstöðu.

Rekstrarniðurstaða A-hluta með óreglulegum liðum er jákvæð um 657,6 m.kr. en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir um 367,3 m.kr. jákvæðri rekstrarniðurstöðu.

Lykiltölur:
Fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga:
Rekstrarjöfnuður síðustu þriggja ára í mkr. er 1.718 en nam 1.183 m.kr árið 2018.
Skuldaviðmið er 23% en var 26% árið 2018.
EBITDA framlegð er 8,38% en var 11,7% árið 2018.
Veltufé frá rekstri er 16,84% en var 21,4% árið 2018.
Skuldahlutfall (skuldir/rekstrartekjum) er 89% en var 92% árið 2018.
Eiginfjárhlutfall er 57% en var 55% árið 2018.
Veltufjárhlutfall er 2,33 en var 2,75 árið 2018.

Bæjarráð staðfestir ársreikninga Aðalsjóðs og Eignasjóðs með undirritun sinni og leggur til við bæjarstjórn Akraness að ársreikningar Aðalsjóðs, Eignasjóðs, Byggðasafnsins í Görðum og Fasteignafélags Akraneskaupstaðar slf. verði samþykktir.

2.Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2019 - B-hluti

2004035

Ársreikningur Akraneskaupstaðar - B hluti
2.1. Fasteignafélag Akraneskaupstaðar ehf.
2.2. Gáma
2.3. Háhiti ehf.
2.4 Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili

Jóhann Þórðarson endurskoðandi og Þorgeir Hafsteinn Jónsson fjármálastjóri koma inn á fundinn undir þessum lið.
Rekstrarniðurstaða B-hluta var neikvæð um 1,9 m.kr. en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir um 12,9 m.kr. neikvæðri rekstrarniðurstöðu.

Bæjarráð staðfestir ársreikning Gámu með undirritun sinni og leggur til við bæjarstjórn Akraness að ársreikningar Fasteignafélagsins ehf., Gámu, Háhita ehf. og Höfða hjúkrunar og dvalarheimilis verði samþykktir.

3.Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2019 - samstæða

2004034

Samstæðureikningur Akraneskaupstaðar 2019.

Jóhann Þórðarson endurskoðandi og Þorgeir Hafsteinn Jónsson fjármálastjóri koma inn á fundinn undir þessum lið.
Samstæðureikningur Akraneskaupstaðar 2019 ásamt ábyrgðar- og skuldbindingayfirliti 2019.

Rekstrarniðurstaða Akraneskaupstaðar, fyrir óreglulega liði, var jákvæð um 621,2 m.kr. en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir um 231,0 m.kr. jákvæðri rekstrarniðurstöðu.

Rekstrarniðurstaða Akraneskaupstaðar með óreglulegum liðum var jákvæð um 655,6 m.kr. en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir um 354,4 m.kr. jákvæðri rekstrarniðurstöðu.

Lykiltölur:
Fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga:
Rekstrarjöfnuður síðustu þriggja ára í m.kr. er 1.721 en nam 2.081 m.kr. árið 2018.
Skuldaviðmið er 23% en var 26% árið 2018.
EBITDA framlegð er 7,83% en var 10,80% árið 2018.
Veltufé frá rekstri er 15,27% en var 19,49% árið 2018.
Skuldahlutfall (skuldir/rekstrartekjum) er 84% en var 87% árið 2018.
Eiginfjárhlutfall er 55% en var 53% árið 2018.
Veltufjárhlutfall er 2,19 en var 2,52 en árið 2018.

Bæjarráð staðfestir samstæðuársreikning Akraneskaupstaðar með undirritun og leggur til við bæjarstjórn Akraness að reikningurinn og ábyrgðar- og skuldbindingayfirlit vegna ársins 2019 verði samþykkt.

4.Aðgerðir Akraneskaupstaðar vegna Covid-19

2003133

Aðgerðir Akraneskaupstaðar til viðspyrnu við Covid-19.
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi ráðstafanir til viðspyrnu vegna Covid-19 faraldursins.

1. Aukið fjármagn i sjóð tómstunda- og íþróttafélaga til að halda uppi öflugu félags-, tómstunda og íþróttastarfi fyrir börn og unglinga. Samtals kr. 4.500.000 sem skal ráðstafa á deild 06750-5948.

2. Fjármagn til heilsueflingar íbúa Akraness 18 ára og eldri (kr. 5.000 hreyfiseðill á hvern íbúa). Samtals kr. 15.000.0000 sem skal ráðstafað á deild 06700-5948.

3. Aukið fjármagn til viðburðarhalds í menningarmálum. Samtals kr. 3.000.000 sem skal ráðstafað á deild 05770-4950.

4. Aukið fjármagn i styrktarsjóð menningarmála. Samtals kr. 1.500.000 sem skal ráðstafað á deild 05890-5948.

5. Fjármagn til sérstaks markaðsátaks á Akranesi. Samtals kr. 4.000.000 sem skal ráðstafað á deild 13020-5948.

6. Fjármagn til nýsköpunar og tækni í innleiðingu rafrænnar þjónustu hjá Akraneskaupstað og opnað fyrir aðkomu frumkvöðla til nýsköpunar. Samtals kr. 10.000.000 sem skal ráðstafað á deild 13020-4390.

Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 9 við fjárhagsáætlun ársins 2020 að upphæð samtals kr. 38.000.000. Kostnaðarauka verður mætt með lækkun á áætluðum rekstrarafgangi.

Bæjarráð vísar viðaukanum til staðfestingar í bæjarstjórn Akraness.

5.Viðhald fasteigna

2004027

Viðhaldsverkefni stofnana Akraneskaupstaðar sem unnt er að ráðast í á árinu 2020
Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 10 að fjárhæð kr. 54.000.000 vegna aukinna viðhaldsframkvæmda á árinu 2020 sem skal ráðstafað á inn á 31830-4620.

Kostnaðarauka verður mætt með lækkun á áætluðum rekstrarafgangi.

Bæjarráð vísar viðaukanum til staðfestingar í bæjarstjórn Akraness.

6.Leikskóli hönnun

1911054

Skóla- og frístundaráð leggur til að skipaður verður vinnuhópur sem sé skipaður starfsmönnum skóla- og frístundasviðs, skipulags- og umhverfissviðs og stjórnendum leikskóla.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skipa vinnuhóp embættismanna um verkefnið.

Tillögur vinnuhópsins verði lagðar fyrir skipulags- og umhverfisráð, skóla- og frístundaráð og bæjarráð.

Gert er ráð fyrir að vinnuhópurinn skili af sér tillögum eigi síðar en 15. júní næstkomandi.

7.Stofnanalóðir - arkitektaútboð

2001204

Skóla- og frístundaráð leggur til að stofnaður verði vinnuhópur sem fylgir verkinu eftir allt hönnunartímabilið og hann verði skipaður starfsmönnum skóla- og frístundasviðs, skipulags- og umhverfissviðs og stjórnenda grunnskóla.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skipa vinnuhóp embættismanna um verkefnið.

Tillögur vinnuhópsins verði lagðar fyrir skipulags- og umhverfisráð, skóla- og frístundaráð og bæjarráð.

Gert er ráð fyrir að vinnuhópurinn skili af sér tillögum eigi síðar en 15. maí næstkomandi. Bæjarráð leggur áherslu á að samráð verði haft við nemendur um útfærslu lóðanna.

Fundi slitið - kl. 14:45.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00